Morgunblaðið - 14.05.2011, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 4. M A Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 112. tölublað 99. árgangur
HAFA ALLT AÐ
VINNA OG
ENGU AÐ TAPA
VILL HELST
MÆLA TUNGU-
MÁL TÓNLISTAR
SÍMASKRÁIN
NÝTIST EINNIG
SEM 2 KG LÓÐ
SUNNUDAGSMOGGINN ÚTGÁFUHÁTÍÐ Í DAG 10GÓÐ STEMNING Í HÓPNUM 54
Kristján Jóhannsson óperusöngvari uppskar mikið lófaklapp að loknum
flutningi á einsöngsatriði úr óperunni Otello eftir Verdi. Landsmönnum
öllum var í gærkvöldi boðið upp á mikla og fjölbreytta tónlistarveislu þeg-
ar sjónvarpað var beint frá fyrstu tónleikum opnunarhátíðar Hörpu. Um
400 listamenn komu fram, m.a. Páll Óskar, Gus Gus og Dikta auk þess sem
píanóleikarinn Víkingur Heiðar vígði nýjan konsertflygil Hörpu. »24
Morgunblaðið/Eggert
Vegleg tónlistarveisla í Hörpu
Lítið sem ekk-
ert hefur sést af
kríunni ennþá
suðvestan- og
vestanlands en
fyrst sást til krí-
unnar hér á landi
á Höfn 22. apríl
sl. Þó sást til kríu
við Seltjarnarnes
í gær en annars hefur verið óvenju-
lítið af henni í þessum landshlutum,
að sögn fuglaáhugamanna. Meira
hefur sést af henni norðan- og aust-
anlands. „Elstu menn muna ekki
annað eins og engar haldbærar
skýringar hafa komið fram, nema
helst að ætisskortur síðustu ára og
léleg afkoma í þessum landshlutum
valdi þessu kríuleysi,“ segir Jóhann
Óli Hilmarsson. »14
Krían lætur bíða eft-
ir sér vestanlands
Íbúar á Sauðárkróki eru harmi
slegnir eftir fregnir af láti ungrar
konu á 21. aldursári. Unnusti kon-
unnar var í gær úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 27. maí nk. en
hann hefur játað að hafa ráðið henni
bana.
Unga konan er fædd og uppalin á
Sauðárkróki og segir Sigríður Gunn-
arsdóttir, sóknarprestur á Sauðár-
króki, að bæjarbúum sé brugðið,
mikil sorg ríki og bærinn í raun hálf-
lamaður. Auk þess hafi hún merkt
mikla reiði meðal íbúa í garð fjöl-
miðla vegna þess hvernig þeir hafi
fjallað um málið.
Málsatvik að mestu ljós
Rannsókn málsins gengur vel,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu, og málsatvik að mestu ljós.
Enn á maðurinn þó eftir að gangast
undir geðrannsókn og beðið er nið-
urstöðu úr krufningu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hugðist konan slíta sam-
bandi þeirra og voru sambandsslitin
til umræðu þegar maðurinn réðst á
hana í Heiðmörk og veitti áverka
sem drógu hana til dauða en ekki er
vitað hvort hún dó á staðnum eða eft-
ir að hann færði hana í farangurs-
geymslu bifreiðar sinnar. »2
Morgunblaðið/Júlíus
Bíllinn Maðurinn ók með lík ungu
konunnar í skotti bifreiðar sinnar.
Samfélag í sorg eftir
að ungri konu var banað
Tuttugu og fimm ára karlmaður játaði manndráp í gær
Röskun varð á
áætlunarflugi
Icelandair þegar
loka varð Kefla-
víkurflugvelli í
nótt vegna yf-
irvinnubanns
flugumferð-
arstjóra. Flugi
frá Kaupmanna-
höfn var flýtt í gær og vél frá Lund-
únum lenti á Reykjavíkurflugvelli.
Samtök ferðaþjónustunnar lýstu yf-
ir áhyggjum af áhrifum aðgerð-
anna á ferðaþjónustuna en formað-
ur FÍF segir viðræður ganga hægt
og útilokar ekki fullt yfirvinnu-
bann. »2
Yfirvinnubann rask-
ar áætlunarflugi
Leo White,
bandarískur
júdókappi sem
Bjarni Frið-
riksson lagði
óvænt að velli á
Ólympíu-
leikunum árið
1984, segir að
Bjarni hefði átt
að glíma um gull-
verðlaun á leikunum. Bjarni missti
naumlega af því og fékk síðan Ól-
ympíubrons. Morgunblaðið hitti
Bjarna og White og fékk þá til að
rifja upp þessa sögulegu keppni
fyrir 27 árum þegar Bjarni komst á
verðlaunapall á leikunum, annar Ís-
lendinga frá upphafi. » Íþróttir
Bjarni átti að glíma
um gullið 1984
Leo White
Þorri þeirra útlendinga sem flutt-
ust hingað til lands í fyrra kom frá
ríkjum þar sem meðaltekjur á
mann eru lægri en hér á landi.
Þótt tekjur hérlendis hafi lækkað
eftir hrunið eru þær enn verulega
hærri en gerist og gengur í fyrrver-
andi austantjaldsríkjum eins og
Póllandi og Litháen. »34
Ísland auðugra en
heimalandið
Ágúst I. Jónsson, Bjarni Ólafsson,
Kristján Jónsson
Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar um ný fisk-
veiðistjórnunarlög að veruleika á næsta ári mun
það hafa umtalsverð áhrif á fjárhagslega stöðu út-
gerða og banka sem þjónusta þær, að sögn Frið-
riks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra
Landssambands íslenskra útvegsmanna. Heildar-
lán stóru bankanna þriggja til útgerðarfyrirtækja
eru allt að 268 milljarðar króna.
Friðrik segir að LÍÚ sé nú að láta endurskoð-
endur fara yfir frumvarpið til að hægt sé að meta
áhrifin nákvæmlega, bæði á fyrirtækin og þjóð-
arhag almennt. „Af lestri frumvarpsins blasir hins
vegar við að áhrifin verða mikil,“ segir Friðrik.
Samkvæmt frumvarpi stjórnarflokkanna verð-
ur frá haustinu 2012 bannað að veðsetja kvóta. Að
vísu verður gefinn aðlögunartími í 15 ár og veð
sem stofnað var til fyrir gildistöku laganna verða
áfram gild á því tímabili. Bankarnir flokka lán til
sjávarútvegsfyrirtækja með mismunandi hætti í
ársreikningum sínum. En stór hluti þessara lána
er beint eða óbeint með veði í aflaheimildum, öðru
nafni kvóta. Verðfall á honum, sem gert er ráð fyr-
ir að verði ein af afleiðingum nýju laganna vegna
þess að ekki verður lengur neitt markaðsverð að
miða við, hefði því mikil áhrif á bankana.
Þingflokkar Samfylkingarinnar og VG eru enn
með frumvarpið til umfjöllunar en heimildarmenn
úr röðum stjórnarliða segja að búist sé við að þeir
afgreiði það á mánudag. Minna frumvarpið, sem
er um breytingu á gildandi lögum, á að taka gildi
strax í haust en hitt haustið 2012.
Talsmenn sjávarútvegsfyrirtækja fara hörðum
orðum um frumvarpið sem var kynnt hagsmuna-
aðilum á lokuðum fundi í gær en Jón Bjarnason
sjávarútvegsráðherra mun síðan kynna það op-
inberlega klukkan 11 í dag.
M Verða á pólitískum veiðum »4, 33
Grefur undan bönkum
Sjávarútvegsfyrirtækin skulda stóru bönkunum allt að 268 milljarða króna
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra kynnir kvótafrumvörpin opinberlega í dag