Fréttablaðið - 01.12.2011, Side 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
Tendrað á Jólatré
Kringlunnar kl. 17
Opið til 21 í kvöld
Jólaleikur
BYKO!
Vinningur dagsins:
Sjá nánar á www.byko.is
SEVERIN kaffikanna - 16.990 kr.
inni í blaðinu í dag.
Fimmtudagur
skoðun 32
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Kaffi
1. desember 2011
281. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Eysteinn Sigurðarson spyrill MonitorTV segir frá reynslu sinni af fatakaupum í London og hér á landi.Smekkmaður með meiru
E ysteinn Sigurðarson hefur undanfarna mánuði birst landsmönnum sem spyrillinn í MonitorTV á mbl.is. Jafnframt vinnur hann í félagsstarfi með þroska-hömluðum í Hinu húsinu. „Ef þú spyrð vini mína kemst þú að því að ég er smekk-maður með meiru. Hvort sem það er á mat, tónlist eða föt. Samt sérstaklega á mat. Ef ég vakna um miðja nótt og kíki í ísskápinn er ekki nóg fyrir mig að fá mér brauð með osti heldur þarf það að vera einhver snitta með chilisultu. Það er eins með fötin. Maður þarf að velja eitthvað sem aðrir klæðast ekki.“Í mánuðinum skellti Eysteinn sér í helg-arferð til London með vini sínum. Þar skoðuðu þeir félagar leiklistarskóla, sáu leikritið 39 þrep á West End og þræddu verslanir borgarinnar.„Ég verslaði helst í H&M en keypti samt nokkrar sérstakar flíkur í öðrum búðum.“Í einni verslun Camden-markaðarins heillaðist Eysteinn af nær öllum fötunum. Þegar hann hóf hins vegar að máta komst hann að þeirri óskemmtilegu staðreynd að allar flíkur búðarinnar voru í einni stærð, sem var aðeins of lítil á hann.
3
Fyrirsætur margra hönnuða voru með hárið tagli á
tískusýningum fyrir vor og sumar 2012. Sömu sögu
má segja um tískudrósir sem sátu á fremstu bekkj-
um, þar á meðal á sýningu Marni. Gæti því verið að
tagl, af ýmsum toga, komi sterkt inn með hækkandi sól.
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Opið mán.-fös. 10-18.Opið á laugardögum 10-14.þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.is
NÝR OG GLÆSILEGUR
teg PRALINA - rosalega flottur í B,C,D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 7.680,-
Vertu vinur okkar á facebook
20% afsláttur af öllum yfirhönum
Hlýjar úlpur og vandaðar kápur í úrvali
Stærðir 36-52
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Mediflow heilsukoddinnEinstakur heilsukoddi með mjúku yfirlagi og vatnsfyllingu. Stillanlegur vatnspúði sem veitir fullkominn stuðningMinnkar verki í hálsi.
Eykur svefngæði
9.750 kr.
Gefðu góða gjöf
KAFFIFIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011
Kynningarblað
Kaffivélar
Bollar
Uppskriftir
Þjónusta
Jólablöndur
Kaffikönnur
Í VÍGAMÓÐ Leikarar og tökulið þáttaraðarinnar Game of Thrones voru við tökur við rætur Svínafellsjökuls
í vikunni. Kit Harrington, ein aðalstjarna þáttanna, sést hér koma upp hlíð eftir mikil hlaup í fullum herklæðum
og var hann skiljanlega nokkuð móður þegar upp var komið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Óvanaleg jól
Ísabella Rós Þorsteinsdóttir
leikur Fanný í jólasýningu
Borgarleikhússins.
fólk 66
SNJÓKOMA og síðan él um landið
vestanvert en austan til nokkuð
bjart fram eftir degi og svo snjó-
koma eða él síðdegis. Minnkandi
frost vestanlands.
VEÐUR 4
-1 -6
-11
-7-3
STJÓRNMÁL Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, greiddi atkvæði
með 600 milljóna króna styrkjum frá
Evrópu sambandinu (ESB) vegna aðildar-
umsóknar Íslands. Fjárlög 2012 voru sam-
þykkt til þriðju umræðu í gær eftir langar
umræður.
Breytingartillögur fjárlaganefndar um
4,1 milljarðs króna aukin útgjöld á næsta
ári voru samþykktar.
Styrkirnir frá Evrópusambandinu eru
svokallaðir IPA-styrkir, en þeir hafa verið
gagnrýndir fyrir að vera styrkir til aðlög-
unar, meðal annars af Jóni Bjarnasyni.
Skemmst er að minnast þess að stjórnar-
formaður Matís ohf. sagði pólitíska afstöðu
Jóns, sem fer með eignarhluta ríkisins í
félaginu, hafi ráðið miklu um að hætt var
við að sækja um 300 milljónir króna í slíka
styrki til eiturefnamælinga.
Styrinn um Jón stendur enn og birtu
stuðningsmenn hans auglýsingu í
dagblöðum í gær, þar sem hann var sagður
standa traustan vörð gegn aðild Íslands
að ESB. Er það liður í valdabaráttu innan
Vinstri grænna. - kóp / sjá síðu 18
Fjárlög voru samþykkt til þriðju umræðu með breytingum fjárlaganefndar:
Jón samþykkti 600 milljónir frá ESB
JÓN BJARNASON
„Hóflegar hækkanir“
Stangaveiðifélag Reykja-
víkur boðar „hóflegar
hækkanir“ á veiðileyfum.
veiði 78
NOREGUR Jens Stoltenberg,
forsætis ráðherra Noregs, hefur
staðfastlega
neitað að tjá
sína persónu-
legu skoðun á
því að fjölda-
morðinginn
Anders Breivik
hafi verið
úrskurðaður
ósakhæfur.
Fram kemur
í Aften posten
að Stoltenberg
hafi verið þráspurður en hann
svarað því til að stjórnmálin hefðu
sín takmörk. Úrskurður væri
á forræði dómstólanna og það
varðaði grundvallar reglur réttar-
ríkja. „Við ættum að fagna því
að búa í ríki þar sem stjórnmála-
menn ráða engu um það hverjir
þurfi að svara til saka fyrir rétti
og hvers konar refsingar þeir fá,“
sagði hann.
Spurður um líðan þegar hann
frétti af úrskurðinum sagði
Stolten berg: „Tilfinningar mínar
hafa ekkert með málið að gera.“ - þj
Jens Stoltenberg um Breivik:
Dómstólarnir
fái að ráða sínu
JENS STOLTENBERG
Mikilvægur sigur
Akureyri vann góðan
heimasigur á Fram í N1-
deild karla í gær.
sport 72
LÖGREGLUMÁL Lárus Welding, fyrr-
verandi forstjóri Glitnis, var í
gærdag úrskurðaður í einnar viku
gæsluvarðhald vegna rannsóknar
sérstaks saksóknara á meintum
brotum í rekstri bankans fyrir
hrun.
Tveir aðrir Glitnismenn,
Jóhannes Baldursson, sem var
framkvæmdastjóri á markaðs-
viðskiptasviði, og Ingi Rafnar
Júlíusson, sem starfaði á verð-
bréfasviði bankans, voru leiddir
fyrir dómara í héraðsdómi Reykja-
víkur í gærkvöldi. Þar var fallist á
kröfu saksóknara um einnar viku
gæsluvarðhald yfir þeim.
Jóhannes starfar enn hjá
Íslandsbanka en hefur verið
sendur í leyfi vegna málsins líkt
og aðrir núverandi starfsmenn
bankans sem fengið hafa réttar-
stöðu grunaðra í rannsókninni,
samkvæmt upplýsingum frá bank-
anum. Ingi Rafnar starfar nú hjá
MP banka, eftir að deildin sem
hann tilheyrði hjá Sögu fjárfest-
ingabanka var keypt yfir til MP.
Farið var fram á varðhald
yfir fjórða manninum, Elmari
Svavars syni, en héraðsdómur
hafnaði þeirri beiðni.
Gæsluvarðhaldskröfurnar voru
settar fram á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna, enda telur sér-
stakur saksóknari að mennirnir
geti spillt rannsókninni með því að
ráðfæra sig við aðra sakborninga
gangi þeir lausir. Enn á eftir að
taka skýrslur af lykilmönnum í
málinu.
Rannsóknin snýr að umfangs-
mikilli markaðsmisnotkun og
öðrum brotum í rekstri bankans.
Viðskiptin sem til rannsóknar
eru nema mörgum tugum millj-
arða og tengjast að stórum hluta
FL Group. Yfirheyrslurnar í gær
snerust jafnframt um svokallað
Stím-mál, sem Jóhannes Baldurs-
son er talinn hafa átt stóran þátt í.
Aðgerðirnar, sem hafa verið í
undirbúningi um nokkurt skeið,
hófust klukkan sjö í gærmorgun
með handtökum og alls voru á
annan tug manna yfirheyrðir.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, kveðst búast við að
yfirheyrslunum verði fram hald-
ið næstu daga. - sh / sjá síðu 4
Rannsaka Glitni og FL Group
– þrír Glitnismenn í varðhald
Lárus Welding og tveir fyrrverandi undirmenn hans í Glitni voru úrskurðaðir í einnar viku gæsluvarðhald
í gær. Dómari sleppti þeim fjórða lausum. Enn á eftir að taka skýrslur af lykilmönnum í rannsókninni.