Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 35

Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 35
DAGBÓK 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand Í VILLTA VESTRINU LEYSTU MENN ÁGREINING SINN Á GAMLA MÁTANN... ...TVEIR KÚREKAR STÓÐU ANDSPÆNIS HVOR ÖÐRUM TILBÚNIR TIL AÐ... ...FARA Í SPENNANDI ELTINGARLEIK ÉG SAKNA GÖMLU GÓÐU DAGANNA ÞETTA ER ÁHUGAVERT ÞAÐ ER HRÆÐILEGT AÐ MISSA ALLT LIÐIÐ SITT EN ÞETTA ER ÞÓ ALLAVEGANA SPENNANDI LÍFSREYNSLA ÉG FÆ ALLAVEGANA TÆKIFÆRI TIL AÐ SJÁ HVAÐ KEMUR FYRIR ÞJÁLFARA SEM MISSA LIÐIÐ SITT ÞEIR FARA HEIM *ANDVARP* ÞÚ ÁTT VIÐ ALVARLEGT VANDAMÁL AÐ STRÍÐA! LEYFÐU MÉR AÐ GISKA! BÍDDU! ÞETTA VANDAMÁL ERT ÞÚ ER ÞAÐ EKKI? ÞAÐ ERU TIL TVÆR GERÐIR AF DÝRUM, ÞAU SEM LEIÐA HJÖRÐINA OG ÞAU SEM FYLGJA LEIÐTOGUNUM EN ÞEGAR ÞAÐ KEMUR AÐ HUNDUM ÞÁ GETUR VERIÐ ERFITT AÐ ÁTT SIG Á ÞVÍ HVERJIR ERU HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ FARA MEÐ KÖTU ÚT Á STÖÐ? JÁ OG ÉG ÆTLA EKKI AÐ BERA TÖSKUNA FYRIR HANA HÚN ÞARF AÐ LÆRA AÐ TAKA MEIRI ÁBYRGÐ. ÞAÐ EINA SEM ÉG BIÐ UM ER AÐ ÞÚ SKIPTIR ÞÉR EKKI AÐ ÞVÍ SEM ÉG SEGI VIÐ HANA ÞÁ ÞAÐ *ANDVARP* HLUSTAÐU NÚ Á MIG!... FINNDU SANDMAN FYRIR MIG OG VERTU FLJÓTUR AÐ ÞVÍ! HA? HVERNIG Á ÉG AÐ FARA AÐ ÞVÍ? ÞAÐ ER EKKI EINS OG HANN SÉ AÐ AUGLÝSA SIG! HVERNIG ÞÚ FINNUR HANN ER EKKI MITT VANDAMÁL FINNDU HANN NÚNA! GOTT OG VEL STJÓRI! Verð á ormalyfjum Sú er þetta ritar hugðist kaupa ormalyf fyrir tvo hesta en var tjáð á Dýraspítalanum að ormalyfið væri aðeins selt í pakkningum fyrir 30 hesta. Er það ekki lyfjafyrirtækjanna eða innflutningsaðila að sjá til þess að heppilegri pakkningar séu fyrir hendi? Þá er ormalyfið Panacur, sem ætlað er minni dýrum, orðið fokdýrt. Er verð og skammta- stærðir geðþóttaákvörðun lyfjafyrirtækjanna, öðru nafni einokun? Dýravinur. Ást er… … hvernig þú lítur á lífið. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9 – bingó kl. 13.30. Páskabingó, glæsilegir vinningar. Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9. Bólstaðarhlíð 43 | Kertanámskeið, leikfimi kl. 13, handavinna. Dalbraut 18-20 | Söngstund með Lýð kl. 14. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8. Félag eldri borgara, Reykjavík | Bókmenntaklúbbur kl. 13. Félagsheimilið Boðinn | Pálmar spil- ar á nikku og stýrir fjöldasöng kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofa, botsía kl. 9.30/13, málm- og silfursmíði kl. 9.30/13, jóga kl. 10.50, félagsvist kl. 20.30. Félagsheimilið Gjábakki | Ljóðalestur kl. 14. Ljóðahópur Gjábakka les áður óbirt ljóð, kaffi og kleinur kr. 500. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður kl. 10, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10, leikfimi kl. 10.30, bingó kl. 13.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 9.15/12.10, málun kl. 10, leðursaumur/páskabingó FEBG kl. 13. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Handverkssýning eldri borg- ara á Seltjarnarnesi er 14.-15. apríl frá kl. 13-17 báða dagana á Skólabraut 3-5. Sýnd verða verkefni vetrarins í glerlist, leirlist, prjónaðir og heklaðir hlutir, útsaumur og fleira. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9, m.a. bókband. Prjónakaffi kl. 10. Stafaganga kl. 10.30. Spilasalur opinn. Kynningarfundur í Leiknishúsinu v/ Austurberg kl. 14.30 – Allir finna eitt- hvað við sitt hæfi – stefnumótun í fé- lagsstarfi. Kóræfing kl. 15.30. Furugerði 1, félagsstarf | Messa klukkan 14. Prestur sr. Ólafur Jóhanns- son. Furugerðiskórinn leiðir söng. Háteigskirkja – starf eldri borgara | Eldri konur hittast kl. 13 og liðka sig í brids. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, páskabingó í Þórðarsveig 3 kl. 13.30. Hraunsel | Leikfimi kl. 11.30, brids kl. 12.30, billjardstofa og pílukast í kjall- ara, Dansleikur kl. 20.30, Þorvaldur Halldórsson, aðg. kr. 1.000. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30. Vinnustofa kl. 9 án leiðbeinanda. Páskabingó kl. 13.30, kaffisala. Hæðargarður 31 | Kynningarfundur föstudag 15. apríl kl. 13 vegna vor- ferðar í Reykholt 26.-28. apríl. Dag- skráin lögð fram og rædd. Miðvikudag 27. apríl kl. 20.30 flytja Soffíuhópur og Tungubrjótar dagskrá helgaða Vil- borgu Dagbjartsdóttur og Sigurði Páls- syni í Bókhlöðu Snorrastofu. Uppl. í síma 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjá- bakka kl. 13. Hringdansar (byrjendur) í Kópavogsskóla kl. 14.40. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða- klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11. Páska- bingó kl. 13.30. Norðurbrún 1 | Myndlist/útskurður kl. 9. Guðsþjónusta og sparikaffi kl. 14. Vesturgata 7 | Skartgripagerð/ kortagerð, enska kl. 9, tölvukennsla kl. 12, sungið v/flygil kl. 13.30, dansað í aðalsal kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja og leirmótun kl. 9, handavinnustofa kl. 9, morgunstund kl. 9.30, bingó kl. 13.30. Sigurjóni V. Jónssyni hagyrðingiá Selfossi bárust fregnir af því að sjór flæddi að tónlistarhúsinu Hörpu og varð honum að orði: Léttar öldur með ljúfum klið leika nú senn á Hörpuna og bátar mega búast við að berist hún í vörpuna. Og af því tilefni að djásn Páls Arasonar eru komin til Húsavíkur: Smádýra hann fer í flokk á frægu safni á skeri er þarna í eldspýtustokk ásamt stækkunargleri. Morgunblaðið flutti fréttir af því að hnífapör hefðu horfið í Háskóla Íslands og varð það Sigurjóni efni í vísu: Margir í sig matinn rífa á mettíma að slæmum sið og gleypa líka gaffla og hnífa þá gengur betur uppvaskið. Það birtist vísa eftir Sturlu Frið- riksson á mánudag sem ort var þeg- ar blandað var á ferðapelann við fossinn Dynk í Þjórsá, en hún er rétt svona: Ekki er Þjórsá sopasínk svona hreppamegin. Vatnið, sem hér draup úr Dynk, dugði vel á fleyginn. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Hörpu og Dynk - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.