Fréttablaðið - 10.11.2011, Qupperneq 34
34 10. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR
Fjarvera íslenskra karlmanna á vettvangi jafnréttismála er
alvarlegur vandi. Þeir eru vel-
komnir en mæta ekki og tjá sig
sjaldan. Það er líkt og þeim finnist
betra að þegja en verða aðhláturs-
efni. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
lista- og fréttamaður og Frétta-
blaðið gerðu tilraun til að breyta
þessu með Öðlingsátakinu 2011
sem beindist gegn kynjamisrétti
og birtist í 31 pistli í Fréttablaðinu
eða visi.is. Ásta Jóhannsdóttir,
Bryndís E. Jóhannsdóttir, Gyða
Margrét Pétursdóttir og Kristín
Anna Hjálmarsdóttir hafa nú birt
greinina Öðlingurinn 2011: Berg-
mál kynjakerfis eða persónulegur
ávinningur jafnréttis? sem flutt
var sem erindi í Þjóðarspegli 28.
október 2011.
Pistlahöfundar voru valdir af
Þórdísi Elvu og voru allir af kyni
karla en markmiðið var að lokka
karlpeninginn út á ritvöllinn með
300 orða hugleiðingum. Frétta-
blaðið og visir.is hafa staðfest
feikilegan góðan lestur, t.d. voru
þeir lesnir 220 þúsundum sinnum
á vefnum. Þeir vöktu víða umræðu
og ritstjórar Fréttablaðsins notuðu
þá í leiðaraskrifum.
Tvær spurningar eru lagðar
fram í grein Ástu Jóhanns dóttur
og fleiri um Öðlingsátakið: Er
átakið líklegt til að stuðla að jafn-
rétti kynjanna? Hrekur herferðin
eða festir hún í sessi og við heldur
staðalmyndum, þrástefjum og
mýtum um kynin?
Sennilega eru þetta of stórar
og viðamiklar rannsóknarspurn-
ingar fyrir eitt lítið átak á þorra
2011 með þrjátíu körlum á öllum
aldri. Ég get t.d. sett fram þá til-
gátu að ef allar þær umræður sem
pistlarnir vöktu á vinnustöðum og
í heimahúsum hefðu verið skráð-
ar og greindar hefði ef til vill mátt
finna svar við fyrri spurningunni.
Svarið við seinni spurningunni er
sennilega að sumir pistlahöfundar
falli í kynjagryfjur eins og títt er
en öðrum hafi tekist að feta veg-
inn án þess að falla og jafnvel að
benda á eitthvað áhugavert.
Voru öðlingarnir nógu góðir?
Spyrja má: voru öðlingarnir 2011
nógu góðir? Höfundar greinar-
innar í Þjóðarspegli telja þá ekki
nógu góða og vonast eftir betri
öðlingum á næsta ári sem láti
sig málin varða á annan hátt,
séu tilbúnir að skrifa inn í fræði-
ramma og vilji „styðja jafnréttis-
baráttuna; afsala sér forréttindum
kynjakerfisins og njóta pers-
ónulegs ávinnings raunverulegs
jafnréttis“ (bls. 22). Næstu öðl-
ingar eiga, samkvæmt greinar-
höfundum, jafnframt að gera sér
grein fyrir eigin takmörkunum
og styrkleikum og hverju þeir
telja sig mögulega tapa við það að
raunverulegu jafnrétti kynjanna
sé ekki náð. Ásamt því að byggja
á betri innsýn og fræðilegri þekk-
ingu við skrifin.
Þá virðist sem Ásta Jóhanns-
dóttir og fleiri vilji að næstu
Öðlings karlar nefni hvort þeir séu
femínistar eða ekki. Einnig virð-
ast þær reiðubúnar að skammta
þeim efnisflokka til að skrifa út
frá. Draumapistlahöfundar þeirra
eru með öðrum orðum menntaðir
femín istar sem skrifa helst um
jafnrétti á heimili og ábyrgð á
börnum (22).
Hvar eru karlarnir?
Ég hef tekið þátt í jafnréttis-
umræðunni með greinarskrifum
og erindum og með því að mennta
mig á þessu sviði. Karlar hafa
verið fáséðir á þessum vettvangi,
oft teljandi á fingrum annarrar
handar. Enda spurði Vigdís Finn-
bogadóttir á 30 ára afmæli nor-
ræns samstarfs í jafnréttismálum
þegar hún leit yfir ráðstefnu salinn:
Hvar eru karlarnir? Ástæðan var
sú að karlar mæta skelfilega illa á
fundi, ráðstefnur og málþing um
jafnréttismál.
Brýnt verkefni er því að fjölga
körlum í umræðunni og það tókst
Þórdísi Elvu með þessu átaki.
Henni tókst einnig að fá stærsta
dagblað landsins, Fréttablaðið, til
að taka þátt í því af fullri alvöru.
Þetta er afrek að mínu mati og
margir pistlar voru góðir.
En þurfa karlar að vera öðlingar
til að taka þátt í umræðunni?
Bæði konur og karlar geta verið
öðlingar og nafnið var valið út
frá orðum þekktrar kvenréttinda-
konu um að hver og einn ætti að
finna öðlinginn í sjálfum sér. Ég
tel því óþarfi að hæðast að því að
karlarnir skrifi undir þessu nafni.
Heitið hefði einnig getað verið
Karl pungurinn.
Jafnréttismálin eru harður
bransi en það eru ekki einungis
konur sem fá gagnrýni og eru
stimplaðar fyrir að taka þátt í jafn-
réttisumræðunni heldur einnig
karlar. Sumir þeirra sem skrifuðu
pistlana voru upp nefndir af öðrum
körlum og grín gert að þeim.
Óþarfi er að vorkenna þeim, en
það er ekki rétt túlkun að halda því
fram að þeir hljóti heiður með að
taka þátt en konur bara skammir.
Feðraveldið veitir hvorki konum né
körlum prik fyrir þátttöku í jafn-
réttismálum, engan plús.
Niðurstaða
Rannsóknarspurningar Ástu
Jóhannsdóttir og fleiri henta ekki
þessari vitundarvakningu. Auð-
vitað má sundurgreina þessa
pistla, flokka efni þeirra og vega
þá og meta. Einnig er leyfilegt að
hæðast að getu karla til að taka
þátt í umræðunni og vissulega er
það freistandi. En það er ekki væn-
legt til vinnings og fjölgar ekki
körlum á vettvangi jafnréttismála.
Það fer greinilega eins fyrir
mér og fyrir þeim. Ég hefði ef
til vill viljað að þær hefðu skrif-
að aðra grein með öðrum rann-
sóknarspurningum. Ástæðan er
sú að spurningarnar falla ekki vel
að forsendu þessarar vitundar-
vakningar og markmiði: að stuðla
að opinni umræðu um jafnrétti
kynjanna, að ýta úr vör. Til að
svara rannsóknarspurningum
Ástu Jóhannsdóttur og fleiri þarf
að mínu mati víðtækari rannsókn
og greiningu heldur en að þema-
og orðræðugreina pistlana sjálfa.
Lengri útgáfa af þessari grein er
birt á www.visir.is
Tengill
http://skemman.is/stream/
get/1946/10251/25562/1/
Stjornmala fraedideild.pdf
Hugsaðu þér að hafa ekkert að fela
Kaupaukinn þinn
Ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 5.900 krónur eða meira,
dagana 10. - 16. nóvember í Debenhams.
Kaupaukinn inniheldur:
Advanced Night Repair – viðgerðadropa, 7ml
TimeZone Creme – dagkrem sem fyrirbyggir línur og hrukkur, 5ml
Sumtuous Mascara – svartan maskara
Double Wear Light – farða, 7ml
Pure Color Lipstick – fulla stærð, litur wild ginger
*Verðgildi kaupaukans ca. 14.430 .-
*meðan birgðir endast
Idealist Even Skintone Illuminator og Cooling Eye Illuminator
Fyrsta skjótvirka kremið frá Estée Lauder sem dregur stórkostlega úr roða,
sólblettum og dökkum blettum. Roði minnkar á augabragði og húðin verður ljómandi.
Cooling Eye Illuminator vinnur á augnsvæðinu og dregur samstundis úr þrota og dökkum baugum.
Nýtt
20% afsláttur í dag Opið til miðnættis
Að falla í kynjagryfjur – eða ekki
Jafnréttismál
Gunnar
Hersveinn
heimspekingur