Morgunblaðið - 09.04.2011, Side 4

Morgunblaðið - 09.04.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011 Hlý og mjúk Verð aðeins 13.900,- 100% bómullaráklæði 750 gr hvítur gæsadúnn Frábær fermingargjöf Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is Kennari við Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi hefur verið kærður til lögreglu fyrir kynferð- isbrot gegn börnum. Hörður Helga- son skólameistari staðfestir að kennarinn hafi verið leystur frá störfum meðan rannsókn lögreglu stendur yfir. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu er maðurinn sakaður um samræði eða önnur kynferðismök við barn yngra en 15 ára og um að greiða eða heita endurgjaldi fyrir vændi barns. Samkvæmt heim- ildum leikur grunur á að annar ein- staklingur hafi einnig brotið gegn viðkomandi barni og er verið að rannsaka það. Kennari á Akranesi grunaður um að brjóta gegn barni Egill Ólafsson Baldur Arnarson Tilboð Samtaka atvinnulífsins um launahækkanir er heldur rýrt miðað við samningstímann og atvinnumála- pakkinn frá ríkisstjórninni er ekki til þess fallinn að langþráður viðsnún- ingur náist í efnahagslífinu. Ljóst er að ef þessi staða breytist ekki á næstu dögum þá mun krafan um skammtímasamning upp á nokkra mánuði fá byr undir báða vængi. Þetta er mat Finnbjörns A. Her- mannssonar, formanns Samiðnar, á stöðu kjarasamninga. Skýrist á mánudaginn „Við þurfum að sjá hvernig landið liggur á mánudaginn og sjá hvort það eru einhverjar forsendur fyrir því að halda áfram viðræðum á þess- um grunni,“ sagði Finnbjörn. „Við teljum að ríkisstjórnin sé voðalega lítið að koma á móts við okkur … Þá er lítið annað en skammtímasamningur í spilunum.“ Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, var vondaufur. „Við vorum að taka stöðuna. Við fengum nýja útgáfu af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á fimmtudag. Okkur finnst miða afar hægt í mikil- vægum málum sem lúta að fjárfest- ingu. Það gerist ekkert fyrr en eftir helgi. Lykilþættir varðandi fjárfest- ingu og hagvöxt eru ekki í réttum farvegi. Það er dauft yfir þessu. Ég get ekki neitað því,“ segir Vilhjálmur sem kveðst enn halda í vonina um að samið verði til lengri tíma. Kjaraviðræður í rembihnút  Formaður Samiðnar telur tilboð SA of lágt  Horfir til skammtímasamninga  Framkvæmdastjóri SA segir fjárfestingar- og hagvaxtarþáttinn á rangri leið Framhaldið » Samtök atvinnulífsins funda um stöðuna á mánudeginum en þá er reiknað með funda- höldum á milli samningsaðila. » Framkvæmdastjóri SA bend- ir á að atvinnuleysi í febrúar var 8,6% að meðaltali en 13.772 voru þá án atvinnu. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Tvær ungar danskar konur urðu í gær fyrstu konurnar til þess að fara þvert yfir Ísland á gönguskíðum. Þær Thea Storm Henrikson og Ell- inore Bjørk Vipond komu til Egils- staða í gær eftir þrekraunina sem tók 25 daga. Thea er líf- og íþrótta- fræðingur og Ellinore er jarðfræð- ingur sem starfar í Norður-Noregi. Að sögn Theu eru þær báðar miklar áhugamanneskjur um úti- vist og þeim hafi dottið í hug að það væri gaman að gera eitthvað þessu líkt. Ferðin yfir Ísland var loka- ferðalag sérstaks verkefnis sem þær tóku sér fyrir hendur fyrir nokkrum árum. Í því mega aðeins stelpur taka þátt og markmiðið er að þvera öll Norðulöndin. „Maður er alltaf að heyra um karlmenn að gera eitthvað svona svo við sögðum við sjálfar okkur að við gætum vel gert þetta líka. Fyrir tveimur árum fórum við yfir Finnland, Svíþjóð og Noreg. Í fyrra fórum við yfir Græn- landsjökul og í ár komum við til Ís- lands. Svo ætlum við að fara yfir Danmörku á rúlluskíðum á næst- unni. Þá verðum við búnar að fara yfir öll Norðurlöndin,“ segir Thea og hlær. Syntu yfir á Stúlkurnar drógu farangurinn sinn á eftir sér á sérstökum sleðum en þær segja ferðina yfir Ísland hafa verið erfiðari en fyrri ferðir þeirra, meðal annars út af veðrinu. „Þegar við fórum yfir Grænlands- jökul var veðrið stöðugt. Hér breyt- ist það á hverri klukkustund. Það eru margir dagar þar sem það er svo skýjað að það sést ekkert. Vind- urinn gerði það líka að verkum að margar nætur þurftum við að fara á fætur til að byggja skjólvegg úr snjó,“ segir Thea. Þær stöllur létu heldur ekki smá- atriði eins og ískaldar ár stoppa sig. Þeim hafði verið bent á brú yfir Farið, sem er útfallið úr Hagavatni undir Langjökli, en þegar þangað var komið var engin brú sjáanleg. Því gripu þær til þess ráðs að fækka fötum og synda yfir ánna. Farangurinn drógu þær með sér með reipum yfir. Tók það þrjár klukkutíma að komast yfir að sögn Theu. Kjarnakonurnar Thea og Ell- inore komu til Reykjavíkur í gær- kvöldi þar sem þær ætla að dveljast þar til þær fara aftur heim. Ætla að þvera Norð- urlöndin á skíðum  Tvær danskar konur þær fyrstu til að þvera Ísland Ljósmynd/Hafdís Erla Bogadóttir Fyrstar Þær Thea (t.v.) og Ellinore (t.h.) eru fyrstu konurnar til þess að fara yfir Ísland á gönguskíðum. Tók ferða- lagið yfir hálendið 25 daga. Komu þær til Egilsstaða í gærmorgun og ætluðu að fljúga til Reykjavíkur í gærkvöldi. 25 daga skíðaganga yfir landið Grunnkort: LMÍ Þingvellir (byrja) Sænautasel (enda) Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunar- manna, LV, ákvað í gær að lækka vexti á nýjum sjóðfélagalánum, sem bera fasta vexti, um hálft prósentu- stig, úr 5,4% í 4,9%. Lækkunin tekur gildi mánudaginn 11. apríl en vaxta- kjör eldri lána, sem og lána sem bera breytilega vexti, haldast óbreytt, að því er segir í tilkynningu. Segir þar að vaxtakjör á lánum til sjóðfélaga séu tvennskonar. Þar ræði annars vegar um lán með breytilegum vöxtum sem taki mið af markaðsvöxtum íbúðabréfa hverju sinni auk 0,75% álags og hins vegar lán með föstum vöxtum, nú 4,90%. Lánað er til sjóðfélaga gegn fast- eignaveði til allt að 40 ára en í fjár- festingarstefnu lífeyrissjóðsins er kveðið á um að lánveitingar til sjóð- félaga séu miðaðar við að annað sé eftirspurn eftir lánum skv. lána- reglum eins og þær eru hverju sinni. Stjórn LV lækkar vexti á nýjum lánum Úr Hallgrímskirkjuturni LV lánar til allt að 40 ára í senn. Marta María Jónasdóttir, sem gegnt hefur starfi aðstoðarritstjóra á Pressan.is, hefur verið ráðin til starfa á mbl.is. Marta María hefur mikla reynslu af fjölmiðlum, bæði af vefmiðlum og blöðum og hefur starf- að sem blaðamaður í áratug. Hún hefur ritstýrt Sirkus, Föstudegi og Veggfóðri auk þess að stjórna inn- blaði Fréttablaðsins um nokkurra ára skeið. „Ég er mjög spennt fyrir nýja starfinu og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir. Á mbl.is eru mikil sóknarfæri,“ segir Marta María. Mbl.is er öflugasti frétta- og af- þreyingarvefur landsins og er í stöðugri sókn og sífelldri þróun. Marta María mun gegna stjórnun- arstöðu við vefinn og taka þátt í þeirri miklu upp- byggingu sem framundan er. Morgunblaðið og mbl.is fagna því að hafa fengið svo góðan liðsmann og bjóða Mörtu Maríu Jónasdóttur velkomna til starfa. Öflugur liðsauki bætist við á mbl.is Marta María Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.