Fréttablaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 36
6. október 2011 FIMMTUDAGUR4
Fallega
Jólaskeiðin
frá Ernu
Verð 16.500,-
ERNA
Skipholti 3, s.552 0775, erna.is
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16
www.topphusid.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
NÆG BÍLASTÆÐI
TOPPVÖR
UR • TOP
PÞJÓNUS
TA
NÝKOMNAR Í ÚRVALI
ÚLPUR OG KÁPUR
DÚN - OG VATTKÁPUR
50% afsl.
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Krakkadagar
25-40% afsláttur af allri barnavöru
fram á laugardag
sendum frítt
www.lindesign.is
Börnin
leika í
barna
hornin
u og
fá fría
n rúm
fatnað
fyrir d
úkkun
a
Ármúla 18, 108 Reykjavík
Sími 511-3388
Opið mán-fös 9-18, lau 11-15
STÆKKUNAR-
GLERSLAMPAR
HAUST Í SKARTHÚSINU
Ný sending af loðtreflum.
Einnig mikið úrval af hringtreflum,
höttum og vettlingum
Mikið úrval af nýjum skartgripum
- flott fyrir árshátíðina.
Þrátt fyrir stríð og alheimsböl í efnahags-málum þá er haldin tískuvika í París. Ekki
dugir það þó til að eyða krón-
ískri depurð Frakka og stemn-
ingin var misjöfn eftir því
hjá hverjum litið var inn. Hjá
Balenciaga lá meira að segja við
stórslysi fyrir tískusýninguna
þar sem bekkir, ætlaðir gestum,
hrundu rétt fyrir sýningu. Til
að taka enga áhættu með það
stjörnuflóð sem mætt var á sýn-
inguna stóðu allir upp. Frekar
fyndið þegar VIP-gestirnir
eru vanir að sitja sem fastast á
fremsta bekk. Annars má það
segja af hönnun Nicolas Ghes-
quière, sem hefur í þrettán ár
endurlífgað hið gamla tískuhús
Balenciaga, að hún er ekki eins
pönkuð og ögrandi og undan-
farið (kreppan?). Buxur eru
háar í mittið sem hentar konum
með frjálsleg form betur og
jakkar með ýktum öxlum. Mikið
um ferskjubleikt og lavender-
blátt. Allar línur eru mjög í
anda arkitektúrtísku Balen-
ciaga. Jean-Paul Gaultier virtist
í góðu skapi og kannski ánægð-
ur yfir að vera laus frá Hermès
en hann hannar nú eingöngu
fyrir sitt eigið tískuhús. Ekki
oft sem fyrirsæturnar brosa og
hlæja en þær virtust vera kátar,
klæddar í helstu uppfinningar
Gaultiers í gegnum tíðina eins
og „trenchinn“ og korselettið
og í stað munsturs í efninu voru
þau prentuð á bera húðina, líkt
og húðflúr. Nýjungin eru nær-
föt. Stíllinn mjög Parísarlegur
eftir stríð og gestir eins og bak-
sviðs að fylgjast með öllu. Hver
fyrirsæta með númer og engin
tónlist.
Hjá Dior er enn beðið eftir
nýjum hönnuði eftir brott-
rekstur Johns Galliano í mars
og héldu margir að á tískuviku
myndi loksins Marc Jacobs taka
við og biðu yfirlýsingarinnar á
sýningu Diors – en ekkert gerð-
ist. Eins og á hátískusýningu
vetrarins í júlí var það starfs-
fólk vinnustofu Diors sem hann-
aði, án listræns stjórnanda. Í
júlí var þetta hálfmisheppnað
því engin heildarmynd var á
hönnuninni. Að þessu sinni
mátti sjá heildarmynd en það
voru gamlar lummur sem voru
sýndar eins og „bar“-kjóllinn
frægi, gerður af Christian sjálf-
um á sjötta áratugnum sem var
í ýmsum útgáfum. Skrýtið að
salan í búðum Diors virðist þó
ekkert dofna, án hönnuðar. Í það
minnsta fóru rússneskar konur
að vanda með bílfarma af loð-
feldum til Moskvu frá Cannes í
sumar úr Diorbúðinni. Galliano
með blýantinn, eða ekki, breytti
þar engu. Spurning hvort
stjörnukerfið í tískuheiminum,
þar sem einstaklingur, helst
karlkyns og oft í slúðurdálk-
unum, er við stjórn, sé aðeins
misskilningur?
bergb75@free.fr
Hlátur hjá Gaultier en depurð hjá Dior
Japanski hönnuðurinn Yoshiyuki Miyamar á
heiðurinn að þessu vægast sagt sér-
kennilega höfuðfati sem minnir einna
helst á afskorin blóm. Það er hluti af
væntanlegri línu frá Issey Miyake.
Selshamur og skegghúfa frá
Vík Prjónsdóttur eru meðal
muna sem valdir voru til
sýninga á Budapest Design
Week sem stendur nú yfir.
Alls sýna 85 hönnuðir frá 29
Evrópulöndum vörur sínar á
Budapest Design Week sem fer
nú fram í áttunda sinn en á sýn-
ingunni má sjá húsgögn, ljós og
vöruhönnun
Þær vörur sem valdar voru á
sýninguna byggja meðal annars
á þjóðsögum, gamalgrónu hand-
verki og staðbundinni fram-
leiðslu. Vík Prjónsdóttir hannar
vörur sínar í sam-
vinnu við prjóna-
stofuna í Vík í Mýr-
dal og hefur vakið
athygli á sýn-
ingunni fyrir
skemmti-
lega nálg-
un. Meðal
annars má
l e s a u m
sýninguna
á blog.art-
sthread.
com.
Vík Prjóns í
Búdapest
Selshamur
frá Vík
Prjónsdóttur
vekur athygli
í Ungverja-
landi.
Ferðamálaskóli Íslands www.menntun.is Sími 567 1466
Meðal námsefnis:
Mannleg samskipti.
Helstu áfangastaðir
erlendis í máli og
myndum.
Mismunandi
trúarbrögð.
Saga landsins,
menning og listir.
Frumbyggjar og saga
staðarins.
Þjóðlegir siðir og hefðir.
Leiðsögutækni og ræðumennska.
Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan.
Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra
í leiðsögn á erlendri grund.
Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson,
Jóhanna Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Magnús Björnsson,
Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Sr. Bragi Skúlason.
Fararstjórn erlendis
www.france24.com
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá Nice