Fréttablaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 10
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR10
MEÐ TVÍBURA Katrín Júlíusdóttir gengur
með tvíbura, tvo drengi. Hér er hún
ásamt Ögmundi Jónassyni við jólatréð í
Alþingishúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NEYTENDUR Samtök iðnaðarins (SI) og Samtök
atvinnulífsins (SA) lýsa yfir efasemdum um
að íslenska ríkið eigi að leggja í kostnað í að
kynna skilyrði hollustumerkisins Skráargats-
ins. Í umsögn frá samtökunum segir að þau
telji að takmörkuðu opinberu fé sé betur varið
til opinnar og fordómalausrar umræðu.
„Það getur skapað falskt öryggi, alið á for-
dómum og gert mataræðið einhæfara en ella
að velja í blindni eftir næringarmerki með svo
ströngum skilyrðum sem Skráargatið er.“ Þá
segir einnig að veruleg hætta sé á að það telji
fólki trú um að vörur sem ekki bera merkið
séu óhollar og hvetji þar með til einhæfs
matar æðis. Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri
Neytendablaðsins, fjallaði um málið í síðasta
leiðara sínum. Brynhildur telur samtökin gera
heldur lítið úr neytendum með umsögnum
sínum.
„Neytendur á Norðurlöndunum hafa ekki átt
í neinum vandræðum með að átta sig á skil-
greiningu merkisins,“ segir hún og furðar
sig á þessum umsögnum samtakanna og
bendir á að af þeim ellefu aðilum sem skiluðu
inn umsögn til Alþingis um málið, sé hún sú
eina neikvæða. Meðal umsagnaraðila voru
Landlæknis embættið, Matís og sjávarútvegs-
og landbúnaðar ráðuneytið.
„Þetta eru mikil vonbrigði,“ segir Bryn-
hildur og bætir við þeirri spurningu hvort SI
og SA telji ekki ástæðu til að hjálpa neytendum
við að velja hollari mat. - sv
Ritstjóri Neytendablaðsins furðar sig á umsögnum SI og SA um innleiðingu hollustumerkisins Skráargatsins:
SI og SA telja merkið skapa „falskt öryggi“
Sænska matvælastofnunin tók Skráargatið
fyrst upp fyrir um 20 árum. Í Svíþjóð, Noregi
og Danmörku eru matvörur
merktar með Skráargatinu til
að auðvelda neytendum að
gera greinarmun á hollustu
matvæla. Vörurnar sem
mega bera merkið innihalda
minna magn af sykri, salti
og fitu eða meira af trefjum
en aðrar vörur í sömu matvæla-
flokkum.
Hollustumerki
BÚRMA, AP Hillary Clinton,
utanríkis ráðherra Bandaríkj-
anna, skoraði í gær á stjórnvöld í
Búrma að halda áfram úrbótum í
lýðræðis átt og sleppa öllum póli-
tískum föngum úr haldi nú þegar.
Hún boðaði í gær tilslakanir á
refsiaðgerðum gegn landinu.
Clinton kom í opinbera heim-
sókn til Búrma í gær. Þetta er
fyrsta opinbera heimsókn háttsetts
útsendara bandarískra stjórnvalda
til Búrma í hálfa öld. Með heim-
sókninni segir hún Bandaríkin
viður kenna að herforingja stjórnin
í landinu hafi á undanförnum
árum gert mikilvægar breytingar
í lýðræðisátt.
Clinton sagði þó mikið vanta upp
á hjá stjórnvöldum í landinu. Hún
hvatti herforingjastjórnina til að
hætta ofsóknum gegn minnihluta-
hópum, og slíta öll hernaðarleg
tengsl landsins við Norður-Kóreu.
„Einn pólitískur fangi er einum
of mikið,“ sagði Clinton. Skömmu
síðar hitti hún einn af fræg-
ustu pólitísku föngum samtím-
ans, friðarverðlauna hafann Aung
San Suu Kyi, Henni var sleppt úr
stofufangelsi í fyrra eftir tveggja
áratuga frelsisskerðingu. Clinton
snæddi kvöldmat með Suu Kyi,
og afhenti henni bréf frá Barack
Obama Bandaríkjaforseta. Clin-
ton og Suu Kyi munu eiga form-
legri fund í dag.
Fyrr í gær átti Clinton fund
með Thein Sein, forseta Búrma.
Þar afhenti hún bréf frá Barack
Obama Bandaríkjaforseta þar
sem hann lýsir áhuga á að styrkja
tengsl landanna geri stjórnvöld í
Burma nauðsynlegar umbætur í
lýðræðisátt.
Hún sagði samskipti landanna
þó ekki komin á það stig að banda-
rísk stjórnvöld íhugi að aflétta við-
skiptaþvingunum sem hafa verið
í gildi áratugum saman. Banda-
rísk stjórnvöld muni þó verðlauna
leiðtoga landsins fyrir frekari um-
bætur í lýðræðisátt.
„Ég kom til að meta hvort nú sé
rétti tíminn til að snúa við blaðinu
í samskiptum þjóða okkar,“ sagði
Clinton. Meðal þeirra tilslakana
sem hún tilkynnti um í gær var að
heimila aukið samstarf Búrma við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þá sagði
hún bandarísk stjórnvöld muna
og beita sér fyrir því að verkefni
Sameinuðu þjóðanna í Búrma sem
snúa að heilbrigðismálum og bar-
áttunni við eiturlyf verði efld.
brjann@frettabladid.is
Boðar þíðu í samskiptum
Bandaríkjanna og Búrma
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kynnti tilslakanir í refsiaðgerðum gegn Búrma við upphaf opinberrar
heimsóknar í gær. Clinton hitti friðarverðlaunahafann Aung San Suu Kyi á fyrsta degi heimsóknarinnar.
MÁLIN RÆDD Hillary Clinton snæddi kvöldverð með Aung San Suu Kyi á heimili
háttsetts bandarísks erindreka í Rangoon í Búrma í gær, og mun eiga formlegan
fund með henni í dag. NORDICPHOTOS/AFP
Ég kom til að meta
hvort nú sé rétti
tíminn til að snúa við blaðinu
í samskiptum þjóða okkar.
HILLARY CLINTON
UTANRÍKISRÁÐHERRA BANDARÍKJANNA
VERSLUN Ásgarður handverkstæði
verður með sinn árlega jólamark-
að og kaffisölu í húsnæði Ásgarðs
að Álafossvegi 22 í Mosfellsbæ
laugardaginn 3. desember. Mark-
aðurinn hefst klukkan 12 og
stendur til klukkan 17.
Allar leikfangalínur Ásgarðs
verða til sýnis og sölu, einnig
verður til sölu bæði kaffi og heitt
súkkulaði og auk þess kökur gegn
vægu gjaldi. Góðir gestir líta í
heimsókn og taka nokkur lög.
Sönn jólastemning fylgir því að
fara í heimsókn í Ásgarð, sitja til
borðs með listamönnum Ásgarðs
og drekka heitt súkkulaði með
rjóma. - sg
Hátíð í Ásgarði á laugardag:
Jólamarkaður
í Álafosskvos
JÓLASTEMNING Óskar Albertsson, tals-
maður Ásgarðs, með fallegar vörur fyrir
framan handverkstæðið.
DÓMSMÁL Karlmaður og kona um
tvítugt hafa verið ákærð fyrir
Héraðsdómi Reykjaness fyrir
fíkniefnalagabrot.
Parinu er gefið að sök að hafa
laugardaginn 17. september
síðast liðinn haft í vörslu sinni
nær níu grömm af kannabisefn-
um ætluð til sölu og dreifingar.
Lögreglan fann efnin við húsleit
heima hjá þeim í Reykjanesbæ.
Efnin fundust á tveimur stöð-
um í íbúðinni. Í einu af svefnher-
bergjum hennar fann lögregla
málningarfötu sem í voru um
átta grömm af kannabisefnum
þar af voru í sex grömm söluein-
ingum. Upp undir gramm var svo
falið í þvottahúsi íbúðarinnar. - jss
Ákærð fyrir fíkniefnabrot:
Kannabisefni í
málningarfötu
Samið um sögu Garðabæjar
Bæjarráð hefur samþykkti tillögu
ritnefndar um Sögu Garðabæjar að
semja við Bókaútgáfuna Opnu um til-
tekna þætti við útgáfu sögu bæjarins.
Samkvæmt tilboði Opnu á að greiða
samtals 11,3 milljónir króna fyrir
ritstjórn, hönnun og umbrot, próf-
arkalestur og umsjón og eftirlit. Þá
er meðal annnars eftir að borga fyrir
ritun bókarinnar og prentun.
SVEITARSTJÓRNIR