Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011 VELKOMIN Á BIFRÖST Upplifðu Bifröst Komdu í heimsókn og kynntu þér námið í 1 dag til að fullvissa þig um að það henti þér. Á sama tíma geturðu skoðað líkamsræktina, kaffihúsið, leikskólann, golfvöllinn og fleira sem háskólasvæðið hefur upp á að bjóða. Nánari upplýsingar á bifröst.is. Opinn dagur 21. maí Opið fyrir umsóknir á bifrost.is HHS - heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði HHS undirbýr nemendur fyrir atvinnumarkað þar sem gerðar eru miklar kröfur og þróun er hröð. Námið er einnig góður undirbúningur fyrir fjölbreytilegt framhaldsnám á sviði hug- og félagsvísinda. Í því fléttast saman þrjár grunngreinar hug- og félagsvísinda sem oftast eru kenndar hver í sínu lagi. Með því að blanda saman aðferðum heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði verður til óvenjulegt og innihaldsríkt grunnnám sem býr til óvænt og gagnleg sjónarhorn. Á Bifröst gefst nemendum kostur á að ljúka námi á skemmri tíma þar sem sumar- nám er hluti reglulegs náms. Náminu má því ljúka á tveimur og hálfu ári. Sala á farmiðum og tímabils- kortum Strætó í gegnum vefinn Strætó.is jókst um 128% á fyrstu fjórum mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Sé verslun á Strætó.is það sem af er ári borin saman við sama tímabil árið 2009 hefur salan nær sexfaldast. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó. Þetta má ekki síst þakka átak- inu „33% meira á netinu“ sem Strætó réðst í síðasta sumar með það að markmiði að fleiri myndu kaupa strætókort í gegnum Strætó.is. Salan tók þá mikið stökk og hefur aukningin verið stöðug síðan. Þess vegna hefur Strætó ákveð- ið að endurtaka átakið í ár. Frá og með gærdeginum munu farþegar sem kaupa mánaðar-, þriggja mán- aða og níu mánaða strætókort í gegnum Strætó.is fá kort með 33% lengri gildistíma en hefðbundið er. Þannig gildir mánaðarkortið í fimm vikur, þriggja mánaða kort í fjóra mánuði og níu mánaða kortið í eitt ár. Tilboðið gildir bæði fyrir persónuleg kort og handhafakort og stendur til 2. september. „Sala í gegnum vefinn er hag- kvæmur kostur fyrir Strætó, þar sem kostnaður við netverslun er að jafnaði lægri. Einnig er þetta hentugt fyrir farþega sem geta fengið farmiðana eða kortin send heim í stað þess að sækja þau sjálf- ir,“ segir í tilkynningu. Farþegar fá 33% lengri gildistíma á strætókortum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Hring- brautar og Njarðargötu í Reykjavík laust fyrir klukkan sjö fimmtudags- kvöldið 5. maí. Þar rákust saman svartur Volkswagen Polo og ljós- brúnn Toyota RAV4. Sá á Volkswa- gen-bílnum var á leið vestur Hring- braut en ökumaður Toyotunnar ók Njarðargötu í norðurátt. Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vinsamleg- ast beðnir að hafa samband við lög- regluna í síma 4441000. Lögreglan leitar að vitnum að bílslysi Í dag, laugardag kl. 14:00-16:00, verður haldin kynning í Mennta- skólanum á Tröllaskaga þar sem nemendur skólans kynna verk sín. Nemendur verða með ferðakynn- ingu þar sem þau kynna ferða- hugmyndir á Tröllaskaga og hægt verður að ræða við þau um við- fangsefnið. Einnig verður sýning nemenda í fagurlistum og list- ljósmyndun á portrettmyndum og verk sem hafa verið unnin úr úr- gangslist. Opið hús Á morgun, sunnudag klukk- an 12:00, bjóða ábúendur á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði gestum og gangandi að fylgjast með þegar kúnum á bænum verður hleypt út eftir vetrarinnistöður. Kýrnar fagna því vel og innilega þegar þeim er hleypt úr fjósi og má búast við að hraustlega verði slett úr klaufunum. Þá verða léttar veitingar í boði MS Akureyri. Allir eru velkomnir. Ytri-Tjarnir eru við Eyjafjarðarbraut eystri, 13 km sunnan Akureyrar. Þar er rekið kúabú með 50 mjólkurkúm. Ábúendur eru Benjamín Baldursson og Hulda M. Jónsdóttir. Gestum og gangandi boðið að fylgjast með þegar kúnum verður hleypt úr fjósi STUTT Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Mannanafnanefnd hefur með nýlegum úrskurð- um sínum samþykkt eiginnöfnin Annarr, Jane og Dennis, sem verða færð í mannanafnaskrá. Áður hafði nefndin hafnað nafninu Annarr en ákvað að taka málið upp að nýju í ljósi nýrra upplýsinga. Í umsókn um nafnið Jane er tekið fram að það sé borið fram á íslensku eins og það er ritað, ekki með enska framburðinum „Djein“ heldur bara „Jane“. Sextán konur eru skráðar í Þjóð- skrá með þessu nafni og nefndin telur því hefð hafa skapast fyrir nafninu, samkvæmt vinnu- reglum nefndarinnar. Í úrskurði bendir nefndin á að það sé sjaldgæft að stofn orða í íslensku endi á hljóðinu e. Þess séu þó dæmi, eins og orðið te og nafnið Salóme. Því lítur mannanafnanefnd svo á að nafnið Jane, borið fram eins og það er ritað, brjóti ekki í bága við íslenskt málkerfi. Um nafnið Annarr segir í úrskurði nefnd- arinnar að reynt hafi á eitt af þeim þremur skil- yrðum um mannanöfn, sem þarf að uppfylla til að fá nafn samþykkt og skráð í mannanafnaskrá, þ.e. að nafnið skuli ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Litið hafi verið svo á að endingin -arr sé ekki í samræmi við almennar ritreglur ís- lensks máls. Á 14. öld hafi langt r aftast í orði styst í áherslulitlum endingum, eins og Ragnarr yfir í Ragnar. Því velti niðurstaðan um nafnið á því hvort hefð sé fyrir því samkvæmt skilningi mannanafnalaga. Tökunafn geti unnið sér svo- nefnda menningarhelgi, komi það fyrir í alkunn- um ritum, og hér til hliðar er vitnað í slíkt rit sem kann að hafa ráðið úrslitum hjá nefndinni. Annarr, Jane og Dennis fóru í gegn  Nafnið Jane ekki með enskum framburði heldur íslenskum með e í endann  Sextán konur í Þjóðskrá skráðar sem Jane  Annarr áður hafnað í mannanafnanefnd en málið tekið upp að nýju Morgunblaðið/Þorkell Ungbörn Foreldrar geta nú látið skíra börnin sín nöfnum eins og Annarr, Jane og Dennis. Annarr í Snorra-Eddu » Í úrskurði mannanafna- nefndar er bent á að eigin- nafnið Annarr kemur t.d. fyr- ir í útgáfu Jóns Helgasonar og Anne Holtsmark að Snorra-Eddu frá árinu 1968. » Með hliðsjón af því er hægt að líta svo á að rithátt- urinn sé hefðaður í skilningi vinnulagsreglna mannanafna- nefndar. » Nafnið beygist svo: Hér er Annarr, um Annar, frá Annari, til Annars. Fram- burður er sá sami í nefnifalli og þolfalli, líkt og Héðinn og Héðin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.