Fréttablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 72
1. desember 2011 FIMMTUDAGUR60 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 24. - 30. nóvember 2011 LAGALISTINN Vikuna 24. - 30. nóvember 2011 Sæti Flytjandi Lag 1 Dikta .....................................What Are You Waiting For? 2 Of Monsters and Men ...................King and Lionheart 3 Goyte / Kimbra ............... Somebody I Used To Know 4 Mugison ............................................................. Kletturinn 5 Hjálmar .................................................. Ég teikna stjörnu 6 Coldplay ................................................................ Paradise 7 Helgi Björnsson / Eivör Pálsdóttir .....................Án þín 8 Stefán Hilmars. / Eyjólfur Kristjáns. ....Þín innsta þrá 9 Rihanna / Calvin Harris .......................We Found Love 10 Amy Winehouse .............................Our Day Will Come Sæti Flytjandi Plata 1 Páll Óskar & Sinfó ....................................Páll Óskar & Sinfó 2 Mugison ......................................................................................Haglél 3 Sigurður Guðm. og Sigríður Thorlac. .....Ásamt Sinfó. 4 Helgi Björnsson ........... Íslenskar dægurperlur í Hörpu 5 Of Monsters and Men ...............My Head Is an Animal 6 Stebbi og Eyfi ...............................Fleiri notalegar ábreiður 7 KK & Ellen .......................................................................................Jólin 8 Dikta .........................................................................................Trust Me 9 Ingimar Eydal ............................................................Allt fyrir alla 10 Hjálmar .............................................................................................Órar Þar sem yngsta kynslóð tónlistarunnenda kaupir lítið af plötum þá legg- ur plötuiðnaðurinn sífellt meiri áherslu á að búa til pakka sem höfða til þeirra eldri, sem enn kaupa plötur. Hér á Íslandi sést þetta til dæmis á flottum yfirlitsútgáfum með Grafík, Ingimari Eydal og lögum Jóns Múla Árnasonar núna fyrir jólin, en erlendis eru afmælisútgáfur af sígildum plötum algengar. Ein slík, 40 ára afmælisútgáfa af meistara verki franska tónlistarmanns- ins Serge Gainsbourg, Histoire de Melody Nelson, er til dæmis nýkomin út. Melody Nelson er konseptplata sem segir sögu miðaldra manns sem ekur fyrir slysni á unglingsstúlkuna Melody Nelson og tekur hana í framhaldi af því upp í bíl- inn sinn. Þetta var einhvers konar lólítu- fantasía sem hafði blundað í Gainsbourg frá því að hann las skáldsögu Vladimirs Nabokov sem kom út 1955. Eftir mikla velgengni „stunulagsins“ Je t‘aime, moi non plus árið 1969 ákvað Gainsbourg að nú hefði hann efni á því að gera eitthvað þyngra og metnaðarfyllra og hófst handa við að búa til Melody Nelson-plötuna. Hugmyndin að plötunni og textarnir eru eftir Gainsbourg, en tónlist- in var að mestu leyti samin af tónskáldinu og hljómsveitarstjóranum Jean-Claude Vannier. Grunnarnir voru teknir upp í London, en strengir og söngur í París. Tónlistin á plötunni er einstök, fönk-skotnar bassa- línur (sem Herbie Flowers spilaði inn), frjálslegt gítarspil, dýnamískar strengjaútsetningar og texti Gainsbourg sem hann les eiginlega meira en syngur. Og svo er Jane Birkin þarna líka í hlutverki Melody, bæði sem rödd og sem ljósmyndafyrirsæta á plötuumslaginu. Stemningin og hljóm- urinn á plötunni er einstakur og þetta er óvenju heilsteypt og flott verk, en eins og fleiri meistarastykki seldist platan lítið þegar hún kom út, en var uppgötvuð mörgum árum seinna. Afmælisútgáfan af Histoire de Melody Nelson er þreföld. Platan sjálf er á fyrsta disknum, óútgefnar upptökur á disk númer tvö og á þriðja disknum er 5.1 mix og ný heimildarmynd um gerð plötunnar. Flottur pakki! Sagan af Melody Nelson FLOTTUR PAKKI Meistarastykki Serge Gainsbourg og Jean- Claude Vannier er komið út í 40 ára afmælisútgáfu. Enski tónlistarmaðurinn Elvis Costello, sem aflýsti tónleikum sínum í Hörp- unni í nóvember, hefur hvatt aðdáendur sína til að kaupa ekki nýtt safnbox með lögunum sínum. Boxið hefur að geyma geisladiska, vínylplötur, mynddiska og bók og er gefið út í aðeins 1.500 ein- tökum. Verðmiðinn hljómar upp á um 25 þúsund krónur og það finnst Costello allt of mikið. „Allar okkar til- raunir til að lækka verðið hafa verið árangurslausar,“ skrifaði Costello á blogg- síðu sína. „Ef þig langar virkilega að gleðja ein- hvern með góðri gjöf vilj- um við mæla með Ambassa- dor of Jazz. Þetta er lítil taska sem líkist ferðatösku með ferðalímmiðum og nafninu Satchmo,“ skrifaði hann. „Það sem meira er. Hún hefur að geyma tíu endurhljóðblandaðar plötur eftir einn fremsta tónlistar- mann allra tíma, Louis Armstrong. Þetta box ætti að vera fáanlegt á undir 18 þúsund krónum. Í raun og veru er þetta mun flottari tónlist en mín.“ Mótmælir okurverði ÓSÁTTUR Costello er ósáttur við verðið á nýju safnboxi. > PLATA VIKUNNAR Song for Wendy - Meeting Point ★★★ „Ljúf og þægileg plata frá Dísu Jakobs og Mads Mouritz.“ - tj > Í SPILARANUM Helgi Hrafn Jónsson - Big Spring Ég - Ímynd fíflsins Jón Múli Árnason - Söngdansar og ópusar Amy Winehouse - Lioness, Hidden Treasures Birgitta Haukdal - Straumar Rokkdúóið The Black Keys gefur eftir helgi út sína sjöundu plötu, El Camino. Hún fylgir eftir vinsældum Brothers sem kom út í fyrra. Bandarísku blúsrokkararnir í The Black Keys gefa eftir helgi út sína sjöundu plötu, El Camino. Platan fylgir eftir vinsældum Brothers sem kom út fyrir aðeins einu og hálfu ári. Hún stækkaði aðdáendahóp hljómsveitarinnar til muna, enda seldist hún í milljón eintökum. Auk þess að vera ofar- lega á flestum árslistum fékk plat- an þrenn Grammy-verðlaun. Segja má að The Black Keys hafi með Brothers loksins stigið úr skugga hinnar sálugu The White Stripes, sem spilaði einnig bassa- laust blúsrokk, var skipuð tveimur meðlimum og var með hvítan lit í nafninu sínu í stað svarts. Vinsæld- ir hennar voru aftur á móti mun meiri en hjá The Black Keys. Fyrir upptökurnar á El Camino var upptökustjórinn Danger Mouse fenginn til að sitja við takkaborðið á allri plötunni, en á þeirri síðustu stjórnaði hann málum í hinu vel heppnaða smáskífulagi Tighten Up. Hann er meðlimur dúósins Gnarls Barkley og hefur að auki tekið upp Modern Guilt með Beck og Demon Days með Gorillaz. Í þetta sinn brugðu gítar- leikarinn og söngvarinn Dan Auerbach og trommarinn Patrick Carney á það ráð að ferðast frá Ohio til tónlistarborgarinnar Nash- ville þar sem upptökurnar fóru fram. Afrakstrinum hefur verið lýst sem rökréttu framhaldi af Brothers. Grípandi popptaktarnir eru enn til staðar í bland við þétt- ofið blúsrokkið, sem er eins og áður undir áhrifum frá hinu svokallaða bílskúrsrokki sjöunda áratugar síð- ustu aldar. Dómar hafa verið að detta inn undanfarna daga. Spin gefur El Camino 8 af 10 mögulegum og líkir tónlistinni við gömlu refina ZZ Top, en með glimmer í skegg- inu, á meðan The Guardian gefur henni þrjár stjörnur af fimm. Þar segir gagnrýnandinn að platan sé hröð og skemmtileg en ætlist samt ekki til eins mikils af hlust- andanum og fyrri verk hljóm- sveitarinnar. Annað breskt blað, The Independent, segir El Cam- ino kröftugustu og mest heillandi rokkplötu ársins enda sé hún upp- full af grípandi lögum sem öll standi fyrir sínu. freyr@frettabladid.is Úr skugga White Stripes SJÖUNDA PLATAN Blúsrokkararnir í The Black Keys hafa gefið út sjöundu plötu sína, El Camino. NORDICPHOTOS/GETTY MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* HAFÐU ÞAÐ NOTALEGT Í FRÉTTABLAÐINU Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu því það tryggir að auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað. Meira en 80% blaðalesenda á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttablaðið daglega. Kannaðu dreifileiðir í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi orn@365.is Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! *S am kv æ m t p re nt m ið la kö nn un C ap ac en t G al lu p jú lí- se pt . 2 01 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.