Morgunblaðið - 06.09.2010, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.09.2010, Blaðsíða 22
22 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2010 Sudoku Frumstig 7 3 8 5 2 4 5 6 8 3 2 4 5 8 5 1 3 7 1 2 1 6 2 1 3 7 5 7 4 4 2 6 1 4 7 3 3 9 2 2 9 1 9 3 5 6 1 9 4 2 3 8 5 4 7 1 9 4 6 9 6 1 5 2 8 3 5 3 6 3 7 5 2 1 4 3 6 5 8 2 7 9 1 5 8 9 1 3 7 4 6 2 1 7 2 4 9 6 5 8 3 2 4 5 7 1 8 9 3 6 8 9 1 6 5 3 2 7 4 7 6 3 9 2 4 1 5 8 3 2 7 8 4 9 6 1 5 6 5 4 3 7 1 8 2 9 9 1 8 2 6 5 3 4 7 1 7 5 4 3 8 9 2 6 2 4 3 7 9 6 1 8 5 9 6 8 2 1 5 3 4 7 5 1 7 8 2 3 4 6 9 3 8 9 1 6 4 7 5 2 4 2 6 9 5 7 8 3 1 6 9 1 3 4 2 5 7 8 8 3 2 5 7 9 6 1 4 7 5 4 6 8 1 2 9 3 5 9 8 6 1 2 4 7 3 4 1 6 9 3 7 8 5 2 7 2 3 8 5 4 1 9 6 8 3 1 7 4 9 6 2 5 2 4 5 3 6 8 7 1 9 6 7 9 1 2 5 3 8 4 1 5 4 2 7 6 9 3 8 9 6 7 5 8 3 2 4 1 3 8 2 4 9 1 5 6 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 6. september, 249. dagur ársins 2010 Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrni- runni. (Lúkas 6, 44.) Hvað ætli margir mæti á næstalandsleik í Laugardalnum? Veðrið var heldur leiðinlegt síðast- liðinn föstudag þegar karlalands- liðið tapaði óverðskuldað fyrir Norðmönnum. En miðarnir eru ekki gefnir og nú er komið sérstakt aukagjald: þeir sem lögðu ólöglega verða að punga út með 5000 krónur í sekt. x x x Aðeins 6.600 manns mættu á leik-inn að þessu sinni en búast má við mun fleira fólki þegar Portúgal- ar koma hingað í haust. Kona sem sendi blaðinu tölvupóst spurði hvar lögreglan ætlaðist til að fólk legði. Hún var sein fyrir, sagðist hafa keyrt um lengi, gefist upp og lagt uppi á grasbala eins og hundruð manna gera þegar fjölmenni er á áhorfendapöllunum. Það veit Vík- verji af því að hann er einn af þeim sem hafa margsinnis lagt ólöglega við aðstæður af þessu tagi, t.d. á Menningarnótt og komist upp með það. x x x Segjum nú að háttvirtur nýrmeirihluti í borgarstjórn sé hundóánægður með ofnotkun þegna sinna á einkabílnum, vilji að þeir taki strætó, sameinist um bíla eða leggi bara nógu langt frá kraðakinu. En hefði þá ekki verið snjallt að vara fólk duglega við, jafnvel með heilsíðuauglýsingum í blöðunum, nýta líka sjónvarp og útvarp fyrir leikinn? Vonandi voru menn ekki að nota vald sitt til að refsa mönnum fyrir blikkbeljuástina, rassskella þá eins og óþekktarorma. x x x Annars er Víkverji ekkert ósátt-ur við allt sem meirihlutinn gerir, hann skilur að tekið sé til hjá Orkuveitunni þótt byrðarnar lendi eins og venjulega á – já, venjulegu fólki. Og hann heyrði í gær góða skýringu á rafmagnstruflunum sem urðu fyrir skömmu. Þetta var ekki bilun hjá Norðuráli; menn voru bara að starta eldhúsi OR eftir sumarfrí. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 bolur, 4 þrautir, 7 sprikl, 8 kjánum, 9 ve- sæl, 11 kvak, 13 grasflöt, 14 tómur, 15 drakk, 17 haka, 20 blóm, 22 vensla- maður, 23 Gyðingum, 24 víkka, 25 kliður. Lóðrétt | 1 búhnykkur, 2 holds, 3 skrifa, 4 sár, 5 tungumál, 6 þylji í belg og biðu, 10 skapanorn, 12 tjón, 13 brák á vatni, 15 árstíð, 16 sundfærum, 18 með mikinn hárvöxt, 19 handleggur, 20 kvendýr, 21 skaði. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fangbrögð, 8 víkin, 9 fjöld, 10 nía, 11 trana, 13 nánar, 15 hatts, 18 úlpan, 21 tál, 22 Eldey, 23 fullt, 24 fangaráði. Lóðrétt: 2 askja, 3 ginna, 4 rófan, 5 grönn, 6 hvet, 7 ódýr, 12 net, 14 áll, 15 hret, 16 tudda, 17 stygg, 18 úlfur, 19 púlið, 20 nota. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. Rf3 Rf6 2. g3 d5 3. Bg2 c5 4. 0-0 e6 5. d3 Be7 6. Rbd2 b6 7. e4 dxe4 8. dxe4 Bb7 9. De2 0-0 10. Hd1 Dc7 11. e5 Rfd7 12. Rc4 Rc6 13. Bf4 b5 14. Rd6 Bxd6 15. Hxd6 a6 16. Dd3 Rb6 17. Rg5 g6 18. Re4 Rb4 19. Rf6+ Kh8 20. Dd1 Bxg2 Staðan kom upp á opnu alþjóðlegu móti í Olomouc í Tékklandi sem lauk fyrir skömmu. Íslenski kvennastór- meistarinn Lenka Ptácníková (2.262) hafði hvítt gegn Pólverjanum Sebast- ian Kobus (2.080). 21. Dg4! svartur er nú óverjandi mát. Framhaldið varð eft- irfarandi: 21. … R4d5 22. Dh4 h5 23. Dg5 Rxf6 24. exf6 Kh7 25. Dh6+ og svartur gafst upp enda mát í næsta leik. Lenka fékk 6½ vinning af 9 mögu- legum á mótinu og lenti í 8. sæti. Vegna frammistöðu sinnar á mótinu mun hún hækka um 20 stig. Smári Rafn Teits- son (2.089) tók einnig þátt í mótinu og fékk 4½ vinning. Hvítur á leik BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Þriðji liturinn. Norður ♠– ♥Á85 ♦G98 ♣K1097543 Vestur Austur ♠ÁK10742 ♠DG9653 ♥D7 ♥642 ♦D5 ♦642 ♣D82 ♣G Suður ♠8 ♥KG1093 ♦ÁK1073 ♣Á6 Suður spilar 6♥. „Þriðji liturinn“ verður oft útundan í samtali sagna. Suður opnar á 1♥ og vestur kemur inn á 1♠. Nú á norður tveggja kosta völ. Hann getur stutt hjartað (2♥) eða sýnt laufið (2♣). Í full- komnum heimi gæti hann slegið tvær flugur í einu höggi – sagt 3♣ til að sýna langan lauflit og hjartastuðning. En látum hann lifa í raunheimum og melda 2♣. Austur stekkur í þá 4♠ og setur suður í nokkurn vanda. Á suður að melda tígulinn núna? Varla. Enginn keppandi í Sum- arbrids spilaði tígulsamning, hvað þá 6♦, sem er besta slemman. Í 6♥ þarf að finna aðra rauðu drottninguna, en slíkt er óþarfi í tígulslemmu. Þá má gefa slag á ♦D og fría laufið. Lauf- slemma er líka allgóð og vinnst með bestu trompíferð: að taka ♣Á og svína svo fyrir drottninguna. 6. september 1914 Benedikt G. Waage, síðar for- seti ÍSÍ, synti fyrstur manna, svo vitað sé, úr Viðey til lands á tæpum tveimur tímum. „Mesta sund er sögur fara af á Íslandi síðan á Grettisdögum,“ sagði Morgunblaðið. 6. september 1943 Íslandsklukkan eftir Halldór Kiljan Laxness kom út. Ekkert verka Halldórs hefur fengið jafn góðar viðtökur. Þetta var fyrsta bók af þremur sem sam- an eru nefndar Íslands- klukkan. Hinar eru Hið ljósa man og Eldur í Kaupinhafn. 6. september 1952 Iðnsýning var opnuð í Reykja- vík. Hana sóttu um 73 þúsund manns eða annar hver Íslend- ingur. 6. september 2005 Skipti ehf. greiddi íslenska ríkinu 66,7 milljarða króna fyrir Landssíma Íslands. Tæp- um helmingi átti að verja til að greiða niður erlendar skuldir, 18 milljörðum til uppbygg- ingar hátæknisjúkrahúss og 15 milljörðum til samgöngu- bóta. Einnig átti að kaupa varðskip, byggja upp fjar- skiptaþjónustu o.fl. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Þrítugsafmælinu ætlar Snorri Magnússon, húsa- smiður, að fagna í faðmi fjölskyldunnar í kvöld. Hann býður til matarveislu og munu þá um 15 manns, nánustu ættingjar, gæða sér á nauta- carpaccio, grilluðum kjúklingabringum og líklega fá ís í eftirrétt. Snorri hefur unnið við húsasmíðar í um 15 ár en beið með að læra iðnina þar til fyrir skemmstu. Sveinsprófinu lauk hann fyrir um tveimur árum. Mesta breytingin eftir að prófinu lauk segir hann að launaumslagið sé þykkara. Minni munur sé á kunn- áttunni. „Maður lærir mest á vinnumarkaðnum,“ sagði hann. Nóg hefur verið að gera hjá Snorra en störf hans felast einkum í hvers konar viðhaldi, aðallega fyrir útgerðarfélög. Hann er fjölskyldumaður og á einn sjö mánaða dreng með sambýliskonu sinni. Í frítíma sínum þeysir hann um á motocross-torfæruhjóli og spilar póker, einkum það afbrigði sem nefnt er Texas Hold’em. Peningar eru í spilinu því „það er ekkert gaman að þessu öðruvísi,“ segir Snorri Nokkuð stór hópur á Akranesi hittist reglulega til að spila póker, bæði um helgar og á virkum dögum. Snorri heldur bókhald um spilamennskuna og er að sögn réttum megin við núllið. runarp@mbl.is Snorri Magnússon húsasmiður þrítugur Lærir mest með vinnu Söfnun Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Arnheiður Björk, Sunneva Sól og Bergþóra Lísa héldu tombólu til styrktar Rauða krossinum, þær söfnuðu 1.900 krónum. Flóðogfjara 6. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.33 3,4 10.43 0,7 16.51 4,0 23.15 0,5 6.25 20.28 Ísafjörður 0.32 0,4 6.34 1,8 12.40 0,3 18.46 2,2 6.25 20.38 Siglufjörður 2.33 0,3 8.59 1,2 14.41 0,4 20.59 1,4 6.07 20.22 Djúpivogur 1.31 1,8 7.36 0,5 14.04 2,1 20.17 0,6 5.53 19.59 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þetta er ekki rétti dagurinn til þess að taka það rólega og liggja fyrir. Fátt er svo með öllu illt að ei boði nokkuð gott. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú verður beðin/n um að endurtaka eitthvað. Tilkynntu alheiminum óskir þínar skýrt og skorinort, þá rætast þær. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert í skapi til að fagna og hefur góða ástæðu til þess. Kannski tekst það, kannski ekki. Lífið verður svo litlaust ef ekki má aðeins bregða út af vananum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Viðkvæmni þín er mikil, ekki hika við að leyfa henni að skína í gegn. Leyfðu huga þínum að reika og horfa á fegurð náttúrunn- ar. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Eitthvað alveg óvænt leiðir til þess að þú ert í sviðsljósinu í dag. Leyfðu innsæi þínu að ráða ferðinni. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Mikill atburður mun hafa djúp áhrif á þig og gera þér ókleift um skeið að sjá hlut- ina í réttu ljósi. Njóttu frelsisins til jafns við ábyrgðina sem þú tekur. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er engin ástæða til þess að velta sér upp úr öllum sköpuðum hlutum. Lausnin er innan seilingar og kemur skemmtilega á óvart. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Óvænt atvinnutilboð eða tæki- færi til þess að auka tekjur þínar gætu borist þér í dag. Slakaðu á því þú getur vel haldið um stjórnvölinn án þess að beita þving- unum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þér miðar vel áleiðis. Einbeittu þér að því að tala hreint út um hlutina frekar en byrgja þá inni. Nágranni kemur á óvart. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þig vantar félaga til þess að fram- kvæma það sem þig dreymir um. Mundu bara, þegar sigurinn er í höfn, að aðrir lögð- ust á árarnar með þér. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú eyðir peningum í dag. Reyndu að halda ró þinni, þótt mikið gangi á. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú leitar að samböndum sem styðja þig í þeirri viðleitni að bæta þig. Gefðu gaum að heilsu þinni. Ekki draga að leita læknis, þú átt bara þennan eina líkama. Stjörnuspá Anna Frið- björg Joensen er 70 ára í dag, 6. september. Hún verður að heiman. 70 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.