Fréttablaðið - 01.12.2011, Page 24
1. desember 2011 FIMMTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
EFNAHAGSMÁL Hagfræðideild
Landsbankans spáir því að hag-
vöxtur verði um 3,2 prósent á
þessu ári og 1,7 prósent á því
næsta. Þá telur hún að hagvöxtur
muni helst byggja á fjárfestingu
á næstu árum en ekki einka-
neyslu eins og gert er ráð fyrir í
flestum nýjum hagspám.
Þjóðhagsspáin var kynnt á
Hótel Hilton Reykjavik Nor-
dica í gær. Hana er að finna í
nýju árlegu riti hagfræðideild-
ar Landsbankans sem nefnist
Þjóðhagur. Spáin nær til næstu
þriggja ára.
Samkvæmt spánni mun verð-
bólga hækka nokkuð í byrjun
næsta árs en hjaðna þegar líður
á árið. Þá er því spáð að atvinnu-
leysi verði að meðaltali 6,2
prósent á næsta ári og 5,0 prósent
á árinu 2013. - mþl
Hagvöxtur 3,2 prósent 2011:
Landsbankinn
kynnir hagspá
HILTON NORDICA Í GÆR Daníel Svavars-
son, forstöðumaður hagfræðideildar
Landsbankans, kynnti hagspána í gær.
PUNKTAR er skuldatryggingarálag ríkissjóðs, sem
hefur hækkað um fjórðung frá því um miðjan október.
VIÐSKIPTI Lækkun á verði áls
hefur kostað Orkuveitu Reykja-
víkur 4,6 milljarða króna á fyrstu
níu mánuðum ársins. Þá hefur
óhagstæð gengisþróun reynst
fyrirtækinu dýr. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í níu mánaða
uppgjöri fyrir tækisins.
Orkuveita Reykjavíkur birti
uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði
ársins á mánudag. Fyrirtækið
skilaði 5,34 milljarða króna tapi
á tímabilinu. Tekjur frá rekstri
jukust hins vegar um tæpa 5
milljarða á tímabilinu, voru 24,39
milljarðar. Þá hefur rekstrarkostn-
aður lækkað talsvert.
„Það hefur gengið afskaplega
vel að ná tökum á rekstrinum.
Rekstrarkostnaður hefur lækkað
mikið og allt stefnir í áframhald-
andi verulegan bata í rekstri á
næstunni. Ytri áhrif, svo sem
álverðið og gengisbreytingar hafa
hins vegar verið gríðarlega erfið,“
segir Bjarni Bjarnason, forstjóri
Orkuveitunnar.
Rétt tæpur fimmtungur tekna
Orkuveitunnar kemur frá sölu
raforku samkvæmt samningum
þar sem orkuverðið sveiflast með
álverði. Í uppgjörinu kemur fram
að tíu prósent lækkun álverðs
myndi kosta fyrirtækið tæpa 7
milljarða. Sambærileg hækkun
á álverði myndi hins vegar auka
tekjur þess um 7 milljarða.
Bjarni segir að hingað til hafi
fyrirtækið ekki varið sig sér-
staklega gegn þessum sveiflum.
„Þetta hefur ekki verið gert og ég
hreinlega veit ekki af hverju. Við
höfum hins vegar verið að skoða
þetta og stefnum á að grípa til ein-
hvers konar varna,“ segir Bjarni
sem tók við starfi forstjóra 1. mars
síðastliðinn.
Skuldastaða Orkuveitunnar er
sem fyrr nokkuð þung en í mars
var kynnt aðgerða áætlun sem
miðar að því að tryggja rekstrar-
grundvöll fyrirtækisins. Þar á
meðal samþykkti borgarráð að
veita fyrirtækinu 12 milljarða
króna víkjandi lán en rúmir
8 milljarðar hafa þegar verið
greiddir.
Eigið fé fyrirtækisins var í lok
september 54,6 milljarðar króna
og hafði hækkað um 1,8 milljarða
frá upphafi árs. Þar munar tals-
verðu um að endurmat á veituhluta
fyrirtækisins leiddi til hækkunar
á bókfærðu virði eigna upp á 6,7
milljarða króna.
Loks kemur fram í uppgjörinu
að Orkuveitan stendur í samninga-
viðræðum við vélaframleiðend-
urna Mitsubishi Heavy Industries
og Balcke Dürr. Orkuveitan hefur
ekki getað uppfyllt kaupsamninga
sem það gerði við fyrirtækin árið
2007 sem gæti
kostað Orku-
veituna umtals-
verða peninga
ef ekki næst
viðunandi lausn
á málinu.
Orkuveitan
pantaði á árinu
2007 sjö véla-
samstæður frá
fyrirtækjunum
tveimur til að
koma fyrir í fyrirhuguðum virkjun-
um fyrirtækisins. Síðar var fallið
frá kaupum á tveimur samstæðum
en fimm stóðu eftir. Af þeim fimm
eru tvær komnar í notkun í Hellis-
heiðarvirkjun en þrjár eru ónotað-
ar. Tvær eru enn ætlaðar í Hvera-
hlíðarvirkjun en ein gengur af.
Samningaviðræðurnar varða þrjár
síðastnefndu vélasamstæðurnar.
Bjarni segir Orkuveituna enn
ekki geta svarað því hvenær fyrir-
tækið geti veitt vélasamstæðunum
viðtöku. Hann er hins vegar bjart-
sýnn á að málið leysist farsællega
án þess að það reynist Orkuveit-
unni dýrt. Niðurstaða liggur þó
ekki fyrir. magnusl@frettabladid.is
Sveiflur í álverði reynst
Orkuveitunni dýrkeyptar
Orkuveita Reykjavíkur tapaði 4,6 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins vegna lækkunar á verði
áls. OR stefnir að því koma sér upp vörnum gegn þessari áhættu, segir forstjóri. Kaupsamningur á vélum
sem OR hefur ekki getað staðið við gæti reynst dýr. Rekstrartekjur aukist og rekstrarkostnaður lækkað.
ORKUVEITAN Gripið hefur verið til umfangsmikilla aðhaldsaðgerða í rekstri Orkuveit-
unnar á síðustu misserum til að treysta rekstrargrundvöll fyrirtækisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BJARNI
BJARNASON
Verðið á raforku í sölusamningum íslenskra
raforkufyrirtækja til álframleiðenda sveiflast
í nær öllum tilfellum með álverði. Lækkanir
á verði áls geta af þessum sökum komið
ansi illa við raforkufyrirtækin. Eins og
fjallað er um hér kostuðu álverðslækkanir
Orkuveitu Reykjavíkur 4,6 milljarða króna á
fyrstu níu mánuðum ársins. Í níu mánaða
uppgjöri HS Orku kom að sama skapi fram
að fyritækið hefði tapað 1,8 milljörðum
króna á fyrstu níu mánuðum ársins af
sömu ástæðu.
Álverðið einnig reynst HS Orku dýrt
FJARSKIPTI Síminn hefur sett
þrepaskipt þak á gagnanotkun
viðskiptavina sinna sem nota
farsíma sína erlendis. Þetta
þýðir að lokað er á gagnanotkun
viðskiptavina sem staddir eru
erlendis þegar hún er komin upp í
10 þúsund krónur. Slíkt þak hefur
um hríð verið til staðar á ferða-
lögum í Evrópu en nú nær það
einnig til annarra landa þar sem
Síminn er með reikisamninga.
Þeir sem það vilja geta þó
áfram notað farsíma sína meira
en sem nemur þakinu. Þegar því
er náð fær viðskiptavinurinn
SMS-skilaboð þar sem honum
er boðið að hækka þakið upp um
þrep. - mþl
Nú þak um allan heim:
Síminn setur
þak á gagna-
notkun erlendis
349
VIÐSKIPTI Íslendingar flytja
meira út af þjónustu en inn. Á
þriðja ársfjórðungi 2011 nam
útflutningur á þjónustu 108,6
milljörðum en innflutningur
81,4 milljörðum. Þjónustujöfn-
uður var því hagstæður um
27,3 milljarða króna. Þetta
kemur fram í tölum Hagstofu
Íslands.
Samgöngur eru stærsti
þjónustuliður í útflutningi
á þjónustu og var afgangur
vegna þeirrar þjónustu um
22,5 milljarðar. Önnur þjón-
usta er stærsti liður í inn-
flutningi og nam halli á þeirri
þjónustu um 9,8 milljörðum.
Afgangur á ferðaþjónustu var
um 14,6 milljarðar. - kóp
Samgöngur stærsti liðurinn:
Þjónustujöfn-
uður hagstæður
um 27 milljarða