Morgunblaðið - 03.09.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2010
Bílaumboðið Brimborg hefur
ákveðið að lækka verð á Ford-
bifreiðum. Starfsfólk umboðsins
telur að bílasala muni rétta úr kútn-
um á næstu mánuðum enda sjást
merki þess að kreppan hafi loksins
náð botninum og efnahagur lands-
ins sé á uppleið, að því er fram kem-
ur fréttatilkynningu frá umboðinu.
Verðlækkanirnar eru mismun-
andi eftir bílategundum en þær
nema hundruðum þúsunda króna.
Nefna má sem dæmi að Ford Ka
Trend Plus sem kostaði áður
2.390.000 kr. kostar nú 1.980.000
kr. Ford Fiesta Trend kostaði áður
2.990.000 kr. en kostar nú 2.390.000
kr. Ford Focus Trend Collection
kostaði áður 3.920.000 kr. en kostar
nú 3.390.000 kr. Ford Mondeo
Trend kostaði áður 5.170.000 kr. og
lækkar nú niður í 3.950.000 kr.
Brimborg
lækkar
verð á Ford
Telja að botninum
hafi nú verið náð
Morgunblaðið/Eyþór
Ford Lækkunin hjá Brimborg nem-
ur hundruðum þúsunda króna.
Ljósanótt í Reykjanesbæ var sett í
11. sinn í gær þegar nemendur í
leik- og grunnskólum slepptu 2000
blöðrum til himins við Myllubakka-
skóla í Keflavík. Nemendur komu
til athafnarinnar í skrúðgöngu í lit-
um skólanna og með fánum og
trommuslætti.
Framundan er fjölbreytt dagskrá
sem stendur yfir í fjóra daga eða til
sunnudagsins 5. september. Má þar
nefna gríðarlegan fjölda myndlist-
arsýninga, tónlistarveislu og
skemmtun fyrir alla fjölskylduna
enda er Ljósanótt fyrst og fremst
fjölskylduhátíð.
Dagskráin hófst strax kl. 13 með
opnu púttmóti í boði Toyota í
Reykjanesbæ, hraðmóti í körfu-
bolta í Ljónagryfjunni í Njarðvík og
pílukastmóti. Í gærkvöld voru flest-
ar listsýningarnar svo opnaðar.
Gestir voru hvattir til að mæta með
höfuðföt.
Ljósanótt í
Reykjanesbæ
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Eftirvænting Frá Ljósanótt í Reykjanesbæ í gær. Sleppt var 2.000 blöðrum við Myllubakkaskóla.
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Full búð
af nýjum vörum
Kvarterma, þunn peysa
með áföstum toppi
Verð 6.900 kr.