Fréttablaðið - 02.12.2011, Side 74
2. desember 2011 FÖSTUDAGUR58
N1-deild karla
Haukar - Grótta 29-17 (13-6)
Mörk Hauka (skot): Gylfi Gylfason 11/4 (12/5),
Árni Steinn Steinþórsson 5 (9), Nemanja Malovic
3 (4), Jónatan Ingi Jónsson 2 (2), Stefán Rafn
Sigurmannsson 2 (4), Þórður Rafn Guðmunds-
son 2 (5), Freyr Brynjarsson 1 (2), Sveinn Þor-
geirsson 1 (2), Sigurður Guðjónsson 1 (2), Tjörvi
Þorgeirsson 1 (7).
Varin skot: Birkir Ívar Guðm. 20/1 (37/2, 54%).
Hraðaupphlaup: 9 (Gylfi 3, Árni Steinn 2, Mal-
ovic 1, Jónatan 1, Stefán Rafn 1, Freyr 1)
Fiskuð víti: 5 (Jónatan 2, Stefán 1, Tjörvi 1, Einar 1)
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Gróttu (skot): Hjálmar Þór Arnarsson 3
(5), Kristján Jóhannsson 3 (7), Þorgrímur Smári
Ólafsson 3 (10), Þráinn Jónsson 2 (5), Ólafur
Ægir Ólafsson 2/1 (5/2), Aron Valur Jóhannsson
1 (1), Árni Benedikt Árnason 1 (2), Benedikt R.
Kristinsson 1 (3), Þórir Finnbogason 1 (4/1).
Varin skot: Lárus Ólafsson 14/1 (43/5, 33%).
Hraðaupphlaup: 5 (Kristján 2, Þráinn 1, Benedikt
1, Þórir 1)
Fiskuð víti: 2 (Þráinn 2, Hjálmar 1)
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson
Valur - FH 26-26 (13-15)
Mörk Vals (skot): Anton Rúnarsson 11/1 (18/2),
Sturla Ásgeirsson 6/2 (11/2), Magnús Einarsson
3 (7), Sigfús Sigurðsson 2 (2), Orri Freyr Gíslason
2 (4), Einar Örn Guðmundsson 1 (1), Sveinn
Aron Sveinsson 1 (3), Arnar Daði Arnarsson (1),
Atli Már Báruson (2),
Varin skot: Hlynur Morthens 16 (36/3, 44%),
Ingvar K. Guðmundsson 1 (7/2, 14%).
Hraðaupphlaup: 4 (Anton 1, Orri 1, Einar 1,
Sveinn 1)
Fiskuð víti: 3 (Magnús 2, Anton 1, Orri Freyr 1)
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk FH (skot): Þorkell Magnússon 9/5 (9/5),
Ólafur Gústafsson 8 (16), Hjalti Þór Pálmason 2
(3), Halldór Guðjónsson 2 (5), Örn Ingi Bjarkason
2 (6), Andri Berg Haraldsson 2 (9), Atli Rúnar
Steinþórsson 1 (2), Baldvin Þorsteinsson (1),
Varin skot: Daníel Andrésson 18/1 (44/4, 41%).
Hraðaupphlaup: 4 (Þorkell 2, Halldór 1, Atli 1)
Fiskuð víti: 2 (Atli 3, Hjalti 1, Baldvin 1)
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson.
Afturelding - HK 25-31 (12-16)
Mörk Aftureldingar (skot): Hilmar Stefánsson
7/2 (7/2), Sverrir Hermannsson 5 (10), Böðvar
Páll Ásgeirsson 4 (9), Jóhann Jóhannsson 3/1
(4/1), Helgi Héðinsson 2 (2), Jón Andri Helgason
2 (5), Chris McDermont 1 (1), Þrándur Gíslason 1
(2), Aron Gylfason (1), Einar Héðinsson (3).
Varin skot: Davíð Svansson 18 (49/4, 38%).
Hraðaupphlaup: 3 (Hilmar 2, Jón Andri 1)
Fiskuð víti: 3 (Sverrir 2, Jón Andri 1)
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk HK (skot): Atli Ævar Ingólfsson 9 (10),
Bjarki Már Elísson 7/2 (9/2), Ólafur Ragnarsson
4/2 (9/2), Tandri Konráðsson 3 (4), Ólafur Víðir
Ólafsson 3 (7), Vilhelm Gauti Bergsveinsson 2
(3), Atli Karl Bachmann 1 (1), Hörður Másson 1
(2), Sigurjón Björnsson 1 (4), Leó Pétursson (1).
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 14 (38/2,
37%), Arnór Freyr Stefánsson (1/1).
Hraðaupphlaup: 3 (Bjarki Már 3)
Fiskuð víti: 4 (Atli Ævar 2, Ólafur 1, Leó Snær 1)
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson.
STAÐAN
Haukar 9 8 0 1 240-203 16
HK 10 6 1 3 276-250 13
Fram 10 6 0 4 257-253 12
FH 9 4 3 2 254-239 11
Valur 10 4 3 3 269-251 11
Akureyri 10 4 2 4 278-255 10
Afturelding 10 2 0 8 232-280 4
Grótta 10 0 1 9 222-297 1
Sænska úrvalsdeildin
Borås - 08 Stockholm 88-96
Helgi Már Magnússon skoraði tólf stig á 26
mínútum. Hann nýtti öll skotin sín nema eitt, tók
fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu. 08 komst
með sigrinum úr fallsæti í deildinni.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Garðar Gunnlaugsson
er genginn til liðs við uppeldis-
félagið sitt, ÍA, en hann skrifaði
undir eins árs samning í gær.
Hann hefur verið á Akranesi síð-
asta mánuðinn við æfingar en er
nú að ná fyrri styrk eftir að hafa
gengist undir aðgerð vegna bak-
meiðsla í sumar.
Hann segist bíða spenntur eftir
því að tímabilið hefjist, en hann
lék síðast með Val hér á landi árið
2006. „Ég hlakka til að halda mér
heilum og sýna bæði umheim-
inum og sjálfum mér að ég geti
enn spilað fótbolta,“ sagði hann
við Fréttablaðið. „Það er tilvalið
að koma aftur heim á Skagann,
þar sem ég varð bæði Íslands- og
bikar meistari á sínum tíma. Von-
andi getum við endurvakið þá
gömlu, góðu daga.“ - esá
Garðar Gunnlaugsson til ÍA:
Vil sýna að ég
geti enn spilað
HANDBOLTI HK-ingar skiluðu tveim-
ur stigum í hús þegar þeir heim-
sóttu Aftureldingu í gær, unnu
31-25. Spennan í seinni hálfleik
var meiri en lokatölurnar gefa til
kynna. Með frábærum kafla náðu
heimamenn óvænt að minnka mun-
inn í eitt mark og svo fékk einn
besti leikmaður HK, Bjarki Már
Elísson, að líta rauða spjaldið eftir
viðskipti við Hilmar Stefánsson.
Við þetta vöknuðu HK-ingar,
settu í fluggírinn og skoruðu sex
mörk í röð. Þeir sýndu að þeir hafa
einfaldlega mun betra lið en Aftur-
elding. Það er bara staðreynd.
Kópavogsliðið er nú komið í annað
sæti deildarinnar.
Eins og deildin spilast bendir
allt til þess að Mosfellingar endi
í því sæti sem þeir eru í og fari
í umspil um að halda sæti sínu.
Grótta getur þó enn komið í veg
fyrir það, en liðin mætast í næstu
umferð.
„Það er gott að hafa ekki mis-
stigið sig gegn botnliðunum, ég
tel okkur hafa klárað þessi verk-
efni með sóma,“ sagði Erlingur
Richard son, þjálfari HK, eftir
leikinn í gær, en HK lagði Gróttu
fyrir viku.
„Við vissum að þetta yrði þolin-
mæðisvinna gegn Aftureldingu.
Við náðum ágætis forystu í fyrri
hálfleik. Varnarleikurinn var
nokkuð sterkur og markvarslan
mjög góð. Sigurinn liggur þar og í
góðum baráttuanda þegar líða tók
á leikinn.“
Erlingur segir að sínir menn
hafi brugðist eins vel við rauða
spjaldinu á Bjarka og hægt var.
„Við snerum bökum saman og
hugsuðum ekkert út í neikvæða
punktinn. Menn voru fljótir að
bregðast við og leikmennirnir eiga
hrós skilið,“ sagði Erlingur, sem
mótmælir ekki dómnum.
„Ég sá þetta ekki alveg en hann
var að reyna að losa sig og slær
kannski frá sér. Þá er þetta bara
rautt spjald. Ég treysti Antoni og
Hlyni (dómurum leiksins) fyllilega
til að meta þessa stöðu.“
Davíð Svansson, mark vörður
Aftureldingar, varði 18 skot í
gær og hélt liðinu inni í leiknum
lengi vel. „Þetta var vægast sagt
sveiflukenndur leikur. Við komum
grimmir inn í þetta á milli en
áttum svo til að missa þetta langt
niður. Við þurfum að fækka þess-
um köflum,“ sagði Davíð. - egm
HK er komið upp í annað sæti deildarinnar eftir sex marka sigur á Aftureldingu:
Sneru bökum saman eftir rauða spjaldið
HANDBOLTI Valur og FH skildu jöfn,
26-26, í hörkuleik að Hlíðarenda í
gær. Leikurinn var ekkert sérstak-
lega vel spilaður en dramatíkin
var til staðar allt fram á síðustu
sekúndu.
Sturla Ásgeirsson skoraði
jöfnunar mark Vals úr afar
umdeildu vítakasti er leiktím-
inn var liðinn. Magnús Einars-
son keyrði þá inn í vörn FH þar
sem Örn Ingi Bjarkason stóð fyrir
honum. Nær allir í húsinu héldu að
dómararnir myndu dæma ruðning
en þeir ákváðu að dæma víti, við
litla hrifningu FH-inga.
Fara alla leið í þetta skiptið
Sturla mætti ískaldur á punktinn
og skrúfaði boltann framhjá Daní-
el Frey í markinu. „Ég var búinn
að klúðra tveim vítum undir lok
leikja í vetur og þá reyndi ég að
negla boltanum inn. Ég ákvað því
að fara aðra leið að þessu sinni,“
sagði Sturla og glotti við tönn.
„Markvörðurinn átti líklega
aldrei von á þessu. Það er líka
eins gott að boltinn fór inn því
Óskar Bjarni hefði líklega tekið
mig hraustlega í gegn ef ég hefði
klúðrað víti á þennan hátt.“
Öskureiðir FH-ingar
FH-ingar voru öskureiðir eftir
leikinn og nánast rauk úr hausnum
á mörgum þeirra. „Við erum auð-
vitað mjög svekktir að fá á okkur
svona umdeilt jöfnunarmark. Ég
held það hafi nánast allir séð að
þetta var ekki víti,“ sagði Krist-
ján Arason, þjálfari FH, svekktur
en hann skammaði líka sína menn
sem voru komnir þrem mörkum
ytfir þegar lítið var eftir.
„Auðvitað áttum við að vera
búnir að vinna þennan leik. Við
fengum sóknirnir til þess að klára
leikinn en nýttum þær ekki. Þetta
er því eðlilega einnig okkur sjálf-
um að kenna. Engu að síður fannst
mér halla svolítið á okkur í dóm-
gæslunni og til að mynda fannst
mér Valsmenn fá að halda bolt-
anum mun lengur en við. Hendin
var oft komin grunsamlega fljótt
þegar við vorum í sókn en það
sama var ekki upp á teningnum
hinum megin.“
Kristján hafði talsvert til síns
máls en blaðamaður var á meðal
þeirra sem trúðu því vart að dóm-
ararnir skyldu flauta víti. Ég vona
þeirra vegna að þeir hafi haft rétt
fyrir sér.
FH-ingar geta samt aðallega
sjálfum sér um kennt, en þeir köst-
uðu frá sér unnum leik á skömm-
um tíma. Lokasóknir liðsins voru
ákaflega illa útfærðar þar sem
leikmenn virtust ekki höndla
taugaspennuna.
Valsmenn geta þakkað fyrir
stigið. Þeir áttu ekki sinn besta
leik og voru bornir uppi af Antoni
Rúnarssyni allan fyrri hálfleik-
inn. Í þeim seinni ákváðu Sturla
og Hlynur markvörður að vera
með og það skilaði Val stiginu. Þeir
sýndu mikinn karakter og taka
eflaust margt jákvætt úr því að fá
stig þó svo að margt hafi verið að í
þeirra leik. Unnið stig hjá þeim en
FH-ingar munu sjá á eftir stigun-
um sem þeir héldu að væru komin
í hús of snemma.
henry@frettabladid.is
FH KASTAÐI FRÁ SÉR SIGRINUM
Valur nældi sér í stig á heimavelli gegn Íslandsmeisturum FH í jafnteflisleik, 26-26. Jöfnunarmarkið kom úr
afar umdeildu vítakasti þegar leiktíminn var liðinn. Hafnfirðingar voru brjálaðir út í dómara leiksins.
ÍSKALDUR Sturla Ásgeirsson skoraði jöfnunarmark Vals úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn. Hér fagnar hann stiginu ásamt liðs-
félögum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Haukar héldu toppsæti
sínu í N1-deildinni með auðveldum
tólf marka sigri á slöku liði Gróttu
í gærkvöldi.
Leikurinn fór hægt af stað og
var nokkurt jafnræði með liðun-
um á upphafsmínútunum. Hauk-
ar hrukku þó snemma í gírinn og
náðu strax góðri forystu sem þeir
héldu út leikinn. Fyrri hálfleikur-
inn einkenndist af sterkum varn-
arleik beggja liða en munurinn lá
þó í sóknarleiknum, þar sem Hauk-
ar voru mun sterkari. Síðari hálf-
leikurinn var eign Hauka og var
sigur þeirra aldrei í hættu.
Haukar spiluðu á mörgum
mönnum í leiknum en þeir Gylfi
Gylfason, sem skoraði 11 mörk, og
Birkir Ívar Guðmundsson mark-
vörður stóðu upp úr. Aron Krist-
jánsson, þjálfari Hauka, var að
vonum ánægður með sigurinn í
kvöld, sem reyndist á endanum
auðveldur.
„Við þurftum að halda einbeit-
ingu í kvöld og gerðum það. Birkir
Ívar var góður í markinu og vörnin
hélt vel. Maður þarf alltaf að var-
ast vanmat gegn þessum liðum
sem eiga að teljast slakari en við
héldum haus í kvöld og kláruðum
þetta með einbeitingu.“
Aron var einnig ánægður með
gengi sinna manna að undanförnu
og sagði liðið taka einn leik fyrir
í einu „Við erum búnir að vera að
spila nokkuð vel að undanförnu og
erum búnir að vinna nokkra mikil-
væga leiki, sem er gott fyrir fram-
haldið. Við reynum þó að taka einn
leik fyrir í einu og sjáum svo hvert
það skilar okkur.“
Guðfinnur Kristmannsson,
þjálfari Gróttu, var svekktur í
leikslok en kallaði þó eftir þolin-
mæði. „Við áttum aldrei séns í
kvöld og vorum allt of langt frá
þeim. Hræðilegur sóknarleikur
gerir það að verkum að við erum
ekki með í þessum leik. Ég var
þó nokkuð ánægður með vörnina,
sérstaklega í fyrri hálfleik, enda
erum við búnir að vera að fara vel
í hana í vikunni,“ sagði Guðfinnur.
Hann kallaði eftir þolinmæði og
sagði að Gróttuliðið væri að mót-
ast. „Við þurftum að búa til breidd
fyrir tímabilið sem var ekki til
staðar og það tekur allt tíma. Við
erum að leyfa ungum upp öldum
leikmönnum að spila, sem er
jákvætt.“ - sh
Botnlið Gróttu hafði ekki roð við toppliði Hauka í Hafnarfirðinum í gær:
Vandræðalaust hjá Haukum gegn Gróttu
ARON Hefur náð miklu úr góðu liði
Hauka. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
GÓÐUR SIGUR Atli Karl Bachmann og félagar í HK gerðu góða ferð í Mosfellsbæinn í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON