Morgunblaðið - 03.09.2010, Síða 42
42 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2010
Í kvöld heldur hljómsveitin
Búdrýgindi tónleika á skemmti-
staðnum Venue. Herlegheitin hefj-
ast með hljómum frá hljómsveitinni
Sing for me Sandra, sem gefur út
sína fyrstu plötu um jólin. Strák-
arnir úr Búdrýgindum mæta svo
hressir og svellkaldir til leiks á mið-
nætti. Aðgangseyrir er enginn.
Frítt inn á tónleika
Búdrýginda í kvöld
Fólk
Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, Pétur Jó-
hann Sigfússon, þreytir frumraun sína í teikni-
myndainnálestri, eða -leik, í teiknimyndinni
Despicable Me, eða Aulinn ég eins og hún heitir
á íslensku. Pétur leikur ómennið Gru sem stjórn-
ar heilum her af skósveinum og hyggur á heims-
yfirráð með því að stela tunglinu. Gru nýtur
þess að fremja hin ýmsu illvirki og enginn
virðist geta stöðvað Gru en þá koma þrjár
litlar stúlkur til sögunnar sem sjá hið
góða í karlinum. Myndin verður frum-
sýnd hér á landi í dag.
Pétur segist hafa farið í leikprufur
fyrir myndina en framleiðandi kvik-
myndarinnar, Illumination Entertain-
ment, þurfti að samþykkja hann í að-
alhlutverkið. Leikarinn Steve Carrell les inn á
fyrir Gru í ensku útgáfunni og það með allsér-
stökum hreim. „Hann talar með pínu hreim,
svona hörðum hreim, einhverjum svona aust-
antjalds-enskum hreim þannig að það var svolít-
ið erfitt fyrir mig að finna þann íslenska hreim,“
segir Pétur. En hvernig var að lesa inn á teikni-
mynd? „Það var rosa gaman, ég hafði aldrei gert
þetta áður og þ.a.l. var þetta svolítið erfið fæð-
ing.“ Pétur segist hafa verið einn í hljóðveri í
upptökum og það hafi verið dálítið skrítið
og nýtt fyrir honum. Pétur á tvær dætur
og segir þær spenntar fyrir því að
hlusta á pabba leika Gru. „Þær bíða
eftir þessu með óþreyju,“ segir
hann að lokum. helgisnaer@mbl.is
Pétur fetar í fótspor Steves Carrells
Gru Gru og Pétur
Í kvöld og annað kvöld kl. 22
verður sýningin The Dwarf sýnd í
Smiðjunni á Sölvhólsgötu á vegum
alþjóðlegu leiklistarhátíðarinnar
Lókal. Sýning er byggð á sögu
sænska nóbelsverðlaunahafans
Pärs Lagerkvists og fjallar um illa
innrættan dverg og samskipti hans
við frönsku hirðina. Leikstjóri er
Egill Heiðar Anton Pálsson og eru
leikararnir flestir úr norska leik-
hópnum Verk Produksjoner ásamt
leikurum Teater Få.
Ítarlegt viðtal við Egil birtist í
Morgunblaðinu á morgun.
Leiksýningin The Dwarf
á fjalirnar í kvöld
Tónlistarspekingurinn Dr. Gunni
ætlar á morgun að grisja grimmt
og selja ýmsar eigur sínar í Kola-
portinu, gangi C. Meðal þess sem
verður til sölu í bási doktorsins eru
vínylplötur, geisladiskar, mynd-
diskar, bækur, blöð, tímarit og
teiknimyndablöð. Doktorinn grein-
ir frá grisjuninni á fésbókarsíðu
sinni og kallar „Geðveika grisjun!“.
Geðveik grisjun hjá
doktor Gunna
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Þór Freysson, gítarleikari Bara-
flokksins og nústarfandi fram-
leiðslustjóri/upptökustjóri hjá
Saga Film, leiðir blaðamann í all-
an sannleikann um sigra og sorgir
Akureyrarbandsins Baraflokksins.
Hann segir ástæðu þessarar end-
urkomu nú hins vegar tvíþætta:
„Í ár á sveitin 30 ára afmæli.
Við hófum að rugla saman reytum
’78-’79 en Baraflokkurinn varð svo
til 1980, þegar ég og Jón bróðir
gengum inn í sveit Ásgeirs Jóns-
sonar söngvara. Svo höfðu norð-
anmenn í nýopnuðu Hofi samband
við okkur og báðu okkur að spila.
Tveir okkar búa í útlöndum og
þessi dagsetning gekk upp.“
Ískalt popp
Þór segir þá félaga glaða yfir
því að fá þetta tækifæri, enda er
þeim hlýtt til sveitarinnar. Bara-
flokkurinn var einkar frambæri-
legt band á sínum tíma, og ískalt
svuntuþeysarapopp hennar stóð
jafnfætis mörgu af því besta í
þeim geiranum. En hvernig þróað-
ist bandið?
„Við vorum aldrei mikið í
pönkinu,“ segir Þór.
„Þetta var í upp-
hafi eitthvert
kassagítarspopp/
rokk en þegar ný-
bylgjan skall á kú-
ventum við. Við vor-
um mjög spenntir fyrir
þessari tónlist, þessu
ískalda poppi sem kom
frá Ultravox, Gary Num-
an og fleirum og átti ræt-
ur að rekja til Kraftwerk
og Bowies. Lagið okkar
„Radio Prison“ af fyrstu plötunni
var eiginlega nokkurs konar háð í
garð þessarar tónlistar. En svo
virkaði þetta bara svo vel að þetta
varð stefnan. Scary Monsters-
plata Bowies var t.d. á stalli og
gítarleikur Roberts Fripps hafði
mikil áhrif á mig.“
Baraflokkurinn gaf út þrjár
plötur á þremur árum og var virk-
ur í tónleikahaldi og listrænni
sköpun. Á Gas má segja að sveitin
hafi staðið á hátindi ferilsins. En
ári síðar lagði hún upp laupana.
Hvað gerðist?
„Við vorum búnir að vera í
þessu í fimm ár, gerandi út frá
Akureyri. Það var ákveðið að
flytja bandið til Reykjavíkur til að
komast nær hringiðunni. Þegar
fluttum suður fyrir
rest. En eftir á að
hyggja græddum við í
raun og veru á því að
vera utan af landi. Það
lá sérstaða í því og þeg-
ar við komum til
Reykjavíkur að spila
vildu allir allt fyrir okkur
gera.“
Á mjólkurbílnum
Þór segir þá félaga auk
þess hafa sloppið við allar hnútur
sem gengu á milli Reykjavík-
urbandanna, en lögmálum sam-
kvæmt var rígur á milli sumra
þeirra.
„Við sluppum algerlega við það.
Við komum bara kátir og hressir
með mjólkurbílnum í bæinn með
reglulegu millibili og allir voða
glaðir að sjá okkur. Það var mjög
gott að vera á Akureyri, – okkar
litli heimur einhvern veginn. Við
vorum með fínt æfingahúsnæði og
höfðum það náðugt þannig lagað.
En af peningum sáum við lítið,
þeir fóru allir í það að koma sveit-
inni á milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar! En við létum slíkan titt-
lingaskít ekki stoppa okkur frekar
en annað.“
Svona er „Bara“ lífið
Baraflokkurinn snýr aftur á Hofi í
kvöld „Við vorum í þessu af lífi og
sál,“ segir Þór Freysson gítarleikari
Ljósmynd/Sigurður Þorgeirsson
Metnaður Baraflokkurinn í dulúðugum málum, haustið 1984, í sinni einu
„faglegu“ myndatöku rétt áður en hann lagði upp laupana.
„Þetta þróaðist áfram mjög
hratt,“ segir Þór þegar hann er
beðinn að rifja upp plötur flokks-
ins.
„Fyrsta platan okkar:
Baraflokkurinn
(1981) bar með sér þetta kalda
nýbylgjurokk. Steinþór í Fræbbbl-
unum sagði að við spiluðum „mod-
rokk“ en við heyrðum það sem
montrokk og fannst það mjög
fyndinn stimpill. Á
Lizt
(1982) fóru nýrómantísku áhrif-
in að verða til muna sterkari;
hljóðgervillinn varð mýkri og
meira áberandi. Við tókum hana
upp á átta rásir í Grettisgati Egils
og félaga í Þursaflokknum.
Gas
(1983) var síðan tekin upp í
Bretlandi í júnímánuði ’83. Það var
alveg meiriháttar tími og þarna var
þetta orðið mjög fágað og
framþróað. Platan hefur elst af-
skaplega vel að mínu viti og hljóm-
urinn er tímalaus einhvern veginn.
Tómas Tómasson tók hana upp en
hann var okkar upptökustjóri og
„mentor“ á alla lund.
Úr hráleika í fágun
HLJÓÐVERSPLÖTUR BARAFLOKKSINS
þangað er komið kemur viss
þreyta í ljós og í desember ’84
ákváðum við að fara í jólafrí og
hittast eftir áramót. Úr því fríi
komum við svo sextán árum síðar
þegar við spiluðum eina tónleika á
Gauknum og gáfum út safnplötuna
Zahir. Langt jólafrí!“
Stoltur
Þór rifjar upp að það hafi verið
mikill hugur í bandinu þegar það
var úti í Bretlandi árið 1983.
Sveitin fékk góð viðbrögð og eðli-
lega spenntust menn upp.
„Það voru alls konar pælingar í
gangi. Við vorum á mála hjá
Steinum og það var hugmynd að
gefa út smáskífu. En svo hvarf
það „móment“ bara einhverra
hluta vegna. Draumur okkar þá
var að geta sinnt þessu 100%.“
Þór lítur til baka stoltur og seg-
ir það eiga við um hina meðlimina
sömuleiðis.
„Þetta var alveg ótrúlega gam-
an þegar þetta stóð yfir. Við vor-
um í þessu af lífi og sál. Þetta var
bara lífið og auðvitað dreymdi
okkur um að ná fleiri eyrum.“
Baraflokkurinn var ein af fáum
landsbyggðarsveitum íslenska
pönktímabilsins sem náðu ein-
hverjum árangri og hæðum með
tónlistinni. Hvernig var að vera á
Akureyri á meðan pönkið óx og
dafnaði í Reykjavíkinni?
„Þetta voru ekki kjöraðstæður á
þessum tíma,“ segir Þór, „og við
» Þetta var í upphafieitthvert kassagít-
arspopp/rokk en þegar
nýbylgjan skall á kú-
ventum við.
Litla Séð og heyrt-plakatið í nýj-
asta tölublaði tímaritsins er heldur
óvenjulegt; verulega óskýr mynd af
borgarfulltrúanum Degi B. Egg-
ertssyni á dansgólfi ónefnds
skemmtistaðar, með bjórflösku í
hendi sem hann þáði af ljósmynd-
ara. Í texta segir m.a. að Dagur
„breytist í villidýr – jafnvel dans-
fífl“ þegar hann bregði sér á dans-
gólfið.
Dagur B. óskýr á plak-
ati Séðs og heyrðs