Fréttablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 58
1. desember 2011 FIMMTUDAGUR46
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
80 ára afmæli
Una Sigrún Jónsdóttir
80 ára í dag 01. 12. 2011
Tekur móti vinum og vandamönnum
í félagsheimili Félags heyrnarlausra
Grensásvegi 50, 108 Reykjavík
þann 3. desember kl. 12.30.
Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
Guðjón Tómasson,
Kleppsvegi 62, áður Álftamýri 53,
lést á Landspítalanum mánudaginn 21. nóvember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju,
föstudaginn 2. desember, kl. 13.00.
Sigríður Guðjónsdóttir Jón Ingvarsson
Ingibjörg Guðjónsdóttir
Guðjón Axel Guðjónsson Katrín Björk Eyvindsdóttir
Kristín Laufey Guðjónsdóttir Óðinn Vignir Jónasson
Kristmann Óskarsson Bergljót Hermundsdóttir
og fjölskyldur.
90 ára afmæli
Gísli Elíasson
Í dag, 1. desember er Gísli Elíasson
90 ára. Hann fæddist í Bolungarvík
árið 1921 en ólst upp og bjó alla
sína tíð á Siglufirði. Eiginkona Gísla
var Dagmar Jensdóttir frá Akureyri
(f.1912 d.1995). Gísli vann lengst af hjá
Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði
sem almennur starfsmaður, verkstjóri og
síðar verksmiðjustjóri.
Gísli býr nú ásamt sambýliskonu sinni, Þórdísi Hansdóttur
(f. 1920) á DAS í Reykjavík. Hann heldur upp á daginn í faðmi
fjölskyldunnar.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Haraldur Þ. Theodórsson
fv. verslunarmaður,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
28. nóvember. Jarðsett verður frá Dómkirkjunni
í Reykjavík mánudaginn 12. desember kl. 13.00.
Guðjón Haraldsson Sigríður Siemsen
Þórir Haraldsson Mjöll Flosadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, uppeldisfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Grímur Guðmundsson
fyrrverandi forstjóri Íspan,
sem lést að hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, sunnudaginn
27. nóvember, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju,
föstudaginn 9. desember kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem
vildu minnast hans, láti Ljósið s. 561-3770 eða Karitas
s. 551-5606 njóta þess.
Óskar Smith Grímsson Þrúður Ólöf Gunnlaugsdóttir
Guðmundur Grímsson Hrafnhildur Proppé
Finnur Grímsson Þórunn Hafsteinsdóttir
Margrét Grímsdóttir
Elín Grímsdóttir Jón Bjarni Gunnarsson
Jón Elvar Kjartansson Sigríður Elsa Markúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jón Aðalsteinn Jónasson
áður til heimilis að Sléttuvegi 21,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 25. nóvember.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
föstudaginn 2. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast
hans láti Barnaspítala Hringsins eða Umhyggju, félag
til stuðnings langveikum börnum, njóta þess.
Sveinn Grétar Jónsson Hanna Kristín Guðmundsdóttir
Jónas R. Jónsson Helga Benediktsdóttir
Margrét R. Jónasardóttir
Jón Aðalsteinn Sveinsson Guðrún Elísabet Ómarsdóttir
Ásta Sigríður Sveinsdóttir Sigurður Karl Guðgeirsson
og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og frændi,
Þorsteinn Einarsson
bóndi á Ytri Sólheimum II, Mýrdal,
lést á Landspítalanum 24. nóvember sl. Jarðsett verður
frá Sólheimakapellu laugardaginn 3. desember
kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað, en
þeim sem vildu minnast hans er bent á Minningarsjóð
Óskars Sigurðar Þorsteinssonar, sem er til stuðnings
æskulýðsstarfi hjá Hestamannafélaginu Sindra Mýrdal.
Kristín Þorsteinsdóttir Jens Andrésson
Einar Guðni Þorsteinsson Petra Kristín Kristinsdóttir
Guðlaugur J. Þorsteinsson Laufey Guðmundsdóttir
Ólöf Ósk Þorsteinsdóttir
Ragnar Sævar Þorsteinsson
Kjartan Hreinsson Sigríður Árný Sævaldsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg frænka okkar
Klara Klængsdóttir
Hlaðhömrum
er látin.
Fyrir hönd fjölskyldunnar
Gunnar K. Gunnarsson
74
Þrjár bújarðir í Dalvíkurbyggð taka við formlegu vottorði í
dag um að á bæjunum sé hafin lífræn aðlögun í búfjárrækt,
grænmetis- og berjarækt. Þeir Jóhannes Jón Þórarinsson á
Hnjúki í Skíðadal, Bjarni Óskarsson á Völlum í Svarfaðar-
dal og Snorri Snorrason á Krossum 1 á Árskógsströnd verða,
ásamt fjölskyldum sínum, viðstaddir hátíðlega athöfn í
menningarhúsinu Bergi á Dalvík í dag en þar mun Vottunar-
stofan Tún afhenda þeim vottorð. Tún, bændurnir þrír og
Umhverfisráðgjafar Íslands, standa að verkefninu í samein-
ingu sem ber yfirskriftina Lífræn framleiðsla í Dalvíkur-
byggð.
„Við erum í þessu aðlögunarferli og eftir um ár fáum við
endanlega vottun um að berin okkar séu lífræn þótt auð vitað
séum við nú þegar einungis í lífrænni framleiðslu,“ segir
einn bændanna þriggja, Bjarni Óskarsson. Á Völlum eru
það meðal annars sólber, gulrætur og kryddjurtir sem eru
lífrænt ræktaðar en Vellir verða fyrsta hérlenda býlið sem
vottað er til lífrænnar ræktunar á berjum. Á Hnjúki í Skíða-
dal er áherslan á sauðfjárrækt og hrossarækt og talsverð
skógrækt er stunduð á jörðinni. Þá er fjölbreytt búfjárrækt
á Krossum og Stóru-Hámundarstöðum, með áherslu á sauð-
fjárrækt og eldi nautgripa til kjötframleiðslu. Aðlögunar-
tíminn verður mismunandi eftir því um hvaða framleiðslu er
að ræða og lýkur á árunum 2012-2014. Með vottununum eru
fjórar jarðir í Dalvíkurbyggð vottaðar til lífrænnar land-
nýtingar og framleiðslu en Klængshóll í Skíðadal reið á vaðið
fyrir nokkrum árum.
„Í okkar tilfelli er hugsunin held ég að reyna bara að skila
jörðinni betri frá sér þegar upp er staðið. Þá held ég að í
mörgum tilfellum fái maður betri vöru og skemmtilegri.
Maður man það þegar maður var að fá grænmeti frá Sól-
heimum í Grímsnesi fyrir mörgum, mörgum árum. Græn-
metið var bara eitthvað allt, allt annað,“ segir Bjarni.
Stefán Gíslason, verkefnisstjóri þróunarverkefnisins,
segir mikil tækifæri liggja í lífrænni framleiðslu hérlendis.
„Markaðurinn kallar beinlínis eftir þessari vöru og það
liggja mikil tækifæri þarna til atvinnuuppbyggingar og
í byggðalegu tilliti. Eftirspurn hefur aukist jafnt og þétt,
hérlendis og um allan heim og það er í okkar höndum hvort
störfin verði þá til hérlendis eða erlendis, því það er engin
spurning um að þau munu verða til.“ juliam@frettabladid.is
ÞRÍR BÆIR Í DALVÍKURBYGGÐ: FÁ
VOTTAÐA LÍFRÆNA AÐLÖGUN Í DAG
Markaður sem
skapar störf
BÓNDI Í SJÖ ÁR Bjarni Óskarsson, bóndi á Völlum í Svarfaðardal,
hóf búskap fyrir sjö árum og var strax sannfærður um að hann vildi
stunda lífræna ræktun.
Á þessum degi árið 1983 útvarpaði Rás 2 í fyrsta
skipti til landsmanna en rásin náði þá til um 75
prósenta landsmanna og útsending heyrðist víðar
en búist var við. Þorgeir Ástvaldsson var fyrsti
forstöðumaður Rásar 2 og Ólafur Guðmundsson
tæknilegur hönnuður. Þá var útbúnaður stöðvar-
innar breskur. „Eins og hann gerist bestur hjá sam-
bærilegum stöðvum erlendis. Hljómgæðin eiga
því að vera mjög góð,“ sagði Þorgeir í viðtali við
Morgunblaðið daginn eftir fyrsta útsendingardag.
Til að byrja með unnu milli tuttugu og þrjátíu
manns við vikudagskrána og útsendingar voru frá
klukkan tíu til átján virka daga, þar sem létt tónlist
var í fyrirrúmi. Tíu dögum síðar hófst svokallað
næturútvarp.
„Þessi dagskrá, sem við förum af stað með, er
einföld í sniðum og hún á eftir að breytast mjög
mikið í náinni framtíð. Rás 2 er öðruvísi útvarp en
við höfum átt að venjast hingað til.
Við verðum til dæmis með ýmiss konar hljóð-
merki, sem afmarka þættina,“ sagði Þorgeir enn
fremur í viðtalinu.
ÞETTA GERÐIST: 1. DESEMBER 1983
Fyrsti útsendingardagur Rásar 2
VAIRA VĪĶE-FREIBERGA, fyrrverandi forseti Lettlands, er 74 ára í dag.
„Það er mun auðveldara að umbera einræðisherra sem ræður yfir öðrum
lífum en manns eigin.“