Morgunblaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Framlegð (ebitda) af rekstri Árvak-
urs hf. á árinu 2010 batnaði um 389
milljónir króna frá árinu á undan.
Framlegð ársins 2010 var neikvæð
um 97 milljónir en var árið 2009
neikvæð um 486 milljónir Á þessu
ári hafa orðið jákvæð umskipti og
framlegð á fyrri hluta ársins er já-
kvæð um 30 milljónir.
Rekstrartap ársins 2010, að
teknu tilliti til afskrifta, nemur 277
milljónum en var til samanburðar
667 milljónir árið 2009. Tap eftir
skatta og fjármagnsliði árið 2010
nam 329 milljónum en vegna nið-
urfellingar skulda frá fyrri eig-
endum árið 2009 myndast hagn-
aður það ár að fjárhæð 2,5
milljarðar. Rekstrargjöld lækka á
milli áranna 2009 og 2010 um 350
milljónir.
Hlutafé var aukið um 240 millj-
ónir á árinu 2010 til mótvægis við
taprekstur ársins 2009 og er eigið
fé nú 686 milljónir. „Okkur var í
upphafi ljóst að rekstrinum yrði
ekki snúið til betri vegar í einu vet-
fangi en eins og tölurnar sýna þá
gerist það nú hægt og bítandi og af-
koma af reglulegri starfsemi er
orðin jákvæð á fyrri helmingi þessa
árs,“ segir Óskar Magnússon, út-
gefandi Árvakurs. „Áfram verður
leitað allra leiða til að styrkja
reksturinn, bæði með tekjuaukn-
ingu og kostnaðaraðhaldi.“
Rekstur Árvakurs
á réttri leið
Innanríkis-
ráðherra Ög-
mundur Jón-
asson sat fund
norrænna sam-
gönguráðherra í
gær og sat því
ekki ríkisstjórn-
arfund. Heim-
ildir Morg-
unblaðsins
herma að þar
hafi hann sætt harðri gagnrýni
vegna afstöðu sinnar til kaupa Hu-
ang Nubo á Grímsstöðum á Fjöll-
um. Ögmundur segir mjög var-
hugavert ef verið sé að reyna að
leggja málið þannig upp að þeir
sem hafi efasemdir um að selja ís-
lenskt land séu á móti útlendingum
og öllu sem útlent er. „Þetta er til-
raun til að þagga eðlilega umræðu
niður. Mitt hlutverk er að standa
vörð um hagsmuni okkar samfélags
og okkar lands.“ sigrunrosa@mbl.is
Segist standa vörð
um hag Íslands
Ögmundur
Jónasson
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Innanríkisráðherra, Ögmundur Jón-
asson, staðfestir að innanríkisráðu-
neytinu hafi í gær borist umsókn frá
Zhongkun Group, félagi kínverska
fjárfestisins Huang Nubo um undan-
þágu til kaupa á jörðinni Grímsstöð-
um á Fjöllum.
Alvara í viðræður um mitt ár
Viðræður Huang og landeigenda
um söluna á jörðinni hafa staðið
megnið af þessu ári samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins. Þeir voru
fyrst í sambandi við tengilið Huang í
kringum áramótin. Um mitt ár hafi
svo farið að færast alvara í viðræð-
urnar sem lauk með því að komist var
að samkomulagi um að fjárfestirinn
keypti jörðina á einn milljarð króna.
Í umræðunni um verð Grímsstaða
hafa landgæði komið upp en á gríð-
arstórri jörðinni sem nær yfir 30.000
hektara eru aðeins um 7-8 hektarar af
ræktuðu landi. Verð á landi er afstætt
en þarna virðist fjárfestirinn tilbúinn
að borga nær sama verð fyrir eyði-
land og gott ræktarland.
Var bent á að jörðin væri föl
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafði jörðin hafði verið til
sölu í um tíu ár áður en Huang fékk
augastað á henni í gegnum síðuna
grimsstadir.com sem landeigendur
settu upp fyrir nokkrum árum. Á
þeim tíma hefur landeigendum einu
sinni áður borist formlegt tilboð sem
þeir höfnuðu. Tilboðið sem barst árið
2007 var frá innlendum aðila og þótti
ekki trúverðugt en ekki hefur fengist
uppgefið hve hátt tilboðið var.
Um kaupin sagði Huang að honum
sem ferðamanni hefði þótt Ísland
mjög áhugaverður staður. Hann hefði
því beðið íslenska vini sína að koma
með tillögur að stöðum þar sem gæti
komið til greina að byggja upp ferða-
þjónustu. Hann hefði fengið sendan
tengil á vefsíðu Grímsstaða, sem
sýndi áhugaverða staðsetningu í
óspilltri náttúru. Framsetningin hefði
verið lykilatriði þar sem enginn annar
hefði sett fram þannig tilbúinn pakka
til skoðunar.
Undanþágubeiðnin komin
Jörðin Grímsstaðir á Fjöllum var til sölu í tíu ár Eigendur fengu eitt formlegt
tilboð á þeim tíma Samningaviðræður Huang og eigenda hófust á þessu ári
Uppgræðsla á Fjöllum
» Elsta tilraun til landgræðslu
hér á landi var gerð í landi
Grímsstaða árið 1946.
» Allt fé var tekið af Gríms-
stöðum árið 1991 með samn-
ingi við ríkið og landið þá tekið
úr landbúnaðarnotum til upp-
græðslu.
» Ríkið keypti þá greiðslu-
markið af ábúendum og þann
fjórðung sem það á nú í land-
inu.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Um 400 manns fengu aðstoð af
ýmsu tagi hjá Fjölskylduhjálp Ís-
lands á úthlutunardegi í gær, að
sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur,
formanns samtakanna. Að þessu
sinni var m.a. úthlutað skólavörum
handa börnum foreldra sem eiga
erfitt með að láta enda ná saman.
Blaðamaður ræddi við 43 ára,
einstæða móður á Suðurnesjum
sem hefur síðustu árin fengið að-
stoð hjá Fjölskylduhjálpinni. Hún
er öryrki og á tvö börn í grunn-
skóla, sex ára og átta ára, auk tví-
tugrar dóttur sem býr hjá henni og
er í skóla. Konan kýs nafnleynd.
„Ég er búin að missa húsið mitt,
var með erlent lán á því en leitaði
til umboðsmanns skuldara og bý
ennþá í gamla húsinu, borga um 80
þúsund í húsaleigu, þetta er með
hita og rafmagni,“ segir hún. „Þau
hafa aðstoðað mig mjög
vel hjá Fjölskylduhjálp-
inni síðustu árin, ég fékk
þarna mat og skólavörur
í dag og fína skó á
krakkana.
Ég reyni að halda
þessu öllu frá yngri
krökkunum og hafa allt
eins eðlilegt og mögulegt
er, fer aldrei með þá í Fjöl-
skylduhjálpina. Þau eru oft
að biðja um eitthvað en þá segist ég
bara ekki eiga pening fyrir þessu
núna. Þau eru alltaf númer eitt, ég
pæli lítið í sjálfri mér. Þeim gengur
vel í skólanum og allt í fínu lagi
þar.“
Lenti í slysi og missti vinnuna
Hún vann á sama stað í 24 ár en
lenti í slysi 2009, þurfti að fara í
nokkrar aðgerðir, hefur barist við
ýmsar aukaverkanir og fékk tauga-
áfall á sínum tíma. Konan var síðan
með aðeins um 90 þúsund á mánuði
í hálft annað ár en þurfti eftir sem
áður að sjá um heimilið og þrjú
börn.
„Þetta er ekki hægt en ég varð
samt að gera þetta, ég fékk mjög
mikla hjálp hjá foreldrum mínum.
Ég er nú nýkomin á örorkubætur
eftir þriggja ára baráttu og fæ auð-
vitað barnabætur. En stundum
finnst manni eins og maður sé bara
einhver löggiltur aumingi! Ég á
ekki bíl, fæ bara bíl að láni og mað-
ur getur ekki leyft sér neitt, aldrei.
En maður verður að hugsa um
framtíðina, ég reyni bara að loka á
fortíðina og brosa framan í lífið!“
„Reyni bara að loka
á fortíðina og brosa“
Margir fengu skólavörur hjá Fjölskylduhjálpinni í gær
Konan segir föður sinn, sem er á áttræðisaldri, hafa þurft að fara í hættu-
lega hjartaaðgerð 2009. Þegar hann var nýkominn heim rétt fyrir jól
hringdi útibússtjórinn í Byr. „Það væri að falla á hann ábyrgð
vegna yfirdráttarins míns og hvort hann ætlaði ekki að borga.
Það voru komnir miklir vextir á þetta hjá mér. Pabbi segir að þeir
geti bara tekið þetta af sparnaðarreikningi sem hann átti. Þeir
gerðu það og bjuggu svo til skuldabréf fyrir restinni, sendu það
heim til hans og létu hann skrifa undir. En hann man ekkert eftir
þessu enda enn fárveikur og áttaði sig ekkert á því hvað hann
var að samþykkja. Ári síðar hringja þeir og spyrja hvort hann
ætli ekki að borga lánið. Hann mundi auðvitað ekki eftir neinu
láni. Nú er ég með lögfræðing í því að reyna að stoppa uppboð á
húsinu hans! Þetta er allt svo ljótt og rosaleg grimmd í þeim.“
Látinn greiða lán fyrir dóttur
HARKA BANKANS GAGNVART ÖLDRUÐUM OG SJÚKUM MANNI
Morgunblaðið/Ernir
Skólavörur og skór Tvö fyrirtæki, Ástund og Prentvörur, gáfu Fjölskylduhjálpinni skólavörur og skó fyrir börn.
Anna Rósa Róbertsdóttir
grasalæknir
hefur opnað stofu
á Heilsuborg
Tímapantanir:
annarosa@annarosa.is
eða s: 662 8328
www.annarosa.is
Faxafeni 14, 108 Reykjavík
www.heilsuborg.is
Skólastjóri Grunnskóla Seltjarnar-
ness og skólastjóri Melaskóla í Vest-
urbæ Reykjavíkur sendu í gær for-
eldrum barna í skólunum bréf þar
sem þeir voru upplýstir um að full-
orðinn maður hefði á þriðjudags-
kvöld reynt að tæla unga stúlku upp í
bíl til sín á gatnamótum Neshaga og
Hofsvallagötu.
Samkvæmt lýsingu stúlkunnar
telur lögregla að um sama mann geti
verið að ræða og reynt hefur slíkt hið
sama í Hafnarfirði og á Suðurnesj-
um. Maðurinn sem var á grænum bíl
bauð stúlkunni sælgæti. Stúlkan
brást rétt við aðstæðum, svaraði
manninum ekki og hjólaði beint heim
og lét foreldra sína vita, sem höfðu
samband við lögreglu.
Foreldrar voru beðnir um að ræða
við börnin um hvernig bregðast ætti
við ef þau lentu í sömu aðstæðum.
Enn reynt að tæla
ung börn upp í bíla