Morgunblaðið - 29.07.2010, Page 31

Morgunblaðið - 29.07.2010, Page 31
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Orgelleikarinn og organistinn Stein- grímur Þórhallsson verður með tvenna tónleika í Hallgrímskirkju um helgina, en tónleikarnir eru á dagskrá Alþjóðlegs orgelsumars sem hefur notið mikilla vinsælda í sumar. Efnisskráin er fjölbreytt, en Steingrímur mun meðal annars frumflytja nýtt verk eftir sjálfan sig. „Þessi orgelsería er þannig að það er hálftíma prógramm á laugardeg- inum og svo er fullt prógramm á sunnudeginum. Á laugardeginum verð ég með barokktónlist, umrit- anir tveggja tónskálda á hljómsveit- arkonsertum en menn umrituðu oft stærri verk fyrir orgel til að þeir gætu þá spilað þau á ódýrari hátt,“ segir Steingrímur en um er að ræða tvo konserta eftir Vivaldi og einn eft- ir Torelli. Á sunnudeginum verða talsvert nýrri verk á dagskrá en það elsta er samið 1917. „Stærsti hlutinn er eftir Íra sem hét Stanford sem samdi mikið af verkum sem eru kannski ekki mjög þekkt. Þetta er eitt lítið verk og svo stór orgelsónata sem hann samdi í lok fyrri heimstyrjald- arinnar til þess að þakka banda- mönnum Breta fyrir hjálpina í stríð- inu. Þannig ber hver kafli nafn á frægum bardagastað og franski þjóðsöngurinn er til dæmis meg- inþemað í öllu verkinu.“ Steingrímur ætlar að enda á einu frægasta orgelverki sem samið hef- ur verið, Prelúdía og fúga um nafn Alain eftir Duruflé, en áður mun hann frumflytja verkið Preludia pes- ante sem hann samdi í vetur. „Þetta eru allt svolítið svona stór verk og verkið mitt er mikið og þungt, svona eins og íslenska skapið á veturna,“ segir Steingrímur og bætir því við að það hafi að mestu leyti verið samið á vetrarmánuðum. Hann var þó stadd- ur á Ítalíu þegar hann lauk við það og segir því mildari kafla vera þarna inni á milli; „Þetta er fyrsta verkið sem ég tileinka konunni minn þannig að það verður að vera smá rómantík í þessu,“ segir hann og hlær. Steingrímur hefur samið þó nokk- uð í vetur, þar á meðal þrjú stykki í stærri kantinum þó hann segist reyndar eiga það „stóra“ eftir. Auk þess að semja orgelverk hefur hann samið verk fyrir kóra og önnur hljóð- færi og segir það reynast sér auð- veldara. „Mér finnst voðalega erfitt að semja á hljóðfæri sem ég spila á sjálfur. Maður semur oft betur fyrir hljóðfæri sem maður rannsakar utan frá, annars getur maður dottið í að semja einhverja klisju, sem er eins og eitthvað sem maður hefur spilað sjálfur og finnst voða flott.“ Tónleikarnir hefjast kl. 12 á laug- ardaginn en kl. 17 á sunnudeginum. Smá rómantík fyrir konuna  Heldur tvenna orgeltónleika og frumflytur frum- samið verk Morgunblaðið/Jakob Fannar Frumsamið Steingrímur tileinkar konunni sinni Preludia pesante. Menning 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010 Út er komin Safnabókin 2010 en hún er samvinnuverkefni Bókaútgáfunnar Guðrúnar, Safnaráðs og Félags íslenskra safna og safnamanna. Tilgang- urinn með útgáfu bókarinnar er að kynna söfn landsins og efla þannig safnamenningu en hún er sérstaklega gerð með ferðamenn í huga. Í tilkynn- ingu segir að með útgáfu bók- arinnar verði í fyrsta sinn til heildstæð skrá á aðgengilegu formi fyrir ferða- menn yfir öll söfn, setur og sýningar á Íslandi. Á landinu er að finna um 200 söfn og samtals heim- sækja þau um tvær milljónir manna árlega. Bókin er til á ensku og íslensku og er ókeypis. Bækur Safnabókin 2010 er komin út Kápa bókarinnar Í kvöld verða haldnir tónleikar á Múlanum sem eru þáttur í sumardagskrá djassklúbbsins. Það er hljómsveit bassaleik- arans Bjarna Sveinbjörns- sonar sem mun stíga á svið en auk Bjarna skipa hana Agnar M. Magnússon á píanó og hljómborð, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Erik Qvick á trommur og Edda Borg á hljómborð. Á efnisskránni má finna efni af plötu Bjarna, About Time, sem kom út síðastliðið haust, ásamt nýjum lögum í svipuðum stíl en um er að ræða „fyrsta flokks fusion-tónlist“. Tónleik- arnir fara fram í Risinu við Tryggvagötu og hefj- ast kl. 21. Tónleikar Tími til kominn á Múlanum Bjarni Sveinbjörnsson Í dag kl. 17 verður opnuð sýn- ingin Lýðveldið á planinu í Galleríi Gránu, Síldarminja- safninu á Siglufirði. Lista- mennirnir sem eiga verk á sýn- ingunni eru Anna Jóa, Bryndís Jónsdóttir, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Hildur Mar- grétardóttir, Hlíf Ásgríms- dóttir, Kristín Geirsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munka- þverá og Ólöf Oddgeirsdóttir. Umfjöllunarefni sýningarinnar eru kimar íslensks lýðveldis, menning og náttúra en listamennirnir störfuðu fyrst saman að sýningunni Lýðveldið Ís- land sem haldin var í Þrúðvangi árið 2004 og var tileinkuð 60 ára afmæli lýðveldisins. Myndlist Lýðveldið á planinu í Galleríi Gránu Bryndís Jónsdóttir Skúlptúr eftir listakonuna Guðrúnu Nielsen hefur verið komið fyrir í New Greenham Park í Newb- ury í Berkshire á Englandi. Tilurð þess má rekja til þess að fyrir tólf árum efndi The Royal British Society of Sculptors til samkeppni um tillögur að verki til að minnast sögu Greenham Common, en þar var reist herstöð í seinni heimsstyrjöldinni sem hýsti kjarnorkuflaugar Bandaríkjamanna og stát- aði af lengstu flugbraut í heimi. Árið 1985 var her- stöðinni lokað og landið aftur gefið fólkinu. Um 150 tillögur bárust í keppnina en tillaga Guðrúnar var ein af þremur sem voru valdar. „Verkið í raun endurspeglar sögu staðarins,“ út- skýrir Guðrún. „Þetta er origami-verk í níu þátt- um og sýnir stig fyrir stig hvernig verkið breytist úr óbrotnu blaði í orustuflugvél og verður svo aft- ur að engu. Alveg eins og staðurinn.“ Verkið, sem kallast Changes eða Breytingar, er gert úr corten- stáli og stendur hver hluti á steinsteypustöpli. Og það er ekki bara hugmyndin sem sækir innblástur í sögu staðarins heldur einnig efnið sjálft, en stöpl- arnir eru gerðir úr efni úr gömlu flugbraut- inni. Guðrún verður viðstödd þegar verkið verður afhjúpað í september en hún segir að það sé sérstaklega ánægjulegt að það sé loks komið á sinn stað, enda tólf ár liðin frá því að hún vann samkeppnina og mikil vinna í kringum fram- kvæmdina. „Það eru margir búnir að standa að baki mér og þetta búið að vera langt ferli. Það síðasta sem kom upp voru einhver vandræði með lýsinguna en það leystist nú allt,“ segir Guðrún og svarar því aðspurð að það sé alls ekki þannig að allt sé bara tilbúið á staðnum þegar svona verk eru pöntuð. Guðrún er búin að starfa sem skúlptúr- listakona í meira en tuttugu ár og stendur í ströngu þessa dagana. Hún mun meðal annars taka þátt í sýningu á Ítalíu á næstunni ásamt fleiri evrópskum listamönnum auk þess að eiga verk á sýningu í Bretlandi. holmfridur@mbl.is Hannaði origami-verk úr stáli  Skúlptúr eftir Guðrúnu Nielsen komið fyrir í New Greenham Park  Endurspeglar sögu staðarins Ljósmynd/Leigh Quinnell Breytingar Guðrún sótti bæði hugmyndina og efniviðinn til staðarins. Í fyrradag var til- kynnt hvaða bæk- ur hefðu komist á svokallaðan lang- lista Booker- verðaunanna. Það var lárviðar- skáldið Andrew Motion, formaður dómnefnd- arinnar, sem til- kynnti valið. Það voru þó ekki bæk- urnar sem voru á listanum sem vöktu sérstaka athygli heldur þær sem vantaði, þá sérstaklega The Pregnant Widow eftir Martin Amis, Solar eftir Ian McEwan og Luka and the Fire of Life eftir Salman Rus- hdie. Engin frumraun er á listanum en af rithöfundunum er hinn ástr- alski Peter Carey sá eini sem hefur unnið til verðlaunanna og það tvisv- ar. Bók hans Parrot and Olivier in America þykir sigurstrangleg en það yrði þá í fyrsta skipti í sögu verð- launanna sem einhver hlýtur þau í þriðja sinn. Ion Trewin, stjórnandi verðlaunanna, segir bækurnar á list- anum í ár einkennast af húmor. Mikið af hlátri Langlisti Booker tilkynntur Andrew Motion Í dag verður opnuð sýning í Ljós- myndasafni Reykjavíkur á ljós- myndum Anne Marie Sørensen. Myndirnar tók hún í leiðangri sem hún fór í við strönd nálægt Eyrar- bakka á árunum 2009 til 2010. Sýn- ingin ber heitið Blue Formations og er tólfta sýning Anne Marie en hún fjallar um „vatnið, hraunið og vind- inn sem hreyfir við náttúruöflunum“. Vatn, hraun og vindur Strönd Eitt verka Önnu. Við gerum sumri menningu hærra und- ir höfði en annarri 34 » Steingrímur er organisti í Nes- kirkju og hugsar sig aðeins um áður en hann svarar því hvort honum finnist skemmtilegra, messuspilið eða tónleikahald. „Það fer eftir samhengi. Þú getur náttúrulega gert vinnuna þína leiðinlega með því að gera alltaf sömu hlutina. En að mínu mati ætti það að spila á tón- leikum að vera órjúfanlegur hluti af því að vera organisti, þetta er reynsla sem þú svo auðvitað nýtir síðan í mess- urnar til að gera þær flottari og áhugaverðari. Að spila á tónleikum er rosa- lega skemmtilegt oft og sér- staklega að spila með öðrum, en að spila í stórum messum þar sem eru kannski 300 manns og allir syngja með, þá er miklu meira kikk í því. Þá virkilega fer orgelið að virka, af því að það er náttúrulega miðað við það að spila undir söng.“ Skemmtilegt MESSUR OG TÓNLEIKHALD FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.