Fréttablaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 72
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR56
MUTV, Liverpool TV og Chelsea TV fylgja frítt með áskrift að Stöð 2 Sport 2
Þú færð meirafyrir peningana
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR
Misstu ekki trúna
um jólin!
Sjá! Ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum:
Sex heilar umferðir í desember og meira til! Hvaða jólastjarna
blikar skærast í ár? Finnur Liverpool galdrana í gömlu skónum
hans Kennys? Nær þjálfarinn með rauða trýnið að koma
drengjunum sínum til himna á ný? Svörin opinberast í sex
helgileikjum með þínu liði í jólamánuðinum.
Og minnstu þess að halda sunnudaginn heilagan. Þá koma
vitringarnir tveir og færa þér gjafir sínar – bull, ergelsi og firru!
Sjáðu sex helgileiki með þínu liði í desember.
Tryggðu þér áskrift!
Gefðu áskriftarkort að Stöð 2 Sport 2 í jólagjöf.
Það fæst hjá okkur í Skaftahlíðinni!
KÖRFUBOLTI Fyrsti titill vetrarins í
karlakörfunni er í boði í DHL-höll-
inni um helgina því þá fara fram
fyrstu úrslitin í Lengjubikarnum
síðan keppnin fékk andlitslyftingu
á ársþingi KKÍ í vor. Þór Þorláks-
höfn, Grindavík, Snæfell og Kefla-
vík unnu sína riðla og tryggðu
sér þar með sæti meðal fjögurra
fræknu en fyrirtækjabikar KKÍ fer
nú fram í sextánda sinn. Undanúr-
slitaleikirnir fara fram í kvöld og
úrslitaleikurinn er síðan á morgun.
Gestgjafarnir eru ekki með
KR-ingar eru gestgjafar að þessu
sinni en verða engu að síður fjarri
góðu gamni sjálfir. Þórsarar úr
Þorlákshöfn skildu Íslands- og
bikar meistarana eftir í riðlinum
og tryggðu sér um leið í fyrsta sinn
sæti meðal hinna fjögurra fræknu.
KR-ingar eiga engu að síður sinn
fulltrúa um helgina því Benedikt
Guðmundsson, fyrrum þjálfari
liðsins, er einmitt þjálfari Þórsara.
Benedikt gerði KR að fyrirtækja-
meisturum 2008 og fór einnig með
KR-liðið alla leið í fyrsta úrslita-
leik keppninnar árið 1996 sem og
í úrslitaleikinn árið 2007.
Keflvíkingar hafa nú bætt metið,
sem þeir áttu með KR-ingum og
Njarðvíkingum, með því að kom-
ast í þrettánda sinn í undanúrslit-
in. Njarðvíkingar hafa ekki komst
í undanúrslitin undanfarin tvö ár
en það voru einmitt Kefl víkingar
sem skildu þá eftir í ár með því að
vinna hreinan úrslitaleik liðanna
með tuttugu stigum.
Sigurður Ingimundarson er því
kominn með Keflavíkurliðið meðal
hinna fjögurra fræknu í ellefta sinn
en hann hefur gert Keflavík fjórum
sinnum að fyrirtækjameisturum og
sjö sinnum farið með liðið í úrslita-
leikinn. Sigurður hefur einnig farið
einu sinni með Njarðvíkur liðið í
úrslitaleikinn og enginn þjálfari
hefur verið sigursælli í þessari
keppni.
Snæfellingar unnu í fyrra
Snæfellingar eiga titil að verja
en þeir unnu KR í úrslitaleiknum
í fyrra. Þjálfari liðsins, Ingi Þór
Steinþórsson, ætti að kunna vel við
sig í DHL-höllinni enda þjálfari KR
fyrstu fimm árin eftir að DHL-höll-
in var tekin í notkun.
Fréttablaðið fékk þá átta þjálf-
ara í Iceland Express-deildinni sem
ekki eiga lið í undanúrslitunum í ár
til þess að spá fyrir hvernig leikir
helgarinnar muni fara. Það kemur
kannski ekki á óvart að flestir
spá Grindvíkingum sigri en það
er aðeins einn af átta þjálfurum
sem spáir ekki lærisveinum Helga
Jónasar Guðfinnssonar titlinum.
Þjálfararnir sem tóku þátt í
könnun Fréttablaðsins eru: Teitur
Örlygsson (Stjörnunni), Hrafn
Kristjánsson (KR), Einar Árni
Jóhannsson (Njarðvík), Gunnar
Sverrisson (ÍR), Örvar Þór
Kristjáns son (Fjölnir), Bárður
Eyþórsson (Tindastóll), Pétur
Rúrik Guðmundsson (Haukar) og
Ágúst Björgvinsson (Valur).
Grindvíkingar hafa unnið fyrstu
fjórtán leiki tímabilsins, sjö í
Iceland Express-deildinni, sex
í Lengjubikarnum og svo einn í
Meistarakeppni KKÍ. Þeir hafa
þegar unnið tvo sigra í DHL-höll-
inni, fyrst dramatískan eins stigs
sigur á KR í Meistarakeppninni þar
sem Páll Axel Vilbergsson skoraði
sigurkörfuna um leið og leiktíminn
rann út og svo sann færandi 26 stiga
sigur á KR í deildinni í síðustu viku
þar sem þeir héldu Íslands- og bik-
armeisturum KR í aðeins 59 stigum
á heimavelli.
Númeri of stórir fyrir alla
„Ég held bara að Grindvíkingar séu
númeri of stórir fyrir alla eins og
staðan er í dag,“ sagði einn þjálf-
aranna. „Þetta er einfaldlega best
mannaða lið landsins um þessar
mundir og þeir eru á mikilli sigl-
ingu,“ sagði annar.
Snæfell fékk atkvæði frá einum
þjálfara en sá hinn sami spáði því
að Þórsarar myndu slá Grindavík
út úr undanúrslitunum. Sex af átta
spáðu Snæfelli sigri á Keflavík í
seinni undanúrslitaleik kvöldsins
en þar munar eflaust mikið um það
að Keflvíkingar leika án stórskytt-
unnar Magnúsar Þórs Gunnarsson-
ar sem tekur út leikbann í kvöld.
Watson og Bullock öflugir
Fréttablaðið fékk einnig þjálfarana
til að sjá fyrir sér hvaða leik maður
mun standa upp úr um helgina.
Þrír nefndu Giordan Watson, leik-
stjórnanda Grindavíkur, og tveir
voru með hinn fílhrausta J´Nathan
Bullock efstan á blaði. Grind-
víkingarnir Ólafur Ólafsson og
Páll Axel Vilbergsson komust líka
á blað ásamt Snæfellingnum Jóni
Ólafi Jónssyni.
Leikur Þórs og Grindavíkur hefst
klukkan 18.30 í kvöld og strax á
eftir, klukkan 20.30, hefst leikur
Snæfells og Keflavíkur. Úrslitaleik-
urinn fer síðan fram klukkan 16.00
á laugardaginn. Allir leikirnir fara
fram í DHL-höllinni í Frostaskjóli.
ooj@frettabladid.is
ALLIR NEMA EINN SPÁ GRINDAVÍK SIGRI
Undanúrslit Lengjubikarsins fara fram í DHL-höllinni í kvöld og þar keppa fjögur lið um sæti í úrslitaleiknum á morgun. Fréttablaðið
fékk þjálfara hinna liðanna í Iceland Express-deildinni til að spá um úrslit.
STJÓRNAR GRINDAVÍKURHRAÐLESTINNI Þjálfarar í Iceland Express-deild karla búast
við miklu af Giordan Watson á úrslitahelgi Lengjubikarsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Spá hinna þjálfaranna
18.30 Þór Þorlákshöfn - Grindavík
Þór: 1 atkvæði Grindavík: 7 atkvæði
20.30 Snæfell - Keflavík
Snæfell: 6 atkvæði Keflavík: 2 atkv.
Lengjubikarmeistarar
Grindavík: 7 atkvæði Snæfell: 1 atkv.
Besti leikmaður helgarinnar:
Giordan Watson, Grindavík: 3 atkvæði
J´Nathan Bullock, Grindavík: 2
Ólafur Ólafsson, Grindavík: 1
Páll Axel Vilbergsson, Grindavík: 1
Jón Ólafur Jónsson, Snæfelli: 1