Fréttablaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 12
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR12
Meira í leiðinni
6020 LET40T900
HAIER 40” LED SJÓNVARP
Almennt verð 139.900 kr.
Verð til N1 korthafa 129.900 kr.*
Almennt verð 94.900 kr.
Verð til N1 korthafa 84.900 kr.*
LET40T900
Full HD: Upplausn 1920 x 1080
USB Time shift: Þú getur gert hlé á dagskrá,
spólað tilbaka eða hlaupið áfram í því efni
sem horft er á með því að tengja USB tæki.
USB tengi: Gerir kleift að horfa á mynd-
bönd skoða ljósmyndir eða hlusta á tónlist
beint af USB tæki.
Móttakari: DVB - T/C
(Háskerpu Stafrænn Móttakari)
Tengimöguleikar: 3 HDMI tengi, Composite,
Scart, 15 Pin D-sub(VGA/PC),PC Audio Input,
Digital audio Out (SPDIF), PCMCIA, 2 USB tengi
Þykkt: Aðeins 3,7cm
LET32T900
HD Ready: Upplausn 1366 x 768
USB Time shift: Þú getur gert hlé á dagskrá,
spólað tilbaka eða hlaupið áfram í því efni
sem horft er á með því að tengja USB tæki.
USB tengi: Gerir kleift að horfa á myndbönd
skoða ljósmyndir eða hlusta á tónlist
beint af USB tæki.
Móttakari: DVB - T/C
(Háskerpu Stafrænn Móttakari)
Tengimöguleikar: 3 HDMI tengi, Composite,
Scart, 15 Pin D-sub(VGA/PC),PC Audio Input,
Digital audio Out (SPDIF), PCMCIA, 2 USB tengi
Þykkt: Aðeins 4cm
6020 LET32T900
HAIER 32" LED SJÓNVARP
N1 STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA
HAFNARFIRÐI | KEFLAVÍK | AKRANESI | AKUREYRI
EGILSTÖÐUM | HÖFN | SELFOSS
LED SJÓNVÖRP
Á GÓÐU VERÐI
ENN MEIRI ÁVINNINGUR FYRIR N1 KORTHAFA
N1 VERSLANIR
*N1 korthafar þurfa að framvísa N1 kortinu til að tryggja sér
Á LEIÐ ÚT Í GEIM Bandarískur, rúss-
neskur og hollenskur geimfari búa sig
undir ferð út í geiminn frá Rússlandi
síðar í mánuðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BELGÍA Allt bendir til þess að ríkisstjórn verði
mynduð í Belgíu um helgina, en stjórnarkreppa
hafði ríkt þar í 536 daga áður en sex flokkar á
þingi komu sér saman um fjárlög ársins í gær.
Á meðan hefur landinu verið stýrt af utan-
þingsstjórn, en þessi tími sem tekið hefur að
mynda stjórn er staðfest heimsmet hjá lýðræðis-
ríki.
Sósíalistinn Elio Di Rupo er talinn líklegastur
til að leiða stjórnina en skipan hennar verður
sennilega staðfest á mánudag. Helsta ástæðan á
bak við tregðuna er núningur milli þjóðarbrota
því að háværar raddir í flæmska hluta landsins
hafa lýst óánægju með að þurfa að „halda uppi“
frönskumælandi hlutanum þar sem meðaltekjur
eru lægri og atvinnuleysi meira. Flæmska fylk-
ingin, sem stefnir að því að gera Belgíu að sam-
bandsríki, fékk flest þingsæti í kosningunum
í júní í fyrra, en er ekki meðal þátttakenda í
væntan legri stjórn.
Lausn stjórnarkreppunnar var orðin afar
aðkallandi þar sem aðgerða var þörf í efnahags-
málum. Ávöxtunarkrafa á ríkisskuldabréf hafði
hækkað upp undir 7% eftir að lánshæfismat
ríkis ins var lækkað fyrir viku.
Samkomulag flokkanna felur i sér miklar
aðhaldsaðgerðir til að koma fjárlagahallanum
niður í 2,8% eins og krafan er frá ESB, en stefnt
er að hallalausum fjárlögum árið 2015.
Næstu þingkosningar verða árið 2014. - þj
Eins og hálfs árs stjórnarkreppu að ljúka með samkomulagi sex flokka:
Loksins mynduð ný ríkisstjórn í Belgíu
MYNDAR STJÓRN Elio Di Rupo er talinn líklegastur
til að leiða nýja ríkisstjórn sem stendur til að
mynda um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FANGELSISMÁL „Mín skoðun er sú
að mikilvægt sé að veita heim-
ild til byggingar nýs fangelsis en
það þurfi að gera með ákveðnum
skilyrðum.“ Þetta segir Sigríður
Ingibjörg Ingadóttir, for maður
fjárlaganefndar Alþingis, en
meirihluti nefndarinnar er and-
vígur því að heimila byggingu
fangelsis á Hólmsheiði í samræmi
við tillögur ríkisstjórnarinnar.
Ögmundur jónasson innanríkis-
ráðherra lagði til við fjárlaga-
nefnd að veittar yrðu 190 millj-
ónir til hönnunar fangelsisins.
Sigríður Ingibjörg segir að mál-
inu hafi verið frestað til þriðju
fjárlagaumræðu, sem fram fer
næstkomandi þriðjudag.
„Það eru uppi efasemdir um
hlutverk hins nýja fangelsis,
hvernig haga eigi fangelsismálum
til framtíðar litið og hvort þessi
bygging sé í anda þess,“ útskýrir
hún. Aðspurð segir hún efasemd-
irnar snúa að því hvort rétt sé að
hér séu tvö vistunarfangelsi. Gert
sé ráð fyrir að nýja fangelsið rúmi
á sjötta tug fanga og margir telji
að það sé of stórt. Byggja þurfi
komu- og gæsluvarðhaldsfangelsi
auk kvennafangelsis en öryggis-
fangelsi eigi fyrst og fremst að
vera á Litla-Hrauni.
Spurð, í ljósi langra biðlista
í afplánun, hvort ekki sé þörf
á fleiri slíkum plássum bendir
Sigríður Ingibjörg á að ekki séu
allir sem bíði afplánunar að fara
í öryggisgæslu, heldur geti hluti
þeirra verið í opnum úrræðum og
samfélagsþjónustu. Grundvallar-
atriðið sé þó að veita heimild til að
hefja hönnun nýs fangelsis þegar
búið verði að ná niðurstöðu. Sú
heimild liggi fyrir á árinu 2012
og þá með skilyrðum í samræmi
við vilja þingsins.
„Það er orðið brýnt að koma
með viðbótarlausn í fangelsis-
málum. Það þarf því að klára
þetta mál í þriðju fjárlagaum-
ræðu. Við erum að vinna að því
að finna leið sem tryggir að við
fáum nýtt fangelsi en jafnframt
að það verði út frá áherslum sem
Alþingi geti sætt sig við.“
Björn Valur Gíslason, vara-
formaður fjárlaganefndar, segir
nefndina líta svo á að leggi hún
fram breytingatillögu við fjárlög
um hönnun nýs fangelsis sé um
leið verið að binda staðsetninguna
við Hólmsheiði.
„Þessi heimild er upp á til-
tekna fjárhæð til að hanna nýja
byggingu á Hólmsheiði, en ekki
annars staðar,“ segir Björn Valur
en segir þetta atriði ekki standa
sérstaklega í vegi fyrir ákvörðun
nefndarinnar. Þarna sé ekki ein-
ungis verið að taka fjárhagslega
ákvörðun heldur einnig faglega.
Fjárlaganefnd þurfi því að afla
frekari upplýsinga, meðal annars
frá innanríkisráðherra og tiltekn-
um starfsmönnum innanríkis-
ráðuneytisins. jss@frettabladid.is
LITLA-HRAUN Formaður fjárlaganefndar segir að öryggisfangelsi eigi fyrst og fremst
að vera á Litla-Hrauni.
Bygging nýs
fangelsis sé
háð skilyrðum
Formaður fjárlaganefndar Alþingis vill að heimild
til byggingar nýs fangelsis verði veitt með ákveðnum
skilyrðum. Margir telji að fangelsisbyggingin sem
gert er ráð fyrir að rísi á Hólmsheiði sé of stór.
alla sunnudaga klukkan 16. Njótið vel
Hemmi Gunn
– og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur