Morgunblaðið - 05.04.2011, Side 10

Morgunblaðið - 05.04.2011, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011 Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson Á ferð Martha segir að hugsa þurfi hlaupin sem lífsstíl sem byggist upp. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Martha Ernstsdóttir erflestum landsmönnumkunn en hún hefur ífjölda ára skarað fram úr í hópi íslenskra hlaupara. Margir muna líka eftir því þegar Martha hljóp 10 km í Reykjavíkurmaraþon- inu komin sjö mánuði á leið. Hún segir þungun ekki eiga að stöðva konur í því að hlaupa. Fram á sjöunda mánuð „Nú er svo langt síðan ég átti fyrri strákinn minn að ég man ekki hvenær ég hætti með hann en ég hljóp fram á sjöunda mánuð með þann yngri. Þá fannst mér ég vera orðin svo þung að þetta hentaði mér ekki lengur. Þá fór ég bara að ganga og gera eitthvað annað í staðinn. Strákurinn er núna 13 ára og ég fæ enn í dag spurninguna: Já, varst það ekki þú sem hljópst í Reykjavíkurmaraþoni 10 km kasól- étt? Hann er þannig lagað má segja þekktur fyrir að hafa verið inni í maganum á mér í þessu hlaupi. Það gilda í raun ekki önnur viðmið um hlaup á meðgöngu en þau að fyrstu vikurnar og mánuðina finnur maður að líkaminn er að breytast, maður verður móðari og orkan fer annað. Þess vegna er mikilvægt að hlusta á líkamannn og konur eru örugglega miklu meðvitaðri um líkama sinn ófrískar. Svo lengi sem maður gerir það er ekkert sem mér finnst mæla á móti hlaupum á meðgöngu. Ég myndi þó aldrei mæla með því að óvanar konur byrji að skokka á meðgöngu. Hér áður fyrr hreyfðu konur sig mikið en á annan hátt, amma mín fór t.d. liggur við út í fjós, átti barn og fór svo aftur út í fjós. En síðan kom tímabil þar sem ýmsar mýtur dúkkuðu upp. Ég hef heyrt konur segja að læknirinn hafi sagt þeim að þær gætu fengið leg- sig af því að hlaupa. Fyrir mér er það bara hlægilegt því ég hef frekar heyrt konur segja að grindarbotn- inn styrkist á því að hlaupa eða hreyfa sig. Sérstaklega ef maður er meðvitaður um það.“ Þegar Martha er beðin um almenn ráð fyrir þá sem ætla að byrja að hlaupa nú með hækkandi sól segir hún mikilvægast að vera á góðum skóm og ekki fara of geyst. Minna heldur en meira Hversu langt eða oft fólk hlaupi segir Martha fara mikið eftir því hvort það hafi eitthvað hreyft Mest er ekki endilega best Martha Ernstsdóttir hlaupakona hljóp á sínum tíma fram á sjöunda mánuð með- göngu. Hún segir ekkert mæla gegn slíku en mikilvægast sé að kunna að hlusta á líkama sinn. Almennt séð mælir hún með að fólk ætli sér ekki um of heldur byggi frekar upp hlaupaþol smátt og smátt og geri hlaupin að lífsstíl. Á vefnum trening.no er að finna mik- ið magn alhliða upplýsinga um lík- amsrækt og hreyfingu, enda er hann einn sá stærsti sinnar tegundar í Noregi. Þarna eru nýjustu fréttir úr þjálf- unarheiminum, gefin eru góð ráð um hreyfingu, fjallað er ítarlega um styrktarþjálfun sem og þolþjálfun, farið er yfir það sem lýtur að næringu og sömuleiðis hvernig hvetja megi sjálfan sig áfram við púlið. Þá er á vefnum spjallsvæði þar sem gestir síðunnar deila reynslu og upplýs- ingum um allt er lýtur að heilsurækt. Höfundar greina á vefnum eru allir með menntun í íþrótta- eða heil- brigðisfræðum og/eða menntun í blaðamennsku. Kemur fram á vefnum að takmarkið með honum sé að bjóða þeim sem stunda líkamsrækt eða hafa áhuga á hreyfingu yfirvegaðar upplýsingar um málaflokkinn. Vefsíðan www.trening.no Kvillar Á trening.no má til dæmis finna góða umfjöllun um bakverki. Fagleg umfjöllun um heilsurækt Hlauparar á öllum aldri ættu að grípa gæsina og spretta úr spori í 33. Flóa- hlaupi UMF Samhygðar sem fram fer í Gaulverjabæjarhreppi á laugardag. Hlaupið hefst kl. 14 og verður ræst frá Félagslundi. Keppt verður í þremur vegalengd- um, þriggja, fimm og tíu kílómetra hlaupi og verður tímataka á öllum vegalengdum. Boðið er upp á tíu mis- munandi flokka, eftir kyni og aldri þátttakenda. Veitt verða verðlaun fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki en nánari upp- lýsingar um hlaupið má fá hjá Mark- úsi Ívarssyni. Endilega… …sprettið úr spori í Flóahlaupi Morgunblaðið/Sigurður Jónsso Víðsýni Vel viðraði á þátttakendur í Flóahlaupinu árið 2006. Svokallað Bar Method er nýjasta æð- ið í líkamsrækt vestanhafs. Líkt og nafnið gefur til kynna er notast við slár til að teygja á og styrkja vöðva líkamans. Minnir líkamsrækt þessi því nokkuð á ballett af myndum að dæma. Ekki er þó um slíkt að ræða heldur klukkutíma langan tíma þar sem unnið er með allan líkamann. Hitað er upp með handlóðum og arm- beygjum og síðan færast æfingarnar yfir á slá þar sem vöðvar í fótum eru styrktir og loks gerðar magaæfingar, bæði á slá og dýnu. Bar Method mið- ar því að því að styrkja vöðva til muna og ku henta konum vel sem vilja ekki lyfta en hafa þó sterk- byggðan líkama. Sá munur er sagður helstur á Pilates og Bar Method að í hinu síðarnefnda er líkaminn sjálfur notaður meira sem tæki til að styrkja og móta alla helstu vöðvahópa lík- amans. Æfingar í Pilates eru að mestu gerðar á dýnum og oft sitjandi en í Bar Method eru notaðar bæði slár og dýnur. Bar Method- og Pilat- es-æfingar geta því farið vel saman fyrir þá sem vilja aukna fjölbreytni í hreyfingu en halda sig við líkams- rækt sem hefur svipuð markmið. Nýjasta heilsuæðið Vöðvarnir styrktir með æfingum á slá Vöðvauppbygging Svokallað Bar Method, byggist upp á æfingum við slá. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Frá kr. 119.900 með „öllu inniföldu“ Verð kr. 119.900 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 9 nætur með öllu inniföldu á Hotel Griego Mar ***. Costa del Sol 6. maí í 9 nætur Heimsferðir bjóða frábæra 9 nátta ferð til Costa del Sol í vor. Í boði er frábært sértilboð, með “öllu inniföl- du” á Griego Mar hótelinu sem var mjög vinsælt meðal farþega Heimsferða í fyrra. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði á þessum kjörum. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í vor á Costa del Sol á ótrúlegum kjörum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.