Fréttablaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 66
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR50
Breska söngkonan Adele getur
ekki mikið notað rödd sína um
þessar mundir en hún er ennþá
að jafna sig eftir aðgerð á radd-
böndum. Söngkonan styðst því
við forrit í símanum sem hjálp-
ar henni að tjá sig til dæmis á
kaffihúsum og við leigubílstjóra.
Adele skrifar það sem hún vill
segja inn í símann, sem talar svo
fyrir hana.
Adele þurfti að fresta tónleika-
ferðalagi sínu í Bandaríkjun-
um vegna aðgerðarinnar en það
kom ekki að sök því daman var
nýlega tilnefnd til sex Grammy-
verðlauna. Læknarnir segja að
hún muni komast aftur á svið á
nýju ári.
Adele getur
ekki talað
MÁLLAUS Söngkonan Adele er að jafna
sig eftir aðgerð og lætur forrit í sím-
anum tala fyrir sig. NORDICPHOTOS/GETTY
Julia Roberts verður framleið-
andi og aðalleikkona gaman-
myndarinnar Second Act. Mynd-
in fjallar um konu sem hefur
aldrei gert handtak á ævinni
en neyðist á endanum til að fá
sér vinnu, að því er kom fram í
The Hollywood Reporter. Ekki
hefur verið greint frá hver leik-
stýrir myndinni. Næsta verk-
efni Roberts er hlutverk vondu
stjúpunnar í nýrri mynd um
Mjallhvíti, Mirror Mirror, sem
frumsýnd verður í mars. Aðrir
leikarar eru Lily Collins, Sean
Bean og Nathan Lane. Fyrr á
þessu ári sást Roberts í róman-
tísku gamanmyndinni Larry
Crowne á móti Tom Hanks.
Framleiðir
og leikur
JULIA ROBERTS Leikkonan verður aðal-
leikkonan í Second Act.
Tónlistarmaðurinn George Michael
er á hægum batavegi í baráttu sinni
við lungnabólgu. Hann hefur verið
fluttur af gjörgæsludeild í Austur-
ríki, þar sem hann var lagður inn
fyrir viku. Söngvarinn, sem er 48
ára, hafði verið í einangrun en fjöl-
skylda hans hefur staðið þétt við
bakið á honum í veikindunum. Talið
er að á meðal þeirra sé Fadi Fawas,
sem orðrómur er uppi um að sé nýr
kærasti Michaels. Faðir söngvar-
ans, hinn 75 ára gamli Kyriacos
Panayiotou, er einnig á sjúkrahús-
inu ásamt eldri systrum Michaels,
Melanie og Yioda. Heyrst hefur að
fyrrverandi kærasti söngvarans,
Kenny Goss, sé einnig á leiðinni á
sjúkrahúsið.
Michael á batavegi
Á BATAVEGI Tónlistarmaðurinn George
Michael er á batavegi.
Kanye West hefur fengið sjö tilnefningar til bandarísku
Grammy-verðlaunanna. Fjórar eru fyrir plötuna My
Beautiful Dark Twisted Fantasy, sem kom út í fyrra, og
þrjár fyrir Watch the Throne sem hann gerði með rapp-
aranum Jay-Z.
Næst á eftir koma Adele, með sex tilnefningar eins og
rokkararnir í Foo Fighters. Adele var tilnefnd í tveimur
stórum flokkum, eða fyrir lag ársins, Rolling in the
Deep, og fyrir plötu ársins, 21. Foo Fighters var tilnefnd
fyrir plötu ársins og bestu rokkplötuna, Wasting Light.
Bruno Mars fékk fimm tilnefningar, rétt eins og
rapparinn Lil Wayne. Bon Iver fékk fjórar tilnefningar,
þar á meðal fyrir lag ársins, Holocene. Mörgum kom á
óvart hversu fáar tilnefningar hinar vinsælu Lady Gaga
og Taylor Swift fengu, eða þrjár hvor. Grammy-verð-
launin verða afhent í 54. sinn í Los Angeles í febrúar á
næsta ári.
Kanye með sjö tilnefningar
FLESTAR TILNEFNINGAR Rapparinn Kanye West fékk flestar
tilnefningar til Grammy-verðlaunanna í ár. NORDICPHOTOS/GETTY