Morgunblaðið - 14.05.2011, Síða 16
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Hótel Varmahlíð í Skagafirði áform-
ar að stækka við sig í ár með bygg-
ingu herbergisálmu með 24 her-
bergjum niðri við þjóðveginn,
norðan við útibú Arionbanka. Eftir
stækkun mun hótelið geta boðið upp
á 43 fullbúin herbergi.
„Við erum komin með lóðina, núna
er verið að vinna að hönnuninni, fjár-
mögnun og fleiri málum,“ segir
Svanhildur Pálsdóttir, hótelstjóri og
einn eigenda, við Morgunblaðið.
Stefnt er að því að hefja fram-
kvæmdir í sumar og taka bygg-
inguna í notkun vorið 2012 en Svan-
hildur segir mikla þörf hafa myndast
fyrir stækkun hótelsins, auk þess
sem rekstrareiningin hafi verið
óhagstæð.
Gistihúsarekstur í 70 ár
Hótel Varmahlíð er þriggja
stjörnu hótel með 19 herbergjum.
Ekki reyndist nægt landrými til að
stækka sjálfa hótelbygginguna en
gistihúsarekstur hefur verið á þeim
stað allt frá árinu 1941, eða í 70 ár,
og greiðasala áður stunduð á nýbýl-
inu Varmahlíð frá 1935. Um tíma var
einnig póst- og símaafgreiðsla í hús-
inu, og viðkomustaður Norðurleið-
arrútunnar.
Stuttur gangur verður frá nýju
herbergisálmunni í sjálft hótelið þar
sem veitingaaðstaða, eldhús og
gestamóttaka verður samnýtt. Reisa
á nýju álmuna með forsteyptum ein-
ingum en hvert herbergi verður með
snyrtingu og sturtu, auk annarra
þæginda.
Gistiframboðið eykst
Vaxandi ferðaþjónusta í Skaga-
firði allt árið um kring, ekki síst með
tilkomu skíðasvæðisins í Tindastóli
og annarri afþreyingu, hefur kallað á
þörf fyrir aukið gistirými á svæðinu.
Nýverið var í Morgunblaðinu greint
frá áformum um byggingu 60 her-
bergja heilsárshótels á Sauðárkróki,
í samstarfi Fosshótelanna og heima-
manna. Fyrir er aðeins eitt slíkt hót-
el, reyndar eitt hið elsta á landinu;
Hótel Tindastóll, sem er með tíu her-
bergjum. Einnig hefur gistiheimilið
Mikligarður verið starfandi á
Króknum um nokkurt skeið en sömu
aðilar starfrækja nú sumarhótel í
heimavist Fjölbrautaskólans undir
nafninu Hótel Mikligarður.
Gangi áformin á Sauðárkróki eftir
munu því 84 hótelherbergi bætast
við gistihúsaflóruna í Skagafirði á
næstu árum og eru þá ótalin ýmis
önnur ferðaþjónustufyrirtæki eins
og á Bakkaflöt, Steinsstöðum, Hól-
um, Hofsósi, Hofsstöðum, Egilsá og
í Lónkoti.
Hótel Varmahlíð eykur við sig
Áformar nýja byggingu í Varmahlíð með 24 herbergjum Hótelið stækkar í 43 fullbúin herbergi
Bætist við áform um 60 herbergja heilsárshótel á Sauðárkróki Aukin þörf fyrir gistirými
Hótelstýra Svanhildur Pálsdóttir hefur ásamt fleirum átt og rekið hótelið í
Varmahlíð frá árinu 2006. Eigendur hyggja nú á stækkun hótelsins.
Hótel Aðalhótelbyggingin í Varmahlíð en á þessum stað hefur verið hótel
og greiðasala allt frá árinu 1935. Regnboginn tekur sig vel út.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011
Landsmót hestamanna 2011 fer
fram á Vindheimamelum í Skaga-
firði dagana 26. júní til 3. júlí nk.
Það verður án nokkurs vafa há-
punktur sumarsins í ferðaþjónust-
unni í Skagafirði og undir það tek-
ur Svanhildur hótelstjóri.
Hestamenn hafi þó verið seinir að
taka við sér en nú sé hótelið orðið
fullbókað landsmótsdagana og
þannig sé orðið um velflesta gisti-
staði á svæðinu.
Forsölu á miðum á Landsmót
hestamanna lýkur á morgun,
sunnudag, en á vef mótsins kemur
fram að miðarnir hafi rokið út.
Haft er eftir Önnu Lilju Péturs-
dóttur að salan hafi tekið mikinn
kipp eftir páska og miðasölukerfið
verið rauðglóandi síðustu daga.
Hápunktur sumarsins
LANDSMÓT HESTAMANNA Á VINDHEIMAMELUM
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
110% leiðin – átt þú rétt?
· Ef skuldir eru umfram 110% af verðmæti fasteignar er hægt að sækja
um að skuldirnar verði færðar niður að 110% af verðmæti eignarinnar.
· Á við um lán til kaupa á íbúð til eigin nota sem áttu sér stað fyrir árið 2009.
· Ef veðrými er á öðrum eignum umsækjanda lækkar niðurfærsla skulda sem því nemur.
Kannaðu málið fyrir 1. júlí nk., en þá rennur út frestur til að sækja um þessa niðurfærslu.
Sækja skal um rafrænt á www.ils.is.
Tveir karlmenn hafa verið dæmdir
í gæsluvarðhald til 20. maí næst-
komandi að kröfu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu en þeir voru
handteknir á miðvikudag, grunaðir
um að hafa haldið manni nauð-
ugum í meira en hálfan sólahring
og pyntað hann. Allir tengjast
mennirnir sama vélhjólaklúbbnum
og telur lögregla að um innanbúð-
aruppgjör hafi verið að ræða.
Mennirnir tveir voru handteknir
í Hafnarfirði eftir að lögreglu
barst tilkynning um líkamsárás.
Sá sem fyrir henni varð er karl-
maður á þrítugsaldri og hlaut
hann alvarlega áverka. Bar hann
þess merki að hafa verið barinn
með áhöldum, hugsanlega röri eða
slíðri af sverði, auk þess að vera
nefbrotinn og þjást af sjóntrufl-
unum eftir barsmíðarnar.
Manninum tókst að flýja árás-
armenn sína síðdegis á miðvikudag
en honum hafði þá verið haldið
nauðugum í um 15 klukkustundir,
eða frá því á þriðjudagskvöld.
Lögregla, í samvinnu við sérsveit
ríkislögreglustjóra, handtók menn-
ina um kvöldmatarleytið á mið-
vikudeginum. Mennirnir, sem
bjuggu á gistiheimili í Hafnarfirði,
veittu mótþróa við handtöku og
kom til átaka en engan sakaði.
Gripið til allra tiltækra ráða
Á dvalarstað árásarmannanna,
sem eru á þrítugs- og fertugsaldri,
var lagt hald á neysluskammta af
fíkniefnum og ýmis barefli en að
sögn lögreglu báru híbýlin merki
um langvarandi neyslu. Allir hafa
mennirnir þrír komið við sögu lög-
reglu vegna ýmissa brota og er
hluti þeirra vegna ofbeldis- og
fíkniefnamála. Þeir eru allir taldir
tengjast vélhjólaklúbbnum Black
Pistons en hann er undirhópur vél-
hjólaklúbbsins Outlaws, sem á í
Bandaríkjunum í miklum erjum
við Hells Angels. Maðurinn sem
ráðist var á er ekki fullgildur liðs-
maður í klúbbnum.
„Þetta er vísbending um það
sem við höfum varað við, þ.e. að
gæti gerst í tengslum við þessa
hópa. Í þessu tilviki er um inn-
byrðis deilu að ræða, sem við eig-
um eftir að finna út hver grund-
völlurinn er að baki,“ sagði Karl
Steinar Valsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, í gær. „Birtingar-
myndin er sú að ef menn gera ekki
nákvæmlega það sem þeim er
sagt, þá skal ná því fram með öll-
um tiltækum ráðum,“ bætti hann
við.
Yfirheyrslur stóðu yfir á
fimmtudag og vann lögregla að því
í gær að rannsaka fyrirliggjandi
gögn og skýra atburðarásina. Far-
ið var fram á gæsluvarðhaldið á
grundvelli rannsóknarhagsmuna
en mennirnir hafa báðir kært úr-
skurðinn til Hæstaréttar.
holmfridur@mbl.is
Héldu manni í 15
tíma og pyntuðu
Talið tengjast innanbúðaruppgjöri
vélhjólaklúbbsins Black Pistons
Morgunblaðið/Júlíus