Morgunblaðið - 01.09.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2011
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Vandana Shiva er hugsuðurog baráttukona á sviðisjálfbærrar þróunar, um-hverfis- og mannréttinda-
mála. Vandana er með doktorspróf í
skammtaeðlisfræði frá Western Ont-
ario-háskólanum í Kanada og hóf
snemma á ferlinum að boða sjálf-
bærni. Í dag veitir Shiva forstöðu
Navdanya-samtökunum á Indlandi
sem stuðla að sjálfbærni í landbún-
aði og stuðla að líffræðilegum fjöl-
breytileika. En hún er einn at-
kvæðamesti gagnrýnandi
erfðabreytinga á nytjaplöntum í
heiminum í dag. Sviva rekur einnig
alþjóðlegan háskóla í sjálfbærni í
samstarfi við Schumacher College í
Bretlandi. Hún hélt nýverið fyr-
irlestur í Háskólabíói fyrir troðfullu
húsi og komust mun færri að en
vildu.
Róstusamt ár í Indlandi
„Ástríða mín fyrir vistfræði
hófst með þátttöku minni í hreyfingu
kvenna á heimaslóðum mínum ná-
lægt Himalaya-fjöllunum. Konurnar
börðust fyrir verndun skóganna þar
og þó að þær hefðu aldrei gengið í
háskóla þekktu þær náttúruna vel og
gerðu sér grein fyrir því sem við er-
um fyrst að gera okkur grein fyrir í
vistfræðinni í dag. Það er að segja að
timbrið er ekki mikilvægast í skóg-
inum heldur jarðvegurinn, vatnið og
hreina loftið. Eftir um áratuga bar-
áttu gáfust stjórnvöld loksins upp og
bönnuðu skógarhögg þarna. Ástríða
mín fyrir vistfræði í dag snýst hins
vegar um vistfræði í landbúnaði.
Hana má rekja aftur til ársins 1984
sem var mjög róstusamt ár í Ind-
landi. Þá brutust út mikil átök tengd
Grænu hreyfingunni þar í landi og
þegar ég kynnti mér hreyfinguna fór
ég að sjá að bændurnir voru í stríði
gegn yfirvöldum og brostnum lof-
orðum um aukna framleiðslu sem
síðar brást,“ segir Vandana.
Fræið skapar sig sjálft
Í dag berst Græna hreyfingin
helst gegn erfðabreyttum mat-
vælum. Vandana segir að alþjóðleg
fyrirtæki hafi viljað fá einkaleyfi á
fræ til ræktunar og upp úr því hafi
World Trade Organization-stofnunin
orðið til. Þar ríki sú skoðun að
frelsi fyrirtækja skipti meiru
máli en einstaklinga og gegn þessu
hefur Vandana barist ötullega síð-
astliðin ár. „Ég einsetti mér því að
vernda fræið sem skapar sig sjálft en
ekki fyrirtækin og byggja upp líf-
ræna hreyfingu í Indlandi. Í dag
felst ástríða mín í að sjá ávöxt erf-
iðisins í því hversu margir eru farnir
að framleiða sinn eigin mat. Þannig
fær fólk betri mat, kemst betur af og
verndar umhverfið. Ég tel að iðn-
væddur matur og landbúnaður sé ein
stærsta lygi sem mannkyninu hefur
verið sögð. En það er ekki hægt að
ljúga að bragðlaukunum okkar og
líkamanum. Fyrir um tíu árum byrj-
aði ég að safna öllum þeim fræjum
sem ég gat fundið.
Í dag styðjum við bændur í að
skapa sína eigin fræbanka og þjálfa
þá. Alltaf þegar ég hitti áhugasama
manneskju hvet ég hana til að safna
fræjum og nú eru til einir 62 slíkir
bankar. Það fallega við þetta er að
þegar þú kaupir fræ er það bara
verslunarvara en þegar þú safnar
fræjum á þennan hátt þá er það
tákngervingur menningar þinnar og
þróunar og þú berð meiri virðingu
Fræinu er ætlað að
skapa allsnægtir
Indverska baráttukonan Vandana Shiva berst gegn erfðabreytingum í nytja-
plöntum. Hún einsetur sér að vernda fræið og hvetur bændur í Indlandi til að
safna fræjum. Fræið segir hún að eigi sig sjálft en ekki alþjóðleg fyrirtæki og sjálf-
stæðir fræbankar séu grunnurinn að sjálfbærum landbúnaði.
Reuters
Ræktun Lífræna hreyfingin í Indlandi vex og dafnar með hverju ári.
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrirlestur Shiva hélt fyrirlestur á Íslandi nýlega fyrir fullu húsi.
Þegar kalda haustloftið fer að leika
um kroppinn okkar er ekki laust við
að við þráum að vefja okkur inn í eitt-
hvað hlýtt og mjúkt. Sumir skríða
undir teppi, aðrir breiða yfir sig sæng
og einhverjir kasta yfir sig gömlu
góðu lopapeysunni. En svo eru þeir
sem vilja vera í heilgalla sem hlýjar
frá hvirfli til ilja og heftir ekki hreyf-
ingar á nokkurn hátt og gott er að
klæðast við hverskonar störf. Fyrir þá
sem hafa áhuga á að koma sér upp
einum slíkum galla, nú eða gefa ein-
hverjum öðrum sem vitað er að kann
að meta þessháttar flík, þá er nú gott
að skella sér á netið og panta sér
heilgalla á vefsíðunni weezo.is. Þar er
hægt að sjá myndir og stærðir og
tekur ekki nema tvo daga að fá einn
slíkan heim til sín frá því að pöntun
er lögð inn. Gallarnir eru með hettu
og einstaklega mjúkir og fást í öllum
regnbogans litum. Minnsta stærðin
er 140 cm en von er á barnastærðum
síðar. Ungt fólk hefur tekið þessum
göllum fagnandi enda fátt notalegra,
hvort sem er heima í kósífíling, í
sumarbústaðnum, í ferðalögum, eða
bara úti að rölta, að vera í hlýjum
mjúkum galla sem hvergi þrengir að.
Auk íslensku síðunnar hefur verið
opnuð síða í bretlandi og Danmörku
og einnig eru gallarnir á Facebook.
Vefsíðan www.weezo.is
Dásamlegir Þau taka sig heldur betur vel út í göllunum þessi þrjú.
Kósí heilgallar fyrir haustið
Sumir mikla fyrir sér að búa til sitt
eigið nesti, eða fyrir aðra, til dæmis
börnin sín. Mörgum finnst það allt
of mikið vesen. En svo er alls ekki
og þar sem nesti er mjög sniðug
lausn, hvort sem er í skóla eða
vinnu, þá er um að gera að nýta sér
öll þau hjálpartæki sem til eru, til
dæmis góðar bækur um nesti. Þann-
ig er hægt að koma í veg fyrir að
hugmyndaflug um fjölbreytt nesti
þrjóti. Kosturinn við nestið er að þá
velur fólk sér sinn eigin mat í stað-
inn fyrir að stóla á sjoppur eða
mötuneyti. Nesti sparar líka pening,
er oft hollara og hægt er að nýta af-
gangana frá deginum áður. Ef þér
dettur ekkert annað í hug en að
smyrja samloku með osti þá skaltu
skoða bókina Hollt nesti heiman að,
sem var að koma út hjá Sölku. Bók-
in er eftir Margréti Gylfadóttur, Sig-
urrós Pálsdóttur og Sigurveigu
Káradóttur. Í henni er að finna um
70 hollar og einfaldar uppskriftir að
nesti sem má taka með sér í skól-
ann, vinnuna eða lautarferðina.
Endilega …
… takið með
ykkur nesti
Bók Góðar nestishugmyndir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
vi
lb
or
ga
@
ce
n
tr
u
m
.is
Berjaís með Magimix
Verð kr.: 44.990
Farðu alla leið með Magimix
Berja- og safapressa af fullkomnustu gerð
frá Magimix. Með safapressunni má útbúa
girnilega og heilsusamlega drykki með
lágmarks fyrirhöfn.
Ísvél að andvirði kr. 14.ooo fylgir með
hverri safapressu meðan birgðir endast.
Nú er upplagt að búa til heimalagaðan
bláberja- eða krækiberjaís.