Morgunblaðið - 14.05.2011, Side 38

Morgunblaðið - 14.05.2011, Side 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011 Danir eru yndisleg, þróuð menningarþjóð sem Íslendingar geta lært margt af. Danir eru til dæmis upp til hópa glaðlyndir og víð- sýnir, kurteisir, jarð- bundnir og umburðar- lyndir – og lýðræðis- hefð Dana er mjög þroskuð og stofnanir þjóðfélagsins heil- brigðar og sterkar. En alveg eins og margir Íslendingar skilja Dani og danskt þjóðfélag því miður ekki nægilega vel, þá eru líka margir Danir sem skilja alls ekki Ísland og íslenska menningu. Uffe og Lars Einn þeirra er Uffe Ellemann Jensen bloggari, sem í fyrndinni var utanrík- isráðherra Danmerkur. Uffe fellur í þá gryfju í bloggi fyrir Berlingske 17. apríl um Icesave-þjóðaratkvæðis- greiðsluna að skauta ekki aðeins framhjá lykilstaðreyndum eins og árásum Breta og misnotkun á hryðju- verkalögum gagnvart Íslandi – og full- yrða að Íslendingar muni tapa dóms- máli vegna neisins (hvernig veit hann það?) heldur er bloggið fullt af hroð- virkni og hreinum staðreyndavillum í anda nýgræðinga. Skyldi sama hroð- virkni hafa valdið því að Venstre undir stjórn Uffe galt afhroð í kosningunum 1998 og hann hrökklaðist úr stjórn- málunum í bloggið? Viðhorf Uffe gagnvart Íslandi vekja spurningar um það í hve miklum mæli hann var með í ráðum þegar herstöð- inni á Miðnesheiði var lokað og starf- semi hennar flutt til Grænlands í tíð flokksbróður hans, fyrrverandi for- sætisráðherra Danmerkur og núver- andi framkvæmdastjóra NATO, And- ers Fogh Rasmussen. Uffe uppnefndi forseta Íslands í blogginu og gaf al- ranga mynd af Icesave og aðdraganda þess. Hann minntist ekki á vonda fyrri samninga og opinberaði vanþekkingu sína og fordóma á íslensku samfélagi sem hann endurtók í magasínþætti á TV2 18. apríl og voru á skjön við leið- arahöfunda helstu stórblaða heims eins og FT og NYT. Annar slíkur aðili er Lars Christen- sen, aðalgreiningarskáld Den Danske Bank, sem tókst að skaða orðspor Íslands fyrir nokkrum árum. Lars minntist ekki orði á núverandi útrás Den Danske Bank í anda gömlu íslensku bankanna í heimsókn til Íslands ný- lega. En viðhorf Lars virðast lituð af sömu for- dómum og Uffe. Því sem kalla má yfirlætiskennd (dulin minnimátt- arkennd) og brýst fram gegn þeim sem maður heldur að séu minni en maður sjálfur. Danmörk og Ísland Uffe og Lars virðast setja Ísland í sama flokk og Bornholm (dönsk eyja) eða Gotland (sænsk eyja) eða Færeyjar, þ.e. þeir taka Ísland ekki al- varlega sem sjálfstætt þjóðríki, horfa framhjá hæfileikum Íslendinga og tala niður til þeirra vegna smæðar landsins. Hvor- ugur þeirra virðist skilja þróttinn í Ís- lendingum. Að íslenska efnahags- undrið var ekkert kraftaverk heldur afleiðing af kraftinum í Íslendingum. Þetta er athyglisvert því Íslendingar hafa einmitt upp til hópa þann eft- irsóknarverða dugnað einstaklings- framtaksins sem nú er reynt að laða fram í Dönum. Og hvorugur þeirra virðist átta sig á því hve sjálfsmynd Ís- lendinga er sterk. Og að þjóðin finnur hvorki til minnimáttarkenndar gagn- vart Dönum, né ber hún neinn kala til Dana heldur ber hún þvert á móti mikla og jákvæða virðingu fyrir þeim og er hissa á sleggjudómum og kjána- legu yfirlæti. Danir telja sjálfa sig mjög litla þjóð. Og þeir eru það í samanburði við flest- öll lönd heimsins. Alveg eins og Ís- lendingar. Munur á íbúatölu Íslands og Danmerkur er t.d. sambærilegur og milli Danmerkur og Þýskalands. Það er þess vegna furðulegt að menn eins og Uffe og Lars haldi, að þar sem Ísland er minna land, þá geti þeir hæglega kastað fram sleggjudómum. Íslendingar þurfa að vara sig á að gleypa hrátt allt sem hrýtur af vörum manna eins og Uffe og Lars og átta sig á að ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Uffe og Lars – Danmörk og Ísland Eftir Ragnar Halldórsson » Íslendingar þurfa að vara sig á að gleypa hrátt allt sem hrýtur af vörum manna eins og Uffe og Lars Ragnar Halldórsson Höfundur er ráðgjafi. Undanfarna mánuði hefur Ólafur Steph- ensen, ritstjóri Frétta- blaðsins, verið iðinn við kolann að skrifa pistla um innlendan land- búnað. Þar er inn- lendur landbúnaður reglulega talaður niður og lagt til að leysa öll vandamál með inn- flutningi á landbún- aðarvörum. Nýjasta útspilið birtist í leiðara Fréttablaðsins hinn 29. apríl sl. Þar, líkt og í fyrri greinaskrifum sínum, snýr hann öllum þeim atriðum sem þykja ámælisverð við landbúnaðinn upp í skilyrðislaus rök fyrir innflutn- ingi á landbúnaðarvörum. Í því tilfelli var það skortur á innlendum líf- rænum landbúnaðarvörum, sem rit- stjórinn velur í sitt lið. Ég ætla hins vegar að freista þess að hrifsa af hon- um keflið í þessari umræðu áður en hann stekkur með það í næsta drullu- pytt. Frá því að ég man eftir mér hefur umræða um matvælaframleiðslu að mestu snúist um hversu mikill kostn- aður það er fyrir svona litla þjóð að framleiða eigin mat. Þrýst verið á mat- vælaframleiðendur að lækka kostnað og sumir jafnvel haldið því fram að það væri „kollektív“ geggjun að stunda land- búnað hér á landi. Mér þótti því ánægjulegt að heyra að umræðan væri farin að færast yfir í að matur sé einfaldlega verðmæt vara á heims- markaði, og eðlilegt að hver þjóð reyni að tryggja fæðuöryggi þegna sinna með því að efla innlenda matvælafram- leiðslu. Út frá þessari umræðu hefur síðan heyrst að úrval lífrænt rækt- aðrar matvöru þykir heldur rýrt á Ís- landi. Formaður Samtaka lífrænna neyt- enda hitti reyndar naglann á höfuðið, þegar hún sagði að það yrði fljótt skortur á lífrænum vörum ef neyt- endur tækju við sér og keyptu meira lífrænt. Boltinn er hjá neytendum, og hingað til hefur þorri neytenda ekki talið þörf á því að hafa íslenskar land- búnaðarvörur lífrænt vottaðar. Sé það að breytast hlýtur að vera vilji hjá framleiðendum að framleiða vöru sem ber hærra verð. Það verður samt að viðurkennast að eitt er í orði, og annað á borði. Sem dæmi þá er mjög auðvelt fyrir mig sem einstæðing og mikinn aðdáanda íslensks landbúnaðar að segjast vilja borga meira fyrir lífrænt ræktaðan mat eða innlenda framleiðslu. Í fram- haldi af þessu fór ég að velta fyrir mér hver verðhækkunin yrði við að skipta úr hefðbundnu yfir í lífrænt. Ég stunda nám í Danmörku og fór þar í matvörubúð sem ber nafnið Irma. Þetta er verslun í dýrari kant- inum, en með gott úrval af lífrænt vottuðum vörum. Þar kannaði ég óvísindalega verðmuninn á fjórum vörum; mjólk, eggjum, svínakótel- ettum og haframjöli. Hækkunin á mjólkurlítra við að verða lífrænn var 42% (þó var þetta langódýrasta líf- ræna mjólkin í boði), á eggjabakk- anum var hækkunin 36%, kótelett- urnar hækkuðu um 32% pr. kg. og haframjölið 25% pr. kg. Árið 2009 gerði OECD athugun á meðal þegna tíu ríkja innan sinna vé- banda, þar sem rannsakað var hversu mikið aukalega fólk var tilbú- ið að borga fyrir lífrænar vörur. Helstu tölur voru þær að 33% svar- enda voru ekki tilbúin að borga neitt aukalega fyrir lífrænar vörur og 55% vildu borga í mesta lagi 15% umfram grunnverð. Þeir sem á annað borð keyptu mikið af lífrænu hugsuðu mest um úrval og útlit vöru við vöru- val, en þeir sem voru sagðir versla lít- ið hugsuðu mest um verð. Þótt þetta sé ekki hávísindaleg samantekt hjá mér get ég stuðst við þetta þegar ég segi að við skulum stíga varlega til jarðar í þessari um- ræðu, og fyrir alla muni gera okkur grein fyrir hvað sé verið að tala um, áður en digurbarkalegum yfirlýs- ingum er slegið fram. Fyrr í vetur fann ritstjóri Frétta- blaðsins sér ástæðu til að tala niður íslenskan landbúnað með því að gera sér mat úr því að mörg salmon- ellutilfelli hefðu komið upp á íslensk- um kjúklingabúum, og nefndi þann pistil sinn „Sjúklingabændur“. Hægt er að benda á að samkvæmt tveimur erlendum rannsóknum frá árunum 2001 og 2009 greindust fleiri tilfelli af camphylobacter-sýkingu í lífrænt ræktuðum kjúklingum en þeim sem voru ræktaðir á hefðbundinn hátt. Þetta er því komið í hálfgerða mót- sögn hjá ritstjóranum. En við því var kannski að búast, miðað við að sá háttur virðist yfirleitt vera hafður á pistlum hans, að nálgast málin ekki með gagnrýnni hugsun heldur koma fram einungis með aðra hlið málsins. En takið eftir, nú ætla ég að reyna að sýna af mér vönduð vinnubrögð. Í tveimur öðrum bandarískum rann- sóknum sem ég komst yfir kom í ljós að minna var af bakteríusýkingum af völdum salmonellu í lífrænt rækt- uðum kjúklingum en ræktuðum á hefðbundinn hátt, og er rætt um að frekari rannsókna sé þörf á þessu sviði áður en hægt er að slá nokkru föstu. Mér þykir það einkennilegt að svo miklu plássi sé eytt í að tala niður at- vinnugrein sem nýtur mikils trausts almennings á Íslandi og liggur nærri hjarta þjóðarinnar í umræðum um utanríkismál landsins nú á síðast- liðnum misserum. Eru þessir leið- arar líkari áróðurspistlum frá for- svarsmönnum hagsmunasamtaka en ritstjóra dagblaðs, það skyldi þó aldr- ei vera? Að gera sér (innfluttan) mat úr öllu Eftir Axel Kárason Axel Kárason »Mér þykir það ein- kennilegt að svo miklu plássi sé eytt í að tala niður atvinnugrein sem nýtur mikils trausts almennings á Ís- landi og liggur nærri hjarta þjóðarinnar … Höfundur er BS í búvísindum og dýralæknanemi. Árshátíð bridskvenna Laugardaginn 21. maí hittast bridskonur á árlegri árshátíð sem haldin verður í Skútunni að Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Dagskráin verður með hefðbundnum hætti. Mæting er klukkan 11 og munið að koma með góða skapið með ykkur. Matur verður kl. 12 og hefst svo spilamennska kl. 13. Verð á konu er 5.500 kr. Ekki er hægt að taka við greiðslu- kortum. Vinsamlegast skrá sig sem allra fyrst, ekki seinna en 15. maí hjá Erlu Sigurjóns, sími: 6593013/5653050 eða Huldu Hjálmars, sími 5552248/8952248. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn 12. maí. Spilað var á 11 borðum. Meðalskor: 216 stig. Árangur N-S: Jón Lárusson - Ragnar Björnsson 251 Björn Svavarss. - Jóhannes Guðmanns. 249 Rafn Kristjánss. - Júlíus Guðmundss. 230 Ingibj. Stefánsd. - Ingveldur Viggósd. 219 Árangur A - V: Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 258 Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 258 Oddur Halldórss. - Jakob Marteinsson 256 Sigurjón Helgason - Helgi Samúelss. 246 Gullsmárinn Spilað var á 14 borðum í Gullsmára fimmtud. 12. maí. Úrslit í N/S: Örn Einarsson-Sæmundur Björnsson 181 Þorsteinn Laufdal - Páll Ólason 175 Sigurður Gunnlss. - Gunnar Sigurbjss. 169 Leifur Kr. Jóhanness. - Guðm. Magnúss. 162 A/V: Samúel Guðmundsson - Jón Hannesson 184 Guðrún Hinriksd. - Haukur Hannesson 179 Magnús Hjartars. - Jóhannes Eiríksson 170 Elís Helgason - Gunnar Alexanderss. 165 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Þann 27. maí gefur Morgunblaðið út stórglæsilegt Garðablað. Garðablaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta, sumarblómin, sumar- húsgögn og grill. Stílað verður inn á allt sem viðkemur því að hafa garðinn og nánasta umhverfið okkar sem fallegast í allt sumar. MEÐAL EFNIS: Skipulag garða. Garðblóm og plöntur. Sólpallar og verandir. Hellur og steina. Styttur og fleira í garðinn. Garðhúsgögn. Heitir pottar. Útiarnar Hitalampar. Útigrill. Ræktun. Góð ráð við garðvinnu. Ásamt fullt af spennandi efni. Gar ðab laði ð NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 23. maí. Garðablaðið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.