Morgunblaðið - 19.11.2010, Side 14
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verklegar framkvæmdir eru aðeins hafnar við eitt
hjúkrunarheimili af þeim níu sem áformað er að
reisa á næstu þremur árum. Það er viðbygging við
Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Unnið er að
hönnun og undirbúningi útboða í nokkrum sveit-
arfélögum og gætu verklegar framkvæmdir hafist í
einhverjum þeirra á fyrrihluta næsta árs.
Félagsmálaráðherra samdi í vor við nokkur
sveitarfélög um byggingu hjúkrunarheimila. Gert
var ráð fyrir að byggður yrði fjöldi nýrra heimila á
næstu þremur árum. Framkvæmdirnar eru ætl-
aðar til að bæta úr brýnni þörf fyrir ný hjúkr-
unarheimili en ekki síður að létta á þeim sem fyrir
eru þannig að fleiri geti haft eigin íbúð.
Gert er ráð fyrir að byggð verði átta hjúkr-
unarheimili með samtals um 360 hjúkrunarrými.
Rýmum fjölgar ekki samsvarandi því aðstaðan
verður bætt á þeim heimilum sem fyrir eru. Áætl-
aður kostnaður er 9,5 milljarðar og átti að dreifast
nokkurn veginn jafnt á árin 2010 til 2013. Áætlað
var að 300 störf myndu skapast við uppbygginguna,
samfellt í þrjú ár. Ljóst er að eitthvað teygist úr því
vegna þess að verklegar framkvæmdir eru aðeins
hafnar í Borgarnesi.
Sveitarfélögin fjármagna byggingu hjúkr-
unarheimilanna hjá Íbúðalánasjóði og fá ríkishluta
stofnkostnaðarins, um 85%, endurgreiddan í formi
leigugreiðslna á 40 árum.
Sökklar að verða til í Borgarnesi
Verktaki er langt kominn með að steypa
sökkla viðbyggingar Dvalarheimilis aldraðra í
Borgarnesi. Húsið verður byggt úr forsteyptum
einingum og var áætlað að fyrsta hæðin myndi rísa
fyrir áramót. Vinnu hefur seinkað eitthvað vegna
veðurs.
Í nýbyggingunni eru 32 hjúkrunarrými og er
kostnaður áætlaður 800 milljónir kr.
Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Dvalarheimilis aldraðra, segir stefnt að því að fram-
kvæmdum ljúki um mitt ár 2012. Þegar nýbygging-
unni lýkur verður tekið til við að breyta dvalarheim-
ilinu og bæta aðstöðu fyrir starfsfólk og
heimilisfólk. Þegar upp verður staðið verða hjúkr-
unarrými ekki fleiri en nú er.
Unnið er að undirbúningi fram-
kvæmda í nokkrum bæjarfélögum,
hönnun og undirbúningi útboða.
Bygginganefndarteikningar
vegna 60 íbúða hjúkrunarheimilis á
Sjálandi í Garðabæ eiga að liggja fyr-
ir um miðjan næsta mánuð og stefnt
er að útboði á jarðvinnu í kjölfarið.
Miðað er við að vinna við burðarvirki og
frágang utanhúss verði boðin út um
miðjan apríl, samkvæmt upplýsingum
Gunnars Einarssonar bæjarstjóra.
Í Mosfellsbæ verður byggt 30 rýma hjúkr-
unarheimili við Hlaðhamra. Verið er að ljúka hönn-
un þess. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri segir að
verkið verði boðið út í áföngum og reiknar með að
jarðvinna verði boðin út fljótlega eftir áramót. Auk
hjúkrunarheimilisins verður byggt 600 fermetra
hús fyrir félagsaðstöðu aldraðra á vegum Mosfells-
bæjar.
Heildarkostnaður við hjúkrunarheimilið og fé-
lagsaðstöðuna er áætlaður liðlega 900 milljónir.
Alútboð byggingar og reksturs
Forval vegna alútboðs á 60 rýma hjúkrunar-
heimili á Völlunum í Hafnarfirði hefur farið fram.
Valdar hafa verið tvær sjálfseignarstofnanir sem
gefinn verður kostur á að bjóða í byggingu heimilis-
ins og rekstur. Það eru Sólvellir ses. og Umönnun
ses.
Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, segir að einhverjar vikur séu í að út-
boðsgögn verði tilbúin. „Ég vonast til að þetta gangi
fram þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir
með vorinu,“ segir hann.
Í Reykjanesbæ stendur til að koma upp 30
hjúkrunarrýmum á Nesvöllum, í tengslum við þjón-
ustumiðstöð eldri borgara. Böðvar Jónsson, for-
maður bæjarráðs, segir að til greina komi að nýta
húsnæði sem þegar hefur verið byggt á Nesvöllum
eða byggja nýtt hús þar. Bæjarráð ákvað á dög-
unum að láta reikna út að nýju kostnað við báðar
leiðir og leggja mat á rekstrarkostnað.
Hafin bygging á einu
hjúkrunarheimili af níu
Framkvæmdir hafa ekki farið eins hratt af stað og reiknað var með í upphafi
Viðbygging Hjúkrunarheimilið verður í viðbyggingu sem rísa mun aftan við Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi. Sökklar eru langt komnir. Parhús fyrir aldraða eru við Ánahlíð, á lóð Dvalarheimilisins.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2010
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Þrír nýir ráðuneytisstjórar voru
skipaðir í gær, allt konur.
Anna Lilja Gunnarsdóttir verð-
ur ráðuneytisstjóri nýs velferð-
arráðuneytis sem verður til við sam-
einingu félags- og
tryggingamálaráðuneytis og heil-
brigðisráðuneytis 1. janúar 2011.
Umsækjendur voru 89 talsins, þar af
fjölmargir starfsmenn Heilbrigð-
isstofnunar Þingeyinga á Húsavík.
Ráðherra ákvað að fela þriggja
manna hæfnisnefnd að fara yfir um-
sóknir um embættið. Hæfnisnefndin
mat fjóra úr hópi umsækjenda mjög
vel hæfa, þau Önnu Lilju Gunn-
arsdóttur, Bolla Þór Bollason,
Rögnu Árnadóttur og Sigurbjörgu
Sigurgeirsdóttur. Ragna dró um-
sókn sína til baka en ráðherra kall-
aði hina umsækjendurna þrjá til við-
tals og tók að því loknu ákvörðun um
að skipa Önnu Lilju í embættið.
Anna Lilja Gunnarsdóttir hefur
verið framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs Landspítala frá árinu
2000. Áður hafði hún meðal annars
verið forstöðumaður áætlana- og
hagdeildar Ríkisspítala, gegnt störf-
um hjúkr-
unarfram-
kvæmdastjóra
þar og einnig
starfað í faghópi
heilbrigðisráðu-
neytis um fram-
tíðarskipan
sjúkrahúsmála.
Hún tekur
strax til starfa við
undirbúning að
stofnun velferðarráðuneytisins.
Helga Jónsdóttir lögfræðingur
hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri í
efnahags- og viðskiptaráðuneytinu
frá 1. desember 2010 að telja.
Umsækjendur um embættið
voru 22. Hæfnismatsnefnd tók sjö
umsækjendur í viðtal og mat tvo
þeirra hæfari en hina, Helgu Jóns-
dóttur og Kjartan Gunnarsson. Árni
Páll Árnason ráðherra fékk þau tvö í
framhaldsviðtal.
Helga hefur haft með höndum
stjórnunarstörf á vegum opinberra
og alþjóðlegra aðila í 21 ár. Hún var
m.a. bæjarstjóri Fjarðabyggðar
2006-2010 og borgarritari í Reykja-
vík 1995-2006 þar sem hún stýrði
stjórnsýslu og fjármálum og var
staðgengill borgarstjóra. Helga hef-
ur setið í fjölmörgum stjórnum, þar
á meðal þriggja lífeyrissjóða auk
stjórnar Nýja Kaupþings, síðar Ar-
ion banka. Helga tekur við starfi 1.
desember nk.
Ragnhildur Hjaltadóttir verður
ráðuneytisstjóri nýs innanríkisráðu-
neytis sem tekur formlega til starfa
um næstu áramót við sameiningu
dómsmála- og mannréttinda-
ráðuneytis og samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðuneytis. Alls bárust 13
umsóknir um embættið en einn um-
sækjandi, Ragna Árnadóttir, dró
umsókn sína til baka. Hæfnisnefnd
boðaði sex umsækjendur í viðtal.
Skipað verður í embættið til
fimm ára og mun ráðuneytisstjóri
taka við embætti 1. janúar 2011 og
stýra innanríkisráðuneyti undir
stjórn Ögmundar Jónassonar sem
verður frá sama tíma innanrík-
isráðherra. Fram til þess dags eða
þar til nýtt ráðuneyti hefur starf-
semi mun Ragnhildur vinna að sam-
einingu ráðuneytanna ásamt sér-
stakri verkefnisstjórn.
Ragnhildur starfaði í dóms- og
kirkjumálaráðuneyti árið 1982 en
hóf störf í samgönguráðuneyti árið
1983. Síðustu sjö ár hefur hún verið
ráðuneytisstjóri samgöngu-
ráðuneytisins, sem síðar varð sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.
Þrjár konur í stól ráðuneytisstjóra
Innanríkis- og velferðarráðuneyti taka til starfa um áramótin Anna Lilja Gunnarsdóttir og Helga
Jónsdóttir eru nýjar í embættum Ragnhildur Hjaltadóttir gegnir áfram embætti ráðuneytisstjóra
Anna Lilja
Gunnarsdóttir
Helga
Jónsdóttir
Ragnhildur
Hjaltadóttir
Haustpestir
herja nú á lands-
menn, bæði
maga- og loft-
færasýkingar, og
dæmi eru um að
fólk liggi í flensu
í allt að hálfan
mánuð.
Haraldur
Briem sóttvarn-
arlæknir segir að
haustpestirnar nú séu ekki skæðari
en oft áður og engin inflúensa kom-
in að heitið geti. „Þetta eru þessar
venjulegu haustpestir myndi ég
halda. Við höfum ekki fengið nein
merki þess að það sé neitt óvenju-
legt í gangi. Kvefpestir eru af ýms-
um ástæðum. Það eru margar
veirur að ganga. Þetta er mjög
hefðbundið ástand,“ segir Har-
aldur.
Ennfremur segir hann eina af
þeim veirum sem nú gangi valda
magakveisu með uppköstum, nið-
urgangi og kviðverkjum. Í ein-
hverjum tilfellum hafi svokölluð
nóróveira greinst í þeim sjúkling-
um. kjartan@mbl.is
Engin inflúensa
komin ennþá en
fjöldi veira í gangi
Haraldur Briem
sóttvarnalæknir
Ögmundur Jónasson, dómsmála-
ráðherra, hefur lagt fram frum-
varp um að hæstaréttardómurum
verði fjölgað um þrjá frá og með
næstu áramótum og héraðsdóm-
urum um fimm frá 1. mars nk.
Með þessu vilja stjórnvöld bregð-
ast við því aukna álagi sem orðið
hefur á síðustu tveimur árum á
dómstóla landsins. Búast má við að
nýju héraðsdómararnir muni koma
til starfa hjá Héraðsdómi Reykja-
víkur og Héraðsdómi Reykjaness
þar sem mests álags er að vænta á
næstu árum.
Frumvarp lagt fram
um fjölgun dómara
Fregnir hafa borist af því að Breti
sem svikið hefur nígeríska skreið-
arkaupendur árum saman í sýnd-
arviðskiptum með skreið frá Íslandi
sé staddur hér á landi í „við-
skiptaerindum“. Í tilkynningu frá
Íslandsstofu segir að sendiherra
Nígeríu á Íslandi, Kemafor Nonye-
rem Chikwe, hafi á dögunum boðað
til fundar með skreiðarseljendum
og fulltrúum Íslandsstofu, í því
skyni að vara við ólögmætum við-
skiptaháttum með íslenska skreið.
Hvetur Íslandsstofa því útflytj-
endur til að vera á varðbergi.
Vara við sýndarvið-
skiptum með skreið
Átta til níu menn hafa vinnu þessar vikurnar
við að slá upp og steypa sökkla fyrir viðbygg-
ingu Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi, auk
20 til 30 manna við að framleiða húseining-
arnar í verksmiðju Loftorku. Aðalsteinn Krist-
jánsson, forstöðumaður framkvæmdasviðs
Loftorku, áætlar að 25-30 menn verði við vinnu
á byggingarstað þegar flest verður, seinnihluta
næsta árs.
Átta verktakar úr Borgarfirði tóku að sér
framkvæmdir við stækkun Dvalarheimilisins
undir nafni Bygg-
ingafélags Borg-
arfjarðar ehf. Lítið
er að gera hjá iðn-
aðarmönnum og því
kemur bygging hjúkr-
unarheimilisins sér vel
fyrir þessi fyrirtæki. „Það
munar um þetta í byggð-
arlaginu,“ segir Aðalsteinn.
Munar um þetta í
byggðarlaginu
UPPBYGGING SKAPAR VINNU
STUTT