Morgunblaðið - 09.04.2011, Qupperneq 60
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 99. DAGUR ÁRSINS 2011
Ísland mætir Króatíu í Zagreb í fyrsta
leiknum í 2. deild heimsmeist-
aramótsins í íshokkíi karla annað
kvöld. Morgunblaðið er með í för og
flytur fréttir af framgangi íslenska
liðsins. Ísland fékk brons á síðasta
móti og mætir nú til leiks með nýjan
þjálfara, Olaf Eller frá Danmörku.
Spurningin er hvort liðið bæti við sig
í ár eða haldi í horfinu. »3
Íshokkílandsliðið byrjar
gegn sterkum Króötum
„Ég átti kannski ekki von á
að bæta Íslandsmetið alveg
strax og það kom mér dálít-
ið á óvart. En ég ákvað að
keyra á fullu, bæði í und-
anrásunum og úrslitasund-
inu, og það var gott að ná
metinu og HM-lágmarkinu
strax í morgun,“ sagði sund-
konan unga Eygló Ósk Gúst-
afsdóttir eftir frábæra
frammistöðu á Íslandsmeist-
aramótinu í gær. »1
Kom mér dálítið á
óvart að ná metinu
Ragnar Jóhannsson frá Selfossi varð
markakóngur úrvalsdeildarinnar í
handbolta, enda þótt lið hans yrði að
bíta í það súra epli að falla. „Ég átti
alls ekki von á því að skora jafnmörg
mörk og raun ber vitni,“ segir Ragnar
m.a. í viðtali við Morgunblaðið og við-
urkennir að vera svolítið marka-
gráðugur. »4
Átti ekki von á að skora
svona mörg mörk
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Eiríkur Jónsson hætti í gær sem
formaður Kennarasambands Ís-
lands, en hann hefur verið í stjórn
gamla og nýja Kennarasambandsins
síðan 1984 og formaður síðan 1994.
Umræða um málefni sambandsins
hættir þó ekki á heimilinu því Björg
Bjarnadóttir, eiginkona Eiríks, er
nýr varaformaður Kennarasam-
bandsins.
Félagi leikskólakennara var skipt
í tvö félög í fyrra og við það tæki-
færi steig Björg til hliðar eftir að
hafa verið formaður félagsins í 14
ár. Hún hefur verið þjónustufulltrúi
hjá Kennarasambandinu í vetur, en
segir að hart hafi verið lagt að sér
að bjóða sig fram til varaformanns
Kennarasambandsins og hún hafi
tekið áskoruninni. Hún áréttar að
Eiríkur hafi ekki skipt sér af málinu
en sagst styðja þá ákvörðun sem
hún tæki. „En þetta þýðir að um-
ræðan verður áfram virk á heim-
ilinu,“ segir hún.
Leikur á eftirlaunum
Þegar Eiríkur sleit þingi Kenn-
arasambandsins fyrir þremur árum
tilkynnti hann að hann myndi ekki
sækjast eftir endurkjöri 2011. Hann
segir að tími sé kominn til að breyta
til og hleypa nýjum manni að. 17 ár
sem formaður sé alveg nóg. Björg
bætir við að hann sé líka að fara á
eftirlaun. „Hann ætlar bara að fara
að spila golf og leika sér,“ segir hún
og bætir við að auk þess komi hann
til með að sjá um heimilið.
Eiríkur segist ekki kvíða
verkefnaleysi. „Ég hef til dæm-
is mjög gaman af því að rækta
garðinn,“ segir hann. Hins veg-
ar þýði þetta ekki að hann sé
lagstur í helgan stein. „Ég
ætla að slaka á til að
byrja með,“ heldur hann
áfram og útilokar ekki
að taka að sér hlutastarf, bjóðist
það.
Samhent hjón
Eiríkur hefur verið í eldlínu sam-
bandsins í tæplega þrjá áratugi og
segist vera stoltastur af sigrinum
sem hafi unnist í baráttunni um líf-
eyrismálin á árunum 1996 og 1997.
Björg segir að mikið starf sé fram-
undan. Hún segist ekki eiga von á
að Eiríkur eigi eftir að hafa áhrif á
sig í nýja starfinu en hún ætlist
samt til þess að hann hlusti á sig.
Eiríkur leggur áherslu á að hann
hafi ekki beitt sér vegna ákvarð-
anatöku á þinginu vegna þess að
hann sé hættur. „En auðvitað leita
ég ráða hjá mínum karli,“ segir
Björg.
Leita ráða hjá mínum karli
Fyrrverandi
formaður í golf
og heimilisverkin
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Hlutverkaskipti Hjónin Björg Bjarnadóttir og Eiríkur Jónsson skipta um hlutverk – hann sinnir nú heimilisstörfum
sem fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands og hún beitir sér í stjórn sambandsins sem varaformaður.
Þórður Á. Hjaltested, fyrrverandi
varaformaður Félags grunnskóla-
kennara, er nýr formaður Kenn-
arasambands Íslands. Hann hefur
verið í stjórn undanfarin sex ár
og boðar ekki miklar breytingar
enda segir hann að stjórnin hafi
verið traust frá stofnun.
Yfirskrift 5. þings KÍ,
sem lauk á Grand hóteli
Reykjavík í gær, var „Í
skólanum, í skólanum
er framtíð þjóðar falin“. Um 270
manns sóttu þingið, sem var sett
sl. miðvikudag, en þar var m.a.
kynnt skýrsla þar sem fram koma
ýmsar ábendingar um hvaða lær-
dóm Íslendingar geta dregið af
reynslu Finna af kreppunni 1991. Á
þinginu var fjallað um stefnumót-
andi tillögur og segir Þórður að
stjórnin eigi síðan eftir að vinna úr
þeim samkvæmt ákvörðunum
þingsins.
Traust stjórn frá byrjun
ÞÓRÐUR Á. HJALTESTED NÝR FORMAÐUR KÍ
Þórður Á.
Hjaltested
Kvikmyndin
Backyard hefur
verið valin til sýn-
ingar á hina virtu
kvikmyndahátíð í
Karlovy Vary í
Tékklandi og einn-
ig á alþjóðlegu
kvikmyndavikuna
í Seattle sem
haldin verður í 37. sinn 19. maí til 12.
júní. Backyard verður í kjölfarið sýnd
á minni hátíðum víða um heim og
verður gefin út á mynddiski á al-
þjóðavísu í september næstkomandi.
Backyard til Karlovy
Vary og Seattle
Daníel Bjarnason, Ben Frost og
Sinfóníetta Krakárborgar fluttu 6.
apríl sl. verk Frosts og Daníels, Music
for Solaris, í Lincoln Center í New
York. Hluti verksins er kvikmynda-
verk eftir Brian Eno og Nick Robert-
son, byggt á kvikmynd
Tarkovskíj, Solaris,
frá árinu 1972.
Verkið verður
flutt á Listahá-
tíð í Reykjavík í
vor í tónlist-
arhúsinu
Hörpu.
Music for Solaris flutt
í Lincoln Center
Megas & Senuþjófarnir gáfu út
nýja hljóðversplötu, (Hugboð um)
Vandræði, í vikunni. Um er að ræða
fimmtu plötu þessa gjöfula sam-
starfs sem hófst árið 2007. Karl
Blöndal rýnir í gripinn. »52
Morgunblaðið/Einar Falur
Ný plata Megasar
gagnrýnd
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Augu umheimsins á Íslandi
2. Ísland stefnir í greiðsluþrot
3. Gleymdist að fjarlægja hnéð
4. „Klæðnaðarbilun“ hjá Evu
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan- og suðaustanátt, yfirleitt 8-15 m/s og rigning sunnan- og
vestantil, en skýjað með köflum nyrðra og eystra. Suðvestlægari í kvöld. Hiti 7 til 16 stig.
Á sunnudag Vaxandi suðaustanátt og væta með köflum fyrripartinn, en síðan sunnan og
síðar suðvestan 13-20 og rigning. Hægari og úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 3-10 stig.
Á mánudag og þriðjudag Suðvestanátt, yfirleitt 8-15 m/s og skúrir eða él, en þurrt og
bjart veður austanlands. Hiti 0 til 5 stig.