Fréttablaðið - 02.12.2011, Page 62
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR46
arionbanki.is — 444 7000
Gjafakort sem
hægt er að nota
hvar sem er
Finnur þú ekki réttu gjöfina?
Gjafakort Arion banka hentar við öll tækifæri.
Hægt er að nota gjafakortið við kaup á vöru
og þjónustu hvar sem er. Þú velur fjárhæðina,
þiggjandinn velur gjöfina. Einfaldara getur
það ekki verið.
Gjafakortið fæst í öllum útibúum Arion
banka og er án endurgjalds í desember.
Veglegt safnbox með 88 af
vinsælustu lögum Björg-
vins Halldórssonar er
komið út. Umfangsmesta
útgáfa Senu til þessa.
Framleiðsluferli nýs safnbox með
Björgvini Halldórssyni, Gullvagn-
inn, tók sex til sjö vikur og fór það
fram í Tékklandi. „Þetta var fram-
leitt í verksmiðju þar sem bruni
varð tveimur dögum eftir að þau
sendu þetta til okkar. Við náðum
þessu heim áður, þannig að það er
engin lykt af þessu,“ segir Eiður
Arnarsson hjá Senu, hress.
„Ég held að það sé óhætt að full-
yrða að þetta er innihaldsmesta
og umfangsmesta útgáfan sem
við höfum lagt í,“ segir Eiður um
safnboxið. „Þetta er búið að taka
megnið af árinu,“ bætir hann við
en Björgvin varð sextugur í apríl
og tónleikarnir, sem er nýja efnið á
útgáfunni, voru teknir upp við það
tækifæri.
Safnboxinu er skipt upp í fimm
diska. Fjórir hafa að geyma lög
frá sólóferli Björgvins, dúetta,
lög sem hann hefur sjálfur samið
og loks lög sem hann hefur sung-
ið með hljómsveitum. Alls eru
þetta 88 lög. Loks fylgja afmælis-
tónleikarnir með á mynddiski.
„Þetta er langur ferill sem þetta
þarf að spanna, eða 42 ár. Þetta
eru ekki nema tíu ár á hverja plötu,
það er ekki mikið,“ segir Eiður.
Uppi voru hugmyndir um að hafa
tvo diska til viðbótar í boxinu með
sjómannalögum og trúarlögum en
hætt var við það.
Sex ár eru liðin síðan safn platan
Ár og öld með Björgvini kom út.
Hún seldist í fimmtán þúsund
eintökum en hefur ekki verið fáan-
leg í eitt og hálft ár. Ekki er búist
við jafnmikilli sölu á nýja boxinu
enda var það dýrara í framleiðslu
og kostar fyrir vikið meira.
Björgvin er hæstánægður
með útgáfuna. „Þetta er orðið
ansi mikið sem maður er búinn
að taka þátt í, bæði einsamall og
með öðrum. Þetta er hrikalega
stór katalógur en það var reynt að
búa til svolítið sniðugan pakka.“
Björgvin hefur gefið út hjá Senu og
fyrir tækjunum sem komu á undan
því síðan um miðjan áttunda ára-
tuginn. „Maður þekkir til þarna
og hefur gert marga skemmtilega
hluti. Meirihlutann er ég frekar
sáttur við en þegar maður gerir
svona mikið vill maður gera sumt
aftur og annað má betur fara eins
og gengur og gerist. En maður er
alltaf að reyna að toppa sjálfan sig
og gera eitthvað nýtt.“
Hinir árlegu jólatónleikar hans
verða í Laugardalshöll á laugar-
daginn. Aðspurður telur hann tón-
leikana þá stærstu til þessa, enda
140 manns á sviðinu þegar mest
lætur, auk hóps aðstoðarmanna.
„Æfingarnar ganga ofsalega vel og
við ætlum hvergi að slá af.“
freyr@frettabladid.is
Veglegt safnbox slapp við bruna
BOX FRÁ BJÖRGVINI Nýtt safnbox með bestu lögum Björgvins Halldórssonar og afmælistónleikum hans er komið út.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Breska tímaritið Heat Magazine hefur tekið saman lista yfir þrjátíu
ríkustu Bretana undir þrítugu.
Það kemur ekki á óvart að sjálfur Harry Potter, Daniel Radcliffe,
trónir á toppnum en hann halaði inn tæpa tíu milljarða íslenskra króna
árið 2010. Samleikarar hans í Harry Potter, þau Emma Watson og
Rupert Grint, sitja í fjórða og fimmta sæti listans með rúma fjóra
milljarða í árslaun á mann. Það er því ljóst að þríeykið er á grænni
grein þrátt fyrir að Harry Potter ævintýrinu hafi
lokið í sumar.
Leikararnir Keira Knightley og Robert Pattinson
eru í öðru og þriðja sæti listans en bæði
hafa verið að gera það gott á hvíta tjald-
inu upp á síðkastið. Knightley var með
tæpa sex milljarða í tekjur á síðasta ári
en hún er að taka upp myndina Önnu Kar-
eninu þessa dagana. Pattison vann sér
inn fimm milljarða íslenskra króna
en hann hefur verið að gera
það gott með leik sínum í
Twilight-seríunni.
Ríkir ungir Bretar
Í GÓÐUM MÁLUM Leikaranir ungu í Harry Potter, Rupert Grint, Emma Watson og
Daniel Radcliffe, sitja í fyrstu fimm sætunum á lista yfir þrjátíu ríkustu Breta undir
þrítugu.
ÞRIÐJA SÆTIÐ Robert
Pattinson slær í gegn
í Twilight-mynd-
unum.
ANNAÐ SÆTIÐ Leik-
konan Keira Knightley
er að gera það gott
og situr í öðru sæti
á tekjulista Heat
Magazine.
Ali Lohan, litla systir Lindsay
Lohan, segist vera heppin að eiga
Lindsay sem stóru systur, en Ali
er að gera það gott sem fyrirsæta
þessa stundina. Hún viðurkennir
að henni hafi verið boðið eitur-
lyf en vegna fortíðar stóru systur
sinnar hafi hún afþakkað boðið.
„Ég heppin að eiga systur sem
ég get lært af. Ég hef séð hvað
það gerði henni að nota eiturlyf
og veit að það er heimskulegt,“
segir Ali, sem er 17 ára, átta
árum yngri en Lindsay sem hefur
flakkað milli réttarsala og fang-
elsa upp á síðkastið vegna ýmissa
brota.
Ali Lohan blæs einnig á kjafta-
sögur þess efnis að hún hafi farið
í lýtaaðgerðir. „Hvernig ætti ég
að fara að því? Ég er 17 ára og
þyrfti samþykki mömmu til að
geta farið í fegrunaraðgerð en
hún mundi aldrei leyfa mér það,“
segir Ali Lohan í viðtali við Page
Six Magazine.
Lærir af
mistökum
Lindsay
HEPPNAR MEÐ HVOR AÐRA Ali Lohan
segist vera heppin að eiga Lindsay
Lohan fyrir stóru systur og lærir af mis-
tökum hennar. NORDICPHOTOS/GETTY