Fréttablaðið - 02.12.2011, Síða 34

Fréttablaðið - 02.12.2011, Síða 34
Snjórinn er kominn! Notið tækifærið og byggið snjókarl eða snjóhús með börnunum. Það er aldrei að vita hvenær hann verður rigningunni að bráð. Laugardalurinn er kominn í jólabúning. Í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum keyrir jóalest, á Café Flóru er hægt að fá jólaglögg og ristaðar möndlur og á miðju skautasvelli Skautahallarinnar er ljósum prýtt jólatré. Jólafjör í Flash Kjólar áður kr. 14.990 nú 7.990 Kjólar áður kr. 12.990 nú 7.990 Kanínuvesti áður kr. 18.990 nú 12.990 Litir: svart og grátt Kjólar og skokkar áður kr. 16.990 nú 11.990 Mörg önnur góð tilboð Sölufulltrúar: Jóna María jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan brynjadan@365.is 512 5465 Snorri snorris@365.is 512 5457 „Þetta er nú bara eitthvað sem ég hef fundið hjá sjálfum mér eða öðrum og sumt er byggt á ljós- myndum af netinu. Þá gaumgæf- ir maður myndina og reynir að útfæra í þrívídd eftir bestu getu og útkoman er eftir því,“ segir Magn- ús Steingrímsson, spurður hvaðan hugmyndirnar komi að safni tré- fígúra sem hann hefur dundað sér við að tálga út undanfarna mánuði og ætlar að selja á handverksmark- aði Ljóssins á Þróttaraheimilinu að Engjateigi 7 á morgun. Fígúrurnar eru hver annarri skrautlegri, allt frá rauðklæddum jólasveinum og upp í kunnugleg andlit og ljóst að talsverð vinna hefur verið lögð í að fanga svip- brigðin sem best. Enda segir Magn- ús ekki síður þörf á þolinmæði en hæfileikum ætli maður að temja sér þá list að tálga í tré. „Já, oft er þetta alveg heilmikil nákvæmnisvinna enda sumir karl- arnir ekki nema rétt rúmir fimm sentimetrar á hæð og engu máli skiptir þótt ég sé lærður húsa- smíðameistari. Sem betur fer fékk ég mjög góða leiðsögn í upphafi því annars hefði ég sjálfsagt gef- ist fljótt upp,“ segir hann og þakk- ar þar helst Reyni Sveinssyni og Bjarna Þór Kristinssyni leiðbein- endum á handverksstæði Ljóssins. „Að ógleymdum Jónasi heitnum Ragnarssyni sem ýtti mér af stað.“ Magnús segist vera orðinn heimavanur í húsnæði Ljóssins að Langholtsvegi 43 síðan hann greind- ist með krabbamein fyrir nokkrum árum. „Þar fékk ég endur hæfingu og stuðning og hef upp frá því reynt að sýna þakklæti mitt með því að taka til hendinni samhliða því að mæta á verkstæðið. Stemningin og samveran er líka svo góð.“ Undanfarið hefur stífur undir- búningur staðið þar yfir vegna fyrirhugaðrar handverkssölu. Stór hópur krabbameinsgreindra og aðstandenda hefur í sjálfboðavinnu búið til handverk, saumað, prjónað, málað, tálgað og smíðað svo fátt eitt sé nefnt en allur ágóði af söl- unni rennur óskiptur til starfssemi Ljóssins að sögn Magnúsar. „Og þessi peningar skipta gríðarlegu máli fyrir starfssemina þar sem allt er gert í sjálfboðavinnu.“ Handverkssala Ljóssins stendur yfir í Þróttaraheimilinu að Engja- vegi 7 á morgun frá klukkan 13 til 17. roald@frettabladid.is Þjóðþekktar fígúrur úr tré Magnús Steingrímsson húsasmíðameistari tálgar út fígúrur og furðuverur í tré. Listaverkin verða til sýnis og sölu á árlegum hand- verksmarkaði Ljóssins sem fer fram í Þróttaraheimilinu á morgun. Sumar fígúrurnar eiga sér raunverulegar fyrirmyndir. Aðrar skáldar Magnús upp. Magnús með brot af þeim fígúrum sem hann verður með á markaðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.