Fréttablaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 72
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR56 MUTV, Liverpool TV og Chelsea TV fylgja frítt með áskrift að Stöð 2 Sport 2 Þú færð meirafyrir peningana 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR Misstu ekki trúna um jólin! Sjá! Ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Sex heilar umferðir í desember og meira til! Hvaða jólastjarna blikar skærast í ár? Finnur Liverpool galdrana í gömlu skónum hans Kennys? Nær þjálfarinn með rauða trýnið að koma drengjunum sínum til himna á ný? Svörin opinberast í sex helgileikjum með þínu liði í jólamánuðinum. Og minnstu þess að halda sunnudaginn heilagan. Þá koma vitringarnir tveir og færa þér gjafir sínar – bull, ergelsi og firru! Sjáðu sex helgileiki með þínu liði í desember. Tryggðu þér áskrift! Gefðu áskriftarkort að Stöð 2 Sport 2 í jólagjöf. Það fæst hjá okkur í Skaftahlíðinni! KÖRFUBOLTI Fyrsti titill vetrarins í karlakörfunni er í boði í DHL-höll- inni um helgina því þá fara fram fyrstu úrslitin í Lengjubikarnum síðan keppnin fékk andlitslyftingu á ársþingi KKÍ í vor. Þór Þorláks- höfn, Grindavík, Snæfell og Kefla- vík unnu sína riðla og tryggðu sér þar með sæti meðal fjögurra fræknu en fyrirtækjabikar KKÍ fer nú fram í sextánda sinn. Undanúr- slitaleikirnir fara fram í kvöld og úrslitaleikurinn er síðan á morgun. Gestgjafarnir eru ekki með KR-ingar eru gestgjafar að þessu sinni en verða engu að síður fjarri góðu gamni sjálfir. Þórsarar úr Þorlákshöfn skildu Íslands- og bikar meistarana eftir í riðlinum og tryggðu sér um leið í fyrsta sinn sæti meðal hinna fjögurra fræknu. KR-ingar eiga engu að síður sinn fulltrúa um helgina því Benedikt Guðmundsson, fyrrum þjálfari liðsins, er einmitt þjálfari Þórsara. Benedikt gerði KR að fyrirtækja- meisturum 2008 og fór einnig með KR-liðið alla leið í fyrsta úrslita- leik keppninnar árið 1996 sem og í úrslitaleikinn árið 2007. Keflvíkingar hafa nú bætt metið, sem þeir áttu með KR-ingum og Njarðvíkingum, með því að kom- ast í þrettánda sinn í undanúrslit- in. Njarðvíkingar hafa ekki komst í undanúrslitin undanfarin tvö ár en það voru einmitt Kefl víkingar sem skildu þá eftir í ár með því að vinna hreinan úrslitaleik liðanna með tuttugu stigum. Sigurður Ingimundarson er því kominn með Keflavíkurliðið meðal hinna fjögurra fræknu í ellefta sinn en hann hefur gert Keflavík fjórum sinnum að fyrirtækjameisturum og sjö sinnum farið með liðið í úrslita- leikinn. Sigurður hefur einnig farið einu sinni með Njarðvíkur liðið í úrslitaleikinn og enginn þjálfari hefur verið sigursælli í þessari keppni. Snæfellingar unnu í fyrra Snæfellingar eiga titil að verja en þeir unnu KR í úrslitaleiknum í fyrra. Þjálfari liðsins, Ingi Þór Steinþórsson, ætti að kunna vel við sig í DHL-höllinni enda þjálfari KR fyrstu fimm árin eftir að DHL-höll- in var tekin í notkun. Fréttablaðið fékk þá átta þjálf- ara í Iceland Express-deildinni sem ekki eiga lið í undanúrslitunum í ár til þess að spá fyrir hvernig leikir helgarinnar muni fara. Það kemur kannski ekki á óvart að flestir spá Grindvíkingum sigri en það er aðeins einn af átta þjálfurum sem spáir ekki lærisveinum Helga Jónasar Guðfinnssonar titlinum. Þjálfararnir sem tóku þátt í könnun Fréttablaðsins eru: Teitur Örlygsson (Stjörnunni), Hrafn Kristjánsson (KR), Einar Árni Jóhannsson (Njarðvík), Gunnar Sverrisson (ÍR), Örvar Þór Kristjáns son (Fjölnir), Bárður Eyþórsson (Tindastóll), Pétur Rúrik Guðmundsson (Haukar) og Ágúst Björgvinsson (Valur). Grindvíkingar hafa unnið fyrstu fjórtán leiki tímabilsins, sjö í Iceland Express-deildinni, sex í Lengjubikarnum og svo einn í Meistarakeppni KKÍ. Þeir hafa þegar unnið tvo sigra í DHL-höll- inni, fyrst dramatískan eins stigs sigur á KR í Meistarakeppninni þar sem Páll Axel Vilbergsson skoraði sigurkörfuna um leið og leiktíminn rann út og svo sann færandi 26 stiga sigur á KR í deildinni í síðustu viku þar sem þeir héldu Íslands- og bik- armeisturum KR í aðeins 59 stigum á heimavelli. Númeri of stórir fyrir alla „Ég held bara að Grindvíkingar séu númeri of stórir fyrir alla eins og staðan er í dag,“ sagði einn þjálf- aranna. „Þetta er einfaldlega best mannaða lið landsins um þessar mundir og þeir eru á mikilli sigl- ingu,“ sagði annar. Snæfell fékk atkvæði frá einum þjálfara en sá hinn sami spáði því að Þórsarar myndu slá Grindavík út úr undanúrslitunum. Sex af átta spáðu Snæfelli sigri á Keflavík í seinni undanúrslitaleik kvöldsins en þar munar eflaust mikið um það að Keflvíkingar leika án stórskytt- unnar Magnúsar Þórs Gunnarsson- ar sem tekur út leikbann í kvöld. Watson og Bullock öflugir Fréttablaðið fékk einnig þjálfarana til að sjá fyrir sér hvaða leik maður mun standa upp úr um helgina. Þrír nefndu Giordan Watson, leik- stjórnanda Grindavíkur, og tveir voru með hinn fílhrausta J´Nathan Bullock efstan á blaði. Grind- víkingarnir Ólafur Ólafsson og Páll Axel Vilbergsson komust líka á blað ásamt Snæfellingnum Jóni Ólafi Jónssyni. Leikur Þórs og Grindavíkur hefst klukkan 18.30 í kvöld og strax á eftir, klukkan 20.30, hefst leikur Snæfells og Keflavíkur. Úrslitaleik- urinn fer síðan fram klukkan 16.00 á laugardaginn. Allir leikirnir fara fram í DHL-höllinni í Frostaskjóli. ooj@frettabladid.is ALLIR NEMA EINN SPÁ GRINDAVÍK SIGRI Undanúrslit Lengjubikarsins fara fram í DHL-höllinni í kvöld og þar keppa fjögur lið um sæti í úrslitaleiknum á morgun. Fréttablaðið fékk þjálfara hinna liðanna í Iceland Express-deildinni til að spá um úrslit. STJÓRNAR GRINDAVÍKURHRAÐLESTINNI Þjálfarar í Iceland Express-deild karla búast við miklu af Giordan Watson á úrslitahelgi Lengjubikarsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Spá hinna þjálfaranna 18.30 Þór Þorlákshöfn - Grindavík Þór: 1 atkvæði Grindavík: 7 atkvæði 20.30 Snæfell - Keflavík Snæfell: 6 atkvæði Keflavík: 2 atkv. Lengjubikarmeistarar Grindavík: 7 atkvæði Snæfell: 1 atkv. Besti leikmaður helgarinnar: Giordan Watson, Grindavík: 3 atkvæði J´Nathan Bullock, Grindavík: 2 Ólafur Ólafsson, Grindavík: 1 Páll Axel Vilbergsson, Grindavík: 1 Jón Ólafur Jónsson, Snæfelli: 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.