Morgunblaðið - 29.07.2010, Page 4

Morgunblaðið - 29.07.2010, Page 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010 Vegurinn inn í Bása er aftur orðinn fær jeppum að sögn Skúla H. Skúla- sonar, framkvæmdastjóra Útivistar, en búið er að beina Krossánni frá veginum. „Þá er þessi hindrun að baki,“ segir Skúli. Mbl.is greindi frá því á þriðjudag að áin væri við það að taka landið við Álfakirkju. Menn yrðu þá að fara yf- ir ána til að komast inn í Bása. Skúli segir að beltagrafa hafi ver- ið send á staðinn. Upp úr hádegi í gær hafi hún verið búin að beina ánni í annan farveg. Hann segir að Krossá hafi verið vatnsmikil í allt sumar. Ekki sé það vegna úrkomu, þar sem lítið hafi rignt á svæðinu í sumar. Líklega sé það vegna íss sem hafi bráðnað undir þunnu öskulagi sem liggi yfir Mýrdalsjökli. Öskulagið sem liggi yfir Eyja- fjallajökli sé þykkara og þannig ein- angrist ísinn og dragi úr bráðnum. „Þess vegna eru árnar sem koma undan Eyjafjallajökli litlar.“ Hann bendir á að aðrar ár hafi ekki verið slæmar það sem af sé sumri. Skúli segir að það sé mat manna að það sé nauðsynlegt að ráðast í umfangsmeiri framkvæmdir með haustinu til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Leiðin inn í Bása orðin fær á ný Flóð Krossá flæddi yfir veginn að Básum. Spáð er ágætis veðri um allt land um versl- unarmannahelg- ina. Þó er útlit fyrir að á morg- un verði enn rigning með köfl- um sunnanlands og líkur á að aft- ur hvessi með rigningu sunnan- lands og vestan á mánudag. Í dag verður suðaustanátt og rigning sunnanlands og vestan en birtir til fyrir norðan og austan. Hlýjast verður á Norðausturlandi. Veðurstofan spáir því að áfram verði skúrir sunnantil á morgun en að ágætis veður verði þar á laug- ardag og sunnudag, skýjað og væta á stöku stað. Útlit er fyrir milt veð- ur og veðurfræðingur á Veðurstof- unni reiknar með að hitinn geti far- ið í 20 stig inn til landsins. Vísbendingar eru um vaxandi suðaustanátt með rigningu sunnan og vestan til á landinu á mánudag, frídegi verslunarmanna, en áfram hlýtt norðanlands. Hlýtt og þurrt norð- anlands og austan Útlit er fyrir ágætis veður um allt land. Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, segir nefndina hafa komist að lagalega réttri niðurstöðu í Magma- málinu. Ríkisstjórnin ákvað að taka niðurstöðu nefndarinnar um lögmæti kaupa Magma Energy á viðbótarhlutafé í HS Orku til sér- stakrar rannsóknar. „Við höfum mjög góða greiningu á því, hjá okkur í nefndinni og frá Kristínu Haraldsdótt- ur lögfræðingi, á stjórnskipulegu hlutverki nefndarinnar, valdi hennar og ábyrgð. Við er- um mjög meðvituð um hvað og hvernig við vinnum. Þannig að ef menn eru í einhverjum vafa um það eða telja að þessi nefnd hafi verið á einhverjum villigötum í þessari vinnu þá er það alfarið rangt,“ segir Unnur sem kveður það að- eins hlutverk nefndarinnar og viðskiptaráð- herra að koma að þessu einstaka máli. „Einhverskonar úttekt á okkar störfum og okkar stjórnsýslu veit ég ekkert um og hef ekkert við það að athuga. Ég hef ekkert við það að athuga að aðrir lögfræðingar athugi hvað við höfum gert,“ segir Unnur. Frestur til athugasemda liðinn Þær upplýsingar og þau gögn sem nefndin hafði undir höndum við úrvinnslu málsins ber þó að meðhöndla sem trúnaðargögn. Því má ætla að rannsóknarnefnd ríkisstjórnarinnar um Magma-málið verði sjálf að afla sér allra upplýsinga og gagna frá viðkomandi fyrirtækj- um og lögfræðingum þar sem nefnd um er- lenda fjárfestingu getur ekki látið þau af hendi. Í bréfi sem HS Orku barst var þeim tilkynnt að nefndin hefði komist að þeirri niðurstöðu að kaupin væru heimil. Sú ákvörðun var tekin 25. maí en tekið var fram að ráðherra hefði tvo mánuði til að gera athugasemd við niðurstöð- una. Þeir liðu án allra athugasemda. Nefndin klofnaði Sigurbjörg Stella Guðmundsdóttir, lögfræð- ingur í viðskiptaráðuneytinu, segir lög um er- lenda fjárfestingu kveða á um þær reglur sem nefndin á að vinna eftir. Aðspurð um lagalegan grundvöll rannsóknarinnar og hvaða leiðir séu lagalega færar til að hnekkja niðurstöðu nefndarinnar bendir hún á að nefndin hafi klofnað í afstöðu sinni. Telur Magma-niðurstöðu rétta  Pólitískur klofningur innan nefndarinnar er helsta ástæða ráðuneytis fyrir rannsókn á niðurstöðunni  Formaður nefndar um erlenda fjárfestingu kveður nefndina vera meðvitaða um vinnubrögð sín Einhverskonar úttekt á okkar störfum og okkar stjórnsýslu veit ég ekk- ert um og hef ekkert við það að athuga. SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Við fáum það út að gjóska sem féll hér á landi sé um 140 milljónir rúm- metra. Í Gígjökulslóninu eru allt að 25 milljónir rúmmetra, mestmegnis gjóska. Hraunið sem rann er nálægt 25 milljónum rúmmetra. Það er álíka mikið og hraunið sem kom upp í eld- gosinu á Fimmvörðuhálsi,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson pró- fessor um magn fastra gosefna sem komu upp í gosinu í Eyjafjallajökli. Hópur vísindamanna við Jarðvís- indastofnun Háskóla Íslands, undir forystu þeirra Magnúsar Tuma, Guðrúnar Larsen jarðfræðings og Ármanns Höskuldssonar eldfjalla- fræðings, hefur unnið að því undan- farna tvo mánuði að mæla magn gos- efna sem komu upp frá því að eldgosið hófst 14. apríl sl. Hópurinn hefur unnið að verkefninu í sam- vinnu við Þorvald Þórðarson pró- fessor við Edinborgarháskóla. Um miðjan júlí fóru 10-12 vísindamenn upp á Eyjafjallajökul til mælinga og gagnasöfnunar. Magnús Tumi sagði að niðurstöðurnar væru enn bráða- birgðatölur. „Það er ljóst að verulegt gjósku- magn féll utan Íslands, erlendis og í hafið, ef til vill frá fjórðungi og allt að einum þriðja hluta gjóskunnar. Það er enn mjög óljóst hve mikið það var. Við höfum ekki getað mælt það og höfum ekki nákvæma tölu um magn- ið. Heildartala gjósku er því veru- lega hærri en 140 milljónir rúm- metra,“ sagði Magnús Tumi. Hann batt vonir við að hægt yrði að meta þetta síðar í samvinnu við erlenda kollega. Til þess verður að afla upp- lýsinga um hve mikil aska féll t.d. í Færeyjum, Skotlandi og víðar. Vatnsgufa uppistaða gassins Heildarmassi, eða þyngd, gosefna er áætlaður vera allt að 300 – 400 milljónir tonna. Magnús Tumi sagði að fyrrgreindur rannsóknarhópur hefði ekki unnið sérstaklega að mæl- ingum á gasi sem losnaði. Það væri þó aðeins lítill hluti massa gosefn- anna, líkt og í öðrum eldgosum. Heildarmassi gassins sem losnaði í eldgosinu er talinn vera innan við tíu milljónir tonna. Þar af er vatnsgufa um 80%. Gastegundir með flúor og brennisteini hafa verið áætlaðar af stærðargráðunni 100 – 300 þúsund tonn, en engar nákvæmar tölur liggja fyrir um þær. Magnús sagði áætlað að magn gróðurhúsagassins CO2 hefði líklega ekki verið meira en ein milljón tonna. Talið er að tæplega 100 milljónir rúmmetra af ís hafi bráðnað í gosinu. Það er svipað og í síðasta Gríms- vatnagosi en aðeins lítið brot af því sem bráðnaði í Gjálp þar sem um fjórir rúmkílómetrar af ís bráðnuðu. „Þetta var verulegt gos,“ sagði Magnús Tumi um Eyjafjallajökuls- gosið. Hann sagði að t.d. bæði Gjálp- argosið 1996 og Surtseyjargosið hefðu verið stærri en eldgosið í Eyja- fjallajökli. Yfirleitt eru eldgos ekki kölluð stórgos fyrr en magn gosefna verður meira en einn rúmkílómetri. Fá gos á síðustu 100 árum hafa náð því, þó ef til vill Surtsey og Katla. Eldgosið í Eyjafjallajökli „var verulegt gos“  Eftir er að meta gjóskumagnið sem féll utan landsteinanna, en það var talsvert 190.000.000 rúmmetrar gjósku og hrauns 300 - 400 milljónir tonna af gosefnum ‹ EYJAFJALLAJÖKULL › » Evrópureglur eru hlutlausar gagnvart eignarhaldi á orkufyrirtækjum, viðkomandi ríki getur sjálft skipað þeim málum, að sögn Elviru Méndez Pi- nedo, sérfræðings í Evrópurétti. Hún var meðal framsögumanna á opnum borgarafundi Attac- samtakanna í Iðnó í gærkvöldi. Á annað hundrað manns sótti fundinn. „Allar náttúruauðlindir Íslands eiga að vera í al- mannaeigu og allur arður af þeim á að ganga óskiptur til þjóðarinnar,“ var yfirskrift fundarins en kaup Magma Energy á HS Orku voru í for- grunni í framsöguerindum. Iðnaðarráðherra, efna- hags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra var boðið að taka þátt í pallborðsumræðum. Þau höfðu „öðrum hnöppum að hneppa,“ upplýsti Bene- dikt Erlingsson fundarstjóri og voru sæti þeirra því auð. Boðað var til fundarins áður en ríkisstjórnin ákvað að hefja athugun á málefnum HS Orku. Sól- veig Anna Jónsdóttir, formaður Attac-samtakanna á Íslandi, sagði að krafan væri að orkufyrirtækin yrðu tekin af markaði og samningur Magma ógilt- ur. Hátt í sextán þúsund manns höfðu í gærkvöldi skrifað undir áskorun á vefnum orkuaudlindir.is gegn sölunni á HS Orku. Jón Þórisson sagði að markmiðið hefði verið að vekja umræðu um einka- væðingu orkunnar, áður en það væri orðið of seint. Ríkisstjórnin hefði leikið biðleik en óvist væri um endanlega niðurstöðu málsins. helgi@mbl.is Orkufyrirtækin af markaði Morgunblaðið/Árni Sæberg Borgarafundur Opinn borgarafundur um eignarhald á náttúruauðlindum og kaup Magma Energy á HS Orku var fjölsóttur. Enginn ráðherranna sem boðaðir höfðu verið mættu á fundinn.  Sérfræðingur segir Evrópureglur hlutlausar gagnvart eignarhaldi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.