Morgunblaðið - 03.09.2010, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2010
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Bensín sem selt var hér á landi í vor og fór illa í til-
teknar gerðir kerta í bílvélum stóðst allar gæða-
prófanir, bæði hjá olíufélögunum og hjá óháðri
rannsóknastofu, að sögn Magnúsar Ásgeirssonar,
innkaupastjóra eldsneytis hjá N1.
„Allir eldsneytisfarmar eiga að standast
ákveðnar alþjóðlegar gæðakröfur og þessi farmur
stóðst þær,“ sagði Magnús. Ekkert fannst athuga-
vert við bensínið við rannsókn hér á landi. Sýni úr
farminum var einnig sent til rannsóknar erlendis og
fannst ekkert athugavert í henni.
Íblöndunarefni í bensíninu, svonefndur „octane
booster“, virðist hafa valdið því að tilteknar gerðir
kerta virkuðu illa og kom það niður á vinnslu þeirra
bíla sem hafa þau. Magnús sagði að birgir íslensku
olíufélaganna, finnska olíufyrirtækið Neste Oil,
hefði upplýst að „octane booster“ hefði verið í bens-
íninu, en sennilega væru íblöndunarefni með sömu
virkni í flestu bílabensíni. Það sérstaka var að þessi
tiltekna sending fór illa í ákveðnar kertagerðir.
Bensínfarmurinn sem um ræðir kom til landsins í
apríl og var aðallega seldur í maí hjá öllum olíufé-
lögunum. Hann samsvaraði fjögurra vikna notkun
af bensíni. Á þessum tíma stóð yfir vinna í olíu-
hreinsunarstöð Neste Oil sem olli því að þeir keyptu
þennan farm á markaði til að standa við samninga
við íslensku olíufélögin. Magnús sagði það vera dag-
legt brauð að slíkt væri gert. Hann sagði að þetta
hefði ekki haft áhrif á marga bíla og þorra bíla hefði
verið ekið á bensíninu vandræðalaust.
Í samtali Morgunblaðsins við Hermann Guð-
mundsson, forstjóra N1, í gær kom fram að fyr-
irtækið hefði bætt nokkrum bíleigendum tjón
vegna notkunar bensínsins. Magnús var spurður
hvort fyrirtækið ætti endurkröfurétt á hendur
framleiðanda bensínsins.
„Það er ekki orðið skýrt en það verður að hafa í
huga að bensínið stóðst allar gæðakröfur,“ sagði
Magnús.
Engar kvartanir höfðu borist til FÍB
Ekki þótti ástæða til að tilkynna bíleigendum
sérstaklega þau vandræði sem sumir urðu fyrir
vegna íblöndunarefnisins, enda komu kvartanir
ekki fram fyrr en bensínsendingin var að klárast, að
sögn Magnúsar.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda birti grein um
bensínið á heimasíðu sinni í gær. Þar kom fram að
FÍB hefðu ekki borist neinar kvartanir vegna gang-
truflana af völdum umrædds bensíns.
Bensínið stóðst gæðakröfur
Bensínfarmur sem seldur var hér á landi í vor fór illa í tiltekna kertagerð bíla Bílarnir misstu afl
vegna íblöndunarefnis Ekkert athugavert kom fram við rannsókn á bensíninu hér og erlendis
„Allir eldsneytisfarmar
eiga að standast ákveðnar
alþjóðlegar gæðakröfur
og þessi farmur stóðst
þær.“
Aukaefni í bensíni
» Bensínfarmur sem kom til
landsins í apríl innihélt „oct-
ane booster“ en íblöndunar-
efnið jafnar oktantölu bens-
ínsins.
» Íblöndunarefnið truflaði
kerti sumra bíla og virðast
bandarískir bílar hafa orðið
einkar illa úti.
» Margir bíleigendur leituðu
til bílaverkstæða vegna gang-
truflana í sumar. Þá kom í ljós
rauðleit húð á kertum vél-
anna.
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
(KUNG-FU)
OPIÐ HÚS
Heilsurækt
Sjálfsvörn fyrir konur
Wu Shu Art
(Kung-Fu)
Tai Chi
Hugræn
teygjleikfimi
Qi Gong
Heilsumeðferð
Nálarstunga
Fjölbreytt nudd
Tækjameðferð
Snyrting
Dekur
Spa
LAUGARDAGINN 4. SEPTEMBER
Í HEILSUDREKANUM SKEIFUNNI 3J
HEILSUVÖRUR - HEILSUTE
Opnir tímar - Sýningar
Sími: 553 8282 ¦ heilsudrekinn@heilsudrekinn.is ¦ www.heilsudrekinn.is
Rússneska barkskipið Sedov lagði að hafnarbakkanum í
Reykjavík í gær. Skipið er næststærsta seglskip í heim-
inum. Það tilheyrir tækniháskólanum í Murmansk og er
notað til að þjálfa unga sjóliða. Sedov hefur tekið þátt í
mörgum alþjóðlegum siglingakeppnum og unnið marg-
vísleg verðlaun.
Minnast skipalesta bandamanna
Heimsóknin er tileinkuð hátíðarhöldum í tilefni þess
að 65 ár eru liðin frá sigri í seinni heimsstyrjöldinni. Ætl-
að er að minnast skipalesta bandamanna sem fóru frá
Hvalfirði til Murmansk og Arkhangelsk á stríðsárunum.
Sedov mun liggja við Miðbakka í gömlu Reykjavíkur-
höfninni til 5. september þegar það heldur för sinni
áfram. Skipið verður opið almenningi í dag, föstudag, og
á morgun frá kl. 9-18.
Morgunblaðið/Ernir
Í Reykjavíkurhöfn Sedov er næststærsta seglskip í heiminum og er það notað til að þjálfa unga rússneska sjóliða.
Morgunblaðið/Ernir
Í röð Sjóliðarnir bíða eftir að fá vegabréfin sín afhent.
Næststærsta
seglskip heims
Barkskipið Sedov í heim-
sókn í Reykjavíkurhöfn
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Taugatitringur var í gær í röðum
Vinstri grænna vegna frétta á vef
ráðuneytis samgöngu- og sveitar-
stjórnarmála þar sem sagði að ráð-
herrann, Kristján Möller, myndi
veita Flugmálastjórn heimild til að
undirbúa skráningu herþotna hol-
lenska fyrirtækisins ECA Program
hér á landi. Samkomulag hefði náðst
um máli milli leiðtoga stjórnarflokk-
anna. VG hefur áður lýst miklum
efasemdum um málið.
Í fréttatilkynningu frá Hrannari
Arnarssyni, aðstoðarmanni Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra, í
gær var tekið fram að ekkert slíkt
samkomulag hefði náðst. En samið
hefði verið um að afla frekari gagna.
Ertu ekki búinn
að skrifa bréfið?
„Hér er ekki verið að hefja skrán-
ingu sem slíka heldur undirbúning
og svara spurningum áður en ákveð-
ið verður að fara á næsta stig,“ segir
Kristján Möller. „Ég fór með þetta
inn í ríkisstjórn fyrir nokkrum mán-
uðum og það var rætt en beðið um
frekari gögn og sú gagnavinna hefur
átt sér stað undanfarið. Fyrir 10-15
dögum átti ég fund með Jóhönnu og
Steingrími um þetta mál. Samkomu-
lag varð um að aðstoðarmaður minn
og aðstoðarmaður Steingríms færu í
frekari gagnasöfnun, reyndu að
svara ákveðnum spurningum og
setja fram spurningar sem myndu
vakna og skila okkur þessu, þá yrði
hægt að fara með þetta á næsta stig.
Þetta átti að klárast sem fyrst. Ég
hitti forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra á þriðjudag eftir ríkis-
stjórnarfund. Þá sátum við þrjú og
fórum yfir þessi drög að minnisblaði
og punktana á því. Þetta eru 10 eða
12 spurningar.“
Kristján segist hafa ákveðið að
senda formlegt bréf til flugmála-
stjóra um málið enda kostar gagna-
öflun af þessu nokkurt fé. „Í gær
[miðvikudag] er ég á fundi hjá Jó-
hönnu þar sem við förum yfir ýmis
mál sem varða ráðuneytið. Þetta mál
bar á góma og hún spyr: Ertu ekki
búinn að skrifa bréfið? Ég segi jú og
búinn að skrifa undir það.“
Fær ECA að
skrá vélar sínar
hér á landi?
Titringur í röðum
Vinstri grænna
vegna málsins
Öflug Úkraínsk-smíðuð Sukhoj-
þota eins og ECA hyggst nota.
Þarf að afla gagna
» Áður en ECA fær að skrá
vélar sínar hér þarf að svara
ýmsum spurningum. Kanna
þarf hvaða reglur gilda um
svona mál í nágrannaríkjunum,
hvort nægileg þekking sé fyrir
hendi á Íslandi á þeim vélum
sem ECA hyggst nota.
» Einnig hver ábyrgð Íslend-
inga yrði á vélunum við æfing-
ar utan lofthelgi Íslands og
loks hvort viðskiptavinir yrðu
eingöngu frá ríkjum NATO og
ef ekki þá hvaða ríkjum.