Morgunblaðið - 14.05.2011, Síða 29
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011
Andri Karl
andri@mbl.is
Samkvæmt Evrópureglum er stefnt
að því að allir millilandaflugvellir á
Íslandi – líkt og aðrir flugvellir í
Evrópu – komi sér upp vökvask-
anna fyrir 29. apríl 2013. Reglugerð-
in kemur í kjölfar reglna um inni-
hald og magn vökva sem farþegar
mega hafa með sér í flug.
Árið 2006 tóku gildi umræddar
reglur um innihald og magn vökva.
Með þeim var það takmarkað sem
farþegum er heimilt að bera með
sér í handfarangri inn fyrir örygg-
ishlið.
Flugfarþegar máttu aðeins vera
með vökva í 100 ml umbúðum eða
minni í handfarangri, og urðu þær
að vera í lokuðum, gegnsæjum
plastpoka. Vegna þessa þurftu far-
þegar að kaupa öll drykkjarföng til
neyslu í flugvélinni inni á flugvell-
inum. Sveið það sumum sárt, enda
verðlag á flugvöllum almennt nokk-
uð hátt.
Reglurnar gilda um allt milli-
landaflug til og frá Íslandi en innan-
landsflug er undanþegið. Evrópu-
sambandið framlengdi vökvabannið
í desember 2009, fram í apríl 2013,
og var það gert vegna seinkunar á
þróun tækjabúnaðar sem gera átti
bannið óþarft.
Nú er tæknibúnaðurinn tilbúinn
og hefur verið settur upp á nokkr-
um flugvöllum, m.a. í Stafangri í
Noregi. Er sá vökvi sem farþegar
hyggjast fara með í handfarangri
einfaldlega skannaður þegar farið
er í gegnum öryggishliðið. Ekkert
bólar þó enn á slíkum skönnum hér
á landi og samkvæmt upplýsingum
frá Isavia, sem rekur íslenska flug-
velli, við fyrirspurn Morgunblaðs-
ins, hefur enn ekki verið tekin
ákvörðun um málið. „Við erum að
kynna okkur og skoða málið. Mál
eins og þetta er unnið með Flug-
málastjórn Íslands, það eru okkar
eftirlitsaðilar,“ segir í svarinu. Eng-
ar upplýsingar fengust því um tíma-
setningu eða kostnað Isavia við að
framfylgja reglunum.
Hjá Flugmálastjórn fengust þær
upplýsingar að hér líkt og annars
staðar í Evrópu verður komið upp
umræddum vökvaskönnum. Raunar
segir í svari Flugmálastjórnar, að
„Isavia ætti að geta veitt þér upp-
lýsingar um það hvenær þeir verða
búnir að uppfylla Evrópureglurnar
en allavega verður að stefna að því
að það verði eigi síðar en 29. apríl
2013.“
Vökvaskannar í stað vökvabanns
Isavia þarf að tryggja að settir verði upp vökvaskannar á alla millilandaflugvelli Íslands fyrir 29. apríl
2013 Skannarnir koma í veg fyrir svonefnt vökvabann, þ.e. takmarkanir á vökva farþega í handfarangri
Morgunblaðið/Þorkell
Leifsstöð Flugfarþegar munu geta drukkið eigin drykki á nýjan leik í flugvélum eftir 29. apríl 2013.
Tryggja verður fjölbreyttara fram-
boð á óverðtryggðum lánum og
skuldabréfum, að mati sérstakrar
nefndar sem falið var að meta kosti
og galla þess að draga úr vægi verð-
tryggingar í íslensku fjármálakerfi,
án þess að fjármálastöðugleika sé
ógnað. Hluti af því er útgáfa ríkis-
sjóðs og Íbúðalánasjóðs á óverð-
tryggðum skuldabréfum og að
Íbúðalánasjóður bjóði upp á óverð-
tryggð húsnæðislán.
Nefndin afhenti Árna Páli Árna-
syni, efnahags- og viðskiptaráð-
herra, sem skipaði nefndina, skýrsl-
una í fyrradag. Í henni er lögð
áhersla á að forsenda þess að ná tök-
um á verðbólgu sé ábyrg stjórnun
efnahagsmála. Bæta þurfi hagstjórn
og auka virkni peningamálastefnu
landsins með því að taka upp þjóð-
hagsvarúðartæki.
Hvatt verði til sparnaðar
Þá telur nefndin mikilvægt að efla
fjármálalæsi almennings, upplýs-
ingamiðlun við sparnað og lántöku
og neytendavernd til að sporna gegn
ofskuldsetningu og áhættu tengdri
ólíkum lánaformum. Hvatt verði til
sparnaðar vegna kaupa á fasteign og
búseturétti.
Í nefndinni sátu fulltrúar allra
þingflokka, efnahags- og viðskipta-
ráðuneytisins og fjármálaráðuneyt-
isins, auk áheyrnarfulltrúa frá Seðla-
banka Íslands, og koma fram þrjú
sérálit í skýrslunni. Arinbjörn Sig-
urgeirsson, Eygló Harðardóttir,
Hrólfur Ölvisson og Lilja Móses-
dóttir standa að áliti þar sem lagt er
til sem fyrsta skref í afnámi verð-
tryggingar að setja þak á hækkun
verðtryggingar á ársgrundvelli.
Jafnframt verði unnið að lækkun
raunvaxta. Næstu skref í afnámi fel-
ast í innleiðingu óverðtryggðs hús-
næðislánakerfis og fjölgun búsetu-
forma.
Í áliti Péturs H. Blöndal leggur
hann áherslu á að fráleitt sé að hafa
tvær myntir í ekki stærra efnahags-
lífi, verðtryggða og óverðtryggða
krónu. Hann segir ekki hægt að
styðja afnám verðtryggingar á þess-
ari stundu.
Morgunblaðið/Ómar
Lán án verðtryggingar Nefndin sem ráðherra skipaði telur meðal annars
nauðsynlegt að Íbúðalánasjóður geti boðið upp á óverðtryggð húsnæðislán.
Tryggja þarf
fjölbreyttara
framboð á lánum
Auka virkni peningamálastefnu með
því að taka upp þjóðhagsvarúðartæki
Eignarlóðir
undir sumarhús til sölu
Höfum til sölu eignarlóðir í landi Kílhrauns í Skeiða og Gnúpverjahreppi í
um klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni.
Landið er einkar hentugt til skógræktarog útivistar.
Lóðirnar eru frá 5.000 fm -11.600 fm og kosta frá 1.800.000 kr.
Rafmagn, vatn og sími er komið að lóðarmörkum.
Á vefsíðunni www.kilhraunlodir.is má finna frekari upplýsingar um
skipulag, verð og aðra þætti einnig í síma 842 3040
Festu þér þinn sælureit í dag