Fréttablaðið - 02.12.2011, Síða 21
FÖSTUDAGUR 2. desember 2011 21
TÍMI TIL AÐ NJÓTA
FLJÓTANDI KRAFTAR
ÁN
MSG
Það er ekki annað hægt en að vera hugsi yfir þeirri niður-
stöðu tveggja norskra sálfræð-
inga um að Anders Breivik sé
ekki fær um að svara til saka
fyrir gjörðir sínar. Kannski
ætti að varast að þykjast vitrari
en þeir sem vit eiga að hafa.
Kannski ætti líka að sýna því
virðingu þegar menn virðast
vinna vinnu sína í takt við lög
og fræði en ekki almenningsálit.
En það breytir því ekki að niður-
staðan og afleiðingar hennar
hljóta að vekja okkur til umhugs-
unar.
Það er auðvitað ákveðin niður-
staða ef mannhaturshugmyndir
eins og þær sem Anders Breivik
aðhyllist séu dæmi um geðveiki.
Það gæti jafnvel þótt sumum
ákveðinn léttir. Víst er að fáir
sem láti sig stjórnmál varða kæri
sig um að deila hillu með manni
eins og Breivik. En er maðurinn
geðveikur?
Auðvitað er sá sem frem-
ur svona ódæði ekki normal.
Normal manneskja skrifar ekki
heilan kafla í bók um það hvort
eldvarpa eða vélbyssa séu betri
þegar drepa skal börn í útilegum.
Hvað þá að normal manneskja
myndi gera nokkuð slíkt. En
erum við ekki þannig komin með
fullyrðingu sem sannar sjálfa
sig? Að ef ódæðisverkið er nægi-
lega grimmilegt þá er ódæðis-
maðurinn klárlega ekki fær um
að svara til saka fyrir það? Morð
hætta að vera glæpur og fara að
verða sjúkdómseinkenni. Þetta
virkar náttúrlega dálítið eins og
þvæla.
Það er auðvitað ekki þar með
sagt að Anders Breivik hefði
ekki í sinni vonandi ævilöngu
fangelsis dvöl átt að fá að taka
geðlyf eða hitta sálfræðinga
og ræða við þá um það hvern-
ig honum og pabba hans hefði
komið saman á æskuárum. Mér
er nokkuð sama hvar og við
hvaða aðstæður hann muni dvelja
og hvaða sérfræðiaðstoð hann
fær. En eigi að uppfylla einhverja
réttlætisþörf, þá er nokkuð erfitt
að kyngja því að Anders Breivik
hafi ekki vitað hvað hann væri að
gera, sé ekki fær um að svara til
saka og beri þar með ekki ábyrgð
á gjörðum sínum. Engu af því
þrennu er auðvelt að trúa.
Nývondhyggja
Ég hef lesið það sem morðinginn
sendi frá sér. Það er ekki huggu-
leg lesning: síður af framreikn-
ingum íbúaþróunar í Evrópu,
flokkun evrópskra stjórnmála-
manna í ólíkar gerðir svikara,
tillögur að skotmörkum og fram-
kvæmd morða, og loks ítarlegur
kafli um hvernig eigi að velja
sér réttan lögmann, og haga sér
í réttarhöldunum að ódæðunum
loknum. Svo varla verður sagt
annað en að ásetningurinn hafi
verið skýr, og afleiðingarnar
morðingjanum ljósar.
Til að láta sér líða betur
má kalla slíka stefnuskrá
samhengis laust bull. En hún er
það því miður ekki heldur sam-
ansafn af því versta úr versta
afturhalds íhaldshægrinu, á köfl-
um skrifuð í einhverskonar hálf-
gildings vísindastíl með fjölda
tilvitnana, fótnóta og sögulegra
staðreynda. Innan um þetta má
svo finna gnótt skoðana sem
eru óþægilega kunnuglegar úr
meginstraumi ákveðins vængs
stjórnmála: nefnilega sjúklega
ESB andstöðu, áherslu á kristin
gildi, dálæti á hefðum, her og aga
og andstöðu við innflytjendur og
fleira. Fjölmargir flokkar sem
aðhyllast slíka hugmyndafræði
hafa verið stofnaðir á Norður-
löndum undanfarna áratugi og
reynt hefur verið að stofna slíka
flokka hérlendis, en þeir þó ekki
náð fótfestu hér, enn sem komið
er.
Sjúkir af hatri?
Það er ekki lengra en ein
mannsævi síðan ekki ósvipuð
hugmynda fræði fékk heilar þjóð-
ir til sannfærast um að leiðin til
eigin velferðar lægi um mennsk
sláturhús. Og þeir stjórnmála-
menn sem það boðuðu komust til
valda með atkvæðum venjulegs
fólks og oft stuðningi annarra,
oft jafnvel „venjulegra“ stjórn-
málamanna. Það ætti að vara
okkur við: Inni í okkur öllum búa
rottur sem munu koma fram ef
við förum ekki reglulega út með
ruslið.
Ég treysti Norðmönnum til
að leysa úr þessum málum
innan ramma síns dómskerfis
og kannski er eitthvað sem sál-
fræðingarnir tveir vita sem við
vitum ekki sem styrkir ályktan-
ir þeirra frekar. En tvennu þarf
að halda til haga. Sjúklegt hatur
á innflytjendum er eitt og sér
ekki geðsjúkdómur heldur vond
og mannfjandsamleg hugmynda-
fræði. Og það að menn drepi í
nafni vondrar hugmyndafræði á
ekki að teljast til málsbóta.
Alveg klikk
Pawel Bartoszek
Stærðfræðingur
Í DAG
Þá er nokkuð
erfitt að kyngja
því að Anders Breivik
hafi ekki vitað hvað hann
væri að gera...
AF NETINU
Klikkaða hagfræðin
Klikkið í þjóð-
félaginu er
svo lífseigt, að
hagfræðingar
tala enn um,
að auka þurfi
sukk til að ná
upp hagvexti.
Fólk þurfi að
slá pening og
eyða meira og
spenna. Þetta segja þeir í alvöru,
enda er þensla og bólga vinsælt
markmið hér. Flestir klappa fyrir
hagvexti, þótt hann mæli bara
aukið sukk, en ekki aukinn auð.
Með hagfræðilegum hugtökum af
þessu tagi er ekki hægt að búast
við, að okkur farnist vel. Sér-
hver hagsýn húsmóðir getur sagt
fræðingunum, að menn þurfi fyrst
að eiga aur, áður en honum er
eytt. Galið fjármálakerfi heimsins
byggist á að afneita náttúrulegu
gildismati hagsýnna húsmæðra.
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Þingmaður kjördæmisins
Nú er Alþingi
komið á
lokasprettinn
með gerð fjár-
laga næsta árs.
Síðasta umræða
fjárlagafrum-
varpsins verður
næsta þriðjudag
og eftir það
munu fjárlög
næsta árs verða ráðin. Fjárlaga-
nefnd Alþingis er sú nefnd sem
hefur með fjárlagavinnuna að gera
eftir að frumvarp hefur verið lagt
fram. Nefndin fær fjölda gesta og
umsagna til sín vegna einstakra
liða frumvarpsins og leitar víða
fanga við að gera það sem best
úr garði.
Nefndarmenn verða síðan fyrir
talsverðum þrýstingi utan úr
samfélaginu samhliða vinnu sinni
vegna ýmissa mála og frá þeim
sem telja að betur megi gera í
málum þeim tengdum. Sumt af
því ber árangur – annað ekki eins
og gengur.
blogg.smugan.is/bvg
Björn Valur Gíslason