Fréttablaðið - 01.12.2011, Page 26
1. desember 2011 FIMMTUDAGUR26
Seðlabankinn kynnti
nýverið svokallaða fjár-
festingaleið sína sem á að
vera næsta skref í losun
gjaldeyrishafta. Hún
snýst meðal annars um
það að eigendum íslenskra
aflandskróna mun bjóðast
að fjárfesta hérlendis með
miklum afslætti.
Leiðin gengur þannig fyrir sig
að fjárfestarnir, sem eru að
stórum hluta evrópskir bankar,
fá að flytja aflandskrónurnar
hingað heim miðað við útboðs-
gengi Seðlabanka Íslands gegn
því að þeir skuldbindi sig til
að fjárfesta fyrir jafnháa upp-
hæð í erlendum gjaldeyri og
bindi fjárfestinguna á Íslandi í
fimm ár hið minnsta. Miðað við
síðasta útboðsgengi Seðlabank-
ans fá aflandskrónueigendurnir
um 13% innbyggðan afslátt taki
þeir þátt í þessari leið.
820 milljarðar
Samkvæmt upplýsingum frá
Seðlabankanum er talið að
aflands krónueign sé um 410
milljarðar króna. Ef eigendur
þeirra ætluðu að flytja allar
þessar krónur inn næmi
heildar fjárfestingin sem þeir
myndu hella sér út í um 820
milljörðum króna. Það er um
hálf landsframleiðsla Íslands.
Fyrir þá upphæð væri hægt að
kaupa Haga, fyrsta nýskráða
félagið í Kauphöll eftir banka-
hrun, 68 sinnum. Það væri hægt
að kaupa 16.400 fasteignir sem
metnar eru á 50 milljónir króna.
Endurfjármagna rúmlega 60%
af heildarskuldum ríkissjóðs.
Hvað ættu þessir aðilar eigin-
lega að kaupa fyrir alla þessa
peninga?
Fá fjárfestingartækifæri
Það er mikill skortur á fjár-
festingartækifærum hérlendis.
Hlutabréfamarkaðurinn er,
enn sem komið er, hvorki fugl
né fiskur, skuldabréfaútgáfa
fyrirtækja er lítil sem engin,
nánast engar stórframkvæmdir
eru fram undan og það eru tak-
mörk fyrir því hversu mikið af
opinberum skuldum er hægt að
kaupa. Til viðbótar er enn í gildi
allsherjartrygging á innstæðum
sem gerir það að verkum að fjár-
magnseigendur sjá sér hag í að
sitja í vari á peningunum sínum
með neikvæða ávöxtun frekar en
að nýta þá til fjárfestinga. Þetta
sést best á íslensku lífeyris-
sjóðunum, stærstu fjármagns-
eigendum landsins, sem áttu
158,2 milljarða króna í óbundn-
um innstæðum í lok september.
Í byrjun árs 2007 áttu þeir 7,7
milljarða króna á slíkum. Þetta
ástand er reyndar yfirfæranlegt
á alla innlenda aðila. Í byrjun
árs 2007 áttu þeir 743,6 milljarða
króna í innstæðum. Í lok október
áttu þeir 1.519 milljarða króna í
slíkum. Innstæður hafa því tvö-
faldast á nokkrum árum.
Sögulega lítill áhugi
Í nýlegri greiningu IFS-grein-
ingar er fjallað um fjárfest-
ingaleiðina. Þar segir að „Helsti
veikleiki áætlunarinnar er hin
mikla óvissa um hversu vel hún
á eftir að ganga. Áhugi erlendra
fjárfesta á beinni fjárfestingu
hefur aldrei verið mikill hér
á landi enda landið langt frá
öðrum mörkuðum, fámennt og
gjaldeyris áhætta mikil“. Einnig
er bent á að fjárfesting á Íslandi
sé í „sögulegu lágmarki og lítið
sem bendir til að brátt verði
breyting þar á. Góðir fjárfest-
ingakostir hljóta að vera for-
senda þess að fjárfestar verði
viljugir til þess að flytja hingað
fé“.
Til viðbótar við þetta má
bæta að erlendir fjárfestar eru
brenndir af fyrri viðskiptum
sínum við Ísland. Erlendar fjár-
málastofnanir hafa til dæmis
fært niður lán til íslenskra
aðila um 7.500 milljarða króna
frá bankahruni. Það eru tæpar
fimm landsframleiðslur. Pólit-
ískar geðþóttaákvarðanir gagn-
vart erlendum fjárfestum munu
líkast til ekki auka traust þeirra
á íslenskt fjárfestingaumhverfi.
Það er afar mikilvægt að
afnema gjaldeyrishöft á Íslandi.
Til þess þarf að minnka aflands-
krónustöður erlendis. Þau skref
sem hafa verið stigin í þá átt eru
þó ekki sérstaklega trúverðug.
Lítið um fjárfestingartækifæri hérlendis
fyrir erlenda eigendur aflandskróna
Hagar keyptu 50% hlut í fær-
eyska verslunarfélaginu SMS á
1.011 milljónir króna árið 2007 og
fjármögnuðu kaupin með útgáfu
hlutabréfa. Þann 25. nóvember
2010 seldi Arion banki 50% hlut
Haga í félaginu til Jóhannesar
Jónssonar og ónefndra erlendra
fjárfesta fyrir 450 milljónir
króna. Þetta kemur fram í skrán-
ingarlýsingu Haga sem gerð var
opinber á mánudag. Því töpuðu
Hagar umtalsverðum fjármunum
á kaupunum á SMS.
SMS er eitt stærsta smásölu-
fyrirtæki Færeyja. Það rekur níu
verslanir, framleiðslubakarí og
kjötvinnslu og velti um sjö millj-
örðum króna í fyrra. Félagið er
skuldlaust. Jóhannes samdi um að
fá að kaupa félagið af Arion þegar
hann lét af störfum sem stjórnar-
formaður Haga í fyrra og féll frá
10% forkaupsrétti í Högum sem
hann hafði áður samið um.
Helmingshluturinn í SMS er
vistaður inni í eignarhaldsfélagi
sem heitir Apogee ehf. Eigandi
Apogee er Moon Capital S.á.r.l.
í Lúxemborg. Ekki er tilgreint
hverjir fleiri eiga í félaginu en
Jóhannes en hann situr sjálfur í
stjórn Apogee ásamt dóttur sinni,
Kristínu Jóhannesdóttur.
Apogee á kröfu á tengdan aðila
fyrir andvirði SMS, eða 450 millj-
ónir króna. Skuldir við tengda
aðila nema 333,4 milljónum
króna. Í ársreikningi Apogee
kemur fram að tengdir aðilar
séu hluthafar, stjórnarmenn og
stjórnendur félagsins. - þsj
Jóhannes Jónsson keypti SMS í nóvember 2010:
Hagar töpuðu miklu
á kaupunum á SMS
EIGANDI Jóhannes Jónsson var stjórnar-
formaður og einn aðaleigenda Haga um
árabil. Hann keypti 50% hlutinn í SMS
af Arion banka í lok árs 2010.
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@fréttabladid.is
FRÉTTASKÝRING: Næsta skref í afnámi gjaldeyrishafta
SEÐLABANKASTJÓRI Már Guðmundsson og samstarfsmenn hans kynntu næstu skref í afnámi gjaldeyrishafta 18. nóvember síðastliðinn.
Eigendur aflandskróna sem
ákveða að fjárfesta á Íslandi í
gegnum fjárfestingaleið Seðla-
bankans munu ekki geta keypt
hvað sem er. Þeim verður heimilt
að kaupa hlutabréf, skuldabréf,
hlutdeildarskírteini í verðbréfa-
eða fjárfestingasjóðum og
fasteignir fyrir aflandskrónurnar
og gjaldeyrinn. Heimilt verður
að fá útgreiddan arð vegna
hlutabréfakaupa, vaxtagreiðslur
vegna skuldabréfakaupa og
leigugreiðslur vegna fasteigna-
kaupa.
Þeim verður hins vegar ekki
heimilt að kaupa loftför, skip,
afleiðusamninga og annað
lausafé.
Mega ekki kaupa
hvað sem er
VIÐSKIPTI Endurfjármögnun á
skuldum Promens-samstæðunnar
mun ljúka upp úr áramótum, að
sögn Hermanns Más Þórissonar,
framkvæmdastjóra Horns. Horn
á 49,8% hlut í Promens. Aðrir eig-
endur eru Framtakssjóður Íslands
(FSÍ) með 49,5% hlut og lykil-
starfsmenn Promens með 0,7%
hlut.
Promens undirritaði samkomu-
lag um endurfjármögnun við
norræna banka sem samstæðan
hefur verið í viðskiptum við 18.
október síðastliðinn.
Vaxtaberandi skuldir hennar
voru 178 milljónir evra, um 28,4
milljarðar króna, um mitt ár 2011.
Í ársreikningi Promens fyrir
árið 2010 kemur fram að Horn,
sem er í 100% eigu Landsbanka
Íslands, hafi lánað samstæðunni
18,5 milljónir evra, tæplega 3
milljarða króna, 18. júní síðastlið-
inn. Lánið var veitt til að Promens
gæti greitt bankalán sem var á
gjalddaga í þeim mánuði. Horn
breytti síðan láninu í hlutafé í
Promens í lok september síðast-
liðins.
Skömmu áður, 23. september
2011, keypti FSÍ 49,5% hlut. Fyrir
þann hlut greiddi sjóðurinn um
4,7 milljarða króna og setti því
til viðbótar 20 milljónir evra, um
3,2 milljarða króna, inn sem nýtt
eigið fé. Ofangreindar aukningar
á eigin fé Promens voru forsenda
þess að lánadrottnar samstæð-
unnar samþykktu að endursemja
um fjármögnun hennar.
Promens framleiðir plast afurðir
og rekur 45 verksmiðjur í 19
löndum. Hjá samstæðunni vinna
um 4.200 manns. Finnbogi Jóns-
son, framkvæmdastjóri FSÍ, sagði
í erindi á málþingi Deloitte, kaup-
hallarinnar og Viðskiptaráðs í síð-
ustu viku að Promens yrði skráð á
markað innan þriggja ára. - þsj
FSÍ og Horn juku hlutafé um 6,2 milljarða:
Endurfjármögnun Promens
mun ljúka upp úr áramótum
EIGANDI Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri FSÍ, sagði í síðustu viku að Promens
yrði skráð á markað innan þriggja ára.