Morgunblaðið - 09.09.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Þrátt fyrir að meginreglan í lögum
nr. 19/1966 um eignarrétt og af-
notarétt fasteigna sé bann við
kaupum erlendra aðila utan Evr-
ópska efnahagssvæðisins á fast-
eignum hér á landi, er sú heimild
sem innanríkisráðherra er veitt í
sömu lögum til að víkja frá því
banni, óheppilega víðtæk. Í raun
svo víðtæk að það er spurning
hvort um of víðtækt framsal á lög-
gjafarvaldi til framkvæmdavaldsins
sé að ræða. Tímabært er að endur-
skoða lögin.
Þetta var meðal þess sem kom
fram hjá Karl Axelssyni hrl. hjá
Lex og dósenti við lagadeild Há-
skóla Íslands, og Eyvindi V. Gunn-
arssyni, dósenti við lagadeild Há-
skóla Íslands, á fundi
Lögfræðingafélags Íslands í gær,
um þau lög sem snúa að kaupum
erlendra aðila, þá sérstaklega aðila
utan Evrópska efnahagssvæðisins,
m.a. með hliðsjón af hugsanlegum
kaupum Huang Nubo á Grímsstöð-
um á Fjöllum.
Mikilvægt að skoða samhengi
Karl sagði í þessu sambandi mik-
ilvægt að átta sig á hversu stórt
hlutfall af íslensku landsvæði væri í
eigu ríkisins. Samkvæmt fasteigna-
mati 2012 næmi verðmæti íslenskra
fasteigna 4.356 milljörðum, þar
væri fjöldi jarða 17.500 en skráðar
jarðir væru 6.562, þar af 4.300 í
ábúð skv. tölum frá 1. jan 2009. Um
50% landsins teljist þjóðlenda eftir
að búið sé að úrskurða í 2/3 hluta
þjóðlendumála. Í ríkiseigu væru
400 jarðir en af þeim 161 í eyði.
Verði niðurstöður eftirfarandi þjóð-
lendumála í samræmi við þær fyrri
megi gera ráð fyrir að í heildina
séu um 60-70% landsins í ríkiseigu
sem sé með því mesta sem gerist í
vestrænum löndum. Þetta verði að
hafa í huga þegar verið er að tala
um ráðstöfun einkaeignarréttinda
og svo þess lands sem er á forræði
ríkisins.
Sinnuleysi áhyggjuefni
Í ljósi þessa væri áhyggjuefni
hversu sinnulaust íslenska ríkið
væri um þessa verðmætu og þýð-
ingarmiklu eign sína. Karl sagði
einnig vanta umræðu um hvað ríkið
ætli sér með þessi gríðarlegu auð-
æfi í sambandi við m.a. skipulag og
eignarhald.
Karl taldi tímabært að skoða lög-
in um afnotarétt fasteigna en það
þýddi þó ekki að hann væri að taka
efnislega afstöðu til þess að hverfa
ætti frá því fyrirkomulagi sem er
núna. Sú undanþáguheimild sem
ráðherra hefði í dag væri mjög
óheppilega víðtæk og matskennd.
Hún væri í raun „af því bara“-
valdaframsal þar sem vantaði að
skilgreina þau sjónarmið sem ætti
að hafa í huga við ákvarðanatöku.
Karl og Eyvindur voru sammála
um að ef áfram ætti að búa við það
kerfi að íbúar utan EES þurfi leyfi
til að öðlast eignarrétt yfir fjárfest-
ingum, þyrfti að skilgreina miklu
nánar hvaða reglum undanþágan
ætti að lúta en Eyvindur telur að
túlka eigi hana þröngt.
Karl tók fram að þar sem ekki
væri birtur rökstuðningur með
þeim ákvörðunum sem hefðu verið
teknar, væri ekki ljóst hvaða mál-
efnalegu sjónarmið byggju að baki
leyfisveitingum og synjunum. Síð-
ustu ár hefði framkvæmdin verið sú
að heimila fasteignakaup erlendra
aðila og þar þyrftu því að vera
veigameiri rök til að synja í því
ljósi. Ákvörðun yrði að vera tekin á
grundvelli gildandi laga og reglna.
Að öllu þessu virtu þyrftu að vera
ríkar og málefnalegar ástæður að
baki til að synja viðkomandi aðila
um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum.
Endurskoðun er tímabær
Lög og reglur um kaup erlendra aðila á fasteignum hér á landi þurfa að vera skýrari
Heimild innanríkisráðherra til að víkja frá banni við fjárfestingum óheppilega víðtæk
Álitamál
» Hugsanleg kaup Huang
Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum
hafa vakið umræðu um heim-
ildir erlendra aðila til kaupa á
íslensku landi.
» Um er að ræða nálægt 75%
af jörðinni sem er um 30.000
hektarar eða 300 km².
» Ríkið á 25% í óskiptri sam-
eign og getur því sett ráðstöf-
unarrétti kaupanda ríkar
skorður þegar kemur að fram-
kvæmdum.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Áhugi Lögfræðingafélagið hélt fund um landakaup útlendinga á Íslandi í gær. Þar var meðal annars farið yfir lagaumhverfið eins og það er núna.
Grímsstaðir á fjöllum
Jökulsá
á fjöllum
Hringvegur (1)
Hringvegur (1)
Ví
ði
da
ls
fjö
ll Þjóðfell
Haugsnibba
(Mývatn)
(V
op
na
fj.
)
(Egilsstaðir)
Hólsfjöll
Grímsstaðir
á fjöllum
Þjóðlenda
Kortið er samkvæmt úrskurði Óbyggða-
nefndar sem var staðfestur í
héraðsdómi á síðasta ári.
Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar
sem tekur það fyrir í þessummánuði.
Grunnkort: LMÍ
„Menn verða að
byrja á því að
gera upp við sig
hvort álitaefnið
er það hvort er-
lendir aðilar
mega almennt og
við viljum að þeir
eigi fasteignir hér
á landi. Eða hvort
við erum að tala
um það almennt séð, burtséð frá því
hvort menn eru íslenskir eða erlend-
ir, að þrengja eigi inntak eignarrétt-
arlegra heimilda fasteignaeigenda
að náttúruauðlindum almennt,“ seg-
ir Karl Axelsson, hrl. og dósent við
lagadeild Háskóla Íslands.
Endurskoðun á þeim þætti snúist
um allt annað mál en forsendur eign-
arhalds erlendra aðila á fasteignum
á Íslandi. Ef útlendingar eignist á
annað borð fasteignaréttindi á Ís-
landi eigi ekki að gildar aðrar reglur
um inntak þess eignarréttar en þeg-
ar Íslendingar eiga í hlut. Þeir séu
settir undir öll þau sömu skilyrði og
regluverk og Íslendingar varðandi
meðferð eigna sinna.
Skýra þarf
hvert sé
álitaefnið
Munur á heimild til
eignar og meðferð
Karl Axelsson
Eyvindur G.
Gunnarsson, dós-
ent við lagadeild
Háskóla Íslands,
sagði mikilvægt
að greina á milli
þess sem fælist í
inntaki eign-
arráða eiganda
annars vegar og
svo þeirrar
grundvall-
arspurningar hvort útlendingar ættu
að geta keypt fasteignir hér. Hann
lagði mikla áherslu á að þegar und-
anþágubeiðnin væri tekin til með-
ferðar yrði að hafa í huga að meg-
inreglan væri bann, þrátt fyrir þá
staðreynd að undanþágur væru gríð-
arlega margar, eða 24 frá 2007. Því
mætti færa rök fyrir því að ráðherra
bæri að túlka undanþáguna þröngt.
Hafa yrði í huga að beiðnin sem
væri núna til skoðunar væri vegna
300 ferkílómetra af landi. Vegna
stærðarinnar væri umhugsunarefni
hvort hægt væri að beita undanþágu
frá jafnræðissjónarmiðum, þar sem
hingað til hefðu undanþágur verið
veittar vegna mun smærri jarða og til
íbúðakaupa.
Meginreglan
er bann
Eyvindur G.
Gunnarsson
Tekist var á um réttmæti neyð-
arlaganna í Hæstarétti í gær en
Héraðsdómur hefur þegar úrskurð-
að að þau haldi. Sjö dómarar dæma
í þeim ellefu málum sem eru á dag-
skrá Hæstaréttar og tengjast falli
gömlu viðskiptabankanna. Neyð-
arlögin voru sett í miðju banka-
hruninu og gera það að verkum að
innistæðueigendur njóta forgangs
við uppgjör á þrotabúum bank-
anna. Staðfesti Hæstiréttur dóm
héraðsdóms rennur meirihluti fjár-
muna þrotabús Landsbankans til
hollenskra og breskra stjórnvalda.
Morgunblaðið/Golli
Sjö dómarar fjalla um neyðarlögin
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Myndlista
vörur
í miklu ú
rvali
Strigar, ótal stærðir
frá kr.195
Acryllitir 75 ml
kr.480
Gólftrönur
frá kr.4.395
Þekjulitir/Föndurlitir
frá kr.480 16 ára
Verkfæralagerinn
Fullt af nýjungum í lista-og föndurdeild
Blýantar, Strokleður, Trélitir, Tússlitir,
Teikniblokkir, Teiknikol, Föndurlitir,
Þekjulitir, Vatnslitir, Akrýllitir, Olíulitir,
Penslar, Skissubækur, Vattkúlur, Vír,
Vatnslitablokkir, Leir, Lím, Kennara-
tyggjó, Föndurvír,Límbyssur, Lóðboltar,
Hitabyssur, Heftibyssur, Málningar-
penslar og málningarvörur
í miklu úrvali