Morgunblaðið - 28.01.2011, Síða 18

Morgunblaðið - 28.01.2011, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Stjórnvöldhéldu þvífram opin- berlega að um- sóknarvitleysan að Öryggisráðinu hefði „aðeins“ kostað hálfan milljarð. Þó var til ljósmynd og fréttatilkynn- ing sem sýndi tvo valdamestu ráðherrana afhenda for- ystumönnum á einhverjum smáeyjum sem Ísland á ekkert samneyti við loforð um fjár- framlag, í kosningabaráttunni miðri, sem var nálægt því sama upphæð. Það má vera að féð hafi verið „fært“ sem þróun- araðstoð, en það var það ekki. Nú hefur verið sýnt fram á að stjórnlagaþingsdansinn hef- ur þegar kostað hálfan milljarð króna. Samt er sagt að halda eigi sprellinu áfram og meira að segja reynt að reikna sig niður úr kostnaði sem þegar er fallinn til. Engu að síður mun seinni hálfleikur kosta annað eins og hinn fyrri. Og af hverju í ósköpunum á að halda ballinu áfram löngu eftir að hljóm- sveitin er hætt að spila? Af því að þjóðin vill það segir for- sætisráðherrann. Er það? Það kusu aðeins 35,6 prósent í stjórnlagakosningum þrátt fyrir opinbera herferð með þeim. Það kusu hins vegar næstum helmingi fleiri um Ice- save þrátt fyrir opinbera her- ferð gegn þeim kosningum. En nú segir einn helsti sérfræð- ingur Samfylking- arinnar í stjórn- málafræðum, virtur fræðimaður og prófess- or, að varasamt sé að kjósa aft- ur. Slíkum kosningum fylgi tvær hættur að mati prófess- orsins Gunnars Helga Krist- inssonar. Fyrri hættan að mati hans er sú að kjörsókn í kosn- ingum númer tvö kunni að verða enn lakari en í þeim fyrri, sem settu þó Íslandsmet í slakri kjörsókn á landsvísu! Og hin hættan sé sú að úrslitin kynnu að verða önnur en í fyrri kosningum. Báðar hætturnar eru stór- athyglisverðar. Hin fyrri þar sem sagt er að „fólkið“ heimti stjórnlagaþing. En ekki er hin síðari lakari. Sé það áhættu- þáttur að úrslitin kynnu að verða önnur og prófessorinn í stjórnmálafræðum hafi þannig rétt fyrir sér, þá er sjálfsagt öruggast að láta ekki fleiri kosningar fara fram í landinu héðan í frá. Því það hefur sýnt sig að alls ekki er öruggt að úr- slit nýjustu kosninganna verði hin sömu og í þeim síðustu. En svona til fróðleiks, hefur Ben Ali frá Túnis nokkuð verið að halda fyrirlestur í stjórn- málafræðideildinni nýlega? Prófessor Gunnar Helgi hefur bent á tvo áhættuþætti við nýjar kosningar} Prófessor varar við Gullna reglanum afneit- unina hefur áður verið rædd. Þegar atburðarás sem mörgum virðist óumflýjanleg hefur verið neitað í þrígang af viðkom- andi valdsmönnum þarf ekki lengur um að binda, segir regl- an. Sagt var frá því að Sarkozy, forseti Frakklands, hefði óvænt í nýársávarpi úr forsetahöllinni fullvissað þjóð sína með miklum þunga um að evran myndi standa af sér vandræði sín. Þunginn, umbúðirnar og tilefnið taldist að mati sérfræðinga í gullnu reglunni duga sem fyrsta afneitun. Talið var líklegt að þrír mánuðir eða svo yrðu í hina næstu. Það reyndist rangt. Hún kom miklu fyrr. Í fyrradag, á frægri árvissri ráðstefnu í Davos í Sviss lét franski forsetinn heldur betur í sér heyra. Hann sagði við þá sem hefðu tekið stöðu gegn evrunni að búa sig undir mikið tap. Svo sagði hann: „Merkel, kanslari Þýskalands, og ég sjálfur mun- um aldrei, hlustið á það sem ég er að segja, munum aldrei láta evruna hrynja. Evran er Evr- ópa. Og Evrópa er táknmynd 60 ára friðartíðar. Þess vegna munum við aldrei láta evruna hverfa eða líða eyði- leggingu hennar.“ Það var enginn ágreiningur í hópi helstu kunnáttumanna um afneitunarregluna að þessi yf- irlýsing stæðist ströngustu kröfur og uppfyllti öll skilyrði. Sviðið er þekktasta alþjóðlega ráðstefna hvers árs. Í salnum eru allir helstu viðskiptajöfrar veraldar og þeir stjórnmála- legir leiðtogar sem nokkur veigur er í. Ekkert vantar á þungann og sannfæringakraft- inn í yfirlýsingunni. Tvær af- neitanir af þremur eru því þeg- ar í húsi, mun fyrr en búist hafði verið við. Nú verður að vona að nokkur tími sé í hina þriðju afneitun, þá sem úrslit- um ræður, svo nægjanlegur undirbúningstími líði. Því mun vissulega fylgja töluvert umrót ef og þegar Frakkar og Þjóðverjar gefa endanlega frá sér stuðning við evruna í núverandi mynd þótt lönd álfunnar verði ugglaust betur sett þegar til lengri tíma er horft. Afneitun númer tvö kom mun fyrr en sérfræðingar höfðu spáð} Gullna afneitunarreglan E itt af því sem nefnt hefur verið sem áhrifaþáttur í hruninu, hér heima sem erlendis, er sinnuleysi hlut- hafa í bönkum og stórfyr- irtækjum. Í mörgum tilvikum voru hluthafar þúsundir talsins og hlutur hvers og eins það lítill, að ekki borgaði sig fyrir hlut- hafa að eyða tíma eða orku í að eltast við for- stjóra og stjórnir. Lífeyrissjóðirnir voru hins vegar í mörgum tilfellum stórir hluthafar í stjórnum banka og fyrirtækja og litu margir til þeirra sem varð- hunda. Verður ekki séð að þeir hafi sinnt eft- irlitsskyldu sinni í þeim mæli sem sumir halda fram að þeir hefðu átt að gera. Hvort sem sú gagnrýni á rétt á sér eða ekki verður ekki framhjá því litið að hvatar í fjárfest- ingum á hlutabréfamarkaði eru ekki beinlínis til þess fallnir að hvetja hluthafa til að veita stjórnendum fyr- irtækja aðhald. Mögulegt tap hluthafa takmarkast við hlutafjáreign þeirra, en mögulegur hagnaður er fræðilega ótakmarkaður. Þá hugsa margir sem svo að þeir geti alltaf selt sig út ef á móti blæs. Uppgjörstímabil spila líka inn í, því margir fjárfestar, einkum stofnanafjárfestar, leita óhjá- kvæmilega eftir því að geta sýnt fram á hagnað á þessum fjórðungi eða þessu ári. Minni áhersla er lögð á lang- tímaávöxtun. Ekki vegna þess að fjárfestar séu vitlausir, heldur vegna þess að hvatar í kerfinu eru skakkir. Þessir hvatar geta – og hafa – leitt til þess að áhættu- sækni hlutafélaga fari úr hófi fram. Nokkrar hugsanlegar leiðir eru til að draga úr þessum óæskilegu hvötum. Sú hugmynd sem ég nefni hér snýr að lífeyrissjóðunum og eru tvær ástæður fyrir því. Annars vegar vegna þess að sjóðirnir eru langstærstu aðilarnir á markaðnum, einkum nú eftir hrun, og verður í raun ekki hjá því komist að þeir verði umfangs- miklir á hlutabréfamarkaði þegar og ef sá markaður kemst á lappirnar að nýju. Hin ástæðan er sú að lífeyrissjóðir eiga, eðli málsins samkvæmt, að horfa áratugi fram í tímann hvað varðar sínar fjárfestingar en ekki að festast í þeirri gryfju að líta aðeins til ávöxtunar frá árs- fjórðungi til ársfjórðungs. Hugmyndin er þessi: Að lögum samkvæmt verði hlutabréfaeign lífeyrissjóðs í fyrirtæki bundin til lengri tíma, t.d. tíu eða fimmtán ár. Þetta myndi þýða að í fyrsta lagi myndu lífeyr- issjóðir ekki fjárfesta í hlutafélögum, nema þeir væru sæmi- lega vissir um að þau myndu lifa af þann tíma. Fyrirtæki, sem rekin væru með hófsömum og íhaldssömum hætti, myndu því verða vænlegri fjárfestingarkostur en æv- intýragjörn kúrekafyrirtæki. Tíminn myndi einnig þýða að sjóðirnir hefðu sterka hvata til að fylgjast grannt með stjórnendum fyrirtækjanna og passa upp á að þeir færu ekki óvarlega með fé fyrirtækisins. Til að kæfa ekki vöxt nýrra fyrirtækja mætti gefa afslátt af bindiskyldunni hvað varðar lítinn hluta af hlutafjáreign lífeyrissjóða, til dæmis 5 prósent, en 95 prósent hlutafjár- eignar væru bundin. bjarni@mbl.is Bjarni Ólafsson Pistill Hugmynd að bundinni eign STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is A uknar annir hjá dóm- stólum í kjölfar banka- hrunsins eru nánast eingöngu bundnar við Héraðsdóm Reykjavík- ur eins og er. Til dæmis um þetta voru 73 mál á dagskránni þar á mið- vikudag. Fyrirséð er að þetta álag muni aukast verulega þegar mál frá sérstökum saksóknara taka að ber- ast. Héraðsdómurum var fjölgað um fimm árið 2009 og fyrir Alþingi ligg- ur frumvarp um tímabundna fjölgun um aðra fimm en það hefur enn ekki verið samþykkt. Óljóst er þó hvort það nægir til að komast yfir þann málafjölda sem væntanlegur er. Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, segir það rétt að dagskráin sé þéttskipuð þessa dagana, álagið sé mikið og það muni aukast á næstu misserum. Um fimm hundruð mál sem tengj- ast þrotabúum fallinna fjár- málastofnanna, þá sérstaklega stóru bankanna, séu nú á ýmsum stigum málsmeðferðar og alls hafi á sjö- unda hundrað slíkra mála borist héraðsdómi frá árinu 2009. Þau séu mörg hver umfangsmikil og tíma- frek. Óvíst hvort fjölgun dugi til Að sögn Helga eru nú fjórir dómarar sem sinna eingöngu slíkum málum. „Þetta er náttúrulega ekki nægjanlegur fjöldi dómara til að ráða við þetta svo vel sé,“ segir hann. Við fjölgun héraðsdómara ár- ið 2009 hafi þrjú og hálft stöðugildi bæst við hjá Héraðsdómi Reykja- víkur. Helgi segir hins vegar óvíst hvort sú fjölgun sem lögð er fram í frumvarpi sem nú liggi fyrir dugi. „Það verður að taka þetta skref fyrir skref og sjá til hversu langt þetta fleytir okkur. Málatími hefur lengst. Það tekur lengri tíma að af- greiða mál og jafnframt hefur óloknum málum fjölgað. Það er útlit fyrir að svo haldi áfram. Viðbót- ardómarafjöldinn hjálpar til við að halda þessu í ásættanlegu horfi en það er alveg óvíst hvort það dugar til.“ Skoða flutning út á land „Við höldum að það sé líklegt að þetta dugi en það kann að vera að svo verði ekki. Þá munum við þurfa að óska eftir frekari fjölgun,“ segir Símon Sigvaldason, formaður Dómstólaráðs. Á sama tíma og frumvarp um fjölgun dómara liggur fyrir skeri stjórnvöld hins vegar niður hjá dómstólum. „Þetta er mjög einkennileg staða að okkur sé gert að skera niður á sama tíma og við fáum fjárveitingar til þess að fjölga fólki. Það leiðir til þess að við getum kannski ekki ráðið í stöð- urnar á þeim tíma sem við ættum, því að þó það fylgi með þeim fjár- munir er verið að taka þá af okkur á öðrum stað með niðurskurði.“ Hann segir fjölgun mála vegna bankahrunsins vera nánast ein- göngu í Reykjavík og því muni þeir fimm nýju héraðsdómarar sem lagt er til í frumvarpi um fjölgun dóm- ara allir koma til starfa þar. Sam- hliða fjölguninni sé Dómstólaráð að kanna möguleikann á því að færa mál út frá Héraðsdómi Reykjavíkur á aðra staði til að bregðast við álag- inu í höfuðborginni. Væru það helst málin sem tengjast kröfum í gömlu bankana sem yrði dreift á fleiri dómstóla. „Það er heimild í dóm- stólalögum um að færa mál milli dómstóla við sérstakar aðstæður. Þegar þeirri vinnu er lokið reikna ég með að þetta verði skoðað af fullri alvöru að fara með eitthvað af þessum málum út á land,“ segir Símon. Héraðsdómur að drukkna í málum Morgunblaðið/Kristinn Málaskrá Miklar annir eru nú í Héraðsdómi Reykjavíkur eins og sést á langri málaskránni. Á miðvikudag voru 73 mál á dagskrá dómsins. Héraðsdómurum fjölgaði tíma- bundið þann 1. maí árið 2009 um fimm, úr 38 í 43. Nú fyrir jólin stóð til að Alþingi sam- þykkti frumvarp þar sem kveð- ið er á um að dómurunum verði enn fjölgað um fimm. Er þar vísað til þess að fyr- irsjáanlegt sé að ágreiningsmál frá slitastjórnum vegna krafna í þrotabú, einkum þrotabú fjár- málafyrirtækja, muni verða mikil að umfangi og berast héraðsdómi hratt. Að sögn Helga I. Jónssonar, dómstjóra Héraðsdóms Reykja- víkur er gert ráð fyrir sex- hundruð nýjum málum af þeim toga í ár. Í málum frá sér- stökum saksóknara geti allt að þrír dóm- arar verið uppteknir við meðferð eins slíks máls í allt að fjóra mánuði. Mörg mál væntanleg FJÖLGUN DÓMARA Helgi I Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.