Morgunblaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 28
Það er meira en hálf öld síð-
an ég fyrst kynntist Dóru og
Herði. Þau voru aðkomufólk „á
mölinni“ eins og við syskinin frá
Hallormsstað. Um langt skeið
voru þau nágrannar í Hlíðunum
í Reykjavík og samskipti tíð
milli heimilanna.
Kynni Dóru og Margrétar
systur minnar hófust að marki í
Söngsveit verkalýðsfélaganna í
Reykjavík (SVÍR) en sjálf
staldraði ég stutt við þar. Dóra
og Margrét voru jafnöldrur og
báðar afar músíkalskar. Dóra
söng millirödd en Margrét sópr-
an. Sigursveinn D. Kristinsson
stjórnaði söngsveitinni fyrst en
árið 1959 mun Hallgrímur
Helgason hafa tekið við kórnum
og nefndist hann síðan Alþýðu-
kórinn. Undir stjórn Hallgríms
flutti kórinn Þjóðhátíðarkantötu
eftir Jón Leifs í Þjóðleikhúsinu
á 60 ára afmæli tónskáldsins
1959. Þótti þessi flutningur tak-
ast afar vel og voru þær vinkon-
urnar báðar stoltar af.
Auk þess að syngja t.d. í
ofangreindum kórum gekk Dóra
síðar til liðs við Söngsveitina
Fílharmóníu og var formaður
þar á vissum tímamótum í sögu
kórsins. Þá fór hún er á leið að
syngja í Dómkórnum. „Ég er að
syngja í kórum mér til ánægju
og sáluhjálpar,“ skrifar hún
Margréti til Bergen, „og í dóm-
kirkjunni er alltaf jafn hátíð-
legt.“ Síðustu árin söng Dóra í
kór Félags eldri borgara og í
kór Guðríðarkirkju. Það urðu
henni sár vonbrigði þegar í ljós
Dórothea Sveina
Einarsdóttir
✝ Dórotheafæddist í Holta-
kotum í Bisk-
upstungum 21.
febrúar 1932 og
ólst þar upp. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skjóli 16. ágúst
2011.
Útför Dórotheu
fór fram frá Guð-
ríðarkirkju í Graf-
arholti 29. ágúst 2011.
kom að hún gat
ekki lengur verið
með þar sem sjúk-
dómurinn var far-
inn að herja á.
Svo vildi til að
við hjónin vorum
nágrannar Dóru og
Harðar síðustu ár
þeirra í Grafarholt-
inu. Áttum við
Dóra það til að
taka lagið tvær
saman og voru þá einungis þau
„gömlu góðu“ á dagskránni.
Dóra var örugg í milliröddinni.
Hún hélt þessum sönghæfileika
fyrst eftir að hún fluttist í Skjól
en því miður ekki lengi eftir
það.
En það var ekki aðeins á
söngsviðinu sem listrænir hæfi-
leikar Dóru birtust, þeir birtust
líka í handavinnu hennar meðan
hún hafði krafta til. Af öllum
vinnustöðum sagðist hún hafa
notið sín best í starfinu á Drop-
laugarstöðum enda náði hún
einstöku sambandi við eldri
kynslóðina. Áður hafði hún t.d.
unnið á sambýli fyrir fatlaða og
af tengslum við stúlku þar varð
til ljóðabréf sem birtist, ásamt
fleiri ljóðum Dóru, í bókinnni
„Vængjatök – hugverk sunn-
lenskra kvenna“.
Dóra kveður fallega:
Að lokum.
Sittu heil og sértu gleði vafin,
Hrundin kæra – hér og fyrst
hug þinn næri orðsins list.
Auk alls þessa ræktaði Dóra
garðinn sinn með einstökum
hætti. Hún byggði sér sumarbú-
stað á æskuslóðum sinum í landi
Holtakota í Biskupstungum og
þar áttu börnin og barnabörnin
kærkomið athvarf frá erli borg-
arlífsins.
Sá er vinur er í raun reynist.
Dóra veitti ómetanlega aðstoð
og styrk í alvarlegum veikindum
Margrétar systur minnar.
Hér skal það allt þakkað svo
og samfylgdin öll.
Elísabet
Guttormsdóttir.
Elsku afi, nú er
víst komið að kveðjustund. Í aug-
um okkar systkinanna varst þú al-
gjör hetja og stundirnar sem við
áttum með þér ómetanlegar. Þú
varst alltaf til í að spila við okkur
og þau voru ófá skiptin sem þú
dróst fram gamla kúluspilið úr
skápnum. Það kemur ekki á óvart
Kjartan
Guðjónsson
✝ Kjartan Guð-jónsson fæddist
á Stöðvarfirði 22.
maí 1931. Hann lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu Eir í Reykja-
vík 19. ágúst 2011.
Kjartan var jarð-
sunginn frá Stöðv-
arfjarðarkirkju 27.
ágúst 2011.
að það hafi lifað þig
því þú hugsaðir allt-
af vel um allt sem þú
eignaðist. Þú þekktir
þetta gamla leikfang
út og inn en hvernig
sem við reyndum
tókst okkur aldrei að
vinna þig. Eins
varstu ótrúlega
lunkinn í pílukasti og
skipti þá engu máli
hvort þú varst slas-
aður eða ekki. Þér þótti sko ekki
leiðinlegt að stríða okkur systkin-
unum og munum við vel eftir því
þegar þú lést okkur borða skál eft-
ir skál af eftirrétt á jólunum í
þeirri von að finna möndluna. Þeg-
ar eftirrétturinn var búinn og við
farin að undrast það að mandlan
væri ekki enn komin í leitirnar þá
var hana iðulega að finna hjá þér.
Á tímamótum í fjölskyldunni
var oft glatt á hjalla og stutt í
sönginn. Þú hafðir yndi af því að
syngja en raulaðir oft einungis
lágt með þar til lagið krafðist þess
að þú reyndir á raddböndin. Þá
hófstu upp þessa líka hljómfögru
tenórrödd. Þetta finnst okkur
mjög lýsandi fyrir persónu þína en
þú varst hlédrægur á stundum en
gast líka látið heyra í þér.
Þegar við hugsum til ferðanna
austur þá rifjast upp margar
uppáhaldsminningar okkar úr
æsku. Því er ekki að undra að
fjörðurinn fagri hafi á unga aldri
orðið í miklum metum hjá okkur
og höfum við nýtt hvert tækifæri
til þess að koma þangað. Þegar við
renndum í hlað í Heiðmörkinni
tókuð þið amma á móti okkur opn-
um örmum og drifuð okkur inn-
fyrir í mjólk og randalín – alveg
burtséð frá því hvort við komum
til ykkar með fjölskyldunni eða
með stóðið af vinum með okkur.
Það var því mjög sérstakt fyrir
okkur systkinin að koma á Stödd-
ann nú fyrr í sumar, þar sem lítið
hafði breyst og auðvelt að ímynda
sér að allt væri sem áður. Golf-
settin stóðu snyrtilega uppröðuð á
sínum stað, grasflötin var nýslegin
eins og alltaf og bundið var um all-
ar snúrur í húsinu. Þó vissum við
innst inni að þetta var aðeins
skugginn af því sem var, því veik-
indi þín höfðu sett strik í reikning-
inn. Við erum þó alveg viss um að
hvar sem þú ert núna þá hlýtur að
vera þar ákaflega snyrtilegur, ný-
sleginn golfvöllur.
Oft þegar við héldum heimleiðis
á ný eftir að hafa dvalið fyrir aust-
an hjá ykkur ömmu, mátti sjá
glitta í tár á hvarmi þínum enda
langt á milli heimsókna og óvíst
hvenær við myndum hittast næst.
Nú erum það við sem kveðjum þig
með tárum. Þú munt alltaf eiga
stað í hjörtum okkar og við mun-
um minnast þín um alla eilífð.
Takk fyrir allt.
Jóna Svandís og Hreinn.
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2011
Það var alltaf til-
hlökkun hjá mér
sem ungum dreng að heimsækja
ömmu Fjólu og afa Gunnar í
Keflavík. Eftir það sem virtist
vera óralangt ferðalag með rút-
unni frá BSÍ beið amma Fjóla eft-
ir mér á Brekkubrautinni tilbúin
með mjólk og kökur. Oft leið ein-
hver stund þar til afi Gunnar kom
heim úr vinnunni í kaupfélaginu
og á meðan dunduðum við amma
okkur við að spila á spil. Hins
vegar vorum við iðulega trufluð
af gestum því amma Fjóla var
með opnar dyr fyrir alla sem
vildu fá sér molakaffi og með sínu
hæglætisfasi, oft raulandi lítinn
lagstúf, skenkti hún gestunum í
bolla á meðan ég beið óþreyjufull-
ur eftir að spilið kláraðast. Það
var meðal annars þessi virðing og
umhyggja fyrir fólki, sama hvað-
an það kom, sem gerði Fjólu að
einstakri konu. Þetta leiddi að
sjálfsögðu til þess að fólk leitaði
oft í hennar félagskap sem um
leið spillti fyrir mér okkar dýr-
mætu spilastundum! En Fjóla
amma var ekki bara góð og um-
burðarlynd, heldur gat hún líka
sýnt styrk og ákveðni þegar eitt-
hvað kallaði á slíkt enda hafði hún
stýrt heimili þeirra hjóna með
fimm börnum af miklum mynd-
arskap. Síðar meir varð Fjóla að
langömmu barnanna minna og
eyddum við mörgum ánægjuleg-
um stundum með henni hvort
sem það var í Keflavík, í sum-
arbústaðnum eða á Góustöðum á
Ísafirði.
Fjóla var mikil fjölskyldu-
manneskja og var hún iðin við að
skipuleggja boð og veislur fyrir
fjölskylduna og eftir stendur
samrýnd og sterk fjölskylda sem
mun vafalaust halda kefli hennar
á lofti í framtíðinni.
Það er með miklu þakklæti
sem ég kveð ömmu Fjólu og jafn-
framt með ótal minningar um
hennar kærleika, dyggð og
myndarskap í brjósti mér.
Gunnar Sveinn Magnússon.
Mig langar að minnast Fjólu
móðursystur minnar sem lést á
heimili sínu þann 14. ágúst.
Fyrstu æviminningar mínar um
Fjólu frænku tengjast æsku-
heimili mínu að Urðarstíg 16.
Gaman var að alast upp í þessu
Guðrún Fjóla
Sigurbjörnsdóttir
✝ Guðrún FjólaSigurbjörns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 6. febr-
úar 1930. Hún lést
14. ágúst 2011.
Útför Fjólu fór
fram frá Keflavík-
urkirkju 19. ágúst
2011.
umhverfi í návist afa
og ömmu, lang-
ömmu og móður-
bræðra.
Þótt Fjóla dveldi
oft á heimili foreldra
sinna á þessum ár-
um, þá ólst hún að
hluta til upp hjá
Ragnheiði föður-
systur sinni og Gísla
manni hennar að
Hlíð í Garðahverfi
rétt fyrir utan Hafnarfjörð.
Ég minnist heimsókna í Hlíð,
sem var á þessum árum talsvert
ferðalag, en það var yfirleitt tek-
inn Hafnarfjarðarstrætó frá
Reykjavík í Engidalinn og gengið
þaðan að Hlíð. Oft var Fjóla með í
þessum ferðum og vakti áhuga
okkar eldri systkinanna á sveita-
lífinu. Mikill kærleikur ríkti með
Kristínu móður minni og Fjólu,
bar aldrei skugga á þeirra sam-
band enda reyndist hún móður
minni og okkur systkinum alla tíð
vel. Faðir Fjólu, Sigurbjörn,
dvaldi síðustu æviárin á heimili
Fjólu í Keflavík og einnig tengda-
móðir hennar. Síðasti eftirlifandi
bróðir Fjólu, Axel, átti alltaf at-
hvarf og skjól á heimili systur
sinnar meðan hann lifði. Heimili
Fjólu og Gunnars stóð öllum opið
hvenær sem var. Þetta reyndi ég
sjálfur, sama hvert erindið var,
allt var sjálfsagt.
Fjóla hélt upp á 80 ára afmæli
sitt á síðasta ári og bauð til sín öll-
um sínum nánustu, þar með talið
systkinabörnum sínum. Hún af-
þakkaði allar gjafir en benti fólki
á að það mætti styrkja bágstadda
á hamfarasvæðum í útlöndum.
Þarna var Fjólu rétt lýst, hugsaði
fyrst og fremst um hag annarra.
Hafðu þökk fyrir allt og allt, megi
guð blessa minningu þína.
Viggó Þorsteinsson.
Það er erfitt að hugsa til þess
að þú sért farin frá okkur og
munir aldrei koma aftur, elsku
amma. Þú varst alltaf svo góð við
okkur systur, gerðir allt til þess
að okkur myndi líða sem best og
gladdir okkur öllum stundum. Þú
varst frábær amma í einu orði
sagt.
Það er okkur ofarlega í huga
þegar við komum í sunnudags-
kaffi til þín. Þú varst alltaf annað
hvort búin að baka eitthvað æð-
islegt eða fara út í bakarí. Þú
varst ávallt glöð og brostir öllum
stundum og hlóst að sjálfri þér
þegar þú gerðir mistök. Okkur
þykir vænt um hvað þú hefur gert
mikið fyrir okkur.
Við munum sakna þín mikið.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Berglind María
og Silja Rún.
✝
Frænka okkar og vinkona,
ÁSLAUG HAFLIÐADÓTTIR
lyfjafræðingur,
Bjarkargötu 12,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnu-
daginn 21. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn
5. september kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Hjördís, Jóhanna, Anna Jóna, Óskar Óskarsbörn
og fjölskyldur,
Svanhildur Magnúsdóttir og fjölskylda.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
FINNUR JÓNSSON
verkfræðingur,
Heiðarlundi 8,
Garðabæ,
sem lést á líknardeild Landspítalans fimmtu-
daginn 25. ágúst, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 5. september kl. 15.00.
Þórunn Sigurðardóttir,
Sigurður Finnsson, Lísa Finnsson,
Ólöf Finnsdóttir, Helgi Sigurðsson,
Guðrún Finnsdóttir, Orri Þór Ormarsson,
Hulda Björk Finnsdóttir, Kristbjörn Búason
og barnabörn.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
SIGRÍÐUR INGUNN ÓLAFSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Hæðargarði 33,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 23. ágúst.
Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. september
kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast Sigríðar er bent á Styrktarsjóð
Flateyjarkirkju, s. 848 5315.
Signý Þ. Óskarsdóttir,
Ólafur H. Óskarsson, Ingibjörg Björnsdóttir,
Anna H. Óskarsdóttir, Þorgrímur Ólafsson,
Þráinn Sigurbjörnsson,
Skarphéðinn P. Óskarsson,Valgerður G. Björnsdóttir,
Vigdís S. Ólafsdóttir,
Jónas M. Ólafsson, Guðrún B. Guðlaugsdóttir,
Sigurrós Ólafsdóttir,
Aðalheiður Sigurjónsdóttir,
Skapti S. Ólafsson, Kolbrún G. Gunnarsdóttir,
Ólöf J. Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
bróðir,
DAVÍÐ TRAUSTI ARNLJÓTSSON,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt sunnu-
dagsins 21. ágúst, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju mánudaginn 5. september
kl. 15.00.
Hulda Erlingsdóttir,
Arnljótur Davíðsson,
Ágústa María Davíðsdóttir,
Erlingur Sigurður Davíðsson,
Jens Arnljótsson.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
BJARGHILDUR GUNNARSDÓTTIR,
Sólvöllum 3,
Selfossi,
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi sunnudaginn 28. ágúst, verður
jarðsungin frá Selfosskirkju þriðjudaginn 6. september kl. 13.30.
Mjallfríð Sigríður Jakobsdóttir, Páll Jónsson,
Bjarghildur Pálsdóttir, Eyjólfur Jarl Einarsson,
Jóna Magnea Pálsdóttir,
Jakob Pálsson, Guðrún Alda Jónasdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir mín, félagi og vinur,
SUSANN MARIETTE SCHUMACHER
fyrrverandi flugfreyja,
andaðist í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn
29. ágúst.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni, Reykjavík,
fimmtudaginn 8. september kl. 15.00.
Þökkum fyrir sýndan kærleik, ást og vinarhug.
Þorvaldur Skúlason Schumacher.