Morgunblaðið - 09.09.2011, Page 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Hinn 15. maí 2010 var hið umdeilda skúffufyrirtæki í
Svíþjóð, Magma Energy Sweden A.B., komið til sög-
unnar og orðið aðili að samningum við stjórnvöld.
Þannig sendi Ásgeir Margeirsson, starfsmaður
Magma á Íslandi, iðnaðarráðuneytinu drög að sameig-
inlegri viljayfirlýsingu iðnaðarráðuneytis og Magma
Energy Sweden A.B.
Í tölvupósti sem Ásgeir ritar Kristjáni Skarphéð-
inssyni í iðnaðarráðuneytinu, með drögunum segir
m.a.: „Sælir herramenn. Hér viðhengt er uppkast að
MoU (Memorandum of Understanding – viljayfirlýsing
– innskot blm.) eins og rætt hefur verið. Vinsamlegast
rennið yfir. Ég er að velta fyrir mér hvort ekki sé
ástæða til að koma þessu sem fyrst í hendur fjár-
málaráðuneytisins, vegna þess sem RÚV er að reyna
að grafa upp í dag.“
Ákveðnir viðmælendur Morgunblaðsins telja að Ás-
geir með þessum orðum sé að vísa til þess að frétta-
stofa RÚV hafi fengið veður af því að Íslandsbanki hafi
lekið tölulegum upplýsingum úr tilboði Norðuráls í
Geysir Green til forsvarsmanna Magma og Magma
hafi af þeim sökum þurft að hækka tilboð sitt í Geysir
Green um 10 milljónir dollara. Af þessu tilefni hafa
viðmælendurnir spurt, hvers vegna ríkisstjórn Íslands
ætti að hafa áhyggjur af því að Íslandsbanki læki upp-
lýsingum um tilboð sem honum hafi borist í Geysir
Green.
Benda þeir á að vart geti verið um aðrar skýringar
að ræða en þá að ríkisstjórnin hafi gefið bankanum
fyrirmæli um að leka slíkum upplýsingum til Magma,
svo traust mætti verða að Magma yrði með hæsta til-
boðið.
Í drögunum að hinni sameiginlegu viljayfirlýsingu
segir m.a. undir liðnum „Áform samningsaðila“:
„Aðilar munu gera það sem í þeirra valdi stendur til
þess að viðræður eigi sér stað við eigendur land- og
jarðvarma á Reykjanesi, (einkum bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar) til að kanna til þrautar hvort hægt sé að
breyta núverandi leigusamningum, þannig að samn-
ingar verði í samræmi við ætlun ríkisstjórnarinnar.“
Gagnrýnendur þessarar viljayfirlýsingar hafa bent á
að það hljóti að sæta nokkurri furðu, að ráðuneytið
skuli vera aðili að slíkri yfirlýsingu, því þegar hún er
samin, er í gildi orkusölusamningur til Norðuráls í
Helguvík og spyrja hvers vegna iðnaðarráðuneytið var
að skipta sér af samningum á milli hagsmunaaðila.
Magma í Svíþjóð og iðnaðarráðuneytið
Afskipti ráðuneytis af samningum
Einar Karl Haraldsson, þáverandi upplýsingafulltrúi
forsætisráðherra, ritaði minnisblað til Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sig-
fússonar fjármálaráðherra hinn 30. mars 2010. Efni
minnisblaðsins var „Staðan í málefnum Helguvík-
urverkefnisins 30. mars 2010.“
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var þetta
minnisblað ritað í kjölfar fundar sem Indriði H. Þor-
láksson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, og
Einar Karl Haraldsson áttu með þeim Ross Beaty og
Ásgeiri Margeirssyni upp úr miðjum marsmánuði,
þar sem enn var verið að fjalla um hversu stóran
hlut Magma fengi að kaupa.
Samkvæmt sömu heimildum voru miklar áhyggjur
af því hjá eigendum Geysir Green, að lokast inni í fé-
laginu, ef Magma fengi að kaupa yfir 50% í HS Orku.
Í upphafi minnisblaðsins segir Einar Karl að horf-
ur séu á því að gengið verði frá 20 milljóna dollara
hlutafjáraukningu (2,5 milljarðar ísl. króna) á stjórn-
arfundi HS Orku þann dag sem minnisblaðið er rit-
að, með þátttöku Geysir Green Energy og Magma.
Þetta sé gert til að uppfylla skilyrði í lána-
samningum um
hlutafjáraukningu
fyrir 1. apríl.
Síðan segir
orðrétt: „Ís-
landsbanki
mun halda
áfram við-
ræðum um
sölu
Geysis
Green
Energy
og nú er stefnt að því að ljúka samningum við
Magma Energy í apríl. Ekki standa yfir viðræður við
aðra aðila að svo stöddu. Hugmyndir bæði Framtaks
og Norðuráls um aðkomu að málinu (Norðurál og
Framtak höfðu lýst yfir áhuga á að taka þátt í að
kaupa hlut Geysir Green í HS Orku – innskot blm.)
virðast bæði hafa verið of takmarkaðar og fjarri
þeim verðtillögum sem uppi eru í viðræðum Íslands-
banka og Magma. Rætt er um meirihluta Magma í
HS Orku og ávöxtunarfélag íslenskra aðila sem
hefðu ítakahlut í HS Orku …“
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins höfðu
ákveðnir talsmenn Íslandsbanka, sem fór með stjórn
á Geysir Green frá því í árslok 2009 greint for-
ráðamönnum Norðuráls frá því að Geysir Green yrði
selt að undangengnu opnu söluferli. Þær upplýs-
ingar voru veittar snemma árs 2010, á svipuðum
tíma og Íslandsbanki var að ganga frá sölunni á
Geysir Green til Magma, í endaðan mars 2010. Um
þetta leyti upplýstu menn úr Íslandsbanka forsvars-
menn Norðuráls um það að söluferlið á Geysir Green
Energy gæti í fyrsta lagi farið fram eftir 6 til 9 mán-
uði, eða seint á árinu 2010.
Þetta hefur Morgunblaðið
eftir ólíkum heimildum en
eins og kunnugt er var
gengið frá sölunni á
Geysir Green til
Magma í maí
2010 og
ákvörðun þar
að lútandi
hafði verið
tekin mun
fyrr.
Einar Karl Haraldsson
Ljúka samningum við Magma í apríl
Geysir Green gerði hluthafasamkomulag við Magma í
nóvember 2009 sem sagt er hafa veitt Magma mjög
sterk réttindi umfram hlutabréfaeign félagsins, án þess
að nokkuð hafi komið í staðinn, að því er virðist. Ásgeir
Margeirsson skrifaði undir fyrir hönd Geysir Green í
nóvember 2009. Hann hætti svo störfum fyrir Geysir
Green í desember 2009, og var orðinn starfsmaður
Magma í ársbyrjun 2010.
Eignarhlutur Magma Energy í HS Orku fór í um 41%
í desember 2009 og þá átti Geysir Green 57%. GGE var
þegar hér var komið sögu að mestu leyti í eigu Ís-
landsbanka en að litlu leyti í eigu Landsbankans.
Ofangreint hluthafasamkomulag hefur verið
harðlega gagnrýnt af heimildamönnum sem rætt
hefur verið við, sem spyrja m.a. hvort Íslands-
banki hafi vitað af þessu og hvort þetta hafi verið
gert með samþykki bankans. Jafnframt velta
menn vöngum yfir því hvort þetta hafi
verið með vitund og vilja lítilla hluthafa
eins og Garðs og Grindavíkur, og hvort
þessi sveitarfélög hafi verið með í ráðum
við gerð hluthafasamkomulagsins.
Í drögum að rammasamkomulagi rík-
isstjórnarinnar og Magma frá því í ágúst
2009 kemur fram að Magma hafi í
hyggju að bjóða stjórnendum hjá Geysir
Green stjórnunarstöður hjá Magma.
Það gekk eftir. Snemma árs 2010
hafði Ásgeir Margeirsson, fyrrverandi
forstjóri Geysir Green Energy, sem þar áður var for-
stjóri Reykjavík Energy Invest (REI), verið ráðinn til
þess að sinna málefnum Magma á Íslandi og jafnframt
hafði Magma ráðið til sín fjóra tæknimenn sem áður
störfuðu hjá Geysir Green Energy.
Menn hafa velt vöngum yfir því hvers vegna þurfti að
vera klásúla í rammasamkomulagi ríkisstjórnarinnar
og Magma um það hvernig starfsmannamálum Magma
yrði háttað. Á það er jafnframt bent að mörgum mán-
uðum áður en Ásgeir Margeirsson undirritaði hluthafa-
samkomulagið við Magma fyrir hönd Geysir Green,
var hann „á kafi í viðræðum við Magma Energy og
Reykjanesbæ um framtíðarmunstur orkumálanna
á Reykjanesi“, eins og sagði í tölvupósti frá hon-
um til Össurar Skarphéðinssonar, þáverandi iðn-
aðarráðherra, hinn 27. apríl 2009.
Þess vegna er ekki óeðlilegt að spurt sé
hverra hagsmuna Ásgeir var að gæta, í
hlutverki sínu sem forstjóri Geysir
Green Energy allt árið 2009. Voru það
hagsmundir Geysir Green? Voru það
hagsmunir Íslandsbanka, eftir að
stjórn félagsins fór í hendur bankans á
seinni hluta ársins 2009? Eða voru
hagsmunir Magma alltaf í fyrirrúmi
hjá forstjóranum sem rúmum mánuði
eftir að hann hætti sem forstjóri
Geysir Green var orðinn starfs-
maður Magma?
Ásgeir Margeirsson
Frá Geysir Green til Magma
Ljósmynd/Þorkell
Helguvík Brátt
ræðst hvort
framkvæmdir
við álverið fara
á fullt eða ekki.
Jóhanna Sigurð-
ardóttir og Einar
Karl Haraldsson
Steingrímur J.
Sigfússon og
Indriði H. Þorláksson
Ásgeir
Margeirsson