Morgunblaðið - 09.09.2011, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Hjörtur J. Guðmundsson
Anna Lilja Þórisdóttir
„Þarna var verið að vinna drög að
samningum, þetta var ekkert bak-
tjaldamakk,“ fullyrti Katrín Júl-
íusdóttir, iðnaðarráðherra, í um-
ræðum á Alþingi í gærmorgun um
fund Steingríms J. Sigfússonar,
fjármálaráðherra, með Ross Beaty,
forstjóra Magma Energy, í ágúst
2011 þar sem þeir komust að sam-
komulagi um að fyrirtækið mætti
eignast allt að helmingshlut í HS
Orku.
Um málið var fjallað í Morgun-
blaðinu í gær og sagðist Katrín telja
að dregnar væru rangar ályktanir af
þeim gögnum sem umfjöllun blaðs-
ins bygðist á. Heilmiklar umræður
urðu um umfjöllun Morgunblaðsins
undir liðnum óundirbúnar fyrir-
spurnir á Alþingi í gærmorgun.
Öðrum hnöppum að hneppa
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hóf umræðuna
um málið og spurði Svandísi Svav-
arsdóttur, umhverfisráðherra, út í
umfjöllunina.
Svandís svaraði með því að hafna
því alfarið að umfjöllun Morgun-
blaðsins gæti átt við rök að styðjast
en sagðist ekki hafa kynnt sér hana.
„Ég verð að virða háttvirtum þing-
manni það til vorkunnar að þurfa að
byggja málflutning sinn á frétta-
skýringu í Morgunblaðinu,“ sagði
Svandís. „Ég hef hins vegar ekki
gefið mér tíma í það í morgun að
lesa Morgunblaðið, hef haft öðrum
hnöppum að hneppa, og tek þess
vegna málflutningi þingmannsins
með fyrirvara og áskil mér rétt til að
kanna það sem liggur að baki.“
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
maður Framsóknarflokksins, kallaði
þá eftir því að þau gögn sem umfjöll-
unin studdist við yrðu gerð þing-
mönnum aðgengileg. Fleiri þing-
menn stjórnarandstöðunnar tóku
undir þessa kröfu síðar í um-
ræðunni.
Ekki ástæða til pestar
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, krafðist þess að
fjármálaráðherra svaraði fyrir mál-
ið. „Það er alveg bráðnauðsynlegt að
hæstvirtur fjármálaráðherra komi
nú þegar til þingsins og (...) skýri
það að hafa með svo beinum hætti,
eins og þarna er lýst, beitt sér gegn
nauðsynlegri erlendri fjárfestingu,“
sagði Ólöf. Álfheiður Ingadóttir,
þingmaður VG, sagðist ekki efast
um að ráðherrann myndi bregðast
við beiðninni. „Ég vil svo segja að þó
að Agnes Bragadóttir hnerri er ekki
ástæða til að þingheimur allur legg-
ist í pest,“ sagði Álfheiður.
Eftir þessi ummæli var Álfheiður
áminnt af forseta Alþingis, sem bað
þingmenn um að nafngreina ekki þá
sem ekki gætu borið hönd fyrir höf-
uð sér í þessari umræðu.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, gerði fjarveru
fjármálaráðherra einnig að um-
ræðuefni og gagnrýndi viðbröð VG
við umfjöllun Morgunblaðsins.
„Og hvernig bregðast þingmenn
Vinstri grænna við? Jú, með því að
reyna að skjóta sendiboðann, ráðast
á blaðamanninn. Það er nú stór-
mannlegt eða hitt þó heldur.“
Heit umræða
á þinginu um
umfjöllunina
Ekkert baktjaldamakk Óþarfi að
leggjast í pest þótt blaðamaður hnerri
Þing Katrín Júlíusdóttir og Svandís
Svavarsdóttir tóku þátt í umræðunni.
Morgunblaðið/Eggert
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ef þessar upplýsingar sem koma
fram í Morgunblaðinu eru réttar er
það auðvitað áhyggjuefni að aðilar
innan ríkisstjórnar séu að vinna
gegn verkefninu, sérstaklega í ljósi
þess að Norðurál og ríkisstjórnin
skrifuðu undir fjárfestingarsamning
fyrir Helguvíkurverkefnið í ágúst
2009, sem byggist á heimild í lögum
frá Alþingi fyrr á því ári,“ segir
Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls, um þær upplýsingar sem
koma fram í gögnum fjármálaráðu-
neytisins um samskipti stjórnvalda
við Magma, HS Orku, Norðurál og
Íslandsbanka.
„Það er búið að eyða mikilli vinnu
og miklum peningum í þetta verk-
efni, í því trausti að ríkisstjórnin
standi við sitt. Við hljótum að geta
gert ráð fyrir því að hún muni gera
það. Þetta breytir ekki því að við
munum halda áfram að vinna verk-
efninu farveg og koma því af stað
eins hratt og
mögulegt er,“
segir Ragnar en
verið er að vinna
með öllum hlutað-
eigandi aðilum að
því að koma
byggingu Norð-
uráls í Helguvík
af stað á ný.
Ragnar segir
helst standa upp
á HS Orku að standa við samninga
um orkuöflun til álversins. Aðrir
þættir liggi fyrir, búið sé að hanna
verkefnið, gera samninga við alla
helstu birgja og fjármögnun liggi
fyrir. „Það er ekki eftir neinu að bíða
hvað okkur varðar,“ segir Ragnar.
Spurður hvort Norðurál hafi fund-
ið fyrir þeirri andstöðu fjármálaráð-
herra við verkefnið, sem fram kom í
gögnum ráðuneytisins, segir Ragnar
að upplýsingarnar hafi komið honum
á óvart. Hins vegar hafi einstakir að-
ilar unnið gegn álverinu í Helguvík,
m.a. með greinaskrifum sem ekki
hafi alltaf byggst á staðreyndum.
„Kannski er þetta hluti af ein-
hverri pólitík sem menn telja að sé
sér hagfelld,“ segir Ragnar og bætir
við að margt í þessu ferli hafi tekið
langan tíma og erfitt að henda reiður
á af hverju það sé.
Ragnar segir fyrirtækið ekki hafa
ákveðið hvernig brugðist verði við
framkomnum upplýsingum. Áfram
verði unnið að verkefninu og eðlileg-
ast sé að gera það með iðnaðarráðu-
neytinu, umsjónaraðila fjárfesting-
arsamningsins frá árinu 2009.
Morgunblaðið/Kristinn
Helguvík Frá skóflustungu að álveri Norðuráls sumarið 2008. Þáverandi ráðherrar mættu og bjartsýni ríkti á
Suðurnesjum um verkefnið. Enn er álverið ekki risið að fullu en Norðurálsmenn vona að stjórnvöld standi við sitt.
Áhyggjuefni ef unnið
er gegn verkefninu
Forstjóri Norðuráls vonast til að stjórnvöld standi við sitt
Ragnar
Guðmundsson
Álverið í Helguvík
» Unnið hefur verið að undir-
búningi álvers í Helguvík frá
2004. Skóflustunga var tekin í
júní árið 2008.
» Vonast Norðurál til að taka
álverið í notkun 2012 og það
verði fullbúið árið 2016.
Gunnar Þórarinsson, formaður
bæjarráðs Reykjanesbæjar, telur
að fjármálaráðherra hljóti að íhuga
afsögn í ljósi framkominna upplýs-
inga varðandi mál tengd byggingu
álvers í Helguvík.
Gunnar sendi frá sér svohljóð-
andi yfirlýsingu í gær: „Það eru al-
varlegri tíðindi en orð fá lýst að
háttvirtur fjármálaráðherra, Stein-
grímur J. Sigfússon, hafi beitt sér
bak við tjöldin til að tryggja að
ekkert yrði af uppbyggingu álvers í
Helguvík. Slík atlaga að atvinnu-
málum á Suðurnesjum er afar
ógeðfelld og með öllu ólíðandi.
Málið er enn alvarlegra fyrir þær
sakir að fjármálaráðherra ber fulla
ábyrgð á fjár-
festingarsamn-
ingi ríkisstjórn-
arinnar og
Norðuráls, þar
sem því er heitið
að veita verkefn-
inu fullan stuðn-
ing. Í ljósi þessa
hlýtur ráðherra
að íhuga taf-
arlausa afsögn.“
Gunnar sagði í samtali við mbl.is
að verkefninu hefði verið hrundið
af stað með glæsibrag og núver-
andi ríkisstjórn þá verið „í klapp-
liðinu“. Síðan hefði hvorki gengið
né rekið.
Fjármálaráðherra hljóti að íhuga afsögn
Gunnar
Þórarinsson
Alþingismennirnir Tryggvi Þór
Herbertsson, Jón Gunnarsson og
Gunnar Bragi Sveinsson hafa óskað
eftir fundi í iðnaðarnefnd þar sem
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra útskýri mál sitt
vegna Magma.
Alþingismennirnir sendu Krist-
jáni L. Möller, formanni iðn-
aðarnefndar, svohljóðandi bréf: „Í
tilefni af frétt í Morgunblaðinu í
morgun um að hæstvirtur fjár-
málaráðherra hafi ástundað ein-
hverskonar baktjaldamakk í
tengslum við Magma-málið svokall-
aða óskum við undirritaðir eftir
fundi í hæstvirtri iðnaðarnefnd þar
sem fjármálaráðherra útskýrir mál
sitt. Jafnframt óskum við eftir að fá
aðgang að þeim gögnum sem rætt
er um í fréttinni.
Þá teljum við æskilegt að ráðu-
neytisstjórar sem voru starfandi á
þeim tíma í iðnaðar- og fjár-
málaráðuneyti komi einnig fyrir
nefndina.“
Vilja fá fund í iðnaðarnefnd