Fréttablaðið - 02.12.2011, Page 32
32 2. desember 2011 FÖSTUDAGUR
Á sjötta áratug liðinnar aldar óx þeirri hreyfingu mjög afl í
Bandaríkjunum sem barðist gegn
misrétti kynþáttanna. Blökku-
konan Rósa Parks neitaði 1955 að
standa upp fyrir hvítum manni í
strætisvagni og var handtekin og
sektuð.
Margir urðu þá til þess að rísa
upp gegn ranglætinu. John F.
Kennedy tók málstað hörunds-
dökkra, en brýndi þó fyrir mönn-
um í innsetningarræðu til forseta-
embættisins 1961, að þeir ættu
ekki að spyrja að því, hvað þjóð-
félagið gæti gert fyrir þá, heldur
að því hvað þeir gætu gert fyrir
þjóðfélagið. Fyrst í stað féllu þau
orð í góðan jarðveg, en þegar sett
voru lög um herskyldu 1964 er
kváðu á um að ungir menn skyldu
í blóma lífsins sendir til Víetnams
til að slátra þar meðbræðrum
sínum og/eða vera sjálfum slátr-
að, má segja að hvatning forsetans
hafi snúizt upp í andhverfu sína.
Háværar urðu raddir máls-
metandi einstaklinga, eins og t.d.
Noams Chomskys, sem hvöttu til
þess að ungir menn óhlýðnuðust
herskyldulögunum.
Sú spurning hefur á síðustu
árum dregið að sér athygli, hvern-
ig bregðast skal við ranglátum
lögum. Í umfjöllun um náttúru-
rétt í Um lög og lögfræði (Rvík
2003/2007) á bls. 65 þýðir Sig-
urður Líndal lauslega texta Norð-
mannanna Davids Doublets og
Jans Fridthjofs Bernts í Retten og
vitenskapen (Bergen 1992) á bls.
139. Textann setur Sigurður fram
– andstætt lögum um höfundarrétt
– sem sínar eigin hugsanir.
Norðmennirnir spyrja, hvernig
sé unnt að leggja mat á sett lands-
lög út frá náttúruréttarkenningu,
sem ekki orðar reglur sem val-
kost er komið geti í stað lands-
laga. Í raun er það þó vel gerlegt.
Náttúru réttur er nokkrir megin-
stafir verklegrar skynsemi og
um hann dæmir hver fyrir sig
óháð landslögum – stað þeirra og
stund. Rósa Parks þurfti ekki sér-
staka reglu náttúruréttar um að
svertingjar mættu neita að standa
upp á strætisvögnum þegar hvítir
menn krefðust sætisins.
Frá norska textanum víkur Sig-
urður Líndal í þýðingu sinni þegar
hann segir:
„Löggjafinn kann að setja lög
sem eru í andstöðu við eðlis-
réttarreglur. Og hvernig á þá að
bregðast við slíkri reglu? Þarna
rís túlkunarvandi þar sem niður-
staða liggur ekki í augum uppi. Við
það bætist siðferðilegur vandi: að
framfylgja slíkum ákvæðum.“
Ekki er ljóst, hvort Sigurður er hér
að lýsa landsrétti eða náttúrurétti/
eðlisrétti. En rökrétt lýtur spurn-
ingin að náttúrurétti og svarið er
vafalaust: Ef sett hafa verið lög
í andstöðu við eðlisréttarreglur,
hljóta þau lög að vera ranglát og
gegn slíkum lögum ber að andæfa.
Norðmennirnir telja þá sem
sæta ranglæti af völdum lands-
laga geta „með vísan til reglna
náttúruréttarins … einungis skotið
máli sínu til ríkisins og stofnana
þess.“ („Gjennom de naturrett-
slige normer kan man bare appell-
ere til statsapparatet.“). Í því felst
að þeir sem telja sig beitta rang-
læti með setningu tiltekinna laga
geta t.d. leitað (1) til þingmanna og
reynt með skynsamlegum rökum
að fá þá til að leggja fram frum-
varp til breytingar á lögunum, (2)
til ráðherra og reynt að fá hann til
að breyta reglugerð, ef slík breyt-
ing nægir til leiðréttingar og telst
innan heimildar laganna, (3) til
dómstóla ríkisins og freistað þess
þar að fá lögin túlkuð til rétt látrar
niðurstöðu eða jafnvel hnekkt með
dómi.
Staðhæfing Norðmannanna er
ekki alveg rétt, því að m.a. geta
menn – bæði í Noregi og á Íslandi –
skotið máli sínu til Mannréttinda-
dómstólsins í Strassborg, þótt
þeim takist ekki innanlands að fá
ranglát lög leiðrétt með því að bera
fyrir sig náttúrurétt.
Mannréttindasáttmáli Evrópu
er nokkrir meginstafir náttúru-
réttar sem m.a. hafa verið lögfest-
ir hér á landi, sbr. lög nr. 62/1994.
Sigurður Líndal víkur verulega
frá norska textanum, þegar hann
segir: „Með eðlisréttinn að leið-
arljósi geta þegnarnir einungis
skírskotað til siðgæðisvitundar
valdhafanna.“ Hér gerir Sigurð-
ur – eins og svo oft endranær – sig
beran að óskýrri hugsun.
Á 19. öld leysti lagaleg sögu-
hyggja í Þýzkalandi náttúruréttar-
hyggju af hólmi og hefur síðan
haft mikil áhrif á norrænan rétt.
Hún er réttarkenning, sem – ólíkt
náttúrurétti – notast því við hug-
tök, eins og réttarsannfæringu
þjóðar, siðgæðisvitund, réttar-
vitund og réttartilfinningu. Þegar
Sigurður Líndal notar sálfræði-
leg hugtök hennar, eins og t.d.
„siðgæðisvitund“ til útskýringar
á náttúrurétti, má vera ljóst, að
hann er að rugla saman náttúru-
réttarhyggju og lagalegri sögu-
hyggju. Réttarvitundin er ekki
eingöngu formleg og stofnana-
bundin, svo sem að lög séu lög og
þeim skuli hlýða, heldur getur hún
verið frjáls, gagnrýnin og efnisleg.
Siðgæðisvitundin er þáttur í henni
og hún er ekki bundin við sett lög.
Hver sá sem álítur sett lög
stangast á við rétt sinn, getur
skírskotað til almennrar réttar-
vitundar og það kann að hafa í
för með sér, að sett lög verði ekki
meðtekin sem gildandi réttur, af
því að réttarvitundin sam þykkir
þau ekki. Hún er samkvæmt því
eini prófsteinninn á tilvist og gildi
laga, sbr. nánar Knud Illum í Lov
og Ret (Khöfn 1945) á bls. 53f, 103
og 118 og Alf Ross í Om ret og
retfærdighed (Khöfn 1953) á bls.
86-89 og 345-46 og Virkelighed
og Gyldighed i Retslæren (Khöfn
1934) á bls. 99-100.
Evrópuvefurinn var stofnaður með þjónustusamningi milli
Alþingis og Vísindavefs Háskóla
Íslands og hóf störf í júní 2011.
Evrópuvefurinn er upplýsinga-
veita um Evrópusambandið og
Evrópumál og tilgangur hans
er að veita hlutlægar upplýsing-
ar meðal annars um stofnanir
og stefnumál ESB, aðildarríki
sambandsins og aðildarumsókn
Íslands. Fjármagn til Evrópu-
vefsins kemur frá Alþingi en
hann starfar í nánum tengslum
við Vísindavefinn og byggir á
sömu einföldu hugmynd: að svara
spurningum lesenda á skýran og
skilmerkilegan hátt. Umfjöllunar-
efni vefsins stjórnast fyrst og
fremst af hugðarefnum spyrj-
enda.
Auk þess að leggja inn nýjar
spurningar geta gestir Evrópu-
vefsins lesið svör við spurning-
um annarra. Á Evrópuvefnum
er nú að finna svör við rúmlega
200 spurningum. Sem dæmi má
nefna Hver yrði árlegur kostn-
aður Íslands við aðild að ESB?
Glata Íslendingar fullveldinu
við inngöngu í ESB? Hvað felst
í landbúnaðarstefnu Evrópu-
sambandsins, CAP? Hvað tekur
okkur langan tíma að fá evru ef
aðild að ESB væri samþykkt?
Gestir eru eindregið hvattir til
að taka þátt í umræðum um svör
með því að gera við þau málefna-
legar athugasemdir á vefnum.
Á Evrópuvefnum er einnig
aðgengilegt ítarefni svo sem
tímaás um Evrópusambandið,
aðdraganda þess og umhverfi,
yfirlit yfir aðildarsögu sam-
bandsins sem og helstu stofnan-
ir og sáttmála. Hluti svaranna
á Evrópuvefnum myndar hand-
bók um Evrópumál. Í henni eru
stuttar útskýringar á hugtökum
og fleiru og eru þar nú um 70
flettiorð. Einnig er á vefnum safn
tengla í efni sem snertir ESB.
Með hjálp leitarvélar vefsins geta
gestir leitað eftir efnisorðum sem
tengjast því sem þá fýsir að vita
og fengið ábendingar um svör og
annað tengt efni sem þegar er
komið á vefinn.
Ríkisstjórn Íslands sótti um
aðild að Evrópusambandinu í júlí
árið 2009 og á nú í viðræðum við
fulltrúa sambandsins um skil-
mála aðildarsamnings. Takist
að ljúka samningi verður hann
lagður fyrir þjóðina í þjóðarat-
kvæðagreiðslu og þá bíður það
Íslendinga að taka persónulega
afstöðu til þess hvort landið skuli
verða aðili að Evrópusambandinu
eða ekki. Ýmsir kunna að hafa
gert upp hug sinn til aðildar nú
þegar en fleiri bíða líklega eftir
niður stöðum viðræðnanna. Hvað
sem þessu líður verður Evrópu-
sambandið áfram mikilvægur
þáttur í umhverfi okkar, meðal
annars vegna aðildar Íslands
að Evrópska efnahagssvæðinu
(EES).
Fyrir alla sem vilja afla sér
upplýsinga um aðdraganda og
sögu Evrópusambandsins; lög-
gjöf, réttarframkvæmd og stjórn-
sýslu í ESB; stefnu og áætlan-
ir ESB; aðildarríkin og afstöðu
þeirra eða aðildarumsókn Íslands
og hugsanleg áhrif hennar er
Evrópuvefurinn rétti staðurinn.
Það er hlutverk vefsins að veita
hlutlægar og trúverðugar upp-
lýsingar með það að markmiði að
efla málefnalegar umræður um
Evrópusambandið og tryggja að
þjóðin taki upplýsta ákvörðun um
aðild þegar þar að kemur. Evrópu-
vefurinn hefur engra annarra
hagsmuna að gæta en að þessum
markmiðum verði náð og umræð-
an um aðild fari þannig fram að
menn komi heilir frá leik.
Slóð Evrópuvefsins er http://
evropuvefur.is/.
AF NETINU
Þungaflutningar og ofsaakstur á vegum landsins
Nú er orðið jólalegt um að litast til fjalla og landið allt jafnhvítt af snjó. Þegar
veður eru samt válynd og færð oft viðsjárverð. Þó síður inni í fjöllunum en
uppi á hálendisvegunum. Áður fyrr var sjórinn helsti vágesturinn, ásamt
vegleysum landsins. Nú er það hraðinn og stálhestöflin á vegunum og í
göngunum. Njótum betur umferðarmannvirkjanna sem við hönnuðum fyrir
nauðsynlegustu þarfir okkar, en ekki eitthvað allt annað. Ökum hægar, í
þéttbýli og dreifbýli, til stranda og fjalla. Gefum okkur alltaf nægan tíma til
ferðarinnar, hver sem hún er. Það eitt lágmarkar ótímabæran vina- og ást-
vinamissi.
blog.eyjan.is/vilhjalmurari
Vilhjálmur Ari Arason
Það er hlutverk vefsins að veita hlut-
lægar og trúverðugar upplýsingar með
það að markmiði að efla málefnalegar
umræður um Evrópusambandið.
Rósa Parks þurfti
ekki sérstaka
reglu náttúruréttar um
að svertingjar mættu
neita að standa upp í
strætisvögnum.
Garðahverfi á Garðaholti er 79 hektarar að stærð, í dag er
búið þar á 14 bæjum og stundaður
smábúskapur með sauðfé og hross.
Í deiliskipulaginu segir að landið
sé í eigu Garðabæjar en um það
gildi svokölluð byggingarbréf sem
er samningur á milli Garðabæjar
og landhafa. Garðahverfi er deili-
skipulagt í einkaframkvæmd af
áhugasömum einstaklingum sem
lögðu fram fjármuni og stofnuðu
áhugamannafélagið Garðafélagið
en forsvarsmaður þess félags er
Óskar Magnússon.
Tilgangur Garðafélagsins er
að Garðahverfi verði staður frið-
sældar og íhugunar til minning-
ar um Guðrúnu Jónsdóttir sem
lést í bílslysi 28. febrúar 2006 og
er jarðsett í Garðakirkjugarði.
Sem minnst skal byggt á svæðinu
en deiliskipulagið gerir ráð fyrir
ellefu „bæjartorfum“ – á hverri
torfu er gert ráð fyrir tveimur
nýjum íbúðarhúsum og útihúsum.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir
„náttúru stíg“ utan um hverfið og
reiðstíg sem tengja má við reiðleið-
ir um Álftanes.
Silfurtúnið er elsta hverfi
Garðabæjar, deiliskipulagsvæðið
er 14,7 hektarar að stærð og fjöldi
íbúðarhúsalóða er 95. Í dag er í
gildi deiliskipulag fyrir „Silfur-
tún, Hofstaðamýri“ sem sam-
þykkt var 28. september 2001 en
það nær til útivistar og þjónustu-
svæðis austan íbúðar byggðarinnar
þar sem er leikskólinn Bæjarból,
Skátaheimilið Jötunheimar og
athafnasvæði Garðyrkju deildar
Garðabæjar. Um þetta svæði
„Silfur tún, Hofstaðamýri“ hafa
flestar kvartanir og ábendingar
íbúa hverfisins snúist.
Í nýja deiliskipulaginu er
athafnasvæði garðyrkjudeildar-
innar víkjandi og nýtingarhlut-
fall lóðar Skátaheimilisins og
leik skólans Bæjarbóls óbreytt.
Í sumar fluttu bæjaryfirvöld
gamla færanlega kennslustofu á
leikskólalóðina þrátt fyrir yfir-
standandi deiliskipulagsvinnu
og kröftug mótmæli íbúanna í
grenndarkynningu. Gamla „róló-
húsið“ sem Kiwanismenn eru með
til afnota er einnig víkjandi en
verður ekki fjarlægt nema að ósk
eiganda. En eigandinn er Garða-
bær svo eitthvað fær „rólóhúsið“
að standa lengur.
Á gamla rólóvallarsvæðinu
er í nýja deiliskipulaginu gert
ráð fyrir skrúðgarði í minningu
séra Braga Friðrikssonar, fyrsta
heiðurs borgara Garðabæjar,
þannig að við skulum vona að
gamla „rólóhúsið“ verði rifið sem
fyrst og upp rísi „Bragalundur“.
Ekkert er tekið á umferðarhávaða
frá Hafnarfjarðar veginum en í
nýja deiliskipulaginu stendur að
í nokkrum húsanna næst Hafnar-
fjarðarvegi búi íbúar við heilsu-
spillandi aðstæður.
Deiliskipulagssvæði Arnar-
ness er 36 hektarar að stærð og
fjöldi íbúðarhúsalóða 186. Lóðir á
Arnar nesi eru í einkaeign en opin
svæði, strandlengjan, götur og
óbyggt skipulagsvæði á háholtinu
miðsvæðis eru eign Garðabæjar.
Í nýja deiliskipulaginu er ekki
gert ráð fyrir göngu- og hjólastíg
um Arnarnesið eins og meirihluti
Sjálfstæðismanna ákvað.
Útivistarleið (sem enginn veit
enn þá hvað þýðir) er meðfram
strandlengjunni og þeim íbúum
við ströndina sem búnir voru að
stækka lóðir sínar niður í fjöru
er gert að leiðrétta þau mistök
og hefta ekki „útivistarleiðina“.
Aðgengi fyrir alla við ströndina er
leyst með þremur útsýnisstöðum
sem tengjast við húsagötur hverf-
isins með göngustíg að ströndinni.
Ef góð aðsókn verður að þess-
um útsýnisstöðum við ströndina
verður mikil bílaumferð í íbúðar-
götunum en ekki er gert ráð fyrir
bílaplönum við útsýnisstaðina
þannig að íbúðargatan verður þá
líka eitt stórt bílaplan.
Nýr reiðhjólastígur verður
lagður meðfram Hafnarfjarðar-
veginum en ekki er gert ráð fyrir
göngum undir mislægu gatna-
mótin á Arnarneshálsinum en slík
ráðstöfun hefði verið nauðsynleg
enda er umferð þar nú mjög hættu-
leg fyrir gangandi og hjólandi. Á
háholti miðsvæðis á Arnarnes-
inu verður ekki byggt en þar mun
rísa útivistarsvæði sem tengist
Werner-stöplinum.
Grein þessi er skrifuð til að
upplýsa íbúa Garðabæjar um að
nú er nýtt deiliskipulag tilbúið
fyrir þessi þrjú svæði. Skipulags-
yfirvöld telja sig búin að taka til-
lit til umsagna og ábendinga sem
borist hafa frá íbúum bæjarins.
Deiliskipulagið er í lokakynningu
og að því loknu verða þau tekin
fyrir á skipulags nefndarfundi
til umsagnar og sam þykktar og
í framhaldi send bæjarstjórn til
samþykktar. Mikilvægt er að
ítreka að verið er að vinna deili-
skipulagsferlið samkvæmt reglum
nýrra Skipulagslaga nr. 123/2010.
Samkvæmt þeim er ferlið marg-
skipt og á síðara stigi þurfa
athugasemdir íbúa að koma aftur
á lokakynningarstigi ef íbúar telja
að ekki hafa verið tekið tillit til
athugasemda þeirra á fyrri stigum
málsins.
Deiliskipulag þriggja
hverfa í Garðabæ
Um náttúrurétt og
lagalega söguhyggju
Evrópuvefurinn: Vettvang-
ur fróðleiks og umræðu
Lög
Sigurður Gizurarson
hæstaréttarlögmaður
Skipulagsmál
Auður
Hallgrímsdóttir
varamaður í
skipulagsnefnd
Evrópumál
Þórhildur Hagalín
verkefnastjóri
Evrópuvefsins
Vilborg Ása
Guðjónsdóttir
verkefnastjóri
Evrópuvefsins