Morgunblaðið - 15.12.2010, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2010
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Nú liggurfyrir Al-þingi
frumvarp fjár-
málaráðherra um
farþegagjald og
gistináttagjald. Í
umsögn fjárlagaskrifstofu seg-
ir að áætlað sé að þessi gjöld
afli ríkissjóði 400 milljóna
króna tekna á ári og í fyrstu
grein frumvarpsins segir að
markmið laganna sé að „afla
tekna til að stuðla að uppbygg-
ingu, viðhaldi og verndun fjöl-
sóttra ferðamannastaða, frið-
lýstra svæða og þjóðgarða.
Jafnframt að afla tekna til þess
að tryggja öryggi ferðamanna
og vernda náttúru landsins.“
Það er því óhætt að segja að
markmiðið sé göfugt, en þrátt
fyrir það hljóta að vakna veru-
legar efasemdir um að veita
fjármálaráðherra heimild til
slíkrar gjaldtöku.
Núverandi fjármálaráðherra
hefur sýnt að hann ber afar
takmarkaða virðingu fyrir sér-
tækri gjaldtöku af þessu tagi
og lítur þessi eyrnamerktu
gjöld svipuðum augum og
sauðaþjófar litu sauði nágrann-
ans fyrr á öldum.
Útvarpsgjaldið er skýrt
dæmi um þetta. Í fjárlögum
sem fjármálaráðherra lagði
fram í haust var gert ráð fyrir
að 140 milljónir króna af út-
varpsgjaldinu rynnu beint í
ríkissjóð án viðkomu í Efsta-
leitinu. Fjármálaráðherra
sagði við fréttastofu Ríkis-
útvarpsins, sem hafði meiri
áhuga á þessu gjaldi en ýmsum
öðrum, að ekkert væri at-
hugavert við þetta. Útvarps-
gjaldið væri tekjur
ríkisins, lagt á til
að mæta kostnaði
við tiltekna hluti
en það þýddi ekki
að sá aðili fengi þá
fjárhæð sem gjald-
ið gæfi.
Þetta viðhorf fjármálaráð-
herra er sérstaklega umhugs-
unarvert í ljósi þeirrar ríku til-
hneigingar núverandi
ríkisstjórnar að finna upp á
nýjum gjöldum til að leggja á
almenning ofan á síendur-
teknar skattahækkanir.
Svo dæmi sé tekið verður
ekki hjá því komist að horfa á
fyrirhuguð veggjöld í þessu
ljósi. Almenningur hlýtur að
velta því fyrir sér hvaða líkur
séu á því að fjármálaráðherra
muni láta þann nýja gjaldstofn
í friði takist að koma honum á.
Eru umtalsverðar líkur á að
Steingrímur J. Sigfússon
standist þá freistingu að leggja
nokkrar krónur aukalega á bíla
sem aka Hellisheiðina til
Hveragerðis eða Selfoss?
Spurningar af þessu tagi
hljóta að vakna í ljósi viðhorfa
fjármálaráðherra og um leið
ríkisstjórnarinnar allrar til
eðlis eyrnamerktrar gjaldtöku.
Þegar ríkisstjórnin hefur það
yfirlýsta viðhorf að eyrna-
merkt gjöld séu í raun aðeins
viðbótarleið til að afla aukinna
skatttekna í ríkissjóð, þá hljóta
allar viðvörunarbjöllur að fara
af stað þegar ríkisstjórnin ræð-
ir ný gjöld. Og þegar skatt-
heimtan er þegar komin út fyr-
ir gjaldþol almennings ættu
bjöllurnar að hringja af enn
meiri ákafa en ella.
Viðhorf ráðherra til
eyrnamerktra skatta
á sér sögulegar
hliðstæður }
Gjaldþol almennings
Julian Assange,forsprakki
Lekavefsins, hafði
ekki fyrr fengið
samþykkta kröfu
um að verða látinn
laus gegn trygg-
ingu, en Svíar
áfrýjuðu og frestast því
ákvörðun í málinu í það
minnsta þar til í dag.
Verði niðurstaðan sú sama á
næsta dómstigi er ólíklegt að
hann losni strax. Tryggingar-
gjaldið er hátt, eða um 40 millj-
ónir króna, þannig að jafnvel
þótt fljótt næðist að öngla aur-
unum saman gæti tekið hann
fast að því viku að losna, því
breska bankakerfið er svo
lengi að sannreyna ávísanir,
eins og ýmsir hafa kynnst.
Ekki eru svo sem efni til að
leggja dóm á framsalskröfu
Svía, en hún virðist þó eiga
mun greiðari leið að hjarta
breskrar lög- og
dómgæslu en nýleg
tilmæli hins ís-
lenska sérstaka
saksóknara. Hver
er skýringin? Þeg-
ar lesnar eru frá-
sagnir af ásök-
unum tveggja sænskra kvenna
á hendur forstjóra Lekavefsins
virðist með ólíkindum ef sá
áburður getur leitt til sakfell-
ingar hans. Með hliðsjón af því
er lipurð breskra dómstóla við
meðhöndlun framsalskröfu enn
athyglisverðari en ella og því
ekki undarlegt að spurningar
vakni um hvort öðrum og
óskyldum þáttum sé blandað
saman við meðferð málsins.
Hvað sem segja má um leka-
starfsemina er dapurlegt ef
breskir dómstólar láta undan
utanaðkomandi þrýstingi, eins
og hent hefur marga að undan-
förnu.
Hröð viðbrögð Breta
við framsalskröfu
frá Svíþjóð hljóta að
undra sérstakan
saksóknara}
Misgóð þjónusta
Volaða land,
horsælu hérvistar slóðir,
húsgangsins trúfasta móðir,
volaða land!
S
vo orti þjóðskáldið hafísárið mikla
1888 og vakti að vonum lands-
athygli. Merkilegur andskoti hvað
þessi orð skáldsins eiga líka vel við
í dag, á þessum ömurlegustu tím-
um allra tíma þar sem allt er að fara til fjand-
ans ef það er ekki löngu búið að því. Hvar-
vetna blasir við að það sé allt í kalda koli hjá
þessari ömurlega ömurlegu þjóð sem er upp-
full af aumum aumingjum. Ég meina, þessi
þjóð er svo lélega léleg að hún hlustar ekki á
mig og okkur þessa sem vitum hvað er á seyði,
okkur sem sjáum hvað er að, okkur sem erum
með það á hreinu hvað á að gera! (Við þessir sem vitum
hvað er á seyði, hvað er að og hvað á að gera erum reynd-
ar ekki alltaf sammála en það er vegna þess að hinir við,
þ.e. aðrir við en ég, eru soddan aumingjar, eiginlega
aumir aumingjar).
Stórslysa land,
fóstrað af feiknum og raunum,
fóðrað með logandi kaunum,
stórslysa land!
Hvað er að þessari þjóð?! spurði einhver um daginn og
annar svaraði: Hún er með gullfiskaminni! Biluð þjóð
hrópaði einn, annar sat fastur í botnlausu
vonleysi yfir því hvað þjóðin væri ömurleg og
sá þriðji kveinkaði sér yfir því að Íslendingar
væru upp til hópa huglausir. Já, víst er hún
ömurleg þessi huglausa þjóð og ekki bara
það: Hún er ömurlega ömurleg og það er
reyndar allt ömurlegt í kringum okkur, ekki
bara þessi ömurlega þjóð með sína ömurlegu
menningu og ömurlegu tungu, heldur líka
þetta vandræða land, skakkt eins og skot-
hendu kvæði:
Vandræða land,
skakkt eins og skothendu kvæði
skapaði Guð þig í bræði,
vandræða land!
Ég vona það, kæri lesandi, að þú hafi náð
að sökkva þér niður í ömurleika þessa jarðlífs með mér,
þessa jarðkífs, í það minnsta ef litið er til Íslands, mér
skilst að það sé allt svo miklu betra annars staðar:
Vesæla land!
Setið er nú meðan sætt er,
senn er nú étið hvað ætt er,
vesæla land!
Þrátt fyrir það er ég ekki á leiðinni burt, því það er allt
svo ömurlega ömurlegt allsstaðar á þessu ömurlega öm-
urlega landi að það er eiginlega frábært!
Árni
Matthíasson
Pistill
Hordregið örverpi Ránar
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Í
slenskir fornleifafræðingar
horfa fram á mögur ár, sjóð-
ir sem styrkt hafa rann-
sóknir eru nær tæmdir og
framlag á fjárlögum er nú
skorið niður við trog. Fyrir tveim ár-
um var veitt alls um 122 milljónum
króna til rannsókna, nú stefnir í að
næsta ár verði fjárhæðin komin nið-
ur í tæpar 26 milljónir; niðurskurð-
urinn er upp á 80%. Engir nýnemar
fengu inngöngu í greinina í Háskól-
ann í haust vegna sparnaðar.
Á síðustu 10-15 árum hefur ver-
ið gróska í íslenskum fornleifarann-
sóknum vegna myndarlegra fram-
laga úr nokkrum sjóðum. Þannig eru
nú um 70 fornleifafræðingar í Félagi
íslenskra fornleifafræðinga auk 20
nemenda. Fornleifastofnun Íslands
og erlendir samstarfsaðilar hafa
unnið að umfangsmiklum rann-
sóknum í Mývatnssveit sem vakið
hafa athygli erlendis.
„Hér gerist lokakaflinn í for-
sögu Evrópu,“ segir einn höfund-
anna, Adolf Friðriksson, fornleifa-
fræðingur og forstöðumaður
Fornleifastofnunar Íslands. „Járn-
aldarbændurnir sem hingað komu
fluttu með sér þekkingu sína og
reynslu, menningu og siði og mörk-
uðu fyrstu spor mannkyns á ónumdu
landi. Það er óvenjulegt fyrir forn-
leifafræðinga að hafa aðgang að jafn
skýrum ummerkjum um athafnir
mannsins frá þessu tímabili.“
Hann segir eðlilegt að skera
verði niður framlög en mikilvægt sé
að halda lágmarksstarfsemi gang-
andi, ella geti uppbyggingin síðasta
áratuginn horfið. Og rannsóknirnar
hafi efnahagslegt gildi. Fornleifar
séu á um 120 þúsund stöðum á land-
inu og mörg verkefni fornleifafræð-
inga snúist um að byggja upp nýja
áningarstaði fyrir ferðamenn. Og
fornleifafræðingar hafi verið dugleg-
ir við að afla erlendra styrkja. Adolf
segist halda að greinin afli ríkissjóði
meiri tekna en útgjalda og einnig
landkynningar í sjónvarpsþáttum
sem nýtist ferðaþjónustunni.
Allar hirslur að tæmast
Kristnihátíðarsjóður, sem
stofnaður var árið 2000, veitti í fimm
ár fé til rannsókna á þekktum sögu-
stöðum sem tengjast kristni, nefna
má Hóla, Skálholt, Þingvelli, Kirkju-
bæjarklaustur, Skriðuklaustur og
Gásar. En síðustu krónurnar úr
sjóðnum voru nýttar árið 2006. Verið
er að klára á þessu ári síðustu styrki
úr Þjóðhátíðarsjóði, sem veitt hefur
rannsóknastyrki síðan á áttunda
áratug síðustu aldar, og Fornleifa-
sjóður, sem stofnaður var 2003, sker
sínar styrkveitingar úr 25 milljónum
á þessu ári í 17 milljónir 2011.
„Þegar fjárlögin detta nánast út
stendur Fornleifasjóður einn eftir,
allir reiða sig á hann og þá er lítið til
skiptanna,“ segir Lilja Björk Páls-
dóttir, formaður Félags íslenskra
fornleifafræðinga. „Ég er hrædd
um að það verði lítið um rann-
sóknir. Það er alltaf ákveðinn
stofnkostnaður við að fara í
verk, hvort sem það er skrán-
ing eða uppgröftur.“
Ekki er alltaf hægt að
fresta rannsóknum. Sums
staðar eru fornleifar í hættu
vegna landbrots, t.d. á
Gufuskálum og við Kolku-
ós. Lilja Björk mun stýra
rannsóknum á Gufuskálum
sem verða nær alveg kost-
aðar af erlendum aðilum.
Hún segir að auðvitað sé
ekki hægt að bjarga öllu en
það sé sorglegt að sögulega
mikilvægar leifar einfald-
lega hverfi í sjóinn.
Fornleifarannsóknir
að verða hornreka?
Ljósmynd/H. M. Roberts
Friðlýst Fornleifauppgröftur að Gásum við Eyjafjörð. Þar var mikill versl-
unarstaður á miðöldum og hugsanlega fram á 16. öld.
Í þjóðminjalögum frá 2001 er
ákvæði um að framkvæmda-
aðila sé skylt að greiða fyrir
rannsókn á fornleifum sem
finnist á framkvæmdasvæði.
Komið hefur fyrir að bændur
hafi ætlað að endurnýja t.d.
útihús og rekist þá á leifar sem
talið hefur verið brýnt að rann-
saka. Orðrómur hefur heyrst
um að stundum hafi mönn-
um óað við kostnaðinum
og einfaldlega hætt við
framkvæmdir. En Forn-
leifasjóður hefur gjarnan
hlaupið undir bagga í
slíkum tilfellum til að
tryggja að kostnaðurinn
riði bændum ekki á
slig. Hann verður síður
fær um það þegar
fornleifafræðingar
þurfa að treysta á
stöðugt minnkandi
sjóðinn vegna harka-
legs niðurskurðar á
fjárlögum.
Hjálpandi
hönd lömuð?
FORNLEIFASJÓÐUR