Morgunblaðið - 05.04.2011, Síða 30
Morgunblaðið/Golli
Sruli Recht Fyrir fágaða frummenn.
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2011
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Betra er að vera fáránleguren leiðinlegur. Eitthvað á
þá leið voru skilaboð Jóns Gnarrs
borgarstjóra við opnun Reykjavík
Fashion Festival (RFF) á föstu-
dagskvöldið. Sem betur fer var
hvorki of mikið af hinu fáranlega né
leiðinlega hjá þeim tíu fatamerkj-
um sem voru sýnd þetta kvöld.
Vera Þórðardóttir reið á vaðið
en hún vakti athygli þegar Lady
Gaga klæddist fötum úr útskrift-
arlínu hennar. Vera dansar á
mörkum búningahönnunar og
tísku og þessi framtíðarballk-
jólar væru vel við hæfi vamp-
írudrottningarinnar í True
Blood.
Nikita sýndi götutískulín-
una Nikita Selekzion. Fötin
virtust þægileg og klæðileg
fyrir konur á ferðinni, meg-
inreglan var vítt að ofan og
þröngt að neðan og litirnir frek-
ar tempraðir, litagleðinni
greinilega lagt, að minnsta kosti
í bili. E-Label hélt sig á kunnum
slóðum og vék ekki langt frá níunda
áratugnum. Meiri áhersla var á partí-
flíkurnar í sýningunni en notadrjúgu
fötin fyrir virkar konur sem merkið
lagði áherslu á í upphafi. Forynja var
líka á götutískuslóðum, með viðkomu
á klúbbi í Los Angeles, álíka fágað og
Mötley Crüe-grúppía.
Rain Dear, sem einbeitir sér að
regnheldum flíkum, var með mjög svo
fjölbreytilega línu, himnaríki fyrir
stelpur sem vilja skera sig úr á
Þjóðhátíð í Eyjum. Kápurnar eru líka
kjörnar á hjóladömur í Reykjavík og
ekki síður gömlu höfuðborginni Kaup-
mannahöfn.
Margt flott var í línunni hjá
EYGLO. Það er svolítið pönk í þessar
dömu. Einhvern veginn svona hefði
nútíma Betty Draper úr Mad Men
klætt sig. Mörg áhugaverð smáatriði
voru í línunni og efnin falleg. Stuttu
kjólarnir með plíseruðu pilsunum eiga
eftir að rjúka út.
Sýningin hjá Sonju Bent var hreint
dásamleg og ekki ólíklegt að fyrr-
nefnd frú Draper kynni að meta hana.
Prjónapeysurnar með slaufunum sem
eru hennar aðalsmerki eru guð-
dómlegar og líka slaufurnar sem hún
setur á svo skemmtilega staði. Poka-
buxurnar pössuðu vel við. Herrarnir
geta síðan fengið sér peysu í stíl við
dömurnar.
Royal Extreme hefur komið með
stormi inn í íslenskan tískuheim. Dul-
úð og djúpir litir voru í fyrirrúmi og
allir finna eitthvað við hæfi sinnar
innri glamúr-indíánaprinsessu. Tví-
tóna silkislárnar voru mjög flottar.
Frá Spaksmannsspjörum kom heil-
steypt lína með sterkum karakter-
einkennum enda merkið komið lengra
í þróun en flest önnur á RFF og hönn-
uðirnir búnir að skapa sér nafn. Góður
kostur fyrir víðsýnar viðskiptakonur
og framakonur í listalífinu.
Greinilegt var að margir höfðu beð-
ið eftir að sjá herrafatalínu Sruli
Recht og stimplaði hann sig inn með
taktföstum trommuslætti Helga Svav-
ars og vakti einhverja af værum tísku-
svefni. Fötin hans eru engu lík, áhersl-
an er á náttúruleg íslensk efni og
stafaði hráum krafti af fyrirsætunum
sem voru af ýmsum stærðum og gerð-
um. Fágaðir frummenn fá þarna eitt-
hvað fyrir sinn snúð. Sýning hans var
hápunktur kvöldsins ásamt sýningu
Sonju Bent.
Umfjöllun um þau tískumerki sem
sýndu á laugardagskvöldið á RFF
verður í Morgunblaðinu á miðviku-
dag.
Rain Dear Ó
venjuleg re
gnkápa.
Nikita Klæðileg götutíska.
Royal
Extreme
Dramatík
umfram
naum-
hyggju.
EYGLO Dömulegt og skemmtilegt.
Forynja Klúbbatíska í fyrirrúmi.
Spaksmannsspjarir Heilsteypt lína.E-Label Hélt sig á kunnum slóðum.
Sonja Bent
Sýning henn-
ar hitti í
mark.
VERA Við
hæfi vamp-
írudrottn-
inga.
Fáranleiki
umfram leiðindi