Morgunblaðið - 09.09.2011, Page 36
36 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
SJÁÐU ÞENNAN
HAMINGJUSAMA GULLFISK
HANN SYNDIR UM Í
FISKABÚRINU SÍNU, ÁHYGGJULAUS
EN ÞARNA
KEMUR VONDI
KÖTTURINN
LOKSINS
FER EITTHVAÐ
SKEMMTILEGT
AÐ GERAST
ÉG HEITI
KALLI BJARNA!!
Á ÉG
AÐ SEGJA ÞÉR
FRÁ SVOLITLU
SÆTU SEM SYST-
IR MÍN GERÐI?
HÚN HEITIR SALKA.
ÞÚ VEIST AÐ...
ER EFTIRRÉTTURINN
INNIFALINN Í AÐALRÉTTINUM
EÐA ÞARF ÉG AÐ FARA AÐRA
FERÐ TIL AÐ NÁ Í HANN?
HVER ER
ÞETTA SEM
ELTIR ÞIG UM
ALLT MEÐ BLAÐ
OG PENNA?
ÉG
MISSTI
HUNDALEYFIÐ
MITT
ÉG MÁ EKKI
GERA NEITT
HUNDALEGT FYRR
EN ÉG ER BÚINN
AÐ STANDAST
PRÓF
ÉG VIL AÐ ÞÚ BYRJIR
AFTUR Á ÞESSU SAMTALI,
ÞÚ GLEYMDIR AÐ ÞEFA AF
RASSINUM Á HONUM ÞEGAR
ÞIÐ HITTUST!
EN ÞETTA
ER RUNÓLFUR,
VINUR MINN!
KONUNNI
MINNI FINNST
VANTA RÓMANTÍK Í
SAMBANDIÐ OKKAR
ÉG ER
SÉRFRÆÐINGUR
Í RÓMANTÍK
KOMDU KONUNNI
ÞINNI Á ÓVART,
KVEIKTU Á KERTUM,
SPILAÐU LJÚFA TÓNLIST,
ELDAÐU GÓÐAN MAT...
EN HVAÐ
Á ÉG AÐ
GERA VIÐ
KRAKKANA?
ÉG ER SÉR-
FRÆÐINGUR Í RÓMAN-
TÍK EN ÞÚ ÞARFT AÐ
FARA EITTHVAÐ
ANNAÐ TIL AÐ FÁ RÁÐ
VARÐANDI KRAKKA
HEIMA HJÁ PARKERHJÓNUNUM EINN MORGUNINN...
MÉR ÞYKIR LEITT AÐ ÞÚ
SKILDIR SJÁ ÞETTA
SAMA HÉR...
KANNSKI ÞARF
NEW YORK Á MÉR
AÐ HALDA
EN SABRETOOTH
GÆTI SETIÐ FYRIR ÞÉR
IRON M
AN
BJARG
AR RIS
AEÐLU
-
HAUSK
ÚPU Í
NEW Y
ORK
Strunsarar í
gönguferð
Hefurðu farið eitt-
hvað? spurði ég
kunningja minn.
Hvað meinarðu, í
fjallaloftið? Jú, það
er það, sem sameinar
okkur, áhugi á slíkum
ferðum. Hann hafði
þá reyndar farið ný-
lega með ferðafélagi
daglanga göngu nið-
ur með miklu ár-
gljúfri og niður í
byggð. Ég vildi heyra
meira og minntist
með ánægju göngu
sömu leið fyrir allmörgum árum.
Þessi ganga var ekki eins ánægju-
leg. Þarna voru strunsarar, sagði
hann. Ég hafði ekki heyrt orðið. Í
upphafi sammæltust menn um að
njóta ferðarinnar með því að halda
hópinn, æja og líta niður í gljúfrið.
Þegar til kom strunsuðu samt all-
margir, voru á kappgöngu, og
teygðist mjög úr hópnum. Þarf
ekki að lýsa því hvernig andinn í
ferðinni verður þá. Svona eru Ís-
lendingar, sagði kunninginn og
fannst ekki meira um það að segja.
Það getur verið að Íslendingar séu
svona en þeir voru ekki alveg
svona. Reyndar hefur viljað brenna
við í gönguferðum,
þegar áð er, að hóp-
urinn rís á fætur til að
halda áfram um það
bil, sem sá síðasti er
nýsestur, þótt ekki
séu strunsarar með.
Það er eins og struns-
ararnir séu í ræktinni.
Í þetta sinn gafst einn
upp. Björgunarsveit
sótti hann og þurfti að
bíða eftir honum í
klukkutíma á bens-
ínstöð. Eitt sinn
þurfti ég að dveljast
nokkra mánuði í
Stokkhólmi vegna
vinnu. Í dagblöðunum
þar var tilkynnt gönguferðir um
skógana á sunnudagsmorgnum.
Þær stóðu fram eftir degi. Ég fór
nokkrum sinnum. Þær voru vel
skipulagðar fyrir ókunnuga. Far-
arstjóri gerði í upphafi grein fyrir
því, sem til stóð, og hélt það, og
enginn var látinn heltast úr lest-
inni. Fararstjórar þurftu ekki að
stríða við strunsara. Ég finn til
með stillta göngufólkinu og far-
arstjórum, sem þurfa að eiga við
strunsara og því skrifa ég þetta.
Björn S. Stefánsson.
Ást er…
… eins og freyðandi
kampavín.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa og myndlist
kl. 9, bingó kl. 13.30.
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Bingó kl. 13.30.
Boðinn | Vatnsleikfimi kl. 9.15 (lokaður
hópur). Félagsvist/paravist hefst í dag
kl. 13.30, hún verður annan hvern föstu-
dag, línudans byrjar 23. sept.
Bólstaðarhlíð 43 | Handavinna, kaffi/
dagblöð.
Dalbraut 18-20 | Söngstund kl. 14, um-
sjón Lýður Benediktsson.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist FEBK spiluð í Félagsh.Gullsmára
á mán. kl. 20.30 og Félagsheimilinu Gjá-
bakka á miðvikudögum kl. 13 og fös. kl.
20.30. Félagsvist í Félagsheimilinu Boð-
anum kl. 13.30. Bingó í Gullsmára kl.
13.30. Skvettuball verður í félagsheim-
ilinu Gullsmára 13 laugard. 10. sept. kl.
20. Þorvaldur Halldórsson leikur fyrir
dansi. Aðgangur 1.000 kr.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur sunnudagskvöld kl. 20-23, Klassík
leikur fyrir dansi.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.30, málm- og silfursmíði kl. 9.30/13,
jóga kl. 10.50, félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður og jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, leik-
fimi kl. 10.30. Bingó kl. 13.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9/11, félagsvist kl. 13,
kynning á aðventuferðum til Kaup-
mannahafnar kl. 14, Jónshús opið kl.
9.30-16.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Skólabraut: Kaffispjall í krók kl.
10.30, jóga kl. 11, spil kl. 13.30. Syngjum
saman í salnum kl. 14.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, prjónakaffi. Stafganga kl. 10.30, frá
hádegi er spilasalur opinn. Mán. 12. sept.
kl. 13.30 er fundur hjá Gerðuberg-
skórnum, nýir félagar velkomnir.
Hraunsel | Leikfimi Bjarkarhúsi kl.
11.30, brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Opnað kl. 8. Böðun
fyrir hádegi, hádegisverður, miðdags-
kaffi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50.
Gangan Gönuhlaup kl. 9. Thachi kl. 9.
Listasmiðja kl. 9. Myndlist kl. 13. Gáfu-
mannakaffi kl. 15. Hæðargarðsbíó kl. 16.
Handavinnuhorn kl. 9 og prjónahorn kl.
13. nk. mánudag.
Norðurbrún 1 | Myndlist kl. 12. Út-
skurður kl. 9. Bingó í dag kl. 14.
Vesturgata 7 | Enska kl. 10.15. Hádeg-
isverður kl. 11.30, sungið v/flygil kl.
13.30. Dansað kl. 14.30. Veislukaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Ferð um
Suðurland fim. 15. sept kl. 13, fararstjóri.
Safnið Tré og list verður skoðað og kaffi-
hlaðborð í Hafinu bláa, uppl. og skrán. í
síma 4119450.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja. Leir-
mótun/handavinnustofa kl. 9. Morg-
unstund kl. 9.30, bingó kl. 13.30. Leitum
að píanóleikara til að spila einu sinni í
viku undir fjöldasöng, uppl. í s. 411 9450
og 822 3028.
Dómstóll í Nice í Frakklandidæmdi eiginkonu 51 árs karl-
manns skaðabætur upp á 10.000
evrur eða um 1,6 milljónir króna,
samkvæmt fréttum Mbl.is. Bæt-
urnar sem konan krafðist voru fyrir
„skort á kynlífi í 21 árs hjónabandi“.
Sigrún Haraldsdóttir orti um þetta.
Mikið þætti mér það ljótt
með þetta að spauga,
sjálfsagt er að sekta fljótt
svona letihauga.
En yrkisefnin eru fleiri. Hryss-
ingslegt veður í gær varð Sigrúnu
tilefni að vísu:
Fölna rósir, frjósa ber,
framundan er kalsahríð,
ó, hve ég sé eftir þér
yndislega sumartíð.
Friðrik Steingrímsson svaraði:
Bítur kuldinn, birtan dvín,
blíðu frá er snúið.
Svon’er lífið, Sigrún mín,
sumarið er búið.
Þá Sigrún:
Brátt mun Kári að kveða sínar
kuldalegu aríur
og ég fer að fara í mínar
fínu ullarnaríur.
Pétri Stefánssyni líst vel á að
klæða veðrið af sér:
Er í vetur á mig ræðst
illur hríðarfjandi,
gott er þá að geta klæðst
góðu föðurlandi.
Sigrún klykkir út með:
Annað kemur ei til greina
elskulegi Pétur
en þrjóskast áfram, þrauka og reyna
að þola nýjan vetur.
Pétur klykkir út með:
Þó að frysti og fari að hríða,
fjúki í skafla og ýfi sæ,
vetrinum þarftu vart að kvíða,
það vorar aftur strax í maí.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af skorti á kynlífi