Fréttablaðið - 02.12.2011, Síða 38

Fréttablaðið - 02.12.2011, Síða 38
4 föstudagur 2. desember Grensásvegur 8 Opið mán–fös 12–18, laugard 12–17 SOHO/MARKET Á FACEBOOK Flottir kjólar fyrir hátíðarnar – úrvalið er hjá okkur Kjóll 8.990 svart/rautt, hálsmen 1.790, jakki 10.990 kjóll 6.990, hálsmen 3.990, jakki 10.990 Kjóll 9.990 silfur/gull, hálsmen 2.990 Kjóll 6.990 svart/rautt, hálsmen 3.990, blúnduermar grátt/svart 3.990 kjóll 8.990 Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is Frábær uppskrift að kynlífi Þ ú strýkur létt niður eftir börmunum, mjög mikilvægt er að strjúka alltaf niður, fimmtán strokur á hvorn barm. Þegar því er lokið þá færir þú höndina að snípnum, sem er staðsettur fyrir ofan legganga- opið. Þar skalt þú nudda létt í fimm hringi, öfugan sólargang, og svo þrýsta þétt með vísifingri í taktföstum hreyfingum í rúma mínútu. Nú ætti píkan að vera starfhæf og raki að myndast inn eftir leggöngum. Ef fingur rennur ekki auðveldlega inn eftir leggöngum er rakinn er ekki nægjanlegur og því skal endurtaka fyrri leiðbeiningar uns ásættan- legu rakastigi er náð. Kynlíf og leiðbeiningar. Þegar kemur að skrifum um kynlíf virð- ast leiðbeiningar alltaf vera jafn vinsælar. Það er sama hvort pistill- inn er í blaði fyrir konur eða karla, alltaf skulu vera kynlífsleiðbein- ingar sem eru „bestar“. Þú átt að geta snert hér og nuddað þar og þá bregst líkaminn við með fullnægingu. Stellingar fá einkunn eftir fullnægingargildi og formúlan fyrir „fullkomnu“ kynlífi verður til. Þú getur bara opnað kynlífstæknibókina þína og skellt í eitt stykki kyn- líf samhliða smákökubakstrinum. Afsakið, en mér leiðist þetta óskaplega. Til að setja þetta í smá samhengi þá langar mig að nota mat sem sam- líkingu því öll þurfum við að nærast. Það er ekki til einn „besti maturinn“ sem hentar öllum. Flestir eiga sína uppá- haldsrétti en þó er ekki þar með sagt að sá réttur sé borð- aður í öll mál á hverjum degi. Flest tökum við tímabil þar sem okkur langar meira í ákveðinn mat og líkam- inn kallar á að þeirri löngun sé svalað. Þá gerir matur kröfu um smá ævintýragirni, hvort sem það er í fjöl- breyttu matarvali eða bragðmiklum kryddum. Kyn- líf er alveg eins. Þegar þú lest uppskrift að kynlífi þá getur verið gaman að prufa það en þú þarft að vera í stuði og laga hana að þér og þínum. Fólk vill miskrydd- aðan mat og þó að uppskriftin segi þér að nudda G- blettinn þangað til að þú ert dofin í fingurgómunum þá er þetta rétt eins og að salta og pipra, þú ferð eftir því hvað þér finnst best. Dass af þessu og skvetta af hinu þar til markmiðinu er náð. Kynlíf er skemmtilegt, fyndið og fjölbreytt. Það sem virkaði í gær virkar kannski ekki í dag. Ég vil því endi- lega hvetja fólk til að hætta að smætta sig niður í ein- hverja ákveðna fullnægingarformúlu. Potaðu, strjúktu, sleiktu, klíptu, bíttu og faðmaðu. Leyfðu þér að hafa gaman af kynlífi og búa til þína eigin uppskriftir. Bestu uppskriftirnar eru þær sem innihalda góðan grunn sem leyfa ýmsar útfærslur og má krydda með smá flengingum, sleipiefni eða kynlífstæki. Þú átt að geta snert hér og nudd- að þar og þá bregst líkam- inn við með fullnægingu. Alexa Chung er löngu orðin þekkt nafn innan tískuheimsins og vakti fyrst athygli sem þáttastjórnandi It‘s On with Alexa Chung á sjón- varpsstöðinni MTV. Chung er gjarnan á lista yfir best klæddu konur heims og hefur Anna Wintour lýst henni sem „ein- stöku fyrirbæri“ og því athyglisvert að Chung skuli eiga sér þekktan tvífara. Gia Coppola, frænka Sofiu Coppola, hefur verið að feta í fót- spor föður síns, frænda og frænku og lagt fyrir sig leikstjórnun. Hún hefur einnig leikið í nokkrum kvik- myndum og fyrsta hlutverk henn- ar var í The God father. Coppola og Chung þykja ekki aðeins sláandi líkar heldur deila þær fatasmekk og sjást gjarnan í fallegum kjól- um, flatbotna ballerínuskóm og með slegið hárið. Alexa Chung á sér tvífara: Leikstjórabarnið og fyrirsætan Klassík Alexa Chung nú í september klædd í ballerínuskó og fallega skyrtu. NORDICPHOTOS/GETTY Svartklædd Chung í einföldum og fallegum svörtum kjól. Skyrta og pils Chung er hún sótti tísku- viðburð í Sydney í Ástralíu nú í septem- ber. Leikstjóraefni Gia Coppola sótti við- burð hjá Chanel nú í október klædd í lát- lausan og fallegan kjól. Stuttbuxur og skyrta Coppola er alls ekki ólík Alexu Chung í útliti.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.