Fréttablaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 64
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR48
Áfellur með gluggum 320 m
Vatnsbretti 240 m
Klæðning flata 470 m2
Enunýjun glers 10 m2
Þéttingar milli timburs og steins 500 m
Málun karma og pósta 900 m
Nýmálun steyptra flata 25 m2
VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA
fiverholt i 2 • 270 Mosfellsbær
Sími 525 6700 • mos@mos.is • www.mos. is
Útboð
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum
í verkið: Eldri deild Varmárskóla,
Klæðning útveggja.
Verkið felst í klæðningu eldri deildar Varmárskóla
með stálklæðningu ásamt lagfæringum á steyptum
stoðveggjum við skólann. Einnig á að yfirfara og
lagfæra alla glugga á húsinu.
Verkinu skal lokið fyrir 1. maí 2012.
Geisladiskur sem inniheldur útboðsgögn verður
afhentur í afgreiðslu Verkfræðistofunnar Eflu
á Höfðabakka 9, 110 Reykjavík og í afgreiðslu
bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar í Þverholti 2, 270
Mosfellsbæ frá og með þriðjudeginum 6. desember
nk.,. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Mosfellsbæjar
Þverholti 2, þriðjudaginn 20. desember 2011 kl. 14:00
að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Helstu magntölur eru:
Fyrir tuttugu og fimm árum
kom kvikmyndagerðar-
maðurinn Christopher
Newman fyrst til Íslands
vegna sjónvarpsþáttanna
Nonna og Manna. Hann
hefur hins vegar lítið
fylgst með framgangi aðal-
stjörnu þáttarins, Garðars
Thor, á óperusviðinu. Freyr
Gígja Gunnarsson ræddi
við Newman um Game of
Thrones, velgengni þátt-
anna og framtíð þeirra hér
á landi.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrir skemmstu er áhugi fyrir
hendi hjá tökuliði Game of Thrones
að koma aftur hingað og gera hér
fleiri þætti. „Ef okkur vantar snjó
þá veit ég um besta staðinn. En
ég hef líka léð máls á því að koma
hingað að sumri, kannski bara með
lítið tökulið og taka eitthvað upp
við Skógarfoss,“ segir Newman en
framleiðendur þáttanna, sem eru
staddir hér á landi, hafa verið að
skoða hentuga tökustaði. „Það er
ekki hægt að leggja mat á landslag
með ljósmyndum, maður verður að
upplifa það. Þegar allt kemur til
alls snýst þetta hins vegar auðvitað
um fjárhagsáætlunina og það er
alltaf dýrara að fara til annars
lands og taka upp. Að endingu hef
ég ekkert um málið að segja heldur
verður þetta ákveðið af stjórnend-
um HBO.“ Atriðin sem nú er verið
að taka upp hér á landi verða sýnd
í seinni hluta annarrar þáttaraðar-
innar.
Newman er reynslubolti í kvik-
myndaheiminum og hefur unnið
við kvikmyndir á borð við Star
Wars: The Phantom Menace, The
Remains of the Day og Mamma
Mia!. Hann þykir ákaflega snjall í
að finna réttu tökustaðina og það
kom sér vel þegar aðstandendur
Game of Thrones vantaði alvöru
snjó og kulda. Newman á nefnilega
í miklu ástarsambandi við Ísland,
hann er giftur búningahönnuð-
inum Önnu Ásgeirsdóttur en þau
kynntust við gerð Nonna og Manna
og saman eiga þau tvö börn. Þau
koma hingað um hver jól og New-
mann viðurkennir að hann gæti vel
hugsað sér að eyða hér ævidögun-
um þegar hann sest í helgan stein.
„En ég veit auðvitað ekkert hvern-
ig það er að búa hérna allt árið,“
segir Newman.
Fréttablaðið hitti á hann á loka-
degi takanna við Svínafellsjökul.
Þaðan var förinni heitið til Fjalls-
lóns og svo Höfðabrekkuheiði við
Vík í Mýrdal. Newman segist hins
vegar lítið hafa fylgst með aðal-
stjörnu Nonna og Manna, Garðari
Thor. Hann hafi þó komið í hádeg-
ismat til þeirra hjóna þegar Garðar
söng eitt aðalhlutverkanna í Phan-
tom of the Opera í London. „Frændi
konunnar minnar er óperusöngv-
ari og ég hef svona aðeins fylgst
með Garðari í gegnum hann,“ segir
Newman og hlær.
Newman kynntist Snorra Þóris-
syni, eiganda Pegasus sem þjón-
ustar tökulið Game of Thrones,
við gerð íslensku kvikmyndarinnar
Svo á jörðu eftir Kristínu Jóhann-
esdóttur. Og hann segist alltaf hafa
haft mikla trú á íslenska tökuliðinu
þegar ákveðið var að koma hing-
að. „Við hefðum ekki þurft að koma
með svo mikið af starfsfólki hing-
að því íslensku starfsmennirnir
eru alveg einstakir. En menn vildu
ekki taka áhættuna. Fólkið sem er
í aðstoðarstörfunum er alltof hæft
til að sinna þeim en það vildi bara
fá að vera með. Og það er virðinga-
vert.“ segir Newman.
Game of Thrones hafa notið
feikilegra vinsælda en Newman
segist ekkert hafa velt þeim fyrir
sér þegar þættirnir byrjuðu. „Hins
vegar eru það gömul sannindi og
ný að ef maður er með flottar
persónur og góða sögu þá gerist
þetta nánast sjálfkrafa. Þættirnir
eru líka svo fjölbreyttir og höfða
til svo margra. Maður þarf ekki
að vera áhugamaður um miðaldir
eða ævintýri til að hafa gaman af
þeim.“
Íslendingarnir eru einstakir
REYNSLUBOLTI Chris Newman er mikill reynslubolti í kvikmyndaheiminum og hefur unnið við Star Wars og Mamma Mia!. Hann
segist vel geta hugsað sér að eyða ævidögunum hér á landi og bindur vonir við að fallist verði á fleiri tökudaga hér á landi fyrir
Game of Thrones. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Þetta er það frábært framtak að það kallar á stuðning,“ segir Jakob
Einar Jakobsson, rekstrarstjóri og eigandi veitingastaðarins Munn-
hörpunnar, sem er á fyrstu hæð Hörpu. Jakob er ættaður að vestan
eins og Mugison og segist strax hafa fundist þau verða að taka á
einhvern hátt þátt í viðburðinum frá því að hann frétti af ókeypis
tónleikum tónlistarmannsins, sem haldnir verða í Hörpu hinn 22.
desember.
„Ég hafði samband við pabba Mugison, en hann hefur haft putt-
ana í hinni frægu fiskisúpu á Aldrei fór ég suður frá upphafi. Hann
ætlar að koma til okkar og matreiða súp-
una sem verður réttur dagsins hjá okkur
á Munnhörpunni þetta kvöld.“ Ágóð-
inn af súpunni mun svo allur renna til
Mæðrastyrksnefndar og Jakob seg-
ist vonast til að hann muni nýtast vel
svona rétt fyrir jólin.
Jakob segir að það liggi við að sam-
viskubitið hafi ráðið förinni þegar
hugmyndin fæddist. „Já,
maður fékk næstum sam-
viskubit yfir því að fá þenn-
an frábæra listamann og
þetta skemmtilega fram-
tak inn í húsið. Mér
fannst bara borðleggj-
andi að sem flestir
ættu að reyna að taka
þátt í einhverju svona
sem vekur upp sam-
hug hjá fólki.“
- bb
Sjá einnig síðu 51
Muggi eldar í Hörpu