Fréttablaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 66
6. október 2011 FIMMTUDAGUR42
Sigurvegarar velja Sci-MX
óskar KR innilega til hamingju með Íslands-og bikarmeistaratitlana.
Hágæða evrópsk fæðubótarefni
Dans ★★★★
Fullkominn dagur til drauma
Höfundur: Anton Lachky. Flytjandi:
Íslenski dansflokkurinn.
Fullkominn dagur til drauma
er fyndið verk á dramatískum
nótum. Í því teflir Anton Lachky
saman meira en hundrað ára
gamalli hádramatískri kaþólskri
kirkjutónlist, sálumessum Verdis
og Cherubini og gamansömum
nútímadansi. Þessa blanda heppn-
ast með ólíkindum vel og á þeim
60 mínútum sem verkið stendur
er það aðeins rétt í einum kafla
í fyrri hluta verksins sem maður
fær á tilfinninguna að tónlistin
beri dansinn ofurliði. Höfundur-
inn notar einnig þögnina á áhrifa-
ríkan hátt. Þegar dansinn fer út
fyrir þann ramma sem tónlistinni
hæfir dregur tónlistin sig hrein-
lega í hlé tilbúin að láta til sín
taka þegar hennar er þörf.
Líkamstjáningin í verkinu er
mjög sterk. Dansararnir nota
ekki aðeins búkinn á mjög ýktan
og krefjandi hátt heldur spilar
andlitstjáningin stórt hlutverk
sem og röddin, þó ekki sem texti
heldur sem hljóð sem verða eins
og viðbót við líkamstjáninguna
sjálfa. Orð Lachky um að dans-
ararnir séu eins og teiknimynda-
fígúrur sem hann síðan vinnur
með lýsa verkinu vel. Allir sem
horft hafa á Tomma og Jenna vita
að það þarf engan texta eða skýr-
ingar með því sem er að gerast í
samskiptum þeirra félaga, líkam-
inn, andlitið og hljóðin sem fylgja
segja allt sem segja þarf.
Uppbygging verksins gerir ráð
fyrir því að hver dansari fái að
njóta sín í sólóparti auk þess að
koma fram í dúetti/um. Hópurinn
var samt aldrei langt undan og
voru allir á sviðinu nánast allan
tímann. Hópatriðin sem komu inn
á milli þá ekki síst í dramatísk-
ustu hlutum tónlistarinnar voru
mjög flott og sýndu hvað hópur-
inn var vel samstilltur. Búning-
arnir gerðu hópatriði líka flott.
Einfaldar svartar buxur og mis-
munandi blússur og skyrtur í
fallegum litum voru mjög smart.
Lýsingin var þannig gerð að
maður tók ekki eftir henni sem
slíkri sem í mínum huga þýðir að
hún hafi passað algjörlega við það
sem fram fór á sviðinu.
Hannes Þór Egilsson fór á
kostum sem aðalfígúra verks-
ins. Atriðin hans, oftast með
Þyrí Huld Árnadóttur og Came-
ron Corbett en einnig með öllum
hópnum, voru eins og rauði þráð-
urinn í verkinu og héldu því á
einhvern hátt saman. Tilburðir
Hannesar minntu á Rowan Atk-
inson í Mr. Bean og Johnny Engl-
ish en líka á karlinn í Línunni.
Cameron fékk einnig að spreyta
sig á leikrænni útfærslu líkams-
tjáningarinnar og tókst það mjög
vel. Hann gat hæglega rennt sér á
milli kröftugra danshreyfinga og
táningarríks látbragðs. Þyrí Huld
Árnadóttir, nýútskrifaður dansari
frá LHÍ, lék einnig stórt hlutverk
í verkinu, líkamsfærni hennar er
með ólíkindum og stíllinn sér-
stakur. Vonandi eiga áhorfendur
ÍD eftir að sjá hana oft í Borgar-
leikhúsinu. Frammistaða annarra
dansara í verkinu var líka mjög
til fyrirmyndar. Hópurinn sem
samanstóð af nokkrum nýjum og
efnilegum dönsurum auk þeirra
eldri og reyndari var greinilega í
fantaformi og virtust dansararnir
hafa gaman af sýningunni.
Verkið Fullkominn dagur til
drauma er í sjálfu sér sára ein-
falt. Höfundur leikur sér með
sérkenni og færni dansaranna og
skapar út frá henni skemmtileg
atriði sem tengjast saman í eina
heild þó vart sé hægt að tala um
eiginlega frásögn eða framvindu.
Uppátæki dansaranna vöktu oft
á tíðum kátínu áhorfenda, leikur
þeirra að hreyfingum var líka
aðdáunarverður. Verkið krafð-
ist mikillar líkamlegrar færni
af öllum þátttakendum og bauð
áhorfendum upp á nýjungar í
hreyfistíl. Það er góð leið hjá
danshöfundum að miða danssköp-
un sína við þann flokk sem unnið
er með hverju sinni. Þó það sé
líka mikilvægt fyrir atvinnudans-
ara eins og dansara dansflokksins
að takast á við margbreytilegan
hreyfiforða og form.
Sesselja G. Magnúsdóttir
Niðurstaða: Einfalt verk, skapað
utan um færni dansaranna sjálfra,
vel unnið og skemmtilegt. Ef mann
langar að hlæja á danssýningu þá er
Fullkominn dagur til drauma svarið.
Skemmtilegur draumur HVAÐ? HVENÆR? HVAR?Fimmtudagur 06. október
➜ Tónleikar
19.30 Sinfóníuhljómsveit Íslands
setur hátíðina Norræna músíkdaga með
tónleikum í Hörpu. Leikin verða verk
ungra norrænna tónskálda, meðal ann-
ars eftir Einar Torfa Einarsson. Miðaverð
er frá kr. 2.000 til kr. 3.500.
20.00 Veglegir tónleikar með Bubba
og Sólskuggunum í Háskólabíói. Miða-
verð er kr. 4.400.
20.00 Brahmstónleikar Birnu Hall-
grímsdóttur bæjarlistamanns í Sel-
tjarnarneskirkju. Tónleikarnir eru liður í
Menningar- og listahátíð Seltjarnarness.
20.00 Hljómsveitin Eldberg heldur
útgáfutónleika í Tónlistarskóla FÍH,
Rauðagerði 27. Aðgangur er ókeypis.
20.00 25 ára afmælis- og útgáfutón-
leikar Greifanna í Austurbæ. Sérstakir
gestir eru Felix Bergson og Bergþór
Pálsson. Miðaverð er kr. 3.900.
20.00 Of Monsters and Men heldur
tvenna útgáfutónleika í kvöld í Gamla
bíói. Þeir fyrri hefjast kl. 20 og þeir
seinni kl. 22. Miðaverð er kr. 2.000.
20.00 Félag heyrnarlausra heldur
tónleika í Langholtskirkju. Meðal tón-
listarmanna sem koma fram eru Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Egill Ólafsson, Páll
Rósinkranz, Kór Langholtskirkju og Tákn-
málskórinn. Tónlistin er jafnframt flutt á
táknmáli. Miðaverð er kr. 2.500.
20.30 Páll Óskar og Jón Ólafsson
spila og spjalla í Hofi. Miðaverð er kr.
3.200.
20.30 Eyjólfur Kristjánsson heldur
tónleika í Hafnarkirkju á Hornafirði.
Miðaverð er kr. 2.000.
20.30 Blágresi, Bjartmar Guðlaugs-
son og Einar Már Guðmundsson rit-