Fréttablaðið - 02.12.2011, Page 4
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR4
Ódýr og handhæg
brunavörn
Einnota slökkviúði sem allir geta notað, álíka stór og hárlakksbrúsi
og jafn auðveldur í notkun. Einnig fáanleg frostþolin (Eldhemja Plús).
Fæst um allt land (sjá upplýsingar um sölustaði á Eldhemja.is).
Vikulega fram að jólum
mun heppinn vinur
fá Eldhemju
facebook.com/Eldhemja
Eldhemja.is
ELDHEMJA
GENGIÐ 01.12.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,9261
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,10 118,66
185,92 186,82
159,26 160,16
21,423 21,549
20,491 20,611
17,468 17,570
1,5199 1,5287
184,27 185,37
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
12°
12°
6°
12°
10°
6°
6°
23°
7°
19°
10°
22°
2°
9°
16°
6°Á MORGUN
10-18 m/s eystra,
annars hægari.
SUNNUDAGUR
8-13 m/s, hægari
inn til landsins.
-3
-3
-3
0
3
-4
-10
-12
-12
-5
-2
-5
-5 -10
-6
-8
-12-6
-14
-7
-8
HELGARVEÐRIÐ
Það verður mjög
kalt í veðri um
helgina enda mun
vindur blása af
norðri. Él einkum
um austanvert
landið á morgun
en yfi rleitt úrkomu-
lítið og nokkuð
bjart syðra. Kólnar
enn frekar í veðri
eftir helgi.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Borgar-
nesi tekur orðið fleiri ökumenn
sem aka undir áhrifum fíkniefna
heldur en áfengis, að sögn Theó-
dórs Þórðarsonar yfirlögreglu-
þjóns í umdæminu.
Hann segir að nokkuð sé um
liðið síðan þessi breyting varð og
að til skamms tíma hefði ölvunar-
akstur verið algengari.
Ökuníðingurinn, sem grunaður
er um að hafa ekið undir áhrifum
fíkniefna og áfengis, og reyndi
að komast undan Borgarnes-
lögreglunni í fyrrakvöld sætti
yfirheyrslum í gær. Gert var ráð
fyrir að hann yrði látinn laus að
þeim loknum.
Maðurinn, sem er nær þrítugu
og búsettur á höfuðborgar svæðinu,
var að koma að norðan áleiðis til
Reykjavíkur þegar lögreglan
veitti einkennilegu aksturs lagi
hans í gegnum Borgarnes athygli.
Ákveðið var að stöðva bílinn en
öku maðurinn sinnti ekki stöðv-
unarmerkjum lögreglu heldur gaf
í og lagði á flótta. Lögregla veitti
honum eftir för og ók hann á allt
upp í 150 kílómetra hraða. Kall-
að var eftir aðstoð frá lögreglu á
Akranesi og á höfuðborgar svæðinu
meðan á eftir förinni stóð. Til móts
við bæinn Gröf, nokkru áður en
komið er að Hvalfjarðargöngun-
um ók öku fanturinn utan í hlið
lögreglubíls. Að því búnu hélt hann
akstri sínum áfram á fullri ferð.
Rétt áður en ekið er að hring-
torginu við norðurmunna Hval-
fjarðarganga lagði lögregla út
naglamottu sem ökuþórinn ók yfir.
Við það sprungu dekk undir bíl
hans. Hann linnti þó ekki ferðinni
heldur komst dálítinn spöl ofan í
göngin. Þar missti hann stjórn á
bílnum og endaði ökuferðina utan
í kantsteini, þar sem lögreglan
handtók hann og færði á lögreglu-
stöð, þar sem hann var látinn sofa
úr sér. - jss
Vímaður ökufantur sem lögregla stöðvaði með naglamottu yfirheyrður í gær:
Fleiri ökumenn teknir dópaðir en drukknir
HVALFJARÐARGÖNGIN Maðurinn gafst
upp á akstrinum þegar hann var rétt
kominn niður í göngin, enda réði hann
ekkert við bílinn.
SAMFÉLAGSMÁL Hrefna Haralds-
dóttar foreldraráðgjafi og Stefán
Hreiðarsson, forstöðumaður
Greiningar- og ráðgjafarstöðvar
ríkisins, hlutu í gær barnamenn-
ingarverðlaun Velferðarsjóoðs
barna. Verðlaunin, samtals tvær
milljónir króna, fengu þau fyrir
framúrskarandi framlag í þágu
velferðar barna.
Samtals veitti Velferðarsjóður
barna styrki að upphæð sex millj-
ónir króna í ár. Á þeim tíu árum
sem sjóðurinn hefur starfað hefur
hann úthlutað um 600 milljónum
króna. Stofnfjármagn Velferðar-
sjóðsins, rúmur hálfur milljarður
króna, kom frá Íslenskri erfða-
greiningu. - þj
Velferðarsjóður barna:
Tvö fá verðlaun
Velferðarsjóðs
VERÐLAUNUÐ Hrefna Haraldsdóttir og
Stefán Hreiðarsson fengu verðlaun Vel-
ferðarsjóðs barna.
STJÓRNSÝSLA Katrín Jakobs dóttir
mennta- og menningarmála-
ráðherra segir að staða ríkissjóðs
sé með þeim hætti að ekki sé lík-
legt að fjárveitingar fáist á næstu
árum til að byggja nýtt hús fyrir
Náttúruminjasafn Íslands. Nefnd
á vegum ríkisins og Reykjavíkur-
borgar um húsnæðismál safnsins,
sem kom saman árið 2009, komst
að þeirri niðurstöðu að ótímabært
væri að vinna að málinu vegna
fjárskorts.
„Nefndin ákvað að setja málið í
salt, þar sem engar forsendur voru
ta ldar fyrir
nýbyggingu. Þá
var gengið í það
að finna betra
bráðabirgða-
húsnæði, sem er
Loftskeytastöð-
in gamla. Gerð-
ur var samning-
ur til fimm ára
og ákveðið að
skoða málið að
nýju áður en sá
samningur rennur út árið 2015.“
Helgi Torfason, safnstjóri
Náttúru minjasafnsins, lýsti í við-
tali við Fréttablaðið fyrir viku
vonbrigðum sínum yfir stöðu
safnsins, sem er eitt þriggja
höfuð safna landsins.
Spurð um þá staðreynd að
Náttúru minjasafnið getur ekki
uppfyllt lögbundnar skyldur sínar
segir Katrín: „Lögin voru sett
2007 og vonir voru um að þetta
höfuðsafn fengi húsnæði sem því
hæfir. En hrunið setti strik í reikn-
inginn. Það er hins vegar engin
ástæða í mínum huga að hverfa
frá þeim fyrirætlunum sem settar
eru fram í lögunum. Við verðum
að horfa á málið frá efnahagsleg-
um veruleika þjóðar innar núna,
en stefna áfram ótrauð að því að
gera þetta eins og hugmyndir voru
uppi um.“
Katrín hefur fundað með fjölda
fólks sem hefur áhuga á málefnum
Náttúruminjasafnsins og hefur
hugmyndir um húsnæðismálin –
hvernig hús á að byggja og hvar.
„Ég hef mína persónulegu skoðun
á því og tel safninu best komið hér
í Reykjavík.“
Katrín deilir ekki þeirri skoðun
að stíga eigi skref til baka og færa
sýningarþáttinn aftur til baka
undir Náttúrufræðistofnun. „Ég
hef ekki sérstaka sann færingu
fyrir því að sameina stofnanirn-
ar aftur.“
Katrín segir, spurð hvort leysa
mætti húsnæðisvanda safns-
ins með nýtingu eldra húsnæðis
líkt og gert var með Þjóð skjala-
safnið, að ekkert borðleggjandi
hafi komið upp í því sambandi.
„Ég hef hins vegar litið svo á að
það sé mjög spennandi kostur að
setja upp safn í Vatnsmýrinni eins
og hugmyndir voru uppi um, þó
ég útiloki ekki aðra kosti,“ segir
Katrín um þær hugmyndir að
byggja upp veglegt safn við hlið
Öskju, náttúrufræðihúss Háskóla
Íslands. svavar@frettabladid.is
Staða ríkissjóðs úti-
lokar nýtt minjasafn
Staða ríkissjóðs leyfir ekki fjárveitingar til byggingar húss fyrir Náttúruminja-
safn Íslands. Ráðherra vill þó halda metnaðarfullum hugmyndum til streitu.
Hún vill hafa safnið í Reykjavík og telur Vatnsmýrina bestu staðsetninguna.
LOFTSKEYTASTÖÐIN GAMLA Bráðabirgðahúsnæði safnsins er lítið en hugmynd er um
að setja upp sýningu á 150 fermetrum á efri hæð. Fjármagn til að setja upp sýningu
er ekki á fjárlögum 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
Skíðasvæðið opnað fljótlega
Töluverður snjór er kominn í Blá-
fjöll. Einar Bjarnason, rekstrarstjóri
skíðasvæðisins, segir í samtali við
Vísi að byrjað sé að troða brekkur.
Ef fram haldi sem horfi verði jafnvel
mögulegt að opna skíðasvæðið í
næstu viku. Einar segist harma að
ekki sé til snjóframleiðslubúnaður í
Bláfjöllum því þá hefði verið hægt að
opna mun fyrr en ella.
BLAFJÖLL
Lögmaður Gunnlaugs M. Sigmunds-
sonar vill koma því á framfæri að
óviðurkvæmilegu SMS-skilaboðin
sem hann sendi bloggaranum Teiti
Atlasyni hafi ekki verið tólf, eins og
Teitur fullyrðir, heldur aðeins fjögur.
Þau hafi hins vegar verið svo löng að
þeim hafi sjálfkrafa verið skipt upp í
fleiri skilaboð.
HALDIÐ TIL HAGA
GRIKKLAND, AP Þúsundir mót-
mælenda fóru í kröfugöngu
gegn áformum stjórnvalda um
niðurskurð og aðhaldsaðgerðir í
Grikklandi í gær.
Boðað hafði verið til sólar-
hrings allsherjarverkfalls í
landinu, þess fyrsta frá því ný
ríkisstjórn tók við völdum fyrir
þremur vikum. Um 20 þúsund
mótmælendur gengu friðsam-
lega um götur Aþenu og hrópuðu
slagorð.
„Fólk berst í bökkum, einhvers
staðar milli þess að vera fáttækt
og örvæntingarfullt,“ segir Ilias
Iliopolus, talsmaður verkalýðs-
félags opinberra starfsmanna.
- bj
Allsherjarverkfall í Grikklandi:
Aðhaldsaðgerð-
um mótmælt
MÓTMÆLI Námsmenn hrópa slagorð
gegn aðhaldsaðgerðum stjórnvalda við
gríska þingið. NORDICPHOTOS/AFP