Fréttablaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 16
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR16 hún undir kröfu um óábyrga stjórn ríkisfjármála. Menn krefjast frek- ar hallareksturs, ýmiss konar mis- viturra framkvæmda og svo fram- vegis, þegar kostnaðurinn við slíka óstjórn birtist ekki nema að litlu leyti fyrst um sinn.“ Þá vill Helgi leggja áherslu á að verð- tryggingin sé alls ekki það eina sem skipti máli þegar fjallað sé um hag- stjórn á Íslandi. „Það er mjög mikilvægt að undirstrika að þess- ir gallar verðtrygg- ingarinnar hafa fyrst og fremst verið að leiða fram afleiðing- ar óstöðugleika. Og það er engan veginn einhver töfralausn að draga úr vægi hennar. Það verður alltaf dýrt að skulda á Íslandi á meðan við höfum ekki tök á efnahagsmálum. Spurningin er því hvort það að draga úr vægi verðtryggingar getur verið hjálplegt við að ná meiri stöðugleika,“ segir Helgi og bætir við í tengslum við þetta að hann telji að til að ná varanlegum árangri í peningamálastjórn sé skynsamleg- ast að taka upp nýjan öflugan gjald- miðil þótt ljóst sé að byggt verði á krónunni enn um sinn. Raunverulegir lánavalkostir fagnaðarefni Fræðilegar rannsóknir á verð- tryggðum lánum benda heldur til þess að slík lán séu hagstæð- ari en þau óverðtryggðu fyrir lán- takendur í verðbólguumhverfi eins og á Íslandi. Því má velta upp þeirri spurningu hvort það séu endilega hagsmunir einstaklinga að draga úr vægi hennar. „Það er ekkert augljóst í þessu samhengi og einmitt þess vegna þurfum við að fara mjög vel yfir þetta. En hér er vert að hafa nokkra hluti í huga. Fyrir það fyrsta, það er alveg rétt að kenningin hefur verið að verðtryggingin annars vegar hjálpi okkur að halda stöðug- leika í efnahagslífinu og hins vegar haldi niðri fjármögnunarkostnaði til lengri tíma þar sem fjárfestar muni alltaf krefjast auka áhættuálags á vexti njóti þeir ekki verðtrygging- ar. Spurningin sem þarf að svara er hins vegar hvort þetta hefur verið veru leikinn á Íslandi. Kenningin og veru- leikinn þurfa ekki alltaf að fara saman eins og menn þekkja,“ segir Helgi og heldur áfram: „Það er sann- arlega ekki víst að við höfum notið meiri stöðugleika vegna verðtryggingarinnar en ella. Það er í það minnsta ljóst að við höfum notið minni stöðugleika en helstu viðskiptalönd okkar. Og ef menn skoða þá vexti sem nú er verið að bjóða á óverð- tryggðum lánum er fjarri því að þeir vext- ir jafngildi væntri verðbólgu, fimm pró- sent raunvöxtum og áhættuálagi eins og fræðin segja til um. Þeir eru ekki mikið hærri en svo að þeir haldi í við verðbólguna. Þetta er auðvitað verðlagning til skemmri tíma og menn þurfa að líta til langs tíma en í öllu falli tel ég það vera óvíst að þessi kenning sé rétt.“ Íslensku viðskiptabankarnir hafa nýverið hafið að bjóða upp á óverðtryggð húsnæðislán samhliða verðtryggðum. Þá hefur Alþingi samþykkt að veita Íbúðalánsjóði heimild til hins sama. Helgi fagnar því að valkostir lántakenda séu nú fleiri. „Við erum að sjá viðskipta- bankanna nú bjóða hvort tveggja, upp á verðtryggð og óverðtryggð lán eins og við í stjórnarmeirihlut- anum höfum hvatt til. Óverðtryggð lán hafa áður verið í boði en oft á tíðum voru þeir eiginlega valkostur eingöngu að nafninu til, það er, þau voru verðlögð þannig að þau voru eiginlega ekki í boði. Núna virðist hins vegar komið fram raunveru- legt val á milli valkosta og því ber að fagna,“ segir Helgi. Þ að er óhætt að segja að verðtrygging lána hafi verið á milli tannanna á landsmönnum síðustu ár. Ekki síst í kjölfar gengis- falls íslensku krónunnar eftir bankahrunið haustið 2008 sem olli miklum hækkunum á höfuðstóli verðtryggðra lána. Hefur verið talað um „stökkbreytingu“ lána og forsendubrest í þessu samhengi. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka í efnahags- og viðskiptanefnd Alþing- is samþykktu í síðustu viku bókun sem kveður á um að undirbúin verði þverpólitísk aðgerðaáætlun um minnkað vægi verðtrygging- ar á íslenskum fjármálamarkaði. Stefnt er að því að umrædd áætlun verði lögð fram sem þingmál fyrir 15. febrúar næstkomandi. Helgi Hjörvar, þingmaður Sam- fylkingarinnar, er formaður efna- hags- og viðskiptanefndar. Frétta- blaðið ræddi við Helga í vikunni um verðtrygginguna, hvort skynsam- legt sé að draga úr vægi hennar og þá hvernig. Nauðsynlegt að fara yfir skipulag efnahagsmála „Það sem þessi bókun þýðir er að fulltrúar allra flokka telja það vera mikilvægt verkefni að draga úr verðtryggingunni,“ segir Helgi Hjörvar, aðspurður hvaða ályktanir mega draga af bókun nefndar innar. „Það er að ég held nauðsynlegt að skoða verðtrygginguna rétt eins og aðra lykilþætti í skipulagi okkar efnahagsmála nú eftir hrun. Sér- staklega er að mínu viti tilefni til að fara vel yfir þá þætti sem eru með afgerandi öðrum hætti á Íslandi en almennt gerist í hagkerfum heims- ins. Verðtryggingin er vissulega ekkert einsdæmi hér á landi en vægi hennar er mun meira hér en gerist víðast hvar.“ Helgi telur það vera gríðar- lega mikilvægt að náðst hafi sam- staða innan efnahags- og viðskipta- nefndar um að stíga þetta skref. Það þýði þó ekki að allir séu á nákvæm- lega sömu línu. „Ég geri ráð fyrir því að í þeirri vinnu sem er fram undan verði ólík sjónarmið uppi um hversu langt eigi að ganga. Fyrst og fremst munum við líta til verðtryggingar neytenda- lána, þar með talinna húsnæðislána, og umhverfi þeirra. Sumir vilja að ég held afnema verðtrygginguna algjörlega gagnvart einstaklingum á meðan aðrir hafa ekki sannfær- ingu fyrir því að það eigi beinlínis að banna hana. En það er auðvitað verkefni okkar; að reyna að sætta þessi ólíku sjónarmið. Síðan munum við kalla eftir áliti sérfræðinga og viðhorfum ýmissa aðila í sam- félaginu,“ segir Helgi. Þá leggur Helgi áherslu á að farið verði í þessa vinnu með opnum huga og að ekkert verði útilokað. „Mér finnst rétt að fara inn í þess- ar samræður með opinn huga og tel það vænlegast til að menn geti náð saman í þessu máli. Þess vegna vil ég helst ekki nú í upphafi þessar- ar samráðsvinnu flokkanna úttala mig um mín persónulegu viðhorf til verðtryggingarinnar. Ég auðvitað fel þau heldur ekki og ég get sagt að ég vil heldur ganga lengra en skemmra, en eins og ég segi þá held ég að menn eigi ekki að útiloka neitt fyrirfram,“ segir Helgi en bætir við að hann telji verkefni nefndarinnar vera að einfalda og straumlínulaga kerfið fremur en að auka flækju- stigið í því eins og myndi gerast ef farið yrði eftir sumum þeirra til- lagna sem komið hafa fram. Lykilatriðið að ná stöðugleika En hvað er það nákvæmlega við verðtrygginguna sem gefur tilefni til slíkrar endurskoðunar? „Það eru að ég held margar ástæður fyrir því af hverju stuðningur við að taka verðtrygginguna til end- urskoðunar hefur aukist í öllum stjórnmálaflokkum. Það má nefna að menn hafa haft af því miklar áhyggjur að víðtæk verðtrygging takmarki miðlunar áhrif peninga- málastefnunnar, það er, áhrif stýri- vaxta,“ segir Helgi og heldur áfram: „Verðtryggingin stuðlar einnig að því að fólk getur skuldsett sig meira en ella. Þetta kom til dæmis fram á fundi okkar í nefndinni með peningastefnunefnd Seðlabankans nýverið. Og það þurfum við að ræða vandlega held ég bæði út frá eigin reynslu og reynslu annarra þjóða. Er það endilega æskilegt að vera með kerfi sem stuðlar að hámarks- skuldsetningu.“ Helgi nefnir einnig að verðtrygg- ingin dragi úr kostnaðarvitund bæði einstaklinga og stjórnmála- manna. „Það hafa verið færð fyrir því rök að verðtryggingin valdi því að menn freistist til að kaupa meira en þeir ráða við. Það gerist þar sem sá kostnaður sem óhjákvæmilega fylgir verðbólgunni er dulinn en menn þurfa að horfast í augu við hann ef um óverðtryggt lán er að ræða. Með öðrum orðum er verð- tryggingin neysluhvetjandi, og við þurfum að skoða það,“ segir Helgi og bætir við: „Verðtryggingin ýtir líka undir hallarekstur og óábyrga ríkisfjármálastjórn hjá hinu opin- bera. Verðtryggingin í raun frestar því að almenningur þurfi að greiða fyrir áhrif efnahagslegrar óstjórn- ar og það dregur úr aðhaldi hans á stjórnmálamönnum. Þar með ýtir Föstudagsviðtaliðföstuda gur Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis Spurningin er því hvort það að draga úr vægi verðtryggingar getur verið hjálp- legt við að ná meiri stöðugleika. Stóra spurningin er hvort verðtrygging auki óstöðugleika Fulltrúar allra flokka í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis samþykktu í síðustu viku merkilega bókun um að undirbúin yrði aðgerðaáætlun sem miðaði að því að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi. Magnús Þorlákur Lúðvíksson ræddi við Helga Hjörvar, formann nefndarinnar, um verðtrygginguna, kosti hennar og galla, og framtíð lánamála í fjármálakerfinu. HELGI HJÖRVAR Helgi leggur áherslu á að menn nálgist þá samráðsvinnu sem er að fara af stað með opnum huga og reyni að sætta ólík sjónarmið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á einnig sæti í efnahags- og viðskiptanefnd. Rétt eins og Helgi fagnar hann því að nefndin hafi sameinast um þessa bókun en segir enn talsverða vinnu fyrir höndum. „Ég tel að við eigum að reyna að minnka vægi verð- tryggingar á neytenda- og húsnæðislánum. Það ætti að gera til þess að mæta mikilli óánægju með það hvernig þessu hefur verið háttað. Það sem gerist með minna vægi verðtrygg- ingar er að virkni peningamála- stefnunnar verður meiri. Þá er mjög sennilegt að hvati allra aðila verði meiri til þess að halda verðbólgu lágri og stöðugri,“ segir Tryggvi Þór og bætir við: „En það er líka alveg ljóst að það eru gallar við að draga úr vægi verðtryggingar. Ef það koma mjög snögg verðbólguskot þá hækka vextir hratt og það getur komið illa niður á heimilunum. Ég held að aðalatriðið í þessu öllu saman sem fólk verður að skilja sé að það er ekki verðtryggingin sem er vandamálið. Það er verðbólgan sem er vandamálið. Verðbólgan stafar af ójafnvægi í hagstjórninni og ef við náum tökum á hag- stjórninni þá náum við tökum á hinum hlutunum líka. Þá mun enginn tala um verðtryggingu sem þann gríðarlega skaðvald sem menn tala um í dag.” Tryggi segist ekki vera þeirrar skoðunar að banna eigi verðtryggingu. Vilji einstaklingar taka verðtryggt lán eigi þeir að mega það. „Ég held að einfaldasta leiðin sé að boðið verði upp á óverðtryggð lán og fólk geti valið á milli lántegunda. Við sjáum að núna í bankakerfinu er verið að bjóða upp á óverðtryggð fasteignalán með föstum vöxtum til einhverra ára og síðan eru vextirnir endurskoðaðir samkvæmt ákvæði eftir tiltekinn tíma. Í 90 prósentum tilvika velja menn nú óverðtryggð lán og frá lokum árs 2008 hafa óverðtryggð neytenda- og húsnæð- islánið farið úr því að vera 15 prósent lána í að 35 pró- sent skilst mér. Þannig að þessi þróun er að eiga sér stað og það hratt,” segir Tryggvi og heldur áfram: „Lántakendur verða nú að spyrja sig hvort það er hagstæðara að taka verðtryggt eða óverðtryggt lán. Og maður vonar að eftir því sem vægi verðtryggðra lána minnkar verði verðbólgan lægri og stöðugri þar sem hagsmunir fólks verða frekar í þá átt að halda verðbólgu lægri. En þessu tengt er margt sem þarf að gera að mínu viti. Það er lykilatriði að mótuð verði peningamálstefna hér til framtíðar og það þarf að setja einhvers konar agareglur á stjórnmálamennina svo það komi ekki aftur misræmi á milli peningamálastjórnar- innar og ríkisfjármálastjórnarinnar.” Loks hugnast Tryggva illa tillögur sem settar hafa verið fram um að setja einhvers konar þak á verðtrygginguna eða þá að tengja lán við launavísitölu eða húsnæðis- verðsvísitölu eins og lagt hefur verið. „Ég held að fólk verði að átta sig á því að þegar settar eru einhvers konar takmarkanir á lánveitingar sem eru augljóslega lántak- andanum í hag, þá missir lánveitandinn áhugann á því að lána. Þá verður að hafa í huga að launavísitala hækkar yfirleitt hraðar en vísitala neysluverðs, þannig að lánin myndu hækka meira við slíka tengingu,” segir Tryggvi. Verðtryggingin er ekki vandamálið heldur verðbólgan TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.