Morgunblaðið - 09.09.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Eggert
Óðalssetur Húsið við Sólvallagötuna er einstaklega glæsilegt og þar líður þeim Halldóru og Jósu mjög vel.
inni núna en það eru tuttugu og
fjórir nemendur við skólann, allt
stelpur. Við erum flestar um tvítugt
og nýbúnar að ljúka stúdentsprófi
en það er ein yngri stelpa sem er 18
ára og svo ein sem er ellefu árum
eldri en við og hún er lærður hjúkr-
unarfræðingur.“
Er ekki í lagi með þig?
En hvers vegna völdu þær að
fara í Hússtjórnarskóla í Reykja-
vík? „Okkur fannst tilvalið að taka
smáaukasnúning áður en við færum
í háskólanám. Við erum ekki búnar
að ákveða endanlega hvað við ætl-
um að læra í háskólanum. Við vor-
um báðar á náttúrufræðibraut í MA
og okkur langaði til að gera eitt-
hvað allt annað. Og svo langaði okk-
ur líka til að læra aðeins á Reykja-
vík og kynnast lífinu hér.“ En þegar
Halldóra hringdi í Jósu og stakk
upp á að þær færu saman suður í
Hússtjórnarskólann leist henni ekki
meira en svo á það. „Ég spurði
hvort það væri ekki í lagi með hana,
en nú sé ég ekki eftir að hafa skellt
mér, mér finnst þetta snilld,“ segir
Jósa sem á frænku sem hafði verið í
skólanum og mælti eindregið með
náminu.
Námið er aðeins ein önn, en
miklu námsefni er komið fyrir á
stuttum tíma. „Okkur er skipt í tvo
hópa, annar hópurinn er í handa-
vinnu en hinn í matreiðslu og svo er
skipt á miðri önn. Við erum í handa-
vinnuhópnum núna fyrri hlutann af
önninni og þá lærum við útsaum,
fatasaum, prjón og hekl. Hinn hóp-
urinn sem er í matreiðslunni er í
vefnaði og líka aðeins í útsaum og
prjóni. Við erum allar í næring-
arfræði og vörufræði, sem eru mjög
notalegir tímar því við prjónum eða
saumum á meðan á kennslu stend-
ur. Þetta er mjög heimilislegt allt
saman. Hóparnir skiptast á að út-
búa morgunmat og kaffi, en það er
skyldumæting í morgunmat klukk-
an átta. Við erum í tímum til klukk-
an fimm á daginn en eftir það er
nóg að gera í heimavinnunni.“
Í berjamó með kakó
og heimasmurt nesti
Þær segjast hvorug hafa
reynslu af handavinnu eða mat-
reiðslu en þó hefur Halldóra prjón-
að töluvert. „Ég ólst upp við
prjónaskap því ég var mikið hjá
ömmu minni þegar ég var lítil og
hún var alltaf að prjóna.“ Þeim
finnst námið skemmtilegt og meðal
þess sem var á námskránni í vik-
unni var að fara í berjamó með
kakó og nesti. Og læra svo að sulta
og safta. „Hér er líka alltaf verið að
lauma að okkur húsráðum sem við
búum að alla ævi. Og það er gaman
að geta saumað á sig sín eigin föt.“
Langar að fara saman
á heimshornaflakk
Þær ætla sér báðar í heilbrigð-
istengt nám í háskóla í haust en eru
þó ekki búnar að ákveða endanlega
hvað það verður. Jósa á von á að
fara í hjúkrunarfræði. „Mamma og
systir mín eru hjúkrunarfræðingar
og líka báðar systur mömmu og
mágkona hennar, svo þetta er allt í
kringum mig. En svo er aldrei að
vita hvað ég geri.“ En þær langar
báðar líka til að fara á svolítið
heimshornaflakk eftir að þær klára
Hússtjórnarskólann um áramótin,
og skoða veröldina áður en þær
fara í háskólanám. „Þó að það væri
ekki nema í nokkrar vikur, þá væri
æðislegt að skoða sig um. Okkur
langar eitthvað til Suður-Evrópu,
kannski í lestarferðalag,. Og það
væri gaman að fara á eitthvert
námskeið, kannski tungumála-
námskeið. Vonandi náum við að
spara pening til ferðalags.“
Á Baðstofuloftinu Það er notalegt undir súðinni í herberginu þeirra.
Ég var ein að sauma
niðri til kl. hálfþrjú eina
nóttina, þá varð ég svo-
lítið smeyk.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík
er með aðsetur í einu fallegasta
húsi borgarinnar á Sólvallagötu
12 í Reykjavík. Húsið var byggt
árið 1921 af Jónatani Þorsteins-
syni.
Skólinn hefur starfað óslitið
frá árinu 1942, ýmist sem heils-
ársskóli eða í annarri mynd.
Árið 1975 breyttist Hús-
mæðraskóli Reykjavíkur í Hús-
stjórnarskólann í Reykjavík og
var þá gerður að ríkisskóla.
Námið nú er ein önn, sem
hefst að hausti eða um áramót,
og er metið til 24 eininga.
Nýnemar þurfa að hafa lokið
grunnskólaprófi og vera orðnir
16 ára. Skólinn tekur við 24
nemendum, þar af geta 15 búið
á heimavist.
Á hverri önn er farið í skóla-
ferðalag, dagsferð í rútu með
heimasmurt nesti og á haust-
önn bætist við berjaferð.
Fastur liður er ferð í leikhús
og út að borða.
Tvö foreldraboð eru haldin á
hvorri önn en þá bjóða nem-
endur foreldrum eða öðrum að-
standendum til veislu og handa-
vinnusýningar.
Í lok annar er opið hús með
kaffisölu, sölu á kökum og sult-
um og handavinnusýning.
Hússtjórnar-
skólinn
í Reykjavík
HEFUR STARFAÐ
ÓSLITIÐ FRÁ 1942
Kaka Gaman er að læra að baka.
Nýjasta nýtt hjá netversluninni Kolors, sem sérhæfir sig í framleiðslu á um-
verfisvænum tískuvörum, er hliðartöskur og tölvutöskur sem gerðar eru úr
dekkjaslöngum úr reiðhjólum. Ólin er hins vegar gerð úr öryggisbeltum úr bíl-
um. Töskurnar eru því sannarlega umhverfisvænar og um leið vandaðar og
smart.
Dekkjaslöngur víðs vegar að
Hönnun og framleiðsla taskanna fer fram hjá Alchemy Goods (AG) í Seattle í
Bandaríkjunum. Nú þegar hefur fyrirtækið endurnýtt yfir 182.000 dekkjaslöngur
við framleiðslu á þessum vörum og þannig komið í veg fyrir að þær endi sem land-
fylling í náttúrunni. Alchemy Goods fær dekkjaslöngurnar frá hjólaverkstæðum
og hjólaáhugamönnum víðsvegar um Bandaríkin. Þeir eru t.d. í samstarfi við
hjólaframleiðandann Trek. Hjá Kolors fást einnig korta- og seðlaveski gerð úr
dekkjaslöngum.
Tíska
Töskur úr dekkjaslöngum
Skór og fylgihlutir
Sparilegir Marie Claire-skór og stígvél
Skór undir heitinu Marie Claire hafa verið framleiddir frá árinu 1960 í Frakklandi og hefur hönnunin
ætíð verið innblásin af franskri tísku. Hönnunin er stílhrein og fáguð og stendur merkið fyrir glæsi-
leika í Parísarstíl. Nú í haust selur verslunin Bata í Smáralind Marie Claire-skóna í fyrsta sinn.
Skórnir í haustlínunni eru í ýmsum litum, svörtum, dökkbrúnum og koníaksbrúnum og í línunni eru
bæði ökklaskór og stígvél. Línan er sparileg og flestir skórnir með hælum, misháum þó. Einnig fást
í sama merki töskur og belti í sömu litum og skórnir. Þannig má para aukahluti og skó saman á
smekklegan og flottan hátt.