Fréttablaðið - 01.12.2011, Side 51
Kynning - auglýsing
Þetta er ekki hefðbundinn jóla-matur í þeim skilningi að við veljum það sem okkur þykir
ljúffengt og blöndum saman eftir
smekk. Útkoman er því að okkar
mati allt það besta sem hugsast getur
í íslenskum jólamat,“ hefur Jóhannes
Stein Jóhannesson, yfirmatreiðslu-
meistari Sjávarkjallarans, að segja
um jólamatseðil staðarins í ár sem
er afar girnilegur á að líta.
Þótt matreiðslumenn staðarins
taki sér listrænt frelsi í eldamennsk-
unni segir Jóhannes sívinsæla jóla-
rétti ekki vera langt undan.
„Hér verða eftirréttir sem hafa
fylgt íslensku þjóðinni um skeið;
ris à l ámande og sjerrífrómas frá
mömmu en sá síðarnefndi er sér
á báti hvað varðar ljúffengt bragð.
Svo verður síld og reykt skata í for-
rétt og gæs með rauðkáli, steiktum
eplum og reyktum kartöflum sem
gefa glöggt dæmi um þær nýju leið-
ir sem við förum í eldamennskunni.
Því verður hér sitt lítið af hverju,
svolítið saltað og reykt eins og hefðin
segir til um en aldrei farið alveg alla
leið. Þannig að segja má að fortíð og
nútíð í íslenskri og norrænni matar-
gerð mætist hjá okkur um jólin.“
Að sögn Jóhannesar er matseðill-
inn í grunninn í anda nýnorrænnar
matargerðar sem hefur verið að ryðja
sér til rúms á Norðurlöndum og
víðar undanfarin ár. „Í stuttu máli er
megininntak hennar að sækja ekki
vatn yfir lækinn heldur nota það sem
hendi er næst, leggja ríka áherslu á
gott og ferskt hráefni og virða bæði
það og þá sem það framleiða. Þetta
skilar sér allt í úrvals mat, tiltölu-
lega einföldum og lausum við unna
matvöru.“
Að baki matargerðinni standa
nokkrir af fremstu matreiðslumönn-
um landsins, þeir Ólafur Ágústs-
son og Steinn Óskar Sigurðsson
og Jóhannes sjálfur, sem hafa náð
góðum árangri í keppnum um mat-
reiðslumann ársins og eiga allir sæti
í kokkalandsliðinu. Þá mun Ólafur
keppa fyrir Íslands hönd um titilinn
matreiðslumaður Norðurlanda sem
fer fram á næsta ári. Gestir staðar-
ins geta því átt von á góðu og segir
Jóhannes marga þegar farna að
glöggva sig. „Það sést best af því að
fastagestum fjölgar stöðugt. Sífellt
fleiri panta sér aftur borð um jól og
áramót.“
Loks bendir Jóhannes á að nánari
upplýsingar um matseðil og opnun-
artíma séu á heimasíðu staðarins.
Slóðin er sjavarkjallarinn.is.
Sælkeramatur að
nýnorrænum sið
Sjávarkjallarinn er nýnorrænn veitingastaður í miðborg Reykjavíkur sem leggur áherslu
á íslenskan mat og matarhefðir. Jólamatseðillinn tekur mið af því og samanstendur af
vinsælum og nýstárlegum réttum.
Jóhannes Steinn Jóhannesson er yfirmatreiðslumeistari á Sjávarkjallaranum.
Marineruð síld og reykt skata frá Andrési
í Hnífsdal með piparrót, eggjum, brúnu
smjöri og sýrðu grænmeti.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
4 egg
200 g sykur
2 dl miðlungs þurrt sérrí
8 blöð matarlím
100 g suðusúkkulaði, rifið
6 dl rjómi
Þeytið saman eggjarauður og sykur. Blandið sérríi
og bræddu matarlími saman við. Blandið stífþeyttum eggjahvítum, þeyttum rjóma
og suðusúkkulaði varlega saman við. Setjið í skál og geymið á köldum stað. Má
gjarnan skreyta með þeyttum rjómatoppum og rifnu súkkulaði. Athugið að gott er
að hafa muldar makkarónukökur í botni skálar og bleyta þær upp með sérríi.
Sjerrífrómas frá
mömmu
Eftirréttur af matseðli
Sjávarkjallarans.
Sjerrífrómas er á meðal eftirrétta á matseðli Sjávarkjallarans.
Notalegt andrúmsloft einkennir staðinn.
S j á v a r k j a l l a r i n n / A ð a l s t r æ t i 2 / 1 0 1 R e y k j a v í k / s í m i 511 1 2 1 2 / s j a v a r k j a l l a r i n n . i s
8900 kr.
Kynntu þér fleiri hátíðarmatseðla á
Sjavarkjallarinn.is
VEUVE CLICQUOT
HÁT ÍÐAR
MAT S EÐIL L
SJÁVARKJALLARANS
Veuve Clicquot & viðbótar lystauki fyrir matinn 1.500 kr.
Frosinn skötuselur, sellerí og bygg
Skötuselsþynnur, byggsalat með Egilsstaðafeta og sýrðri seljurót, byggmajónesi og jurtavinaigrette með edikperlum.
Jólasíld og reykt skata
Marineruð síld og reykt skata frá Andrési í Hnífsdal með piparrót, eggjum, brúnu smjöri og sýrðu grænmeti.
Lúðukinnar &Lífrænt ræktaðar kartöflur
Kartöflur frá Vallanesi og léttsaltaðar lúðukinnar ásamt blaðlauk, hvönn og brúnu smjöri.
Villt gæs, rauðkál og reyktar kartöflur
Gæsabringa og gæsalæri, steikt eplamauk, reyktar karöflur og rauðkál og gæsasósa með einiberjum.
Eða
Blálanga og kræklingasósa
Hægelduð blálanga, svartrót, rósakál, rækjur, smáar kartöflur og kremuð kræklingasósa úr kræklingnum hans Símonar.
Möndlugrautur Kjallarans
Ris a la mande frauð og karamelluís með öllu sem tilheyrir.